Morgunblaðið - 02.07.2013, Qupperneq 27
bragur stundum verið allnokkur á því
en stundum minni. Hefur í áratugi
stundað æfingar og keppnir með
körfuboltafélaginu Barlómunum þrátt
fyrir nokkra óhentugleika tengdri
slíkri iðkun. Vann til fjölda verðlauna
á afrekshestinum Skrattakolli frá Út-
vík á kappreiðum á 9. áratug síðustu
aldar. Hesturinn er allur og Arnór
hefur látið af kappreiðum.
Fjölskylda
Kona Arnórs er Hjördís Edda
Harðardóttir, f. 18.4. 1964 hæsta-
réttarlögmaður.
Foreldrar hennar eru Hörður Sæ-
valdsson, f. á Norðfirði 7.2. 1934, d. 6.5.
2007, tannlæknir, búsettur á Seltjarn-
arnesi, og Auðbjörg Helgadóttir f. í
Reykjavík 5.4. 1964, fyrrv. banka-
starfsmaður og húsmóðir. Búsett í
Reykjavík.
Börn Arnórs og Hjördísar eru Árni
Hafstað Arnórsson, f. 29.9. 1998, og
tvíburarnir Helga Hafstað Arnórs-
dóttir og Hjörleifur Hafstað Arn-
órsson, f. 11.12. 2000.
Systkini Arnórs eru Ingibjörg Haf-
stað, f. 1.6. 1959, kerfisfræðingur hjá
Reiknistofu bankanna. Býr í Reykja-
vík; Ingunn Helga Hafstað, f. 2.8.
1961, arkitekt, sjálfstætt starfandi.
Býr í Reykjavík; Árni Ingólfur Haf-
stað, f. 26.7. 1967, bóndi, tal- og heyrn-
armeinafræðingur, bruggari og bar-
eigandi. Býr í Útvík í Skagafirði.
Foreldrar Arnórs eru: Halldór Haf-
stað, f. 21.5. 1924, bóndi í Útvík í
Skagafirði, og Solveig Arnórsdóttir, f.
25.5. 1928, kennari og húsfreyja í Út-
vík í Skagafirði. Bæði búa þau nú í
Dýjabekk í Skagafirði, byggt út úr
Útvíkurlandi.
Arnór stundar enn hestamennsku
þótt hann hafi hætt kappreiðum.
Úr frændgarði Arnórs Halldórssonar Hafstað
Arnór
Halldórsson
Hafstað
Kristjana Steinunn
Árnadóttir
frá Dæli í Fnjóskadal
Kristján Ingjaldsson
b. á Hallgilsst. í Fnjóskadal
Helga Kristjánsdóttir
kennari og húsfr. frá
Hróarsstöðum í Fnjóskadal
Arnór Sigurjónsson
rithöf. og skólastj. í Laugaskóla,
fulltr. á Hagstofu Íslands
Solveig Arnórsdóttir
kennari í Útvík í Skagafirði
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Litlu-Laugum
Sigurjón Friðjónsson
bóndi og skáld frá Sandi í Aðaldal,
síðar á Litlu-Laugum
Ingibjörg Halldórsdóttir
húsfr. á Geirmundarst.
Sigurður Sigurðarson
Bóndi á Geirmundarst.
í Sæmundarhlíð
Ingibjörg Sigurðardóttir
húsfreyja í Vík, börn þeirra
Árna voru oft kölluð Víkur-
systkinin og hafa öll borið
ættarnafn föður síns.
Árni Hafstað
bóndi í Vík í Skagafirði
Halldór Hafstað
fyrrv. bóndi í Útvík í Skagafirði
Steinunn Árnadóttir
húsfr. á Hafsteinsstöðum
Jón Jónsson
bóndi, hreppstj. og dannebrogsm.,
Hafsteinsstöðum, Skagafirði
Arnþrúður Arnórsdóttir
fyrrv. kennari í Kóp.,
maður hennar er Stefán
Pálsson fyrrv. bankastjóri
Páll Stefánsson
ljósmyndari
Sighvatur Arnórsson
bóndi í Miðhúsum
í Biskupstungum
Páll Hafstað
skrifstofustj.
hjá Orkustofnun
Sigríður Hafstað
húsfr. á Tjörn í
Svarfaðardal
Árni Hjartarson
jarðfr. í Rvík
Hjörleifur Hjartarson
tónlistarmaður - Hundur
í óskilum
Arnór
Sighvatsson
aðstoðar-
seðlabankastj.
