Morgunblaðið - 16.08.2013, Síða 18
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fleiri voru áætlaðir utan vinnu-
markaðar í júní en í sama mánuði
fyrir ári, eða alls
35.500 í júní borið
saman við 31.800
í júní í fyrrasum-
ar.
Þróunin á fyrri
hluta ársins allt
aftur til ársins
2008 er sýnd hér
fyrir neðan en
fólk sem er
hvorki starfandi
né atvinnulaust
er skráð sem utan vinnumarkaðar.
Er fólk sem er í atvinnuleit skráð at-
vinnulaust en ella utan vinnumark-
aðar.
Það er Hagstofa Íslands sem tek-
ur saman tölur yfir fjölda fólks utan
vinnumarkaðar og byggja þær á
reglulegri vinnumarkaðskönnun.
Yfirfært á allt vinnuaflið
Tiltekið úrtak er þar spurt út í
stöðu á vinnumarkaði og eru niður-
stöðurnar yfirfærðar á vinnuaflið,
188.300 manns, en alls voru 226.500
manns á vinnualdri, 16-74 ára, í júní
og að meðaltali 226.200 á 2. ársfjórð-
ungi í ár. Svör þeirra sem flokkaðir
eru utan vinnumarkaðar eru
sundurliðuð og má sjá sundurgrein-
ingu fyrir árið 2013 hér fyrir neðan.
Sveiflur milli mánaða geta verið
töluverðar og eiga þær sér ýmsar
skýringar, að sögn Ólafs Más Sig-
urðssonar, sérfræðings hjá Hag-
stofu Íslands, enda sveiflast framboð
á vinnuafli og störfum í tilteknum
starfsgreinum eftir árstíðum.
Athygli vekur að á 2. ársfjórðungi
2010 var áætlað að 2.100 manns
væru veikir af alls um 37.200 manns
sem þá stóðu utan vinnumarkaðar
og byggði það á svörum í könnun-
inni. Þeim hefur síðan fjölgað ár frá
ári og voru orðnir 4.800 á 2. ársfjórð-
ungi í ár, þegar 37.900 manns voru
skráðir utan vinnumarkaðar. Er
aukningin frá 2010 langt yfir vik-
mörkum.
Heimavinnandi hefur einnig fjölg-
að en þar er aukningin innan
skekkjumarka, eins og sjá má á
grafinu hér fyrir neðan. Þá hefur ör-
yrkjum eða fötluðum fjölgað en
námsmönnum og fólki í fæðingaror-
lofi fækkað. Er fækkun námsmanna
innan vikmarka en fækkun fólks í
fæðingarorlofi umfram vikmörk.
Áætlaður fjöldi fólks á eftirlaunum
sem stendur utan vinnumarkaðar er
svipaður á öðrum ársfjórðungi sam-
anburðarárin fjögur, m.t.t. vik-
marka. Áætlað er í vinnumarkaðs-
könnun Hagstofunnar að 12.900
manns hafi verið án vinnu á 2. árs-
fjórðungi í ár, 13.300 á 2. ársfjórð-
ungi í fyrra, 15.800 árið 2011 og
16.200 árið 2010.
Talan fyrir 2. ársfjórðung í ár er
mun hærri en atvinnuleysistölur
Vinnumálastofnunar. Samkvæmt
júnískýrslu Vinnumálastofnunar
voru 6.935 atvinnulausir í júní og
samsvaraði það 3,9% atvinnuleysi.
Eru það um 6.000 færri en Hag-
stofan áætlar að hafi að jafnaði verið
án vinnu á 2. ársfjórðungi þessa árs.
Munurinn liggur í skráningu
Segir Ólafur Már að munurinn
liggi í mismunandi skráningu.
Vinnumálastofnun horfi eingöngu
til þeirra sem eru skráðir í atvinnu-
leit, en Hagstofan byggi tölur sínar á
áðurnefndum könnunum.
Af þeim 37.900 manns sem voru
utan vinnumarkaðar á 2. ársfjórð-
ungi í ár sögðust 1.200 vera án
vinnu.
