Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 2
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra mun eiga vinnu-
kvöldverð með Barack Obama, for-
seta Bandaríkjanna, og öðrum leið-
togum Norðurlandanna í Svíþjóð
hinn 4. september nk. Fredrik Rein-
feldt býður til fundarins í tilefni af
heimsókn Obama til Svíþjóðar.
Að sögn forsætisráðuneytisins
verður megintilgangur fundarins
að undirstrika og ræða samvinnu
Bandaríkjanna og Norðurlandanna
þegar horft er til sameiginlegra
áskorana 21. aldar. Leiðtogarnir
munu meðal annars ræða samstarf í
utanríkismálum, eflingu hagvaxtar
og þróunar í heiminum, nýjungar
er snúa að hreinni orku og aðgerðir
gegn loftslagsbreytingum. Obama
verður staddur í opinberri heim-
sókn í Svíþjóð 4. og 5. september.
bmo@mbl.is
Sigmundur
hittir Obama
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
Betra og öruggara aðgengi fyrir t.d. fatlaða og aldraða.
Verð frá 99.773 kr. (rafknúin hurðapumpa + armur)
RAFKNÚIN HURÐAPUMPA
FYRIR INNIHURÐIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Haldið sofandi í öndunarvél
Eiginkonan segir
hann alltaf hafa sýnt
af sér varkárni
Katrín Björk Baldvinsdóttir, eig-
inkona Eyþórs Más Bjarnasonar
sem lenti í alvarlegu vélhjólaslysi
um helgina, segir enn óvíst um til-
drög slyssins. „Það er ekki vitað
almennilega hvað gerðist annað en
að hann keyrði aftan á bílinn,“ út-
skýrir Katrín. „Hann hefur aldrei
verið með glannaskap eða stundað
hraðakstur heldur einmitt hneyksl-
ast á þeim sem það gera, svo mér
finnst ólíklegt að það hafi verið
ástæðan án þess að geta fullyrt
það.“
Eyþór Már var með opinn hjálm
án kjálka og hlaut því talsverða
áverka í andliti. Hann fór í aðgerð
á andliti á sunnudagskvöldið og
tók hún tæplega ellefu klukku-
stundir. „Hann er ótrúlega heill ut-
an frá séð, þeir settu bara fullt af
plötum og skrúfum og virðast hafa
náð að setja öll brot saman.“
Eyþóri er enn haldið sofandi í
öndunarvél á gjörgæslu. „Nú er
aðallega beðið eftir því að lungun
styrkist svo hægt sé að minnka
öndunaraðstoðina, svo hægt sé að
vekja hann. Hann hefur líkast til
gleypt eitthvað af blóði og fékk
loftbrjóst í annað lungað, svo nú
þarf bara tíma fyrir lungun til að
jafna sig. Það verður farið mjög
varlega í það að minnka öndunar-
aðstoðina.“ Vinir og vandamenn
hafa sett af stað söfnun fyrir fjöl-
skylduna en þau hjón eiga tvenna
unga tvíbura og berst Katrín
Björk við krabbamein. „Fólk virð-
ist vera að deila þessari söfnun
ótrúlega mikið en ég hef ekki hug-
mynd um hvernig þetta gengur.
Þetta er ótrúlega góður stuðn-
ingur að fá,“ segir Katrín að lok-
um. hhjorvar@mbl.is
Fjölskylda Eyþór Már ásamt eig-
inkonu sinni, Katrínu Björk og
tvennum tvíburum þeirra.
„Það er allavega
ekki laus staða
fyrir mig á mynd-
greiningu,“ segir
Katrín Sigurð-
ardóttir, formað-
ur Félags geisla-
fræðinga.
Morgunblaðið
greindi frá því um
helgina að hún
hefði farið í at-
vinnuviðtal á Landspítalanum í síð-
ustu viku. Í þessari viku fékk hún þau
svör að ekki væri laus staða fyrir
hana á sviðinu sem hún starfaði við
áður, myndgreiningarsviði.