Baldur Hafstað
próf. í ísl. bók-
menntum
Erla Hafstað
starfsm. hjá
Borgarbóka-
safninu
Árni
Indriðason
handboltakappi
Hjalti
Árnason
lögm. Byggðast.
Sauðárkr.
Sigurður
Indriðason
fótboltakappi
Indriði Sigurðs-
son landsliðsm.
í fótbolta
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
falleg minning á fingur
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
16
6
6
GiftingarhringarJón Jóhannesson, málafærslu-maður, fræðimaður og fisk-matsmaður á Siglufirði, fædd-
ist 2.7. 1878 í Haganesi í Fljótum.
Foreldrar hans voru Jóhannes Finn-
bogason, bóndi og skipstjóri að
Heiði í Sléttuhlíð, og k.h. Dóróthea
Sigurlaug Mikaelsdóttir smiðs á
Haganesi, sem drukknaði 27 ára
gamall, Ólafssonar. Foreldrar Jó-
hannesar voru Finnbogi Jónsson,
bóndi á Steinhóli í Flókadal, og k.h.
Margrét Hafliðadóttir. Jóhannes var
nafnkunnur hákarlaformaður og var
m.a. 24 vertíðir á Fljóta-Víkingi.
Kona Jóns var Guðlaug Gísladótt-
ir, f. 20.2. 1881, 14.6.1966, dóttir
Gísla, bónda á Bakka í Fljótum,
Gíslasonar og Vilborgar Þorleifs-
dóttur.
Jón var búsettur á Siglufirði og
fékkst við sjómennsku, trémennsku,
barnakennslu, verslunarstörf og
bókaútgáfu. Hann varð síðar fisk-
matsmaður og fékkst einnig við mál-
flutningsstörf fyrir undirrétti og
innheimtustörf. Jón sinnti fræði-
störfum, var ritstjóri Fram 1922 og
síðar Siglfirðings.
Hann hlaut ekki meiri menntun
en dæmigerður barnalærdómur var
á þessum tíma en hann var fróð-
leiksfús og sílesandi og aflaði sér
þannig þekkingar á ýmsum sviðum.
Á fimmtugsaldri fór hann að lesa
lögfræði í atvinnuskyni því „um
þetta leyti bilaðist Jón í hendi og
varð ófær til líkamlegrar vinnu,“
segir í minningargrein eftir Sigurð
Björgólfsson. Þar segir einnig að al-
menningur hafi verið duglegur að
leita til hans og hann hafi notið mik-
ils trausts í sínu starfi.
Jón sagðist hafa allt frá æsku haft
yndi af ritstörfum en síður af póli-
tískum skrifum. Hann lét þó lands-
málin sig varða og var eindreginn
stuðningsmaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann var duglegur að safna
saman þjóðlegum fróðleik og bjarg-
aði mörgum slíkum frá glötun. Fróð-
astur var Jón líklega um skagfirskan
fróðleik og næsta nágrenni Siglu-
fjarðar.
Jón lést að heimili sínu, Túngötu
26, á Siglufirði 16.10. 1878.
