Morgunblaðið - 02.07.2013, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
✝ Helgi MárArthursson
fæddist á Ísafirði
19. febrúar 1951.
Hann lést á hjarta-
lækningadeild
Landspítalans 14.
júní 2013.
Helgi Már var
sonur Arthurs
Gestssonar, f. 12.
janúar 1927, d. 6.
september 2009 og
Önnu Maríu Helgadóttur, f. 15.
september 1927. Systkini hans
eru Elín Alma, f. 21. febrúar
1956 og Erlingur, f. 20. febrúar
1961.
Eftirlifandi eiginkona Helga
Más er Sigríður Árnadóttir, f.
24. maí 1960. Börn þeirra eru
Gunnar Arthúr Helgason, f. 23.
janúar 1994 og Elín Þóra Helga-
dóttir, f. 26. júlí 1996. Helgi Már
átti fyrir þrjár dætur. Önnu Mar-
íu Helgadóttur, f. 1. nóvember
1971. Hún á dæturnar Rakel
þýðublaðinu og vikublaðinu
Nýju landi 1980 og 1981, sá um
útgáfu, fræðslu- og upplýsinga-
mál fyrir BSRB 1982-1986 og
var ritstjóri BSRB tíðinda. Hann
var blaðamaður og ritstjóri á
Helgarpóstinum til 1988. Helgi
Már var eftir það fréttamaður á
Stöð 2 og síðar í Sjónvarpinu,
þar sem hann var meðal annars
þingfréttamaður. Hann hvarf til
starfa í heilbrigðisráðuneytinu
árið 1998 og var upplýsinga-
fulltrúi og síðar skrifstofustjóri
þar til ársloka 2010 þegar vel-
ferðarráðuneytið var stofnað.
Hann sat í stjórn Blaðamanna-
félags Íslands um árabil. Helgi
Már hafði brennandi áhuga á
þjóðfélagsmálum, sögu, ætt-
fræði, bókmenntum og atburð-
um líðandi stundar. Æskustöðv-
arnar fyrir vestan voru honum
afar kærar og saga forfeðra
hans og -mæðra var honum
ávallt hugleikin. Hann var alla
tíð mikill áhugamaður um ljós-
myndun og eftir hann liggja þús-
undir mynda. Helgi Már var rit-
fær og nýttist það vel í störfum
hans.
Helgi Már Arthursson verður
jarðsunginn frá Neskirkju í dag,
2. júlí 2013, kl. 13.
Gunhild og Sölku
Rigmor með Boris
Schiøler. Móðir
Önnu Maríu er
Brynja Birgisdóttir.
Rebekku Andrínu-
dóttur Humphris, f.
26. janúar 1981,
maki hennar er
Christopher David
Humphris. Söru
Andrínudóttur, f.
14. apríl 1983. Maki
hennar er Rasmus Poulsen, dótt-
ir þeirra er Petra Rebekka Ras-
musardóttir. Móðir þeirra Re-
bekku og Söru er Andrína G.
Jónsdóttir.
Helgi Már ólst upp á Ísafirði,
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1971
og nam sálar- og bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands og
Kaupmannahafnarháskóla frá
1971-1978. Hann var kennari við
Menntaskólann á Ísafirði 1978-
1980. Hann var blaðamaður á Al-
Birtu bregður
bróðurmissir.
Minningar merla
margt á hugann sækir
fátt verður sem fyrr.
(S. Stef.)
Ótal myndir líða hjá. Lítil
stúlka horfir aðdáunaraugum
upp til stóra bróður síns. Hann í
jakkafötum, dökkhærður og
brúneygður. Hún ljós á brún og
brá. Hann tyllir fingri undir
höku systur sinnar og blíðan skín
úr fallegu augunum. Margar og
góðar minningar. Frá uppvaxt-
arárunum í faðmi fjallanna á Ísa-
firði sem við unnum bæði. Frá
Hafnarstræti við Silfurtorg upp
að fjallsrótum á Hlíðarvegi, í
Danmörku og í höfuðborginni.
