Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013 Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Ásgerður Halldórsdóttir, bæj- arstjóri á Seltjarnarnesi, telur að safnahúsið á Seltjarnarnesi sem upphaflega átti að hýsa Lækn- ingaminjasafn henti vel undir Nátt- úruminjasafn Íslands. Ásgerður er tilbúin að ganga til samninga við mennta- og menningarmálaráðu- neytið um málið þar sem hug- myndir um flutning safnsins í Perl- una virðast í uppnámi. Framkvæmdir við hið sérhann- aða safnahús á Seltjarnarnesi stöðvuðust fljótlega eftir hrun en byggingin stendur fokheld. Töluverður kostnaður Fram hefur komið að kostnaður ríkissjóðs vegna leigu á Perlunni undir Náttúruminjasafn Íslands sé um 80 milljónir á ári en samning- urinn er til 15 ára. Þá bendir Ás- gerður á að um 400 milljónir þurfi til að fullklára húsnæðið á Sel- tjarnarnesi sem sé sama upp- hæð og samþykkt var að leggja til uppsetningar á náttúruminjasýningu á fjár- lögum ársins 2013. Fulltrúar bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi og mennta- málaráðuneytisins hafa átt við- ræður um hvernig megi ljúka byggingu safnahúss- ins á Seltjarnarnesi. „Í Una Sighvatsdóttir Sunna Sæmundsdóttir Árás farþega á leigubílstjóra aðfara- nótt fimmtudags hefur verið kærð og er rannsökuð sem kynferðisbrot. Árásarmanninum var sleppt úr haldi lögreglu í gærkvöldi eftir yfir- heyrslur. Árásir á leigubílstjóra má fyrst og fremst rekja til aukinnar vímuefna- neyslu, að sögn framkvæmdastjóra BSR. Hann segir þær þó heyra til al- gjörra undantekninga. Bílstjórinn sem ráðist var á keyrði leigubíl frá BSR. Farþeginn, sem var 37 ára karlmaður, sat fyrir aftan hana þegar hann réðst á hana og tók hana meðal annars hálstaki. Konan náði að slíta sig lausa og kalla eftir aðstoð. Búin að kæra árásina Konan leitaði í kjölfarið til slysa- deildar og má eiga von á því að hún leggi fram áverkavottorð, að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan lagði fram kæru í gær og er árásin rann- sökuð sem kynferðisbrot. Björgvin segir ekki tímabært að gefa upplýs- ingar um hvers eðlis brotið var. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum og færður í fangaklefa, en hann var vart viðræðu hæfur sökum ölvunar. Yfirheyrslum lauk í gær- kvöld og var árásarmanninum sleppt að þeim loknum. Þungt vasaljós til varnar Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri BSR, segir að árásir á leigubílstjóra séu sem betur fer fátíðar. Samkvæmt heimildum mbl.is hefur þó þeim leigubílstjórum fjölgað sem bera á sér eitthvað til að verja sig. Einn leigubílstjóri sem mbl.is ræddi við segist sem dæmi geyma stórt og þungt vasaljós frammi í bíln- um sem hann geti gripið í til að berja frá sér ef slíkar aðstæður koma upp. Guðmundur Börkur telur að fjölg- un mála af þessu tagi tengist al- mennri fjölgun á ofbeldisglæpum. „Það hefur orðið aukning frá því í gamla daga og það tengist fyrst og fremst hörðum vímuefnum, alveg eins og flest svona ofbeldis- og þjófnaðar- mál í samfélaginu í dag. En 99,9% af okkar viðskiptavinum eru bara þægi- legir og fínir.“ Ekki von á skilrúmum í bíla Fátítt er að öryggisbúnaður eins og til dæmis skilrúm milli farþega og bíl- stjóra sé í íslenskum leigubílum. Að- spurður segir Guðmundur ekki í kort- unum að slík skilrúm verði sett upp í bílum BSR. „Bílstjórarnir keyra náttúrlega margar ferðir í viku og um helgar og þetta er eitthvað sem heyrir til al- gjörra undantekninga. Ef 99,9% af viðskiptavinum eru í lagi, er þá rétt að setja upp skilrúm til að forðast þetta 0,01%? Væri ekki nær að reyna að losna við vandræðaseggi samfélags- ins?“ Guðmundur bendir á að leigubílar séu í dag búnir staðsetningarbúnaði og öryggishnappi þannig að bílstjórar geti óskað eftir aðstoð með skjótvirk- um hætti. „Það fer beint inn á sam- skiptamiðstöðina okkar og til annarra bílstjóra, og þeir eru yfirleitt fljótari á staðinn heldur en lögreglan.“ Árás á bílstjóra rannsökuð sem kynferðisbrot  Tók leigubílstjóra hálstaki  Geyma gjarnan eitthvað til varnar í bílnum Morgunblaðið/Sverrir Öryggis gætt Skjótvirk aðstoð fæst með aðstoð öryggishnapps og stað- setningarbúnaðar. Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is „Við erum fyrst og fremst að mót- mæla þessu nýja aðalskipulagi Reykjavíkurborgar,“ sagði Vignir Örn Guðmundsson, flugstjóri hjá Flugfélagi Íslands og einn aðstand- enda hópsins Hjartað í Vatnsmýr- inni, sem berst fyrir því að Reykja- víkurflugvöllur verði áfram í Reykjavík. „Hjartað í Vatnsmýrinni samanstendur af hópi flugmanna, lækna og verkfræðinga sem hafa þekkingu á flugmálum.“ Stríðir gegn öryggi „Þessi gjörningur að flytja flug- völlinn úr Vatnsmýsinni stríðir gegn öryggi og heilsugæslu landsins alls, sem fólkið á rétt á. Að sama skapi er Reykjavík höfuðborg Íslands og hún hefur skyldur sem slík. Flugið er okkar samgöngukerfi í hrjóstr- ugu, fámennu landi án lestakerfis. Með því að leggja flugvöllinn af í áföngum munu lífsgæði landsbyggð- arfólks vera skert. Þetta er hags- munamál fyrir alla Íslendinga og engan veginn einkamál Reykvík- inga,“ sagði Vignir, og kallar eftir sátt um núverandi staðsetningu flugvallarins um ókomna tíð. Kroppað úr flugvellinum Vignir segir það að klippa út brautir flugvallarins í áföngum eyði- leggja allar forsendur fyrir innan- landsflugi. „Reykjavíkurflugvöllur og til dæmis Akureyrarflugvöllur lúta ekki sömu lögmálum þar sem er bara ein braut. Í Reykjavík eru allt aðrir vindar og veður. Það er enginn annar kostur í stöðunni í Vatnsmýrinni ef þetta er hugsað út frá kostnaði. Aðrar lausnir eru ein- faldlega of dýrar. Hólmsheiðin er ekki fýsilegur kostur, Löngusker eru allt of dýr og Bessastaðanesið er því miður ekki í boði, sem þó væri sennilega besti kosturinn. Færsla til Keflavíkur myndi þýða að innanlandsflug myndi hreinlega leggjast af,“ sagði Vignir. Hann segir að mikil atvinnustarf- semi sé á flugvellinum og í störfum honum tengdum sem myndu glatast við flutning hans. Um hádegi á morgun ýta stuðn- ingsmenn flugvallarins úr vör undirskriftasöfnun til stuðnings hans á slóðinni www.lend- ing.is. Vilja völlinn áfram í Vatnsmýri  Boða til undirskriftasöfnunar til stuðnings Reykjavíkurflugvallar  Segir Vatnsmýrina eina raun- hæfa kostinn á höfuðborgarsvæðinu  Núverandi staðsetning vallarins öryggisatriði fyrir landið allt Morgunblaðið/Golli Reykjavíkurflugvöllur Deilur hafa lengi staðið um staðsetningu flugvall- arins. Hjartað í Vatnsmýrinni kallar eftir sátt um núverandi staðsetningu. 300-400 milljónir króna þarf til að ljúka við safnahús undir Lækn- ingaminjasafn á Seltjarnarnesi ef ljúka á framkvæmdum í samræmi við upphaflegar teikningar. Upphaf framkvæmdanna má rekja til samn- ing sem Seltjarnarnesbær, menntamálaráðuneytið, Læknafélag Íslands og Þjóðminjasafnið gerðu um stofnkostnað, byggingu og rekstur fyrir lækningaminjasafn og menningartengda starf- semi árið 2007. Heildarkostnaður við framkvæmdina var áætlaður 345 milljónir og skiptist kostnaður milli samningsaðila, þau framlög hafa dugað til að gera bygginguna fokhelda, í það horf sem hún er í núna. Í samningnum segir að safnbygg- ingin sé samtals 1.266 fm. Þess ber að geta að bygging- unni hefur verið lokað og engin hætta er á skemmdum á henni. Stendur fokhelt á nesinu SAFNAHÚSIÐ SEM ÁTTI AÐ VERÐA LÆKNINGAMINJASAFN Ásgerður Halldórsdóttir desember á síðasta ári sendi ég Katrínu Jakobsdóttur (þáverandi menntamálaráðherra) erindi fyrir hönd bæjarstjórnar þar sem farið var fram á að finna þessari bygg- ingu nýtt og verðugt hlutverk í samvinnu við ráðuneytið,“ segir Ásgerður og bætir við að málið hafi ekki náð lengra. Nú hafi hún farið fram á fund með nýjum menntamálaráðherra, Illuga Gunn- arssyni. Ásgerður er þeirrar skoðunar að fáir staðir séu jafn vel til þess fallnir og friðlandið á Seltjarn- arnesi til að hýsa Náttúruminja- safn Íslands. Tækifæri í staðsetningunni Þá bendir hún að aðgengi að húsinu sé gott, tengsl þess við opin svæði og fjölbreytta náttúru gefi slíku safni aukið vægi og mörg tækifæri. Einnig er Ásgerður þeirrar skoðunar að safnið staðsett á Sel- tjarnarnesi gæti orðið vinsæll áfangastaður ferðamanna sem í auknum mæli leggi leið sína á Sel- tjarnarnes, m.a. í norðurljósaferðir. Morgunblaðið/Rósa Braga Menning Hið volduga safnahús sem stendur á Seltjarnarnesi er í nálægð við fjölbreytta náttúru og opin svæði. Telur húsnæðið henta undir náttúruminjasafn  Bæjarstjóri tilbúinn að ganga til samninga við ráðuneytið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.