Morgunblaðið - 16.08.2013, Side 37

Morgunblaðið - 16.08.2013, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013 ✝ Þórður Vil-mundarson, fyrrverandi bóndi og smíðakennari, Mófellsstöðum, Skorradal, Borg- arfjarðarsýslu, fæddist á Mófells- stöðum 22. sept- ember 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 31. júlí 2013. Þórður var sonur hjónanna Vilmundur Jónssonar, f. 17.6. 1884, d. 20.4. 1959, bónda á Mó- fellsstöðum, og konu hans Guð- finnu Sigurðardóttur, f. 30.4. 1894, d. 30.6. 1984. Föðurfor- arstað sínum Mófellsstöðum og var heimilsfastur þar alla ævi. Í barnaskóla var hann í sveitinni sinni fram að fermingu. Hann stundaði nám við Reykjaskóla í Hrútafirði 1951-́53 og í handa- vinnudeild Kennaraskóla Íslands 1953-́55. Hann vann við smíðar í Reykjavík í tvö ár að námi loknu og kenndi smíðar við grunnskól- ann á Hvanneyri 1974-́88. Hann átti sæti í byggingarnefnd Skorradalshrepps 1971-́86. Bóndi var hann á Mófellsstöðum ásamt systkinum sínum Bjarna og Margréti. Fyrst ásamt Guð- finnu móður þeirra þar til hún lést. Þórður var heimakær mað- ur sem vann vel að sínu, hagur í höndum og hugmyndaríkur á því sviði. Hann var ókvæntur og barnlaus. Útför Þórðar fer fram frá Hvanneyrarkirkju í dag, 16. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 13. eldrar Þórðar voru hjónin Jón Þórð- arson, bóndi á Mó- fellsstöðum, og kona hans Margrét Ein- arsdóttir. Móðurfor- eldrar voru hjónin Sigurður Ásmunds- son og Geirlaug Eyj- ólfsdóttir, Breiðuvík á Snæfellsnesi. Þórður var yngst- ur fjögurra barna Vilmundar og Guðfinnu á Mó- fellsstöðum. Elstur systkinanna var Sigurjón. f. 19.7. 1925, d. 26.4. 1948, þá Margrét. f. 12.11. 1926, og Bjarni, f. 26.8. 1928. Þórður ólst upp á fæðing- Þórður Vilmundarson, Mó- fellsstöðum í Skorradal, var einkar vel gefinn maður til munns og handa. Hæfileikar sem Þórður hlaut í vöggugjöf og gott uppeldi á vönduðu heimili gerðu hann að eftirminnilegum mann- kostamanni. Við systkinin áttum því láni að fagna að dvelja nánast öll okkar æskusumur á Mófells- stöðum. Þórður og fjölskylda hans voru mikilvæg í lífi okkar. Þórður var fallegur og glæsi- legur maður en mest prýddi hann þó meðfædd kurteisi. Hann var greindur maður og gætinn, fremur hlédrægur, skemmtileg- ur í viðræðum og oft gamansam- ur. Íþróttamaður var Þórður góður á yngri árum og fótfrár. Hann gekk snemma í Ung- mennafélagið Íslending og mun í keppni hafa hlaupið 100 metrana á um 11 sekúndum. Forsaga þess að við systkinin dvöldum svo mikið á Mófellsstöð- um var að faðir okkar var þar snúningadrengur frá níu ára aldri. Yngstu systkini hans tvö dvöldu þar smábörn þegar Ís- land var hernumið 1940. Mófellsstaðaheimilið var ann- álað myndarheimili. Þekktastur heimilismanna var þjóðhaginn Þórður Jónsson er varð blindur í æsku. Gísli Sigurðsson blaða- maður á Samvinnunni kom 1958 til að ræða við hann: „Á Mófells- stöðum býr Vilmundur Jónsson, bróðir Þórðar, og kona hans Guðfinna Sigurðardóttir. Þau voru bæði heima við og var mér boðið til stofu. Þar voru svo fal- leg húsgögn, að unun var á að horfa: Borðstofuborð, stólar og skápur. Það var í nýjum og létt- um stíl, en þó minnist ég þess ekki að hafa séð svipuð húsgögn í búð. Enda kom það á daginn, að slíkt mundi vandfundið í búðum, því hér var um að ræða heimilis- iðnað á Mófellsstöðum. Þórður hafði smíðað skápinn en sonur þeirra hjóna hafði smíðað borðið og stólana. Þótti þeim augljóst, að hann hefði svipaðar hagleiks- gáfur og Þórður, frændi hans.