Morgunblaðið - 16.08.2013, Page 39

Morgunblaðið - 16.08.2013, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013 að fara í pottinn og að hafa hann vel heitan. Honum líkaði að hafa góða og hugljúfa tónlist en var líka glaður þegar honum var boð- ið í strákapartí til Huldars og Sigga þar sem bara var spilað al- vöru rokk! Þegar Andri brosti var það svo einlægt og fallegt að brosið bræddi alla í kring. Elsku Andri okkar, hvíldu í friði. Kæru Sigga, Skjöldur og aðrir aðstand- endur, megi Guð styrkja ykkur á þessari erfiðu stundu. Kveðja frá gömlu vinkonun- um, Bjarnveigu Magnúsdóttur, Ernu Sigríði Böðvarsdóttur, Guðrúnu Völu Jónsdóttur, Herdísi Hersteinsdóttur og Sigríði Mundu Jónsdóttur. Kynni okkar Andra ná allt til þess að ég fékk hann í fangið þeg- ar hann var eins og hálfs árs gamall. Þá kom hann á Dagvist- unarheimilið Lyngás þar sem ég starfaði á þeim tíma og kolféll ég fyrir honum á fyrstu stundu. Hvernig var líka annað hægt en að falla fyrir þessum fallega og ljúfa dreng, sem með sinni hljóð- legu nærveru var samt svo mikill karakter. Þó ég riti hljóðlegu, þá gat hann Andri alveg látið í sér heyra ef hann var ekki ánægður eða fannst ég gera of miklar kröf- ur til sín. Dagar okkar Andra fóru í að gera æfingar, fara í sund og ýmiss konar þjálfun ásamt því að nærast og njóta samveru- stundanna. Ég var svo heppin að fá Andra stöku sinnum heim með mér í næturgistingu og voru það okkar dekurtímar. Einu sinni lentum við að vísu í smáævintýri á Miklubrautinni, þegar gamla Ladan mín gafst upp og þá voru „góð ráð dýr“. Þetta var fyrir tíma farsímanna og erfiðara að ná í aðstoð. Andra fylgdi heilmikill farangur og end- uðum við á því að taka dótið úr bílnum, ég tók hann síðan í fangið og við bara „húkkuðum“ okkur leigubíl sem ók framhjá. Andri tók þessu öllu með ró og spekt og fannst þetta eflaust bara vera fyndið, þó að þessu fylgdi hnjask og smá vesen. Sundtímarnir voru okkar uppáhald, þar leið honum svo vel og kom ánægju- og sældarsvipur á hann þegar ofan í vatnið var komið. Í gegnum Andra kynntist ég vel fjölskyldu hans og sérstak- lega ömmu hans, henni Siggu sem með ást og umhyggju hefur hugsað um hann og helgað sig honum, sem og foreldrar hans. Með okkur Siggu tókst mikill vin- skapur og kom ég oft á heimili þeirra, hvort sem það var bara í heimsókn eða til að vera með Andra. Þegar Andri varð eldri og kominn var tími á að flytjast að heiman, fækkaði samverustund- um okkar en alltaf var jafn nota- legt að hitta hann, strjúka yfir hárið á honum og augabrúnir og njóta návistarinnar. Andri átti fallegt heimili og bauð alltaf til veglegrar veislu á afmælisdaginn sinn, þar sem ætt- ingjum, vinum og sambýlisfólki var boðið. Afmælisveislan var fastur punktur í tilverunni og alltaf var jafnljúft að hitta hann, þó svo að stundum hefði liðið langur tími á milli þess sem við hittumst. Mér hefur alltaf fundist ég eiga svo mikið í Andra og ef- laust hef ég verið á hans fyrstu árum eins og stjórnsöm „mamma“ gagnvart öðrum sem komu að umönnun hans, en allir lögðust á eitt við að uppfylla hans daglegu þarfir á óeigingjarnan hátt. Á kveðjustundu er margs að minnast en efst í huga er minning um ljúfan og yndislegan dreng sem var umvafinn ástríkri og um- hyggjusamri