Morgunblaðið - 23.12.2013, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 23.12.2013, Qupperneq 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2013 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Sagnfræðingarnir Jón Þ. Þór og Guðjón Friðriksson eru höfundar ritverksins Kaupmannahöfn sem höfuðborg Íslands, sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. Kaup- mannahöfn var höfuðborg Ísland frá miðri 15. öld og til 1. desember 1918 og er sú saga sögð í tveimur vegleg- um og ríkulega myndskreyttum bindum. Spurður um tilurð verksins segir Jón Þ. Þór: „Veturinn 2004 vorum við Guðjón báðir úti í Kaupmanna- höfn. Ég var að ljúka við ævisögu Valtýs Guðmundssonar og hann að efna í ævisögu Hannesar Hafsteins. Við hittumst oft og eitt kvöldið borð- uðum við saman á einu elsta veit- ingahúsi borgarinnar sem Hafnar- Íslendingar sóttu gjarnan fyrr á tíð. Þá barst meðal annars í tal að eng- inn staður í útlöndum hefur haft eins mikil áhrif á sögu Íslands og Kaup- mannahöfn. Allmikið hefði að sönnu verið fjallað um Íslendinga í Kaup- mannahöfn, ekki síst á 19. öld, en það efni væri á víð og dreif og aldrei hefði verið skrifuð heildarsaga Kaupmannahafnar sem höfuðborgar Íslands og þeirra gríðarlegu áhrifa sem borgin hafði á íslenska sögu og menningu í nærfellt 500 ár. Það væri verðugt verkefni og kannski ættum við að taka höndum saman um það. Eftir að við komum heim ræddum við málið áfram og ákváðum loks að freista þess að gera hugmyndina að veruleika. Við ákváðum að reyna að afla sjálfir fjár til að koma verkefn- inu, sem þannig yrði framtak okkar tveggja og engra annarra, á kopp- inn. Við vissum að þetta væri margra ára verk og sömuleiðis að hér heima væru engir sjóðir sem hægt væri að leita til. Í Danmörku er hins vegar löng hefð fyrir því að öflugir sjóðir styrki verkefni eins og þetta og þess vegna leituðum þang- að. Í Höfn var okkur bent á að hafa samband við Almenfonden, sem er í eigu Mærsk-samsteypunnar. Það gerðum við og skömmu síðar kom Ove Hornby, þáverandi forstjóri sjóðsins, sem reyndar er sagnfræð- ingur, hingað til lands og hitti okkur. Hann var afdráttarlaus og sagði: „Við höfum vitaskuld efni á þessu og finnst verkefnið áhugavert, en við viljum ekki að það líti út eins og við séum að kaupa söguritun. Þess vegna verðið þið að koma með mót- framlag frá Íslandi, jafnhátt og það sem við látum ykkur fá. Við fórum á fund Jóhannesar í Bónus og hann spurði hvað Danirnir ætluðu að setja mikið í þetta. Við sögðum honum það og hann svaraði að bragði að hann myndi leggja fram jafnháa upphæð.“ Gagnlegt samstarf og samvinna Hvernig var verkaskiptingin milli ykkar Guðjóns? „Við skiptum á milli okkar efnis- þáttum. Svo sátum við og skrifuðum hvor fyrir sig en höfðum mjög nána samvinnu. Þegar annar var búinn að skrifa uppkast að kafla tók hinn við, las, gagnrýndi og gerði tillögur um breytingar. Það á ekki að sjást hvor okkar skrifaði hvað. Þótt þetta verk sé saga Kaupmannahafnar sem höf- uðborgar Íslands þá er það í raun samskiptasaga Íslands og Danmerk- ur í liðlega fimm hundruð ár og að vissu leyti saga Íslands frá ákveðnu sjónarhorni. Við reyndum að taka annan pól í hæðina en oftast hefur verið gert. Saga Íslands hefur yfir- leitt verið skrifuð innan frá, ef svo má að orði kveða, menn hafa horft frá Íslandi og út en við reynum að horfa til Íslands. Við byrjum á því að fjalla um Ísland í Kalmarsamband- inu til að leggja áherslu á að allan þennan tíma var Ísland hluti af miklu stærra ríki. Kaupmannahöfn var höfuðborg Íslands í nærfellt 500 ár. Reykjavík er búin að vera höf- uðborg okkar í 95 ár.