Segir Ólafur Már ekki hægt að
leggja þá saman við þá 12.900 ein-
staklinga sem Hagstofan hafi þá
áætlað að hafi verið án vinnu. Hóp-
Sjötti hver utan
vinnumarkaðar
Hagstofan áætlar að um 37.900 manns hafi að
jafnaði verið utan vinnumarkaðar á 2. ársfjórðungi í ár
Það jafngildir 16,7% fólks á vinnualdri
Veiku fólki sem stendur utan vinnumarkaðar fer fjölgandi
Ólafur Már
Sigurðsson
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
Við tökum á
móti netum
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar!
Sími 559 2200
www.efnamottakan.is
Efnamóttakan tekur við
veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e:
netaafskurði
hlutum úr f lottrolli
nótaefni
Fáðu hjá okkur sérsniðna poka
undir netaafskurðinn.
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheidar@mbl.is
Lítið framleiðslufyrirtæki í
Reykjanesbæ neyðist til að hækka
vöruverð sitt um 12% vegna aukins
eftirlitskostnaðar hjá Mat-
vælastofnun. Þetta kom fram í
bréfi sem Morgunblaðið hefur und-
ir höndum og er ritað af eigendum
fyrirtækisins.
Fyrirtækið Matvæladreifing
ehf. sendi bréfið til viðskiptavina
sinna um miðjan síðasta mánuð en
fyrirtækið framleiðir Kútter síld
og Kútter fiskibollur.
„Gríðarlega
álagður kostnaður“
„Ástæða verðbreytingar hluta
hækkunarinnar er gríðarlega
álagður kostnaður vegna eftirlits-
iðnaðar, þ.e. kostnaður Mat-
vælastofnunar og aðkeypt aðstoð
verktaka við að sinna öllu því skrif-
ræði sem sú stofnun krefur fram-
leiðslufyrirtæki nú um og tröllríður
öllu landinu,“ segir m.a. í bréfinu.
Árið 2010 borgaði fyrirtækið
tæpar 40.000 kr. á ári til Heilbrigð-
iseftirlitsins í eftirlitskostnað skv.
bréfinu. Þessi kostnaður virðist
hafa hækkað mikið eftir að Mat-
vælastofnun tók við eftirlits-
hlutverkinu því fyrirtækið sér nú
fram á að borga a.m.k. 280.000 kr.
á ári til Matvælastofnunar.
Þarf að ráða
aukastarfsmann
Fram kemur að fyrirtækið
þarf að ráða til sín verktaka í
vinnu til að sinna skráning-
arvinnu sem kveðið er á um í
reglum Matvælastofnunar.
Þetta er óbærilegur kostnaður
að mati forsvarsmanna fyrirtæk-
isins þar sem fyrirtækið er lítið og
eingöngu með 4 starfsmenn í vinnu
við framleiðslu.
„Heildarkostnaðurinn kemur
til með að vera ca. 840.000 kr. á ári
vegna þessa eftirlits sem er kostn-
aðarhækkun um 2.000%, og þá er
ekki meðtalinn kostnaður vegna
breytinga innanhúss sem gerðar
eru kröfur um af Matvælastofnun,“
segir í bréfinu.
Hækkun á öllum kostnaði
Í bréfinu kemur einnig fram
að nánast öll innkaup fyrirtækisins
hafa hækkað undanfarna mánuði.
Fyrirtækið notar m.a. hveiti, syk-
ur, síld, fisk, olíu, lauk, krydd og
umbúðir í sína framleiðslu. Þá
kemur einnig fram að allur dreif-
ingarkostnaður hafi hækkað gíf-
urlega.
Eigendur fyrirtækisins Mat-
væladreifingar ehf. vildu ekki tjá
sig um málið að öðru leyti en að
þau standa á bak við það sem kem-
ur fram í bréfinu.
Sinna miklu skrifræði
sem tröllríður öllu landinu
Fyrirtæki hækkar vöruverð um 12% vegna Matvæla-
stofnunar Borgar 280.000 krónur í eftirlitskostnað
Dreifingar- og innkaupakostnaður hækkar líka
Hækkun Kútter fiskibollur hækkuðu í verði 1. ágúst síðastliðinn.