fjölskyldu. Fjöl- skyldu hans, vinum, sambýling- um og öllum þeim sem að umönnun Andra hafa komið sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðju. Hvíl í friði, Andri minn – ég elska þig. Agla Sigríður Björnsdóttir. Ingibjörg Bergmann Hjálm- arsdóttir er látin. Hún náði því að verða eitt hundrað ára, nú í janúar síðastliðnum. Ingibjörg, sem gekk undir gælunafninu Imba, og faðir minn, Sveinberg Jónsson, ólust upp saman, frá ungaaldri hjá þeim Sveinbjörgu Brynjólfsdótt- ur og Jóni Jónssyni í Stóradal og hélst með þeim systkinakærleik- ur meðan bæði lifðu. Árið 1938 giftist Ingibjörg Guðmundi Bergmann og stofnuðu þau til búskapar að Stóru-Giljá. Þegar ég var lítil stúlka á Blönduósi varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi, að þau Imba og Mundi tóku í fóstur jafnöldru mína Bogeyju Ragnheiði, en við Eyja sóttumst eftir samvistum hvor við aðra, og Imba sá til þess að það gæti gengið. Margar ferðir fóru for- eldrar mínir að Stóru-Giljá til að heimsækja þau Munda og Imbu. Og oft varð ég eftir þar í þeim ferðum. Þetta voru sæludagar fyrir okkur stelpurnar. Það veitti Imbu alltaf gleði að snúast í kringum okkur, eyjurnar sínar, eins og hún kallaði okkur alltaf. Hún söng fyrir okkur og spilaði undir á gítarinn sinn, einnig kvað hún fyrir okkur rímur. Og alltaf kvað hún stemmur eða raulaði vísur við verkin sín. Við Eyja áttum okkur sælustað, sem var gamalt refabú sem stóð á hæð, sunnan árinnar. Þarna átt- um við okkar bú og sá Imba allt- af til þess að við værum vel ne- staðar þegar við héldum þangað til bústarfa, en þau voru tíma- frek í þá daga, við alkyns drullu- kökubakstur þar sem kökurnar voru skreyttar með blómum, helst eyrarrós. Þá var Imba ólöt við að taka okkur með í berjat- úra, upp í Öxl, þar sem þau Mundi byggðu sér seinna býli. Og margar voru ferðirnar í Stóradal til þess að heimsækja frændfólkið þar. Mest voru þetta vetrarferðir, á jólaböll í sveitinni og við ýmis önnur tækifæri. Því stóri vípóninn hans Guðmundar komst allt. Elsku Imba mín. Ég þakka þér fyrir allt sem þú varst mér, því mun ég aldrei gleyma. Þórey Sveinbergsdóttir. Ingibjörg Bergmann Hjálm- arsdóttir er látin á 101. aldurs- ári. Ung var hún tekin í fóstur af merkishjónunum Sveinbjörgu Brynjólfsdóttur og Jóni Jónssyni í Stóradal. Minntist hún þeirra alla ævi með þakklæti og virð- ingu, enda vissi ég aldrei um sprungu í ræktarsemi hennar eða vinfesti. Hún giftist Guð- mundi Bergmann 24. júní 1938, en þá var þriggja systkina brúð- kaup á Stóra-Giljá. Ingibjörg og Guðmundur stofnuðu heimili sitt á efri hæð hússins þar, en Guð- mundur sem var húsasmiður rak þar um skeið trésmíðaverkstæði í kjallaranum. Allt var það í góðu samkomulagi við þá sómamenn, Giljárbræður. Eftir allmörg ár fluttu þau hjónin að Öxl í Þingi, en Guð- mundur hafði eignast hálfa jörð- ina og reist þar myndarlegt íbúðarhús og útihús. Í Öxl er fagurt útsýni og ekki efamál að Ingibjörgu var það mikið gleði- efni að vera húsfreyja í eigin hí- býlum. Þar stunduðu þau búskap Ingibjörg Bergmann Hjálmarsdóttir ✝ IngibjörgBergmann Hjálmarsdóttir fæddist á Blönduósi 20. janúar 1913. Hún andaðist á Heilbrigðisstofn- uninni á Blönduósi 1. ágúst 2013. Útför Ingibjarg- ar fór fram frá Þingeyrarkirkju 