Morgunblaðið - 02.07.2013, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 02.07.2013, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 183. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Vogmær veiddist í Grímsey 2. 17 ný umferðarmerki taka gildi 3. Róbert Arnfinnsson látinn 4. Loftfimleikakona hrapaði til bana »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Formleg sumaropnun Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði fer fram í dag kl. 17. Þar mun Sigurður Pálsson skáld lesa upp úr verkum sínum. Ljóðasetr- ið verður opið alla daga milli kl. 14.00 og 17.30 til 15. ágúst nk. Ljóðasetur Íslands opnað á Siglufirði  Hópur tónlistar- manna siglir hringinn í kring- um landið á Húna og heldur sextán rokktónleika í júlí- mánuði til styrkt- ar Slysavarna- félaginu Lands- björg. Fyrstu tón- leikar áhafnarinnar verða við bryggjuna á Húsavík annað kvöld, hinn 3. júlí, kl. 20. Áhöfnin á Húna rokk- ar fyrst á Húsavík  Hljómsveitirnar Nóra, Boogie Trouble og Dj. flugvél og geimskip spila á Faktorý annað kvöld. Þetta verða líklega einu tónleikar Nóru í borginni í sumar en hljóm- sveitin ætlar með þeim að kveðja Faktorý. Aðrir tón- leikar hafa ekki verið skipulagðir með henni í borg- inni í sumar. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. Boogie Trouble og Nóra kveðja Faktorý Á miðvikudag Austlæg átt, 5-10 m/s. Yfirleitt skýjað og úrkomu- lítið á landinu, en súld sunnantil um kvöldið. Hiti 8 til 15 stig, hlýj- ast vestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan- og norðvestan 8-13 m/s og rigning norðantil, en hægara og þurrt að kalla syðra. Hiti 10 til 15 stig sunnantil, en 5 til 10 stig fyrir norðan. VEÐUR „Í fyrsta lagi fékk ég mitt framtíðarstarf hér heima og byrja í því í ágúst. Ég var ekki tilbúin að sleppa því eins og staðan er í dag á Íslandi. Það er aðalástæðan fyrir því að við séum að koma heim. En svo vorum við líka ekki nógu ánægðar þarna úti, ekki til þess að vera þar svo eitt ár í viðbót, þannig að þetta var besta lausnin,“ segir Ólína G. Viðarsdóttir sem er komin í Val ásamt Eddu Garðarsdóttur. »1 Framtíðarstarf og óánægja í London Englendingurinn Gary Martin er orð- inn markahæstur í Pepsi-deild karla í fótbolta eftir að hann skoraði þrennu gegn Fylkismönnum í fyrrakvöld. „Ég elska að búa hérna. Íslendingar eru frábærir og þetta er gott og hreint land,“ segir Mart- in sem ætlaði að dvelja á Akranesi í tíu vikur árið 2010 en hefur verið á Ís- landi síðan. Hann er leik- maður 9. um- ferðar hjá Morgunblaðinu. »2-3 Vikurnar tíu orðnar að þremur árum á Íslandi Stjarnan er komin með átta stiga forystu í Pepsi-deild kvenna eftir sigur á Breiðabliki, 2:1, í uppgjöri tveggja efstu liðanna á Kópavogs- velli í gærkvöld. ÍBV náði öðru sæt- inu af Blikum með því að sigra Þór/ KA, 3:2, í Eyjum. Íslandsmótið er hálfnað en eftir þessi úrslit er ljóst að erfitt verður að stöðva Stjörn- una í seinni umferðinni. »2-3 Átta stiga forysta hjá Stjörnukonum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is „Það er áhugavert að sjá hvernig líf- ið var,“ segir Bergþóra Góa Kvaran, sem er á meðal tíu þátttakenda í rannsóknarverkefninu Eyðibýli á Ís- landi. Hópurinn ferðast í kringum landið og skráir býli sem komin eru í eyði, en þetta er þriðja sumarið sem verkefnið stendur yfir. Í sumar kannar hópurinn eyðibýli á Vest- fjörðum og Norðvesturlandi, en þeg- ar hefur hópur starfað á Suður-, Vestur- og Austurlandi. Ökum að hverju einasta húsi Húsin þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að hópurinn skrái þau sem eyðibýli. „Það þurfa að vera fjórir uppistandandi veggir og húsið má ekki vera í notkun,“ segir Berg- þóra. Hópurinn styðst við lögbýlaskrár, lista yfir allar jarðir á Íslandi, þegar leitað er að býlunum. „Síðan förum við á staðinn og ökum upp að hverju einasta húsi,“ segir Bergþóra. Oft leynast gömul íbúðarhús á bak við húsin á jörðunum. „Bestu heimild- irnar eru þegar við hittum einhvern staðkunnugan sem getur sýnt okkur hvar eyðibýlin eru.“ Landsmenn hafa tekið skrásetj- urunum vel og verið þeim innan handar við leitina. „Þegar þeir sjá áhuga okkar á sveitinni þeirra taka þeir okkur opnum örmum,“ segir Bergþóra en hópnum er oftar en ekki boðið inn í kaffi og meðlæti. Hvað verður um okkur? „Mér finnst skemmtilegast að koma að húsum sem eru dálítið af- skekkt, þar sem fólk kemur ekki á hverjum degi,“ segir Bergþóra. Á þessum býlum virðist tíminn oft hafa staðið í stað. Diskar og glös standa á borðum, bækur liggja á kommóðum, rúmin standa auð og ekki er alltaf vitað af hverju heimilið var yfirgefið á þennan hátt. „Það er mjög sérstök tilfinning að koma inn í eyðibýlin,“ segir Berg- þóra og bætir við að það sé sér- staklega þegar komið er að húsum sem lítið hefur verið hreyft við. „Við reynum að fara um af varkárni,“ segir hún. „Maður finnur að maður er inni á heimili einhvers.“ Hópurinn skráði býlið Ytri- Hjarðardal í Önundarfirði í sumar. Eigandinn hafði stefnt að því að rífa húsið en síðan fór hann og konu hans að dreyma par sem spurði ítrekað hvað yrði um þau þegar húsið hefði verið rifið. Miðill var fenginn á svæð- ið og sagðist hann finna fyrir nær- veru parsins. Ákveðið var, í samráði við parið, að tvö tré yrðu gróðursett eftir að húsið yrði rifið, og virðist því hafa náðst sátt um málið. Líkt og tíminn hafi staðið kyrr  Tíu manna hóp- ur skráir yfirgefin hús víða um landið Ljósmynd/Rósa Þórunn Hannesdóttir Hópurinn Þátttakendurnir tíu í rannsóknarverkefninu Eyðibýli, efri röð frá vinstri: Bergþóra Góa Kvaran, Arnar Logi Björnsson, Hafþór Óskarsson og Anton Svanur Guðmundsson. Neðri röð frá vinstri: Axel Kaaber, Margrét Björk Magnúsdóttir, Olga Árnadóttir, Sunna Dóra Sigurjónsdóttir og Rósa Þórunn Hannesdóttir. Ljósmynd/Gísli Sverrir Árnason Stendur tómt Eyðibýlið Skíðastaðir í neðri byggð í Skagafirði var fyrsta steinhúsið í Lýtingsstaðahreppi. Byggt árið 1911 og fór í eyði 1959.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.