“ Án efa sótti Þórður þekkingu sína og hæfileika í sömu rót og föðurbróður hans, en hann bætti um betur, varð trésmiður að mennt og kenndi smíðar árum saman. Bóndi var hann á Mó- fellsstöðum ásamt systkinum sínum, Bjarna og Margréti að foreldrum þeirra gengnum, fjórði ættliðurinn sem situr þá jörð. Þórður var íhugull, aldrei asi á honum, vel hugsað hvaðeina sem hann vann. Allt lék í höndum hans, smíðar sem vélavinna hverskonar. Sjaldan var sótt að- stoð til annarra þó eitthvað bilaði á Mófellsstöðum, bræðurnir þar gátu gert við flest. Sveitungum var Þórður hjálplegur og nem- endum viðmótshlýr og góður kennari. Síðari árin var Þórður oft las- inn en æðrulaus var hann fram á hinsta dag. Börn okkar systkina voru flest í sveit að Mófellsstöðum í lengri eða skemmri tíma og loks barna- börn okkar. Yngri systur okkar, Svana og Sunna, fengu að dvelja orlofsdaga á Mófellsstöðum og ýmsir ættingjar okkar voru þar einnig í sveit mörg sumur. Smáfólkinu var Þórður undur hlýr og þannig var jafnan viðmót hans við okkur öll. Hér er þetta þakkað, og að hafa þekkt svo hjartahreinan og heiðarlegan mann sem Þórður var. Guð blessi minningu hans og gefi systkinum hans, Bjarna og Margréti, styrk í þeirra mikla missi. Við sendum þeim ástúð- legar samúðarkveður. Guðrún, Einar og Kristján Guðlaugsbörn. Mig langar í nokkrum orðum að minnast Þórðar á Mófellsstöð- umsem þrotinn kröftum kvaddi okkur 31. júlí sl. Hann var, ásamt Möggu og Bjarna, alla tíð partur af mínu lífi. Vinskapur, samvinna og samvera var alla tíð hátt sett milli heimilisfólksins í Neðri- Hreppi og á Mófellsstöðum. Þær eru margar minningarnar sem koma upp í hugann á þessari stundu, og allar góðar. Heyskap- ur, smalamennska, sauðburður, útreiðar á fögrum sumarkvöld- um og góðar samverustundir. Allt er það tengt Þórði, Möggu og Bjarna. Jóladag, alla mína æsku, komu systkinin alltaf í kaffi heim í Neðri-Hrepp eftir messu. Við systkinin óþreyjufull að sýna jólagjafirnar og ekki stóð á athyglinni. Við vorum alltaf þess virði að sinna. Þórður var um nokkurt skeið smíðakennari í Andakílsskóla. Ég var ein af þeim heppnu að vera í skólanum á þeim tíma. Hann var listasmið- ur, algjörlega sjálfmenntaður og kennari af guðs náð. Sú enda- lausa þolinmæði, natni og tillits- semi, sem hann sýndi okkur nemendum sínum bar vitni um þann góða dreng sem hann var. Um hæfni hans bera fagurt vitni m.a. skírnarfontur Hvanneyrar- kirkju, auk margra annarra fag- urra gripa sem eftir hann liggja. Það sem stendur mér næst er forláta dúkkurúm sem hann gaf mér þegar ég var stelpa. Ég þekkti Þórð allt mitt líf og sá hann aldrei skipta skapi. Hann var vinsæll af nemendum sínum, þó að þeir væru misjafnir. Ég veit að ég tala fyrir munn þeirra margra hér þegar ég minnist hans með hlýju, gleði og virð- ingu. Það var það viðmót sem hann sýndi nemendum sinum. Alltaf. Þær eru ofarlega í huga mér smalamennskurnar með Þórði á Mófellsstöðum. Fyrstu árin fór maður labbandi að aust- anverðu með Bjarna, sem voru skemmtilegar ferðir og fræðandi. Þegar maður eltist aðeins fengu sumir, ég þar með talin, að fara vestanmegin ríðandi með Þórði. Þá fannst manni að maður væri alvörusmali. Í þeim ferðum bergði maður af brunni þess blíða ljúfmennis sem Þórður var. Alveg sama hversu oft var spurt