Morgunblaðið - 02.07.2013, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
Atvinnuauglýsingar
Grásteinn ehf. óskar eftir
verkamönnum
í skrúðgarðyrkjudeild fyrirtækisins og í
steinsmíðadeild einnig. Reynsla æskileg og
vinnuvélaréttindi. Umsóknir og ferilskrár
sendist á grasteinn@grasteinn.is
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Strandgata 13, fnr. 213-4160, Hvammstanga, þingl. eig. Kjartan
Sveinsson 50% eignarhl., gerðarbeiðendur Söfnunarsjóður lífeyris-
réttinda og Sýslumaðurinn Blönduósi, mánudaginn 8. júlí nk. kl.
15:00.
M/b. Auðbjörg HU-028, sk.nr. 1189, Skagaströnd, þingl. eig. Iska ehf.,
gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, fer hins vegar fram
mánudaginn 8. júlí nk., á skrifstofu sýslumannsins á Blönduósi,
Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
1. júlí 2013,
Björn Hrafnkelsson, ftr. sýslum.
Félagsstarf eldri borgara
!"
# $%
&
'
(
!! ) * *+& ,
!-./
"
(0 ( &
& 1 ( 2+
1* #3 1
( #
. ( # $
((
"
(0 ( !-./
' )0
&
"
(
0 (
"
#
$%&
3 %
"
#
$ #& ' 4'
3 3
! $
( 5*6
(
*+& 7
5 * +
(
)*) !"
(
0 89
(
# .0
' % 3
6 3 %
'
(+ ' : 8 3 0 + & '
3
(%
/
3 %
3 .6
& #3 6 & # 3
(
#
,- !
$ ;+ ( /6
< =
."/ ' !#
0 >
%< 3 %
7 %+
3
#
1 2 4
& /
% 8 3 (
( &
# 3 ( 3
:
&
"+
?(
( &
( * 3 %
*
&
%
Smáauglýsingar 569 1100
Dýrahald
Maltese-hvolpar til sölu
Við erum með 1 maltese-rakka til
sölu, hann fæddist 14.3. 2013, tilbú-
inn til afhendingar og með ættbók frá
HRFÍ. Nánari upplýsingar fást í síma
846 4221 eða með email:
laudia92@hotmail.com
Húsgögn
Til sölu, vegna flutnings, glæsi-
legt amerískt svefnherbergissett,
ljóst háglans, með speglum. Tvö
náttborð, tvöföld kommóða með
spegli, kommóða með skúffum og
hurðum og höfuðgafl með speglum,
King Size rúm. Verð aðeins 225 þús.
Ekki seldur hluti af settinu.
Sími: 898 4154.
Atvinnuhúsnæði
Vörulager og skrifstofur
Til leigu eitt eða fleiri skrifstofu-
herbergi ásamt vörulager með
innkeyrsludyrum í 104 Rvk.
Upplýsingar í síma 896 9629.
Sumarhús
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru
moltugerðarkassar
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ. S. 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Teg. 39077 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 37 - 40.
Verð: 15.885.
Teg. 2703 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litur brúnn og svartur.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 14.685.
Teg. 99512 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litir: svartur og brúnn.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 15.885.
.
Teg. 8745 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litir: brúnn og grár.
Stærðir: 36 - 40. Verð: 13.800.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18.
Lokað laugardaga í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þökum,
hreinsa veggjakrot
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Bílar aukahlutir
Fjarstýring fyrir bílskúrinn
Blikkaðu ljósunum tvisvar og
dyrnar opnast/lokast.
Orkuver ehf., sími 534 3435.
www.orkuver.isfasteignir
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
✝ Þuríður HildaHinriks, kölluð
Syja, fæddist í
Reykjavík 23. nóv-
ember 1921. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Grund 23.
júní 2013.
Móðir hennar
var Steinunn Björg
Hinriksdóttir, f.
16.2. 1896, d. 7.3.
1986. Fóstri henn-
ar var Sigurjón Jörundsson, f.
14.10. 1903, d. 20.2. 2000. Eft-
irlifandi hálfsystir hennar er
Jóna Gréta, látin eru Guð-
mundur Helgi og Sigrún.
Þuríður Hilda giftist hinn 20.
júlí 1941 Ingólfi Kristjánssyni,
rithöfundi og blaðamanni, f.
12.12. 1919, d.
