Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
v
a
tn
b
ló
ð
fita
Nú er nóg komið af sukki sumarsins!
Taktu heilsuna föstum tökum og fylgdu Detoxáætlun um betri heilsu.
Hafið samband
á joninaben@
nordichealth.is
eða í síma
8224844
Heilbrigt líf er hvorki sjálfsagt né sjálfgefið. Það er vinna að viðhalda
heilbrigði. Í form á 40 dögum er áskorun um að taka slíka ákvörðun. Það
er undir þér komið að snúa heilsunni þér í hag - en hér færðu verkfærin
sem styðja þig og efla.
Verkefnið Í form á 40 dögum byggir á fyrirlestrum, hugleiðingum, ítarlegri
verkefnabók og miklum stuðningi á heilsuvefnum www.nordichealth.is
Við lifum nú mestu
tækni- og þekking-
arbyltingu mannkyns-
sögunnar.
Á síðustu öld urðu
straumhvörf í fræði-
legri eðlisfræði. Þá
verða til afstæðiskenn-
ingin og skammta-
fræðin sem eru tvær
meginstoðir nútíma
eðlisfræði. Þessi
grundvallarvísindi hrintu af stað
þekkingarskriðu og tæknibyltingu
sem enn er á fullri ferð. Afstæð-
iskenningin breytti heimsmyndinni í
veigamiklum þáttum og skammta-
fræðin og hálfleiðaratæknin eru
grunnurinn undir tölvubyltingunni.
Fyrir nokkrum árum komu fram á
sjónarsviðið símar sem hægt er að
tengja netinu og þar með tölvum um
allan heim. Í símanum er hægt að fá
upplýsingar um flesta hluti á örskots-
stund, hlusta á tónlist, horfa á sjón-
varp, lesa bækur og stunda viðskipti.
Ef framkvæma þarf flóknar reikniað-
gerðir þá er það leyst á stundinni af
stærðfræðiforritum á vefnum.
Snjallsíminn og systurtæki þess,
spjaldtölvan, eru nú orðin algeng
verkfæri við upplýsingaöflun og al-
genga tölvuvinnu. Þetta skapar ný
tækifæri til að gera stærðfræði-
kennslu gagnlegri fyrir flesta og um
leið ódýrari. Rafbækur og stærð-
fræðiforrit eru langtum betri aðferð
til að kenna stærðfræði en blaðs- og
blýantsaðferðin sem er í aðalatriðum
miskunnarlaus utanbókarlærdómur.
Hin öra þróun veldur því að skólar
eiga afar erfitt að fylgjast með og
verða á eftir með kennsluefni og
þjálfun kennara.
Nú er ljóst að miklar breytingar
eru framundan í skólastarfi en hver
ætlar að stíga fyrsta skrefið?
Menntamálaráðuneytið semur
vandaðar námsskrár sem leggja lín-
urnar um efnisval og gefa skólunum
svigrúm til að útfæra kennsluna á
ýmsan hátt.
Skólameistarar hafa nóg að gera
við að halda skólunum gangandi
vegna sífellds niðurskurðar rík-
isvaldsins og benda á stærð-
fræðikennarana en þeir vilja helst
engar breytingar.
Nú standa fyrir dyrum miklar
breytingar og end-
urnýjun á tölvubúnaði
skólanna. Sem betur fer
eru að koma nýjar og
mun ódýrari spjaldtölv-
ur á markaðinn sem
lækka kostnaðinn við
nauðsynlega endurnýj-
un. Fullkomið net og
vandaður skjávarpi er
nú lágmarksbúnaður í
allar skólastofur.
Vinnumarkaðurinn
og daglegir lifn-
aðarhættir þarfnast
nýrra aðferða í menntun sem er
meira í takt við þróun þjóðfélagsins.
Nútímamaðurinn notar verkfæri
til að vinna með og í dag eru allir sér-
fræðingar hver á sínu sviði.