Hann var skarpur, fallegur,
skemmtilegur, heiðarlegur,
stríðinn, réttsýnn, hafði frásagn-
argáfu, vissi og var áhugasamur
um margt og var jafnrétti í blóð
borið. Hann var ágætur íþrótta-
maður og stundaði bæði skíði og
spilaði fótbolta. Hann hafði líka
mikinn sannfæringarkraft. Gat
meira að segja oft sannfært mig
um að bursta skítuga fótboltas-
kóna sína, aftur og aftur, fyrir
ekkert kaup. Nema þá bros og
gleðina yfir að eiga flottasta
bróðurinn á fótboltavellinum.
Fyrir hans tilstilli fékkst nasa-
sjón af Bítlaæðinu. Hann fékk
stofuna heima fyrir sig þegar
Lög unga fólksins hljómuðu á
öldum ljósvakans. Aldrei gleym-
ast loftköstin þegar þekkt apr-
ílgabb um að Bítlarnir væru á
leið á Loftleiðahótelið hljómaði í
útvarpinu. Hann var algjörlega
frá sér numinn og átti þá einu
ósk á þeirri stundu að vera
staddur sunnan heiða.
Bróðir minn var líka oft
skjótráður. Það átti t.d. við þeg-
ar kjötbiti stóð í móður okkar og
pabbi á sjó. Ekkert gekk að losa
bitann og stefndi í óefni. Þá
hringdi hann á miðstöð og bað
um samband við lækni. Í þann
mund sem læknirinn svaraði þá
hrökk bitinn upp. Fumlaust
sagði hann þá; afsakið vitlaust
númer. Hann sýndi líka ótrúlega
útsjónarsemi við að næla sér í
jólasmákökurnar, jafnvel þótt
boxin væru límd aftur, enda
súkkulaðigrís.
Ég veit að hann þótti góður
kennari og hann uppfræddi mig
um ýmislegt í gegnum tíðina. Á
árum áður var það bæði bók-
menntaleg uppfræðsla og póli-
tísk, að ógleymdri ættfræðinni.
Hann var vel lesinn og hugsaði
margt. Gaf mér hljómplötu með
upplestri Þórbergs Þórðarsonar
og frá Kóngsins Köben barst
Kvennafræðarinn vestur á firði.
Fór meira að segja með systur
sína í skoðunarferð í Istedgade
1975 þegar sú gata var og hét.
Hún reyndist ekki lík götunum
heima á Ísó.
Hann hafði gott vald á tungu-
málinu og auga fyrir ýmsum
hliðum tilverunnar og hefði
gjarnan mátt skrifa meira til
birtingar. Við skröfuðum margt
saman á fullorðinsárum, um lífið
og tilveruna og samfélagið frá
öllum hliðum. Vorum sammála
um að ekkert væri fallegt við fá-
tæktina. Bárum margar mikil-
vægar ákvarðanir hvort undir
annað og hann spurði réttu
spurninganna. Þannig áttum við
mörg samtöl sem aldrei fóru
nema á milli tveggja. Eitt símtal
gleymist aldrei öðrum fremur og
það var þegar hann tilkynnti mér
að nafna mín væri fædd. Þá var
gaman.
Þótt stundum gæfi á bátinn
hélt hann sjó með Siggu sér við
hlið. Hún var hans mesta gæfa.
Þótt heilsan hefði mátt vera betri
hin síðari ár varð hann aldrei
„sjúklingur“. Hvernig þau tóku
saman á þeim málum er bæði til
eftirbreytni og aðdáunarvert.
Allt fram á síðustu stund. Hug-
urinn reikar – fátt verður sem
fyrr.
Elín Alma Arthursdóttir.