27.3. 1974. Þau
eignuðust tvær
dætur: 1) Unnur
Björg, f. 5.7. 1942,
gift Daníel Axels-
syni, þau eiga fjög-
ur börn, Ingólf,
Kristrúnu Helgu,
Hildi og Önnu Mar-
íu. 2) Anna Þur-
íður, f. 25.7. 1946,
gift Magnúsi Þór
Hilmarssyni, þau eiga þrjá syni,
Jónbjörn (látinn), Hilmar og
Ingólf. Langömmubörnin eru
átján og langalangömmubörn
átta.
Þuríður Hilda (Syja) verður
jarðsungin frá Háteigskirkju í
dag, 2. júlí 2013, kl. 13.
Elsku Hilda mín, að skrifa
minningargrein um þig eftir 55
ára kynni væri mér alveg um
megn svo margar yrðu þær, eitt
veit ég að góðmennskan réttlætið
og heiðarleikinn er sú minning
sem er mér efst í huga, þín verður
sárt saknað. Mig langar að kveðja
þig með þessu fallega ljóði eftir
Þórunni Sigurðardóttur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Guð blessi þig og varðveiti.
Daníel Axelsson.
Ég margar góðar minningar
frá ömmu í Stórholti og hjá henni
leið mér alltaf vel.
Amma var alltaf svo góð við
alla, ég man aldrei eftir að hafa
séð hana reiða og hún vildi alltaf
allt fyrir mig og alla gera. Það var
alltaf eitthvert smágóðgæti á
boðstólum hjá henni og þegar
komið var að því að kveðja var oft
gaukað að manni „svona fyrir
einni bíóferð“. Það var alltaf
gaman að spjalla við ömmu,
hlusta á hana segja frá sínum
ungdómi og því hvernig hlutirnir
voru áður fyrr. Eins hafði hún
einlægan áhuga á því að heyra
hvað ég hafði fyrir stafni, hvort
sem það var skóli eða vinna.
Það er nú margt í þoku frá
bernskuárunum en ég man t.d. að
amma spilaði oft við mig Svarta
Pétur og reyndi að kenna mér að
drekka te. Hún rifjaði samt oft
upp að sér hefði þótt tedrykkju-
kennslustundin hafa farið í súg-
inn þegar hún einn daginn bauð
mér tesopa sem ég þáði en bara
með mjólk og sykri, það var að
hennar mati ósiður sem ég hafði
komið með að heiman.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku amma, takk fyrir sam-
fylgdina í næstum 38 ár. Ég trúi
því að nú sért þú komin á annan
og betri stað, stað þar sem þér
líður vel.
Þinn
Ingólfur Magnússon.
Hún langamma, eða amma
eins og hún var bara alltaf kölluð
af öllum, var alltaf svo glöð og
kát. Hún kenndi okkur margt og
mikið sem við getum nýtt í lífinu.
Maður fór aldrei svangur út úr
húsi frá ömmu. Hún sá alltaf um
það að maður borðaði vel og hollt.
Þó að maður segðist vera nýbú-
inn að borða kom hún alltaf með
eitthvað handa okkur og því var
ekki neitað. Hún amma var næst-
um önnur móðir pabba okkar, og
var hann mikið hjá henni og afa
Ingólfi þegar hann var ungur, og
hugsuðu þau vel um hann og að-
stoðuðu við að ala hann upp. En
svo þegar hún amma varð eldri
tók pabbi við og hugsaði um hana.
Pabbi og amma voru mjög náin,
og er missir hans mikill eins og
okkar.
Við vitum það að hann afi Ing-
ólfur tekur nú vel á móti þér, og
mun gæta þín vel. Við vitum að þú
ert nú glöð að hafa fengið að kom-
ast til hans og hitta hann á ný. Við
munum alltaf sakna þín elsku
amma. Við kveðjum þig með tár-
um og ljóði eftir hann afa Ingólf.
Gróin eru spor þín
og gata minninganna,
sem liggur um hjarta mitt.
Hemuð eru vötnin
á heiðum frammi
sem spegla augu þín.
Hrímguð eru sóllönd
sumarbjarta daga
– og dimm nótt þig hylur
(Ingólfur Kristjánsson)
Harpa Rut og Heiða Sóley
Ingólfsdætur.
Þuríður Hilda
Hinriks
HINSTA KVEÐJA
Elsku langamma, þú
varst yndisleg og góð. Við
vonum að þér líði vel þarna
uppi og að þú hittir vini,
fjölskyldu og ættingja.
Við söknum þín.
Þín
Ástrós Eva og Jónþór Atli.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið
Minningargreinar