„Ég sendi inn opna atvinnuumsókn
og það á ennþá eftir að koma í ljós
hvernig þetta endar. Það er núna ver-
ið að athuga aðra möguleika. Það
skýrist væntanlega eitthvað eftir
helgi,“ segir Katrín.
Forsvarsmenn spítalans höfðu áð-
ur gefið til kynna að atvinnuumsókn
Katrínar fengi flýtimeðferð og í kjöl-
farið dró stór hluti geislafræðinga
uppsögn sína til baka. Katrínu var
sagt upp á Landspítalanum í maí-
mánuði eftir 33 ára starf. bmo@mbl.is
Ekki fengið
stöðu ennþá
Katrín
Sigurðardóttir
Svör eftir helgi
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og eiginkona hans, Jóhanna Jóhanns-
dóttir, voru á meðal gesta við opnun kampavínsklúbbs á Stígamótum í gær,
en á myndinni má sjá hjónin ræða við Guðrúnu Jónsdóttur, stofnanda
Stígamóta, á meðan dyravörður gætir að tímanum. Á klúbbnum bauðst
gestum að kaupa tíu mínútna einkaskemmtiatriði fyrir tuttugu þúsund
krónur og var frítt kampavín í boði meðan á atriðum stóð. Á meðal þess
sem fram fór á bak við tjöldin var prjónakennsla, skemmtiatriði í Abba-stíl
um mansal og reynslusögur kvenna af vændi og nauðgunum. Guðrún Jóns-
dóttir, talskona Stígamóta, sagði verðlagninguna fylgja öðrum kampavíns-
klúbbum, en rukkað væri sérstaklega fyrir konur sem reynslumiklar væru.
Konur og kampavín í boði fyrir borgarstjóra
Morgunblaðið/Kristinn
Barack
Obama
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Samningur
grunnskólakenn-
ara við sveitar-
félög er í dag
laus, en Félag
grunnskólakenn-
ara hefur gert
viðræðuáætlun
við sveitarfélögin
til loka febrúar
2014. „Við mun-
um marka rammann í kringum
samningaviðræðurnar nú á næstu
vikum,“ segir Ólafur Loftsson, for-
maður Félags grunnskólakennara. Í
vikunni hélt samninganefnd félags-
ins vinnufund í Borgarnesi þar sem
meðal annars voru endurskoðuð
samningsmarkmið.
„Viðræðurnar sigldu í strand hjá
okkur í janúar og febrúar þegar við
vorum aðallega að ræða atriði í
vinnuumhverfi okkar eins og starfs-
aðstæður, hópastærðir og þess hátt-
ar. Nú erum við að fara af stað með
trúnaðarmannafundi um allt land og
haustþing þar sem við ætlum að
spyrja okkar félagsmenn að því hvað
sé það sem við ættum að setja í for-
gang í komandi viðræðum.“
Viðræður gætu orðið erfiðar
Ólafur býst við því að viðræðurnar
geti orðið erfiðar. „Við erum að
skoða launaþróun stéttarinnar mið-
að við aðrar stéttir og þær tölur
liggja vonandi fyrir á næstu vikum.
Viðræðurnar fara í raun af stað núna
strax í haust. Þess er hins vegar ekki
að vænta að það komi niðurstaða
fyrr en upp úr áramótum í fyrsta
lagi.“
Undirbúa samningslotu
Samningsmarkmið grunnskólakennara gætu breyst frá síðustu viðræðum
Niðurstöðu að vænta í fyrsta lagi um áramótin Verið að skoða launaþróun
Ólafur Loftsson
Lausir samningar
» Grunnskólakennarar eru í
dag án samnings við sveit-
arfélögin.
» Viðræðuáætlun við sveit-
arfélögin er í gildi til loka febr-
úar 2014.
» Unnið er að endurskoðun á
samningsmarkmiðum í sam-
ráði við félagsmenn.