Merkir Íslendingar
Jón Jóhann-
esson
90 ára
Svanfríður Símonardóttir
80 ára
Esther Árnadóttir
Guðný Halldórsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir
Pétur Sölvi Þorleifsson
75 ára
Ásgeir Ólafsson
Guðjón L. Viggósson
Guðmundur S. Guðmunds-
son
Hulda Jensdóttir
Málhildur Angantýsdóttir
Rudolf Jens Ólafsson
Sólveig Óskarsdóttir
70 ára
Erla Haraldsdóttir
Guðjón Jóhannsson
Helga Kristín Hjörvar
Kristinn Hólm Þorleifsson
Ólafía Helga Stígsdóttir
Sigríður Ásgrímsdóttir
60 ára
Aðalheiður Steingríms-
dóttir
Arnlín Þuríður Óladóttir
Álfheiður Sigurðardóttir
Bjarni Snæbjörnsson
Guðný Þórunn
Magnúsdóttir
Jón Einarsson
Jón Guðmundsson
Jón Svavar Þórðarson
Kjartan Jóhann Magnússon
Knut Johannes Ödegaard
Ólafur Snorrason
Páll Konráð Konráðsson
Unnur Rós Jóhannesdóttir
50 ára
Alda Ásgeirsdóttir
Arnór Halldórsson Hafstað
Dagbjört Gísladóttir
Ewa Jolanta Nieradko
Gunnhildur Einarsdóttir
Ingunn Sigurbjörnsdóttir
Ísleifur Karl Guðmundsson
Jenný Inga Eiðsdóttir
Kristinn Ólafur Kristinsson
Kristín Þóra Sigurðardóttir
Nanna Árnadóttir
Reynilo Paraiso Loreto
Sigríður Guðmundsdóttir
40 ára
Aneta Iwona Bojczuk
Berglind Hafþórsd. Byrd
Björgvin Guðmundsson
Brynhildur Ingibj.
Hauksdóttir
Guðmundur Örn Jónsson
Gunnar Örn Gunnarsson
Halldór Örvar Einarsson
Helga Rún Viktorsdóttir
Jenný Dögg Björgvinsdóttir
Jón Valur Jónsson
Kolbrún Ólafsdóttir
Lilja Ásgeirsdóttir
Óli Valur Steindórsson
Steinunn Björk Bjarkard.
Pieper
Styrmir Bolli Kristjánsson
Sævar Helgason
Valdimar Grétarsson
Vilhjálmur Alvar
Halldórsson
30 ára
Adam Perkowski
Anna Maria Krawczyk
Arnar Stefánsson
Birkir Örn Stefánsson
Eyjólfur Þorsteinsson
Hanna Andrésdóttir
Jóhann Fjalar Skaptason
Reynir Örn Reynisson
Waldemar Wielgosz
Yana Sana
Til hamingju með daginn
40 ára Helga er verk-
efnastjóri hjá Rannís.
Maki: Magnús Lyngdal
Magnússon, f. 1975, sér-
fræðingur í mennta-
málaráðuneytinu.
Börn: Birna Rún
Kolbeinsdóttir, f. 1998,
Freyja Björk Guðmunds-
dóttir, f. 2006, og tvær
stjúpdætur.
Foreldrar: Viktor Jóns-
son, f. 1945, smiður, og
Birna Dís Benediktsdóttir,
f. 1949, bókari.
Helga Rún
Viktorsdóttir
40 ára Styrmir er prent-
smiður í Stafrænu prent-
smiðjunni í Hafnarfirði.
Maki: María Elísabet
Steinarsdóttir, f. 1972,
sölufulltrúi hjá Sólar.
Börn: Birgitta Inga, f.
1995, Sædís Enja, f. 1999,
og Hugborg Daney, f.
2007.
Foreldrar: Kristján Hlíðar
Gunnarsson, f. 1954, at-
vinnubílstjóri, og Helga
Magnúsdóttir, f. 1954,
prófarkalesari.
Styrmir Bolli
Kristjánsson
40 ára Jenný er sérfræð-
ingur í gæðamálum hjá
BSI á Íslandi.
Maki: Friðfinnur Freyr
Guðmundsson, f. 1972,
vinnur hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
Börn: Freyja, f. 2004,
og Klara, f. 2008.
Foreldrar: Björgvin
Sveinsson, f. 1946, tækni-
maður hjá Lýru, og Þór-
unn G. Þórarinsdóttir, f.
1953, sjálfstætt starfandi
heilsuráðgjafi.
Jenný Dögg
Björgvinsdóttir