Sigga systir mín kynntist
Helga Má haustið 1985. Hún var
þá flutt að heiman en ég var enn í
foreldrahúsum. Eitt kvöld í októ-
ber bauð hún mér í mat þar sem
pabbi og mamma voru stödd í út-
löndum. Hún var ólík sjálfri sér
þetta kvöld og áður en ég fór
heim hafði mér tekist að draga
upp úr henni að hún hefði hitt
mann stuttu áður og sá hafði
greinilega fengið hjarta hennar
til að slá örar. Fréttaflutningur
af þessu sambandi var þó í al-
gjöru lágmarki næstu vikurnar
og ekki var í boði að hitta mann-
inn. Á þessum tíma vann hún við
morgunþátt Útvarpsins og þurfti
því að fara eldsnemma á fætur.
Kærastinn var greinilega alveg
sérstakur því hann lét sig ekki
muna um að vakna með henni
hvern einasta morgun og útbúa
dýrindismorgunverð. Ég hitti
Helga fyrst rétt fyrir jólin sama
ár og kunni strax ljómandi vel
við hann. Fljótlega kom að því að
mér fyndist hann alltaf hafa ver-
ið í fjölskyldunni. Grunnur var
lagður að vináttu sem aldrei bar
skugga á.
Það var gleðidagur þegar
Sigga og Helgi gengu í hjóna-
band í Tjarnarkirkju í Svarfað-
ardal í ágúst 1993. Ekki var síður
gleðilegt þegar börnin þeirra
tvö, Gunnar Arthúr og Elín
Þóra, fæddust. Sú ótrúlega til-
viljun að við systurnar skyldum
eignast börn af sama kyni á nán-
ast sama tíma í tvígang gerði það
að verkum að samgangur fjöl-
skyldna okkar var enn meiri en
annars hefði orðið. Margar
minningar eru tengdar ballett-
sýningum og fótboltamótum.
Helgi, sem var frábær ljósmynd-
ari, festi oft skemmtileg atvik á
filmu í tengslum við þessa at-
burði. Daginn eftir var oftar en
ekki komin myndasending frá
Helga í tölvupósti. Í júní 2004
vorum við öll stödd í Vestmanna-
eyjum í tilefni af Pollamótinu þar
sem Gunnar Arthúr og Birgir
Örn voru meðal þátttakenda.
Veðrið gat varla verið verra, úr-
hellisrigning og 27 m/s á Stór-
höfða. Við vorum svo heppin að
geta gist inni, öll í einu rými, og
vorum meira að segja með sjón-
varp! Við sátum eitt kvöldið og
horfðum á EM í fótbolta. Leik-
urinn var æsispennandi og end-
aði í vítaspyrnukeppni. Helgi var
mjög áhugasamur, enda sjálfur
liðtækur knattspyrnumaður á
árum áður.
Hann tilkynnti okkur fyrir-
fram hvort viðkomandi leikmað-
ur myndi skora eða brenna af og
reyndist sannspár. Við hlógum
mikið að þessu.
Áramótaveislan hjá Helga og
Siggu á Kaplaskjólsveginum var
eins fastur liður og áramótin
sjálf. Helgi var fremstur í flokki
þegar kom að því að skjóta upp
flugeldum, börnunum til
ómældrar ánægju.
Helgi var vel inni í nánast öll-
um málum og það var ótrúlega
gaman að ræða við hann. Hann
var algjör sérfræðingur í öllu
sem tengdist tölvum og hjálpaði
mörgum í fjölskyldunni með þau
mál. Hann var einnig húmoristi
fram í fingurgóma og hafa bæði
Gunnar Arthúr og Elín Þóra erft
þann eiginleika.
Ég var stödd á Ísafirði,
heimabæ Helga, síðasta daginn
sem hann lifði. Sólin braust fram
úr þokunni og náttúran skartaði
sínu fegursta. Helga er sárt
saknað. Það er bjart yfir minn-
ingunni um hann.
Auður Þóra Árnadóttir.
„Blessuð. How is life?“ Þannig
hófust oft símtölin. Alltaf áhuga-
samur. Alltaf að fylgjast með.
Alltaf styðjandi. Betri móður-
bróður hefði ég ekki getað átt.
Svo miklu meira en bara frændi.
Það er margs að minnast.