12. ágúst 2013. auk starfa Guð- mundar utan heim- ilis. Þau hjón, Ingi- björg og Guðmund- ur, voru í hópi sér- stakra vina okkar á Akri og gilti það jafnt í tíð foreldra minna sem okkar Helgu. Fjölmörg at- vik eru mér minn- isstæð frá þeim vinakynnum. Öll vekja þau þakk- læti í huga mér. Ingibjörg var rausnarleg hús- móður, glaðvær í viðmóti og skemmtileg. Hún var vel gefin og hafði yndi af bókmenntum, einkum ljóðum og sögulegum fróðleik. Hún kunni ógrynni af lausavísum og ljóðum þjóðskáld- anna og virtist minnið nánast óskert fram undir hið síðasta. Bólu-Hjálmar var langafi hennar og þótt hún hafi dáðst að orð- snilld hans og gæti vitnað til hans hvenær sem var, náði ljóða- þekking hennar yfir miklu stærra svið. Sjálf lumaði hún á hagmælsku en fór dult með. Hún hafði góða söngrödd og var í fjölda ára forsöngvari í kirkjukór Þingeyrakirkju. Þeim hjónum varð eigi barna auðið, en tóku fósturbarn, Bo- geyju Jónsdóttur, sem þau ólu upp sem sína eigin dóttur. Fleiri börn áttu hjá þeim skjól um lengri eða skemmri tíma. Eftir lát Guðmundar 1987 flutti Ingi- björg í húsnæði fyrir aldraða í Héraðshælinu á Blönduósi og dvaldi síðustu árin á sjúkradeild. Við Helga litum stöku sinnum inn til hennar. Hún virtist una hag sínum allvel, tók glaðlega á móti okkur, vildi veita kaffi og með því, fór með vísur og sagði skemmtilega frá. Við fórum að jafnaði glaðari frá henni en við komum. Síðustu árin sagði hún mér ítrekað að hún ætlaði sér að verða 100 ára. Þetta varð og bet- ur þó 20. janúar sl. Var haldið hóf henni til heiðurs á 100 ára af- mælinu. Hún var vel hress og kvað við raust vísur og kviðlinga með kvæðamönnum, sem voru meðal gesta. Eftir þetta tók þrekið að dvína. Hún hafði náð sínu mark- miði og ekkert tilefni til að setja sér nýtt. Ég leit síðast inn til hennar fyrir örfáum vikum. Þá sá ég að skammt mundi til loka. Við Helga kveðjum hana með þakklæti og virðingu. Blessuð sé minning hennar. Pálmi Jónsson, Akri. Það var einn sólríkan sumar- dag árið 1950 að ég, sem þá var 13 ára, steig út úr rútunni við Stóru-Giljá í Austur-Húnavatns- sýslu. Á móti mér tók kona sem ég þekkti ekki, en ég vissi að þetta var Ingbjörg kona Guð- mundar Bergmann, frænda míns, sem hafði komið á heimili foreldra minna nokkrum dögum fyrr og pabbi spurði hann hvort hann vantaði ekki snúninga- stelpu um sumarið. Mundi tók því vel og tiltók daginn sem ég mætti koma. Og ég fór. Þetta var upphafið að sex sumra kaupa- vinnu hjá þeim ágætu hjónum. Þau bjuggu uppi á lofti í stóra húsinu sem Jónas Bergmann, faðir Guðmundar, hafði byggt fyrir bræðurna sem bjuggu á Stóru-Giljá, Sigurð og Jóhannes. Þeir komu frá Beinakeldu. Íbúð Guðmundar og Ingi- bjargar var uppi á lofti, að vest- anverðu og útsýnið úr vestur- gluggunum var meiriháttar. Ekki spillti að ég sá bernsku- sveit mína, Vesturhópið, sem að vísu var á bak við Björgin og Borgarvirkið, en Vatnsnesfjallið sá ég vel og þekkti þar mörg kennileiti. Guðmundur bjó ekki á Giljá, en hafði keypt hálfa jörð- ina Öxl, sem stóð undir sam- nefndu fjalli, ca. þrem kílómetr- um sunnar en Giljá. Mörg á ég sporin á milli þessara bæja, hljóp stundum alla leiðina, eða fór ríð- andi á Jarpi eða Grána, en svo kom traktorinn og Mundi kenndi mér strax að