Morgunblaðið - 02.07.2013, Page 26

Morgunblaðið - 02.07.2013, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 Við ætlum að fara saman nokkrir félagar í veiðiferð í tilefniaf afmælinu mínu,“ segir Eyjólfur Þorsteinsson, landsliðs-knapi og reiðkennari. Eyjólfur, sem er þrítugur í dag, er einn sterkasti reiðmaður landsins eins og fjölmargir Íslandsmeist- aratitlar segja til um og er hann einnig ríkjandi heimsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum. Hann segir afmælisdagana sína oftast hafa farið í hestamennsku. „Það eru oftast einhver mót í gangi á afmælisdaginn minn, þannig að ég næ oft ekki að halda sérstaklega upp á daginn. Ég er þannig séð ekkert sérstaklega mikið afmælisbarn.“ Eyjólfur æfir á fullu þessa dagana fyrir Íslandsmótið í hesta- íþróttum sem fram fer í Borgarnesi í næstu viku. Hann mun þó halda upp á afmælisdaginn sinn í þetta skiptið, enda stóramæli á ferðinni. Ætlar hann sér að taka sér dags frí frá stífum æfingum til þess að fara í veiðiferð með vinum sínum. „Við ætlum að skella okkur saman í veiði í Grímsá í Borgarfirði.“ Eftir Íslandsmótið er svo heimsmeistaramót í Berlín í ágúst þannig að ég ætla að njóta þessa eina frídags eins og ég get,“ segir Eyjólfur að lokum. bmo@mbl.is Eyjólfur Þorsteinsson er 30 ára í dag Fagnar afmæli með veiðiferð Landsliðsknapi Eyjólfur Þorsteinsson er einn sterkasti reiðmaður landsins og ríkjandi heimsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum. Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Hveragerði Hekla Maren Þráinsdóttir fæddist 15. maí kl. 7.13. Hún vó 3368 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Thelma Rún Runólfsdóttir og Þráinn Ómar Jónsson. Nýir borgarar A rnór fæddist á Sauðár- króki. Hann gekk í barnaskóla Staðar- hrepps í Skagafirði á Melsgili (1.-6. bekkur) og svo í Varmahlíðarskóla (7.-9. bekkur). Hann útskrifaðist af náttúrufræði- braut MH vorið 1983 og úr lagadeild HÍ vorið 1988. Nam við Kaup- mannahafnarháskóla veturinn 1990- 1991 (gestastúdent án sérstakrar prófgráðu í rekstrarhagfræðideild). Tók meistaragráðu frá London School of Economics í lögfræði haustið 1992. Vann við ýmis sveitastörf á búi for- eldra sinna, Útvík í Skagafirði, á skólaárunum. Einnig við lönd- unarstörf, fiskvinnslu og slátrun á Sauðárkróki fyrir menntaskólaár. Á menntaskólaárunum var hann í bygg- ingavinnu hjá Trésmiðjunni Björk á Sauðárkróki. Í kringum tvítugsald- urinn var hann eitt sumar í Þýskalandi við landbúnaðarstörf og annað við byggingarstörf í Noregi. Vann lengi að hafréttarmálum Í fríum og fyrst eftir útskrift úr lagadeild starfaði hann hjá sýslu- mannsembættinu á Sauðárkróki. Starfaði í lögfræðideild Útvegsbanka Íslands hf., síðar Íslandsbanka hf. 1988-1990 og sinnti stundakennslu í sjórétti við Stýrimannaskólann hluta af þeim tíma. Starfaði sem sérfræð- ingur og deildarstjóri hjá sjávarút- vegsráðuneytinu á árunum 1993-2000 og hafði þá einkum með höndum al- þjóðleg verkefni á sviði hafréttar, þ.m.t. verkefni er tengdust úthafs- veiðimálum og hvalveiðum. Sat í fjölda samninga- og sendinefnda fyrir Ís- lands hönd á þeim árum, m.a. á úthafs- veiðiráðstefnu SÞ árin 1993-1995, í samninganefnd vegna Smuguvið- ræðna og í sendinefndum hjá fisk- veiðistjórnunarstofnunum o.fl. Var formaður NAMMCO (North Atlantic Marine Mammal Commission) árin 1997-1999. Héraðsdómslögmaður árið 2000. Hefur rekið eigin lögmannsstofu í félagi við aðra lögmenn frá árinu 2000, til að byrja með með áherslu á hafréttarmálefni en í síðari tíð með að- aláherslu á hlutafélagamálefni og ný- sköpun. Er nú meðal eigenda að Meg- in lögmannsstofu í Reykjavík. Áhugamál Meðal félagsstarfa má nefna að Arnór sat í stjórn Orators 1985-1986. Hann hefur einnig sinnt unglinga- og mótastarfi hjá knattspyrnudeild Þróttar í Reykjavík. Helstu áhugamál eru hestamennska, einkum ferðalög um hálendið og víðar, skíðamennska, bridgespil og ýmis tónlistariðkun. Hefur hann t.a.m. sungið með ýmsum kórum og sönghópum og hefur alvöru- Arnór Halldórsson Hafstað, héraðsdómslögmaður – 50 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Hjörleifur, Árni, Hjördís Edda, Arnór og Helga við fermingu Árna árið 2012. Lögmaður í hnakknum Ljósmyndari/Rut „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Frá því að Garðlist ehf var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við höfum átt í viðskiptum við undanfarin ár, á sama tíma og við bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. ALHLIÐA GARÐÞJÓNUSTATUNGUHÁLSI 7 » 110 REYKJAVÍK » SÍMI 554 1989 » GARDLIST.IS ALLT FYRIR GARÐINN Á EINUM STAÐ » Trjáklippingar » Trjáfellingar » Garðsláttur » Beðahreinsun » Þökulagnir » Stubbatæting » Gróðursetning » Garðaúðun o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.