Morgunblaðið - 02.07.2013, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Trekking
(Petrol og Khaki)
Kuldaþol -20
Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm
Þyngd 190/1,70 kg og 175/1,65 kg
Verð kr. 13.995,-
Tjaldasalur - verið velkomin
Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu
tjöld
Savana Junior
(blár og rauður)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 150 cm
Þyngd 0,95 kg
VERÐ 11.995,-
Savana
(blár)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 195cm
Þyngd 1,45 kg
Verð kr. 13.995,-
Micra
(grænn og blár)
Kuldaþol -14°C
Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm
Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg
Verð kr. 16.995,-
Stakir stólar
kr. 5.995.-
Stök borð
kr. 5.995.-
FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS
Eldhúsborð
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Útsölustaðir: Bústoð Keflavík, Bjarg Akranesi www.facebook.com/solohusgogn
Máni
Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum
stálkanti og harðplastlagðri plötu.
Stærð og litur að eigin vali.
Verð frá kr. 85.000
E-60
Eldhússtóll
Flogið hefur fyrir,
að íslenska þjóðin,
320 þúsund manns,
hafi á sínum snærum
í kringum 70 þúsund
opinbera starfsmenn í
það heila tekið. Kunn-
ugir reikna út að það
séu um 42% af vinnu-
markaðnum. Margur
gæti haldið að landið
mundi ekki sporðreisast þó fækkað
yrði nokkuð í þessari vösku sveit.
Nota svo þá fjármuni sem þannig
mundu sparast á einhvern skyn-
samlegan hátt. Þess er að minnast
að eitt sinn sögðu sjálfstæðismenn:
Báknið burt. Þessu eru allir löngu
búnir að gleyma. Báknið umrædda
er löngu vaxið okkur yfir höfuð.
Það hefur tútnað út eins og púkinn
á fjósbitanum. Þetta vita allir
menn, góði, eins og séra Baldur
mundi segja.
Þegar nýr meirihluti tók við í
Árborg árið 2010 stefndi í tækni-
legt gjaldþrot sveitarfélagsins og
að það tæki fjölmörg ár að snúa við
viðvarandi hallarekstri. Það hefur
aftur á móti tekist á örfáum árum
og í dag hafa skuldir sveitarfé-
lagsins verið lækkaðar töluvert.
Þetta sagði Eyþór Arnalds, for-
maður bæjarráðs Árborgar, í þætt-
inum Viðskipti með Sigurði Má á
mbl.is um daginn. Það er þjóð-
arnauðsyn að vekja athygli á þessu
viðtali.
„Samkvæmt þriggja ára áætlun
sem var lögð fram árið 2009 þá
stefndi í að eigið fé yrði neikvætt,
tæknilegt gjaldþrot, og það var við-
varandi halli á sveitarfélaginu sem
ekki var talið að snúið yrði við fyrr
en eftir mörg, mörg ár. En okkur
tókst að snúa þessu við á skemmri
tíma en við höfðum þorað að vona
og höfum skilað afgangi árin 2010-
2012,“ segir Eyþór.
Hann telur að lykillinn að þess-
um árangri hafi verið að byrja á
sjálfum sér, en stjórnunarstöður
hjá sveitarfélaginu voru skornar
niður um helming. Þannig hafi boð-
leiðir styst og stjórnkerfið verið
minnkað um eitt lag.
„Við vorum með stóra hljómsveit
og allskonar stöður, en við fækk-
uðum þessu niður í bassa, hljóm-
borð og gítar,“ segir hann. Þessa
skemmtilegu samlíkingu Eyþórs
Arnalds má vel yfirfæra á Báknið
okkar í heild. Að vera að burðast
með 70 þúsund manna dixieland-
hljómsveit til að þjóna okkar litlu
þjóð hlýtur að vera einum of mikið
hvernig sem á er litið. En því mið-
ur. Fátt bendir til annars en þetta
Big band sé komið til að vera.
Enda erum við sjálfsagt tæknilega
gjaldþrota. En hvert eiga þá hljóð-
færaleikararnir sem ofaukið er í
bandinu að fara? Þeir eiga bara að
stofna sína eigin hljómsveit, mundi
sveitamaðurinn segja. Og fara að
framleiða til útflutnings með hvatn-
ingu og stuðningi þess opinbera.
Parkinson heitinn mundi örugglega
taka undir það.