keyra hann svo að ég gæti snúið og rakað þegar viðeigandi vél hafði verið sett aftan í. Túnið í Öxl var bratt og sumsstaðar snarbratt svo ég var jafnvel hrædd um að velta trak- tornum. En það gerðist nú ekki sem betur fer. Ingibjörg útbjó alltaf nesti til dagsins áður en farið var út að Öxl. Við Ingibjörg urðum strax góðar vinkonur, töluðum um allt milli himins og jarðar, trúmál og heimspeki auk heldur annað. Og ég var á þeim aldrinum að gefa ungum mönnum hýrt auga og alltaf trúði ég henni Ingibjörgu fyrir slíkum hugrenningum. En svo fór ég í skóla suður á land og þar kynntist ég mannsefninu mínu og gerðist kaupakona hjá foreldrum hans að Litlu-Sand- vík. En ég verð alla ævi þakklát fyrir þessi björtu og hlýju sumur á Giljá og í Öxl. Í minningunni var alltaf sólskin í þá daga. En ef það gerðist að ekki var verið að vinna í heyi og við bara heima á Giljá, þá tókum við lagið, við Ingibjörg. Hún hafði undurfal- lega söngrödd, hafði auk þess lært að syngja á yngri árum. Og hún kunni heil ósköp af ljóðum og lögum. Spilaði auk þess á org- el og gítar. Ekki varð þeim barna auðið, Guðmundi og Ingibjörgu, en fósturdóttir þeirra er Bogey Ragnheiður Jónsdóttir frá Litla- Hvammi í Miðfirði. Hún missti móður sína þegar hún fæddist og Guðmundur og Ingibjörg tóku barnið að sér nýfætt og var hún þeim sem besta dóttir. Síðast hitti ég Ingibjörgu á 100 ára afmæli hennar í janúar sl. Í hátíðarsal elliheimilisins á Blönduósi var stórveisla henni til heiðurs. Nú gefst ekki lengur tilefni til að stoppa á Blönduósi á ferðum norður. Ég er þakklát fyrir að hafa þekkt Ingibjörgu Hjálmars- dóttur Bergmann og fyrir sumr- in sex, sem ég var á Giljá. Þau hafa gefið mér gott veganesti út í lífið. Blessuð sé minning hennar. Elínborg Guðmundsdóttir. Hinn 20. janúar 1913 fæddist hjónunum Önnu og Hjálmari Lárussyni á Blönduósi dóttirin Ingibjörg, kölluð Imba. Fjöl- skyldan óx hratt og erfitt var að framfleyta henni. Þegar Imba var á sjötta ári var leitað til Sveinbjargar og Jóns í Stóradal um barnsfóstur. Sveinbjörg kaus telpu, sá þar félaga fyrir dótt- urina Guðrúnu. Imba féll vel inn í barnahópinn í Stóradal, vinátta Gunnu og Imbu varð einlæg og entist meðan báðar lifðu. Þrátt fyrir mikið annríki gaf Jón sér tóm til að sinna uppeldi barnanna og lagði mikla áherslu á að þau töluðu gott mál, síðan var Imbu fallegt málfar mjög hugleikið. Sveinbjörg veitti stóru heimili forstöðu og kenndi telp- unum hannyrðir og skólinn var oftast í Stóradal. Imba fór á Kvennaskólann á Blönduósi, eins var hún í vist í Reykjavík. Örlög Imbu réðust þegar samkomuhús sveitarinnar var byggt. Smiður- inn, Guðmundur Jónasson Berg- mann, dökkhærður með glettn- isglampa í augum og hlýtt bros, heillaði ungu stúlkuna í Stóradal. Imba og Mundi gengu í hjóna- band á Jónsmessu sumarið 1938 samtímis tveimur systrum hans. Þau settust að á Stóru-Giljá, fjöl- skylda hans leigði þar hluta íbúðarhússins. Jónas, faðir Guð- mundar, var smiður og rafmagn- ið á Giljá var eftirsóknarvert. Ungu hjónin keyptu hálfa ná- grannajörðina Öxl, þar var heyj- að. Þeim varð ekki barna auðið en gleðin varð mikil þegar fóst- urdóttirin, Bogey Ragnheiður Jónsdóttir, kom. Eyja, og síðar börn hennar og venslafólk urðu þeim ástkær fjölskylda. Ég