Sagnanna sem þú skrifaðir fyrir
mig um krókódílana Kalla og
Palla sem bjuggu í læknum við
bústaðinn hjá ömmu og afa inni í
Skógi á Ísó. Kajakferðar í Vatns-
firði þar sem þú endaðir á bóla-
kafi í sjónum og mamma ætlaði
að æða út í að bjarga þér. Ferð-
arinnar sem ég fór með ykkur
Köplunum til Flórída fyrir
nokkrum árum þar sem við átt-
um svo góðar og eftirminnilegar
stundir. Þú varst í essinu þínu í
búðunum og með bros á vör
keyptirðu meðal annars flíkur
með áletruninni „Old guys rule“.
Þú varst flottasti frændinn í
sjónvarpinu. Á yngri árum lang-
aði mig að verða fréttamaður,
eins og þú.
Ég fékk að fara með þér að út-
rétta þegar Gunnar Arthúr var
nýfæddur. Ég, 10 ára, sat í aft-
ursætinu og ég sé enn fyrir mér
hvernig þú leist með stríðnis-
glampa í brúnu augunum í bak-
sýnisspegilinn á miðjum Grens-
ásveginum og spurðir hvernig
mér litist á nafnið Sakarías. Það
varð fátt um svör frá mér á því
augnabliki en ég viðraði „áhyggj-
ur“ mínar síðar við mömmu og
taldi geta orðið vandræðalegt að
segja við vinkonurnar að ég væri
að fara að passa barn með þessu
nafni. En það var þó alveg ljóst
að þennan litla frænda ætlaði ég
sko að passa. Og ég átti eftir að
passa Gunna og Elínu Þóru, sem
bættist í hópinn við mikla gleði
tveimur og hálfu ári síðar, oft og
tíðum.
Á milli okkar þriggja er sterk-
ur strengur, mikil væntumþykja
og vinátta. Ég lofa þér því, að ég
mun styðja þau og styrkja af öll-
um mætti á þessum erfiðu tímum
og þegar fram líða stundir. Við
munum alltaf verða þrenning.
Ég er svo þakklát fyrir síðasta
skiptið sem ég talaði við þig. Þá
hringdum við Ella til að lýsa fyr-
ir þér ógleymanlegum Muse-tón-
leikum í Boston. Þú varst svo
glaður að heyra af tónleikunum
og heyra af ferðum okkar um
borgina – sem þér fannst svo
skemmtileg og hafðir tekið af
skarið með að þau kæmu út til
mín. Hálfum mánuði síðar fórstu
á spítalann. Í þetta skiptið átt-
irðu ekki afturkvæmt.
Það hefur stórt skarð verið
höggvið í fjölskylduna. Ég er
óskaplega þakklát fyrir allar
stundirnar og sérstaklega það að
þú skyldir lifa hjartaáfallið af ár-
ið 1997. Þá hefði sannarlega get-
að farið illa.
Elsku uppáhaldsfrændinn
minn. Þín verður sárt saknað. Ég
vona að þú sért búinn að hitta
alla forfeðurna sem þú hafðir svo
mikinn áhuga á. Takk fyrir allt.
Þín
Agnes Gísladóttir.
Helgi Már Arthursson er fall-
inn frá. Hann kvaddi allt of fljótt.
Við tengdumst fjölskyldubönd-
um þar sem við Sigríður, konan
hans, erum systrabörn. Utan
fjölskyldunnar áttum við Helgi
mikil samskipti þegar hann
starfaði sem fjölmiðlafulltrúi í
heilbrigðisráðuneytinu. Við unn-
um á sama starfsvettvangi og
var gott að leita til hans varðandi
hin ýmsu mál og hafði hann ótrú-
lega góða yfirsýn yfir þjóðfélags-
mál og stöðuna á hinum pólitíska
vettvangi. Við áttum ófáar
stundir saman þar sem spjallað
var um nýjustu fréttir jafnt sem
um hið daglega líf. Það var
greinilegt að Helgi naut mikillar
virðingar meðal samstarfsmanna
sinna. Ekki síst hjá þeim sem
hann vann fyrir. Starf fjölmiðla-
fulltrúa krefst mikillar yfirsýnar
og oft skjótra úrræða. Þar var
Helgi á heimavelli þar sem hann
á sinn rólega og yfirvegaða hátt
var ávallt með rétt stöðumat á
erfiðum úrlausnarefnum. Þekk-
ing hans á umhverfi fjölmiðla og
á stjórnkerfinu var mikil. Það
var alltaf hægt að fá góð ráð hjá
Helga og minnist ég margra
funda þar sem hann lagði fram
lausnir sem engum öðrum hafði
dottið í hug. Þannig var Helgi.