Þjóðarnauðsyn að
fækka í hljómsveitinni
Eftir Hallgrím
Sveinsson og
Bjarna Georg
Einarsson
Hallgrímur
Sveinsson
»Eitt sinn sögðu sjálf-
stæðismenn: Báknið
burt. Þessu eru allir
löngu búnir að gleyma.
Báknið umrædda er
löngu vaxið okkur yfir
höfuð.
Hallgrímur er bókaútgefandi og létta-
drengur á Brekku í Dýrafirði og
Bjarni er fyrrum útgerðarstjóri og
núverandi ellilífeyrisþegi á Þingeyri.
Bjarni Georg
Einarsson
Í okkur öllum blund-
ar einhvers konar góð-
ilmur. Það er reyndar
kannski svolítið mis-
djúpt á honum. En
hann er þarna og er
þess albúinn að vera
kallaður fram og rækt-
aður.
Vektu ilminn sem í
þér blundar endilega
upp og nærðu hann svo
hann fái að njóta sín. Svo angan
hans fái smogið um
umhverfi þitt og fyllt
loftið kærleika og
gleði. Til að svo megi
verða er gott ráð að
anda að sér þeim
anda lífsins sem okk-
ur hefur verið blás-
inn í brjóst. Þeim
lífsins anda sem við
skiljum ekki en höf-
um meðtekið og þeg-
ið og hvílum í. And-
anum sem getur
viðhaldið lífinu um
eilífð. Öndum því daglega að okkur
þeim lífsins anda svo ilmurinn hald-
ist við, dofni ekki, fjari út eða
kafni.
Ilmur sem smýgur
Andi lífsins er ekki öfgar og
hann þrengir sér ekki inn. Hann er
öllu heldur eins og ilmur sem
smýgur inn og fyllir hjörtu okkar
af himnesku súrefni og tæru lífi.
Heilögum anda lífsins sem fylgir
ólýsanleg von, ómetanlegur kær-
leikur og óskiljanlegur friður.
Andi friðar sem fylgir fyrirgefn-
ing, auðmýkt og virðing fyrir Guði,
fólki og náttúrunni. Við erum að
tala um andann sem færir okkur
lífið. Lífið sem enginn og ekkert
megnar frá okkur að taka. Ekki
einu sinni sjálfur dauðinn.
Að rækta garðinn sinn
Veistu að höfundur og fullkomn-
ari lífsins vill fá að planta blessun
sinni í garðinum þínum. Hann vill
að hún fái að þroskast þar og nær-
ast, vaxa upp, dafna, springa út og
njóta sín.
Því er svo mikilvægt að rækta
garðinn sinn, hugsa um hann og
halda honum við. Vökva hann
reglulega og muna eftir að reyta
arfann. Það er mjög mikilvægt svo
blessunin kafni ekki í illgresi sök-
um hirðuleysis.
Eins og sáðkorn
Láttu því friðinn úr hjarta þínu
spretta sem ilmandi blóm svo hann
verði að angan sem smýgur og
fyllir loftið af kærleika.
Þannig og aðeins þannig berum
við þann ávöxt sem okkur er ætlað
að gera. Vera til blessunar í um-
hverfi okkar, sjálfum okkur til
heilla og höfundi og fullkomnara
lífsins til dýrðar. Í augum hans er-
um við nefnilega eins og sáðkorn.
Hvorki meira né minna. Sáðkorn
sem ætlað er að bera ávöxt. Spurn-
ingin er síðan hvort við föllum hjá
götunni eða í grýtta jörð? Munum
við visna eða skrælna sökum þess
að við náum aldrei að skjóta rót-
um? Föllum við kannski meðal
þyrna og köfnum? Eða föllum við í
góða jörð og berum margfaldan
ávöxt eins og okkur var ætlað að
gera? Um það höfum við sjálf heil-
mikið að segja. Það er nefnilega að
miklu leyti val. Spurning um hug-
arfar og lífsafstöðu.
Gleymum ekki að reyta arfann
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Það er mikilvægt að
rækta garðinn sinn,
muna eftir að vökva og
gleyma ekki að reyta
arfann svo blessunin
kafni ekki í illgresi
sökum hirðuleysis.
Sigurbjörn Þorkelsson.
Höfundur er ljóðskáld og
rithöfundur.