fór í sveit níu ára gömul til Imbu og Munda, naut vináttu þeirra mömmu. Imba tók mér opnum örmum og við Eyja urð- um góðar vinkonur. Ég var hjá þeim í sjö sumur. Imba var mjög barngóð, og var hugkvæm við að hafa ofan af fyrir okkur innivið þegar rigndi, kenndi okkur fullt af spilum, gátum og að kveðast á. Hún kunni sæg af ljóðum og átti stutt að sækja áhugann á kveðskap. Hjálmar faðir hennar var kvæðamaður og langafinn var skáldið Hjálmar Jónsson frá Bólu. Ekki er unnt að minnast Imbu án þess að nefna sönginn. Hún hafði fallega sópranrödd, spilaði á gítar og orgel og mikið var sungið og spilað. Imba söng í kirkjukór Þingeyrakirkju í marga áratugi og var þar lengi organisti. Mundi var tvískiptur milli smíðanna og búskaparins, hann var iðulega að heiman við smíð- ar, jafnvel sumarpart. Þá fannst okkur Eyju við bera ábyrgðina á heyskapnum, þó fyrst hafi Ella, frænka Munda, sem var hjá þeim í sex sumur, borið þyngstu byrðina. Ljúfar minningar eru ná- tengdar þessu góða fólki. Ég kom árlega í heimsókn, á Giljá, þá í Öxl og loks á Blönduós. Mundi fékk slag og búskapnum í Öxl var sjálfhætt. Þau Imba áttu saman nokkur góð ár á Hnit- björgum, heimili aldraðra, þar sem Imba bjó áfram eftir lát hans. Loks fékk hún stórt her- bergi á hjúkrunarheimilinu. Heilsa Imbu var oft ekki sem skyldi, en alltaf rétti hún við aft- ur. Hún sagðist ætla að verða 100 ára og halda þá ærlega veislu. Við það stóð hún. Enginn má sköpum renna. Síðustu vik- urnar var sýnt hvert stefndi. Það var þreytt, háöldruð kona sem sofnaði hinsta svefni þann 1. ágúst síðastliðinn. Sigríður Hjartar. Ingibjörg Bergmann Hjálm- arsdóttir á Blönduósi, fyrrum húsfreyja á Stóru-Giljá og Öxl í Húnaþingi, kvaddi þennan heim 1. ágúst 2013 og verður jarðsett í dag hinn 12. ágúst á Þingeyrum. Hún mun hvíla þar við hlið bónda síns, Guðmundar Berg- manns Jónassonar, trésmíða- meistara og bónda frá Marðar- núpi og Stóru-Giljá, sem hún missti fyrir 26 árum. Á Þing- eyrum stendur ein merkasta kirkja landsins, glæsileg að utan sem innan, steinkirkja vígð 1877, reist úr klettum frá Nesbjörgum vestan Hóps af Ásgeiri Einars- syni alþingismanni og bónda. Þar verður Ingibjörg kvödd hinstu kveðju. Á Þingeyrum reis hið fyrsta klaustur á Íslandi árið 1133 og fræðasetur stóð þar í rúm 400 ár. Það er við hæfi, að merkiskonan Ingibjörg Berg- mann skuli vera á Þingeyrum, þar sem víðsýni er einna mest í byggðum Húnaþinga og tignar- legt heim að líta. Gott er að vita af henni á hinu forna höfuðbóli. Faðir Ingibjargar, Hjálmar myndskeri Lárusson fyrst á Blönduósi, síðar í Reykjavík, var dóttursonur Bólu-Hjálmars. Móðir hennar var Anna Halldóra Bjarnadóttir af Stöndum. Bæði voru þau kvæðafólk af lífi og sál. Hjálmar var bróðir Jóns Lár- ussonar í Hlíð á Vatnsnesi, sem var merkasti kvæðamaður þjóð- arinnar á sínum tíma. Þeir bræð- ur kunnu fjölmargar stemmur. Hjálmar dó áður en Kvæða- mannafélagið Iðunn var stofnað, áður en skipulegar hljóðritanir hófust á kvæðalögum. Anna hafði lært kvæðalögin af manni sínum og starfaði náið með Ið- unni. Hún varð því einn þýðing- armesti hlekkurinn í varðveislu á kvæðalögum úr Húnavatnssýslu. Ingibjörg var meðvituð um þjóðararfinn og stolt af honum; vísurnar, ljóðin og kvæðalögin léku henni