Þetta vinnulag krefst mikillar yf-
irlitsþekkingar og stór hluti mennt-
unar verður endurmenntun og þjálf-
un í nýrri tækni.
Kennslutilraunir og
ný viðhorf í skólamálum
Undirritaður hefur sl. 14 ár gert
ýmsar tilraunir með notkun stærð-
fræðiforrita í skólastarfi og skrifað
nokkrar bækur um þetta efni.
Með tilkomu stærðfræði- og þekk-
ingarforritsins Wolfram Alpha varð
þetta starf mun einfaldara og árang-
ursríkara.
Tilraunir með góða nemendur
sýndu mikla ánægju með aðferðina
og sömu sögu er að segja um sein-
færa nemendur. Ég hef síðustu árin
haft mikinn áhuga á „tossunum“ það
er nemendum sem ekki ná grunn-
skólaprófi. Þetta efni hefur verið
mikið feimnismál en vitað er að all-
stór hópur, sérstaklega strákar, nær
ekki lágmarksárangri í grunnskóla.
Það vakti mikla athygli þegar hin
skarpa fréttakona Lóa Pind Aldís-
ardóttir gerði nokkra frábæra, hisp-
urslausa og fræðandi sjónvarpsþætti
um málið sl. vetur.
Hún kynnti málið frá nýrri hlið og
varpaði nýju ljósi á þetta vandamál.
Undirritaður hefur fengið að gera
kennslutilraunir í skólum með þessa
nemendur.
Það fyrsta sem maður uppgötvar
er að þessir nemendur eru alls ekki
illa gefnir en skólinn vill nota
óbreyttar kennsluaðferðir á þetta
fólk þó reynslan sýni að það hefur
ekki gengið.
Það var mér mikið ánægjuefni að
fá tækifæri til að prófa Alpha-
aðferðina við stærðfræðikennslu í
grunnskóla. Þetta var fyrsta til-
raunin á þessum velli og ýmislegt
þarf að lagfæra í námsefninu en út-
koman var samt afar jákvæð. Það
vakti sérstaka athygli mína var að í
hverjum 20 manna bekk voru nokkr-
ir nemendur sem stóðu illa að vígi og
fengu einkakennslu af leiðbeinendum
en í bekknum voru einnig nokkrir
framúrskarandi nemendur. Þessir
nemendur fengu enga athygli eða
hjálp.
Þessir góðu nemendur eiga líka
sinn rétt og þeim má kenna í hóp með
góðum árangri.
Mikið sorgarefni er einnig að raun-
greinarnar eðlis- og efnafræði eru
ekki kenndar í grunnskóla.
Nauðsynlegt er að talkennsla í ís-
lensku verði kennslugrein en með
smá leiðbeinandi hjálp er hægt að
bæta málfar ungmenna þannig að
fólk fari að heilsast og kveðjast á ís-
lensku og hætta að segja þú veist í
tíma og ótíma.
En mikið eru nemendur í dag
elskulegt og viðkunnanlegt fólk og
það er kannski aðalatriðið.
Störf kennara eru grunnurinn að
velferð fólks og þessi stétt á skilið
mikla virðingu fyrir sín störf eins og
gert er í Finnlandi.
Að lokum heilræði til kennara
Þórarinn Björnsson fyrrverandi
skólameistari á Akureyri sagði við
skólasetningu:
„Ég vona að kennararnir gefi skól-
anum sem mest af sál sinni, því án
þess verður enginn merkur í kenn-
arastarfi. Göfgi og erfiði kenn-
arastarfsins er í því fólgið, að það er
sálarstarf. Það má aldrei gleymast“
Stærðfræði í takt við tímann
Eftir Ellert
Ólafsson »Rafbækur og stærð-
fræðiforrit eru
langtum betri aðferð til
að kenna stærðfræði en
blaðs- og blýants-
aðferðin sem er í aðal-
atriðum miskunnarlaus
utanbókarlærdómur.
Ellert Ólafsson
Höfundur er verkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Tölvu- og Stærð-
fræðiþjónustunnar ehf.