Hafi hann þökk fyrir.
Þegar við hittumst síðast hafði
hann nýlega jafnað sig eftir áfall.
Ekki var annað að sjá en að hann
væri líkur sjálfum sér. Spjallið
var gott. Þetta var okkar síðasti
fundur.
Elsku Sigga, Elín Þóra og
Gunnar Arthúr, minning Helga
mun lifa áfram og sendum við
ykkur innilegar samúðarkveðj-
ur.
Magnús Heimisson
og fjölskylda.
Ég kynntist Helga Má fyrst
þegar hann ásamt fleiri Ísfirð-
ingum settist í fjórða bekk MA
haustið 1968 eftir að hafa tekið
þriðja bekk veturinn áður á Ísa-
firði. Við vorum í sama fjórða
bekknum, bjuggum á Hótel
Varðborg sem var heimavist og
vorum mikið saman fyrir utan
skólatímann. Helgi útvegaði
okkur svo sitthvort herbergið
tvo síðustu veturna fyrir norðan
hjá Helgu og Pétri í Þórunnar-
strætinu. Það gekk á ýmsu á
þessum árum, mikill órói í skól-
anum, Víetnamstríðið í gangi og
margt fleira mætti tína til. Helgi
hafði þá þegar mjög ákveðnar
stjórnmálaskoðanir og lífsskoð-
anir sem var jafnaðarmennska
og réttlætiskennd sem ég held að
hafi ekki mikið breyst í gegnum
tíðina. En þarna eignaðist ég
trúnaðarvin og vináttan bara
styrktist með árunum. Stundum
skildi leiðir vegna náms eða
vinnu en sambandið rofnaði aldr-
ei.
Ekki veit ég hvað hann hugs-
aði þegar hann hóf nám í sálar-
fræði en ég held að hann hafi
frekar nálgast sinn heimavöll
þegar hann stundaði nám í bók-
menntum o.fl. í Kaupmannahöfn
en í sálfræðináminu. Eftir
kennslu í Menntaskólanum á
Ísafirði lá leið hans í blaða-
mennskuna. Þá fann maður strax
að hann hafði fundið sitt svið.
Sama má segja þegar hann starf-
aði á fréttastofu RÚV og frétta-
stofu Stöðvar 2 og einnig sem
upplýsingafulltrúi heilbrigðis-
ráðuneytisins.
Fyrir mörgum árum boðaði ég
Helga og tvo aðra vini úr MA frá
Ólafsfirði þá Guðmund Ólafsson
leikara með meiru og Friðrik G.
Olgeirsson sagnfræðing og rit-
höfund í gönguferð á laugar-
dagsmorgni með kaffi og sérbök-
uðu vínarbrauði í bakaríi á eftir.
Þetta varð síðan fastur liður
flesta laugardagsmorgna eða á
öðrum tíma ef sá tími gekk ekki
upp og alltaf gengið útfrá bak-
aríum og endað með Café Latte
og sérbökuðu og stór og smá mál
tekin fyrir. Það sem tengdi okk-
ur alla svo vel saman voru sam-
eiginleg áhugamál eins og hvers
konar bókmenntir, saga, fjöl-
miðlar og stjórnmál, svipaðar
lífsskoðanir og að okkar mati
sérlega góður húmor innan hóps-
ins. Mikið var rætt um þau verk
sem voru í vinnslu hjá sagnfræð-
ingnum hverju sinni og þá kom
alltaf í ljós ótrúlegt minni og
kunnátta hjá Helga Má, sérstak-
lega er varðar stjórnmálasögu
landsins og embættismannakerf-
ið í gegnum tíðina. Þá var hann
líka í gegnum tengsl úr blaða-
mennskunni og við stjórnmála-
menn ýmsum hnútum kunnug-
um hvað var að gerast á bak við
tjöldin. Á sunnudagsmorgnum
beið oft tölvupóstur frá honum
þar sem hann hafði kannað nán-
ar það sem um var rætt og e.t.v.