á tungu og borðið hennar var að jafnaði hlaðið bók- um um kveðskap og annan þjóð- legan fróðleik. Hún naut þess að kveða og bað mig þess að kveða yfir sér, ef hún færi fyrr en ég úr þessum heimi. Þess vegna kveð ég fyrir hana á Þingeyrum í dag. Ég kynntist henni eftir að hafa þekkt systur hennar, Margréti Hjálmarsdóttur, sem var félagi okkar í Iðunni og frábær kvæða- kona. Hún hafði gefið út hljóm- plötu, þar sem hún kvað sjálf öll lögin. „Kvæðarödd bjó yfir orku aftan úr grárri forneskju“ og eins var það hjá Ingibjörgu. Raddfögur var hún alla tíð. Við Ólöf Erla konan mín kom- um til hennar á Blönduósi, hve- nær sem við komum því við á kristilegum tíma. Oft var hún með bók í höndum eða handa- vinnu. Fallegt gult og skreytt teppi fékk Halldóra sonardóttir mín frá henni, þegar hún var 93ja ára. Ingibjörg breiddi út faðminn, þegar við komum og bauð okkur velkomin „krakkana sína“, þótt við værum að komast á áttræðisaldurinn. Bakið var beint, gráblá augun snör, brosið hlýtt og fasið skörulegt. Og svo tók hún undir kveðskapinn með styrkri röddu þrunginni tilfinn- ingu. Oftar en ekki byrjuðum við á kvæðalagi og vísu föður henn- ar: Hrönn, sem brýtur harða strönd höfug lýtur knörum. Topps með hvítu tröfin þönd tvennir ýta úr vörum. Blessi allar góðar vættir Ingi- björgu og styrki og huggi vanda- menn hennar og vini. Ólöf Erla Halldórsdóttir og Sigurður Sigurðarson dýra- læknir. Mig langar að minnast góðrar vinkonu, Ingibjargar Bergmann, í fáeinum orðum. Ég er þakklát fyrir okkar vináttu og væri fá- tækari ef ég hefði ekki fengið að kynnast henni. Hún var fædd fyrir fyrra stríð og hafði upplifað miklar breytingar á sinni löngu ævi. Það var notalegt og fróðlegt að spjalla við hana bæði um mál- efni líðandi stundar og liðna tíð. þrátt fyrir mikinn aldursmun áttum við ýmislegt sameiginlegt, t.d. sama uppáhalds útvarpsþátt um tíma, hún sagði mér frá bók- unum sem hún var að lesa og stundum hlustuðum við saman á tónlist. Hún hafði mikinn áhuga og ákveðnar skoðanir á íslensku máli, var mjög ljóðelsk og kunni heilan hafsjó af vísum og kvæð- um, og svo kunni hún að kveða upp á gamla mátann sem þykir ekki ónýtt í dag því þessi arfur okkar, kveðskapurinn, hefur komist aftur í tísku. Ég undr- aðist oft hvað hún hafði gott minni, sérstaklega hvað varðar ljóð og kvæði en hún mundi líka alls konar hluti sem hún hafði lært áratugum fyrr. Tónlist var henni í blóð borin og hún hafði mikið yndi af henni og talaði oft um sína uppáhalds söngvara sem voru m.a. Stefán Íslandi, Jussi Björling og Pavarotti. Við Leó og börnin heimsóttum hana gjarnan á sumrin og feng- um alltaf höfðinglegar móttökur. Meðan hún bjó á Hnitbjörgum gátum við gist hjá henni en hún hafði mikla ánægju af að fá fólk- ið sitt og dekraði við okkur á all- an hátt með nógum mat og alltaf voru bakaðar pönnukökur og settur á mikill sykur og svo var spilað og spjallað. Hún var sífellt að prjóna og kom færandi hendi með sokka, peysur og fleira á bæði börn og fullorðna. Það verður tómlegt að keyra í geng- um Blönduós og engin „amma í sveitinni“ til að heimsækja. Ég þakka samveruna með þessari mætu konu og veit að þar sem hún er núna hljómar fagur söngur. Arnbjörg Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.