um sama hlutinn, alltaf svar eins og spurt væri í fyrsta sinn. Rétt eins og í smíðatímunum í Anda- kílsskóla hér áður fyrr. Alltaf þessi endalausa þolinmæði og ljúfmennska. Svo ekki sé minnst á hvað hann sagði manni og upp- fræddi að fyrra bragði. Þær eru mér ofarlega í huga heimsókn- irnar mínar tvær, nú í sumar, að Mófellsstöðum. Það duldist mér ekki í hvað stefndi, en spjall um liðna tíð og líðandi stund rifjuðu upp enn og aftur allar þær góðu stundir sem Þórður tengist í mínu lífi. Sléttri viku fyrir hans dag til að kveðja, gekk ég ásamt yngri strákunum mínum tveimur gamla leið. Við gengum á bak við Mófellið, upp frá Mófellsstöðum. Þetta var dagurinn sem Þórður var fluttur á sjúkrahús, þrotinn kröftum. Gangan var yndisleg í yfir 20 stiga hita þó aðlangt væri liðið á dag. Þessi leið, með öllum sínum litbrigðum, giljum, foss- um, einstigum og ótrúlegu útsýni er og verður ómetanleg í mínum huga. Þarna rifjuðust upp marg- ar minningar liðinna ára, allar bjartar og fallegar. Táknrænar fyrir þann góða dreng, ljúfmenni og öðling sem við kveðjum hér í dag. Blessuð sé minning Þórðar á Mófellsstöðum. Steinunn Á. Einarsdóttir. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Ég kem á eftir, kannske í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og synda- gjöld. Þessi vísa Bólu-Hjálmars kom í hugann við andlát Þórðar á Mó- fellsstöðum, sem bar að rétt um tveim vikum eftir útför Krist- ófers frá Stóru-Drageyri. Tveir kærir vinir kveðja í sama mán- uði. Við leiðarlok þín, Þórður, er margs að minnast. Ég man upp- skipunarferðirnar til Akraness á árunum um 1960 – sér í lagi eina þar sem unnar voru 44 stundir á tveimur sólarhringum. Maður fékk aðeins sofið í fjóra tíma. Ófá voru dagsverkin sem þú hjálpaðir okkur við byggingu fjárhúss og hlöðu. Þið Oddur á Steinum náðuð vel saman við þá smíði, og gaman var að vinna með ykkur. Öll smíðavinna lék í höndum þínum, hvort sem um húsbyggingu eða mublusmíði var að ræða. Um það bera skírnar- fontar í kirkjunum á Borg á Mýr- um og á Hvanneyri, ásamt öllum húsum á Mófellsstöðum vott. Þessa hæfileika áttir þú ekki langt að sækja því föðurbróðir þinn og nafni var völundarsmið- urinn Þórður blindi á Mófells- stöðum. Þá kemur í hugann atvik frá 1969. Sjór í fór í lestarfóður flutningaskips sem kom til Borg- arnes. Við fengum að hirða fullan bílfarm af kúafóðurkögglum, allt í pokum sem voru að helmingi eða 1/4 blautir. Því, sem við ekki hirtum af þessum farmi, átti að aka á öskuhauga. Þá kom spurn- ing: Hvernig átti að bjarga sem mestu af þessum verðmætum? Lausnin fannst – vinir og kunn- ingjar í Síldar- og fiskimjölsverk- smiðju Akraness, Guðmundur frá Steinsstöðum og fleiri sögðu okkur að koma með kögglana til sín. Ingvar á Múlastöðum keyrði farminn út á Akranes – pokar all- ir losaðir og innihaldið fór í gegn- um þurrkunarkerfið í verksmiðj- unni. Síðan var sekkjað í nýja síldarmjölspoka og ánægðir vor- um við þegar skipt var farminum á milli okkar, þegar heim kom. Þá minnist ég snjóavetrar á níunda áratugnum. Við Jóhann Viðar komum á vélsleðum að Mó- fellsstöðum. Þú settist á sleðann hjá mér en Bjarni hjá Jóhanni. Á innan við 10 mínútum ókum við frá Mófellsstaðahlaðinu upp á hábungu Mófells. Slíkir dagar skilja eftir skemmtilegar minn- ingar. Aldrei tranaðir þú þér fram eða sóttist eftir vegtyllum, en sveitungar og samferðamenn komu ótal verkum í þínar hend- ur. Aðeins eitt skal nefnt, þegar stofnuð var byggingar- og skipu- lagsnefnd í Skorradalshreppi 1971 þá leiddir þú hana í 15 ár eða til 1986. Nú að leiðarlokum þakka ég þér, kæri vinur, samfellda sam- fylgd í hart nær 70 ár eða svo langt sem minni mitt nær. Við systkini mín og okkar fjölskyldur sendum Margréti og Bjarna inni- legar samúðarkveðjur. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Davíð Pétursson. Í dag er til moldar borinn einn af okkar elstu og bestu vinum, Þórður á Mófellsstöðum. Ómet- anlegt er að hafa fengið að eiga slíkt sómafólk sem þau systkinin Þórð, Bjarna og Margréti á Mó- fellsstöðum að sem nágranna og vini. Tryggari vini er varla hægt að hugsa sér – alltaf hafa þau borið hag okkar fyrir brjósti og fylgst grannt með því sem var að gerast á hverjum tíma hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Ég á margar góðar minningar frá bernskuárum um heimsóknir í gamla húsið á Mófellsstöðum þegar eldri kynslóðin réð ríkjum og þau systkinin voru enn á besta aldri. Vináttutengsl héld- ust áfram og efldust eftir að ég eignaðist mína eigin fjölskyldu og flutti loks aftur í sveitina. Öll okkar börn og síðar barnabörn hafa alltaf verið velkomin í heim- sókn að Mófellsstöðum til að hitta kýr og kálfa og hænur og ekki síst öll litlu lömbin um sauð- burðinn. Vafalaust hefur ekki verið á annir þeirra bræðra bæt- andi um hásauðburðinn en aldrei létu þeir á því bera og sýndu þessum ungu gestum endalausa góðvild og þolinmæði, ekki brást heldur að boðið var inn þar sem Magga beið tilbúin með rausn- arlegar veitingar. Þórður var mjög dagfarsprúð- ur og rólegur maður sem aldrei sagði illt orð um nokkurn mann. Hann var mikill hagleiksmaður eins og nafni hans og náfrændi Þórður blindi á Mófellsstöðum enda starfaði hann við smíða- kennslu samhliða búskapnum um árabil og gat sér gott orð í því starfi. Eftir hann liggja ýmsir góðir munir eins og til dæmis skírnarfonturinn í Hvanneyrar- kirkju. Þórði var það mikið gleðiefni þegar þau Karólína og Ottó fluttu í gamla húsið á Mófells- stöðum fyrir fáeinum árum, en það er ekki síst þeim að þakka að honum var það kleift að eyða sín- um síðustu árum heima ásamt Bjarna bróður sínum þrátt fyrir ört hrakandi heilsu. Samband þeirra bræðra var alla tíð mjög náið og eins við Margréti systur þeirra sem nú dvelur í Brákar- hlíð í Borgarnesi. Missir þeirra systkinanna er mikill og er hug- ur okkar hjá þeim svo og öðrum aðstandendum. Rúna og Jóhannes í Efri-Hreppi. Þá er lífsins göngu Þórðar ná- granna okkar á Mófellsstöðum lokið, svo skrýtið sem það er. Það er nefnilega þannig að hann var einhvern veginn jafn sjálfsagður og bæjarlækurinn, já eða Skarðsheiðin. Hann var elsk- aður og dáður af sveitungum sín- um og öllum þeim sem honum kynntust. Mig langar að minnast hans í örfáum fátæklegum orðum nú við leiðarlok. Við hér í Mófellsstaðakoti höf- um notið þess að búa í nágrenni við systkinin á Mófellsstöðum alla tíð og það er nú einu sinni þannig að það er erfitt að taka eitt þeirra út úr og minnast, slík var samstaða þeirra og samhug- ur. Samstarf og samvinna bræðr- anna Þórðar og Bjarna var ein- stakt. Þeir voru afar nánir og stunduðu búskap sinn af sér- stakri natni og samvinnu. Í raun voru þeir í sínum störfum eins og vél eða tannhjól sem virkuðu saman ljúft og smurt. Þórður var einstaklega vandaður maður í verki, allt sem