þráttað um í hópnum daginn áð-
ur. Ég held að við vinir hans þrír
höfðum allir vonað að hann færi
að skrifa þegar hann var hættur
að vinna, t.d. um Ásgeirsversl-
unina á Ísafirði sem var mikið
áhugamál hans.
Það er sárt að sjá á eftir svo
góðum vin sem Helgi Már var en
missirinn er auðvitað mestur fyr-
ir Siggu og börnin og aðra ná-
komna ættingja sem við Adda
vottum öllum samúð okkar.
Víðir.
Helgi var sálfræðingur með
meiru, en ólíkt öðrum þá var
hann með samskiptakortið í lagi,
svo maður tali nú eins og tölvu-
karl.
Ég og fjölskylda mín bjuggum
á stúdentagarðinum Solbakken í
Kaupmannahöfn árin 1971-1973
og kynntumst náið Helga og
hans fjölskyldu. Við vorum báðir
á sjöundu hæð í íbúðum B og A.
Rædd voru ýmis mál, þar á með-
al um sálfræðileg og hugmynda-
fræðileg efni. Hæg hvíld fyrir
mig frá hinum endalausu út-
reikningum og fyrirhyggju sem
verkfræðin elur af sér.
Í bakgrunni var Kaupmanna-
höfn, hin iðandi stórborg Íslend-
inga með tilheyrandi lífi og
freistingum. Helsta verslunar-
gatan var Istedgade. Hipparnir
á fullu.
Á þessum árum voru tölvur að
koma inn í alla útreikninga og
tók undirritaður þátt í þeim leik
að fullu. En ótal smáir hlutir,
sem tengjast daglegu lífi, voru
jafnan í gangi. Hvernig svo sem
það gerðist þá varð Helgi mikill
vinur og órjúfanlegur hluti af
mínu lífi á þessum árum og
þakka ég fyrir það.
Við skulum taka undir með
skáldinu Þresti J. Karlssyni:
Er trumbur loftsins óma
og elding ber á góma
en laufsins vindar líða hjá og hvína,
þá liðin tíð að dyrum ber
lyftir hatti og heilsar þér,
ég sendi þér, Helgi, sumarkveðju mína.
Ég vil líka kveðja þig, vinur,
með eftirfarandi valsi eftir
Björgu Elínu Finnsdóttur:
Húmar að kvöldi og haustar að,
hjarta þitt slær ekki lengur,
dreymi þig betur, dreymi þig vel,
dreymi þig allt er óskaðir þér,
dreymi þig vel,
dreymi þig vel,
dreymi þig betur og lengur.
Allt sem að áður óskaðir þér,
Alfaðir mun þér láta í té,
dreymi þig vel,
dreymi þig vel.
Skúli Jóhannsson.
Gamall félagi, samstarfsmað-
ur og vinur – Helgi Már Arth-
ursson – er látinn. Hann var einn
af þeim ungu Ísfirðingum sem
áttu eftir að setja svipmót á
stjórnmála- og félagslíf þjóðar-
innar. Foreldrar Helga Más, þau
Arthur Gestsson og Anna Helga-
dóttir, voru bæði tvö virtir og
gegnir borgarar í bænum. Arth-
ur fengsæll og farsæll sjómaður
og Anna virkur þátttakandi í fé-
lagslífinu – átti m.a. sæti í bæj-
arstjórn fyrir Alþýðuflokkinn.
Helgi Már
Arthursson