Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Toyota
Land Cruiser
200
Árgerð 2008, dísil
Ekinn 112.000 km, sjálfsk.
Ásett verð:
9.590.000 kr,-
Lexus IS250
Árgerð 2008, bensín
Ekinn 54.000 km, sjálfsk.
Ásett verð:
3.990.000 kr,-
Audi A6
2,0 TFSI
Árgerð 2010, bensín
Ekinn 23.000 km, sjálfsk.
Ásett verð:
5.990.000 kr,-
Porche Cayenne
turbo
Árgerð 2007, bensín
Ekinn 81.000 km, sjálfsk.
Ásett verð:
8.500.000 kr,-
FERÐAFÉLAGAR AF
ÖLLUM STÆRÐUM OG
GERÐUM HJÁ HEKLU
NOTUÐUM BÍLUM
Audi Q7
3,0 TDi
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 49.000 km, sjálfsk.
Ásett verð:
10.950.000 kr,-
Íbúar í úthverfi Bagdad virða fyrir sér vettvang bíl-
sprengju sem sprakk nærri höfuðstöðvum sjónvarps-
stöðvar sem tengist hópi herskárra sjía-múslíma.
Á þriðja tug manna féllu í sex sprengjuárásum í
borginni í gær sem beindust að svæðum þar sem sjíar
eru í meirihluta. A.m.k. 70 aðrir særðust í árásunum.
AFP
Fjöldi sprengjuárása í Bagdad í gær
Ibrahim Boubacar Keita er nýr for-
seti Malí en hann vann stórsigur í
seinni umferð kosninga sem fóru
fram í landinu á sunnudag. Þær töl-
ur sem gefnar hafa verið út benda
til þess að Keita hafi hlotið 77,6%
greiddra atkvæða á móti 22,4% and-
stæðings síns Soumaila Cisse. Áætl-
að er að kjörsókn hafi verið um
45,8%.
Keita er 68 ára gamall og var áð-
ur forsætisráðherra landsins. Kosn-
ingarnar marka tímamót í landinu
eftir átök sem þar hafa geisað und-
anfarin ár. Þau leiddu meðal annars
til þess að Frakkar sendu þangað
herlið til að stilla til friðar. Frið-
argæslulið frá Sameinuðu þjóðunum
hefur fengið það verkefni að taka
við af frönskum hermönnum til að
tryggja friðinn. Alþjóðleg fjárhags-
aðstoð við Malí hefur verið í bið frá
því að valdarán var framið í landinu
árið 2012 í kjölfar uppreisnar ísl-
amista.
Keita vann
stórsigur í
Malí
Losar um neyðar-
aðstoð til landsins
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Bandaríska fyrirtækið CACI International hefur
krafið fyrrverandi fanga í Abu Ghraib-fangelsinu
alræmda í Írak um málskostnað vegna máls sem
þeir höfðuðu gegn fyrirtækinu. CACI sá um yf-
irheyrslu- og túlkaþjónustu í fangelsum banda-
ríska hersins í landinu. Fangarnir, alls 256 tals-
ins, kærðu það fyrir bandarískum dómstól árið
2004 fyrir stríðsglæpi, kynferðisofbeldi, þátttöku
í pyntingum og aðra misnotkun.
Málinu var vísað frá dómi í Virginíuríki nú í
júní á þeim forsendum að þar sem brotin hefðu
átt sér stað erlendis féllu þau utan valdsviðs
dómstólsins. CACI hefur nú stefnt föngunum til
að greiða málskostnaðinn við upphaflega mála-
reksturinn en hann nemur um 15.500 dollurum,
jafnvirði tæpra tveggja milljóna króna.
Vakti reiði víða um heim
Það var árið 2004 sem upp komst að banda-
rískir fangaverðir í Abu Ghraib-fangelsinu hefðu
niðurlægt og pyntað íraska fanga þar. Myndir
sem sýndu fangaverðina gera sér að leik að nið-
urlægja og níðast á föngunum vöktu mikla reiði í
Írak og víðar um heimsbyggðina.
Í kjölfarið voru nokkrir bandarískir hermenn
sakfelldir af herdómstól vegna misnotkunarinn-
ar á föngunum.
Hafa ekki efni á að borga
Lögmenn fanganna hafa áfrýjað þeirri nið-
urstöðu að vísa málinu frá og halda því fram að
þar sem brotin voru framin innan svæðis sem
var á valdi bandaríska hersins þá heyrðu starfs-
menn fyrirtækisins enn undir bandarísk lög.
Ekki er hægt að lögsækja fyrirtækið í Írak því
samkvæmt þarlendum lögum nýtur það friðhelgi
gegn málsóknum sem verktaki ríkisstjórnarinn-
ar.
Lögmennirnir segja jafnframt að fangarnir
hafi ekki efni á að greiða lögfræðikostnað banda-
ríska fyrirtækisins enda séu tekjur þeirra afar
lágar, jafnvel þótt miðað sé við önnur lönd en
Bandaríkin.
Krefja Abu Ghraib-fanga um fé
Máli fanganna vegna stríðsglæpa vísað frá bandarískum dómstól fyrr í sumar
Niðurlæging Ein myndanna sem birtust af mis-
notkun á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu.
Bradley Mann-
ing, hermað-
urinn sem var
sakfelldur af
herrétti fyrir að
hafa lekið miklu
magni af skjölum
til uppljóstr-
anavefjarins
Wikileaks, segist
nú sjá eftir gjörð-
um sínum og
biðst afsökunar á
þeim. Þetta sagði hann þegar hann
ávarpaði dómstólinn sem ákveður
nú refsingu hans.
„Ég iðrast afleiðinga minna sem
ég ætlaði ekki. Þegar ég tók þessar
ákvarðanir trúði ég því að ég væri
að hjálpa fólki en ekki að skaða
það,“ sagði Manning þegar hann
reyndi að sannfæra dómstólinn um
að sýna sér vægð við ákvörðun refs-
ingar. Hann sagðist jafnframt iðr-
ast þess að gjörðir sínar hefðu
skaðað Bandaríkin.
Sér eftir upp-
ljóstrunum
Bradley
Manning
Bandaríkin
Vísindamenn
hafa kortlagt 21
meiri háttar
stökkbreytingu í
genum manna
sem er orsök
flestra krabba-
meina, þar á
meðal heila-,
lungna-, bris- og
brjósta-
krabbameins.
Niðurstöður
rannsóknar þeirra á erfðamengjum
fleiri en 7.000 krabbameinssjúkl-
inga voru birtar í vísindatímaritinu
Nature í vikunni.
Þó að læknar og vísindamenn
þekki eða hafi góða hugmynd um
orsakir um helming þeirra gena-
breytinga sem valda ýmsum
krabbameinum, eins og reykingar
og útfjólublá geislun, þá eru orsak-
ir hinna enn óþekktar. Vonir
standa til að með því að kortleggja
stökkbreytingarnar á genunum
verði hægt að finna orsakir fleiri
tegunda krabbameina.
Kort af stökk-
breytingum
Vísindi
Sumar orsakir
þekkja menn.