hann gerði var af- ar vandað. Hann var smiður góð- ur, einkanlega á tré, og þá var nú engin hrákasmíðið á hlutunum. Allt sem hann gerði var unnið af natni og aldrei var flanað að neinu. Við hér nutum oft aðstoð- ar þeirra bræðra í ýmsum vanda í gegnum árin sem seint verður fullþakkað. Þórður var smíðakennari að mennt og naut ég þess ásamt öðrum börnum í grunnskólanum á Hvanneyri á þeim tíma, að hann kenndi okkur smíði. Hann kenndi okkur þá að allt sem við gerðum skyldi vandað. Dæmi um það var þegar ég 12 ára heimtaði að smíða lampa úr kýrhorni. Ekki var nú Þórður alveg á því til að byrja með en ég náði þó mínu fram, kannski fyrir ná- grennið en ég man það að ekki var ég alltaf sáttur þegar Þórður lét mig pússa lampann allan vet- urinn. Það er þó svo að lampinn er uppi á hillu hjá mér í dag rúm- um 30 árum síðar og ég sé ekki eftir vinnunni sem lögð var í hann í dag. Það er margs að minnast úr samstarfi og samvinnu bæjanna hér undir Mófellinu í gegnum ár- in sem ekki verður tíundað hér. Þau systkinin, Magga, Bjarni og Þórður, bjuggu sínu búi af mynd- arskap eins lengi og kraftar leyfðu. Það var svo fyrir nokkr- um árum að heilsan tók að bresta hjá systkinunum og þá voru breytingar óumflýjanlegar. Mar- grét þurfti að fara á dvalarheim- ili en bræðurnir gátu áfram verið heima á Mófellsstöðum og kíkt á búskapinn hjá Kæju og Otta og farið í göngutúra saman sem var þeim báðum mikils virði. Við ferðalok viljum við í Mó- fellsstaðakoti þakka þér, elsku Þórður, fyrir samferðina í gegn- um árin og votta ykkur, elsku Bjarni og Magga, samúð okkar, megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í sorginni. Jón Eiríkur Einarsson. Þórður Vilmundarson HINSTA KVEÐJA Manstu er við hleyptum yfir mel og mó á Molda, Tígli og Grána? Og þóttumst fær í flestan sjó og fórum á stökki yfir ána? Eða við lékum með legg og skel við lækinn þegar við máttum og vorum bændur og bjuggum vel í búinu sem við áttum. Og daglega rákum við kvígur og kýr fram með Kaldá og niður í Flóa og einatt gerðust þar ævintýr sem ennþá í huganum glóa. Við fórum í réttir og rúðum fé og rökuðum hey í teigum og mér þykir enn að þetta sé það sem við kærast eigum. (KG) Kristján Guðlaugsson. ✝ Elskulegur bróðir okkar og frændi, HILMAR ÓLAFSSON, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA BJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, Glaumbæ, Reyðarfirði, lést þriðjudaginn 13. ágúst á Dvalarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði. Útförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju miðvikudaginn 21. ágúst klukkan 14.00. Stefán Björnsson, Hjördís Káradóttir, Halldór Björnsson, Sigurjóna Scheving, Þórhildur Björnsdóttir, Hafsteinn Larsen, Ingileif Björnsdóttir, Kristinn Björnsson, Sesilía Magnúsdóttir, barnabörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, HALLDÓR KRISTINN HELGASON frá Hnífsdal, Túngötu 18, Ísafirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut í Reykjavík mánudaginn 12. ágúst. Útför Halldórs fer fram laugardaginn 24. ágúst frá Ísafjarðarkirkju kl. 14.00. Steingerður Ingadóttir, María Sveinfríður Halldórsdóttir, Sig. Valgeir Jósefsson, Birkir Guðjón Halldórsson, Pia Majbrit Hansen, Karitas Ása Halldórsdóttir, Smári Garðarsson, Bryndís Halldórsdóttir, Valur Jóhannesson, Kristján Freyr Halldórsson, Bryndís Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.