“ Fyrirfram mætti kannski ætla að samskiptin hefðu verið mikilvægari fyrir Ísland en Danmörku. Var það þannig? „Já og nei. Danir þáðu margt af Íslendingum og Ísland skipti Dani gríðarlegu máli. Það sem kemur að vissu leyti á óvart og stendur upp úr er hvað samstarf og samvinna á mörgum sviðum var báðum þjóðum gagnleg. Sem dæmi ná nefna starf í íslenskum og norrænum fræðum við Hafnarháskóla. Á þeim höfðu Danir mikinn áhuga. Þeir höfðu komist að því strax á dögum Arngríms lærða á 16. öld að á Íslandi væru til mikils- verðar heimildir um elstu sögu Dan- merkur sem þeir þekktu lítið. Þeir gátu ekki lesið þessar heimildir sjálfir en Íslendingar gátu það. Þá varð til mynstur sem er gegnum- gangandi fram á 19. öld og jafnvel fram á þá tuttugustu: Handritin og heimildirnar voru að miklu leyti í Kaupmannahöfn, að minnsta kosti eftir að kom fram á 17. öld og eftir daga Árna Magnússonar. Þegar tek- ið var að huga að útgáfu á íslenskum fornritum lögðu Danir fram fé til þess að kosta útgáfuna en réðu Ís- lendinga til þess að skrifa handritin upp og búa til prentunar. Íslend- ingar lögðu þannig til sérþekk- inguna og Danir fjármagnið. Þannig koma út mikil verk sem núna eru að miklu leyti gleymd, eins og útgáfa Fornfræðafélagsins á Íslend- ingasögum og fleiri íslenskum forn- ritum. Konungur réð einnig sér- stakan þýðanda og sagnaritara og allt varð þetta til þess að auka veg Danveldis og olli mestu um að Kaup- mannahöfn varð höfuðborg nor- rænna fræða um aldir. Dönsk stjórnvöld styrktu einnig útgáfu- starfsemi Hafnardeildar Hins ís- lenska bókmenntafélags mynd- arlega, til að mynda útgáfu Íslensks fornbréfasafns og Lovsamling for Island. Svona var þetta líka í versluninni, Íslandsverslunin var í rauninni lífæð borgarastéttarinnar i Kaupmanna- höfn. Á móti þáðu Íslendingar margskyns menningaráhrif sem oft voru komin sunnan úr álfu, sér- staklega frá Þýskalandi og Frakk- landi. Það er oft talað um að Kaup- mannahöfn hafi verið gluggi Íslendinga að umheiminum en glugginn var opinn þannig að straumurinn kom inn um hann ekki síður en út. Margt af því sem við í dag köllum þjóðlega íslenska menn- ingu, til dæmis siði tengda jólum, kom frá Þýskalandi til Danmerkur og fluttist svo áfram til Íslands en þá oft í dönsku formi. Íslensk menning hafði líka áhrif út fyrir landsteinana og það má ekki gleymast að danska ríkið á þessum tíma var fjöl- þjóðaríki. Alveg fram til 1814 var Samskiptasaga Íslands og Danmerkur  Jón Þ. Þór er annar höfunda tveggja binda verks, Kaupmanna- höfn sem höfuðborg Íslands. Jón Þ. Þór „Vonandi getur þetta verk orðið til þess að fræða bæði Íslendinga og Dani um samskipti þjóðanna á fyrri tíð.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.