Monitor - 19.12.2013, Page 3
Fyrir tónelska
Tónlistarmaðurinn Steinar hefur
verið á allra vörum undanfarið, en
lagið hans Up hefur setið á toppi
íslenska
lagalistans
síðastliðnar
sex vikur.
Steinar
sendi einnig
nýlega frá
sér plötuna
Beginning
og mætti í
forsíðuviðtal hjá Monitor. Steinar
ætlar að klára árið á tónleikum, en
hann og Jón Jónsson standa fyrir
stórtónleikum í Austurbæ í kvöld.
Lagið Feel For You er fyrsta lagið
sem Jón fær að gefa út í langan
tíma og hefur það fengið gríðarlega
góð viðbrögð. Tvennir tónleikar
fara fram í kvöld, en vegna mikillar
eftirspurnar á þá fyrri var ákveðið
að bæta við aukatónleikum klukkan
22:30. Miðasala fer fram á miði.is
og segir sagan að örfá sæti séu enn
í boði.
Fyrir Fjörið
Það er ekki langt síðan þess var
beðið með eftirvæntingu allt árið að
tívolí léti sjá sig á hafnarbakkanum.
Nú búum við
hins vegar
svo vel að
geta skellt
okkur í tívolí
allt árið, en
skemmti-
garðurinn í
Smáralind
fékk einmitt
nýtt nafn fyrir skemmstu og heitir
nú SmáraTÍVOLÍ. Í dag verða vígð
22 ný tæki í skemmtigarðinum
auk þess sem sett hefur verið upp
bangsasmiðja. Það er ekki úr vegi
að nýta jólafríið í frábært fjör með
vinum og vandamönnum, skella sér
í sleggjuna, hendast í klessubílana
eða byggja saman bangsa. Finndu
Monitor á Facebook, það er aldrei að
vita nema þú vinnir frímiða í fjörið.
Norskir vísindamenn hafa leitt líkur að því að rautt nef hreindýrsins
Rúdolfs sé afleiðing sýkingar í öndunarfærum hans.
fyrst&fremst 3fimmtudagur 19. desember 2013 MonitoR
b
la
ð
ið
í
t
ö
lu
M prósent heimilis-
lausra í Reykjavík
eru konur.
35
sinnum áður hefur
Síðasti Sjens verið
haldinn.
bólur sem
skemma líf þitt má
finna á síðu 16.
10
Ásunnudaginn réðust 40 nýnastistar með hnífum,grjóti, flugeldum og glerflöskum að göngu sem
gengin var gegn rasisma í Svíþjóð. Í göngunni voru
um 200 manns, þar á meðal margt fjölskyldufólk með
barnavagna og eldri borgarar. Þessar aðgerðir eru
tilkomnar vegna haturs einstaklinga á fólki af öðrum
uppruna en þeirra eigin. Fólki sem hefur annan húðlit,
fólki sem hefur önnur trúarbrögð. Þessir hatursfullu
einstaklingar tóku sig saman og mynduðu hóp sem
ætlað var að berja niður skoðanir annarra með ofbeldi.
Hóp sem fyrr eða síðar mun verða einhverjum að bana
ef það hefur ekki gerst nú þegar.
Ég ætlaði að skrifa krúttlegan jólapistil í dag en þessar
fréttir fengu mig til að íhuga ástand mála hér heima.
ÁFacebook hafa yfir 3500 manns látið sér líka viðhópinn Mótmælum mosku á Íslandi. 3500 manns
sem öll sem eitt ala á hatursumræðu í garð múslima
með einu smelli. Margt af þessu fólki telur sig eflaust-
vinna gegn ofbeldi með þessari aðgerð en staðreyndin
er sú að hvert einasta „læk“ færir Ísland nær og nær
þeim ofbeldisfulla raunveruleika sem Svíþjóð þurfti að
reyna á sunnudag. Hatursfullir fordómar eru nasismi,
hvort heldur nýr eða gamall, og það eru slíkir fordómar
sem munu koma okkar samfélagi í koll, ekki moska.
Það þarf ekki nema einn hatursfullan einstakling tilað valda óbætanlegum skaða. Þessi einstaklingur
getur verið af hvaða kynþætti sem er og aðhyllst hvaða
trúarbrögð sem er. Í Noregi var slíkur einstaklingur
hvítur, kristinn karlmaður að nafni Anders Breivik.
Hann myrti 77 einstaklinga.
Ég á þrjá Facebook-vini sem hafa smellt á „læk“ viðhópinn Mótmælum mosku á Íslandi. Sú uppgötvun
kom mér í mikið uppnám. Það er auðvelt að hugsa:
„Svona gerist ekki á Íslandi,“ og ég hafði yfirfært þetta
á Facebook-vini mína. „Fólk sem ég þekki er ekki svona
fordómafullt“. Umræddir Facebook-vinir mínir eru í
hópi þeirra rúmlega 3500 einstaklinga sem eru ofbeld-
isfullum hatursmönnum uppspretta eldmóðs. Innan
þessa hóps leynist nefnilega fólk sem hefur látið jákvæð
orð falla um norska fjöldamorðingjann og ef ekkert
er að gert er aðeins tímaspursmál hvenær hatursfull
orðræða breytist í ofbeldisfullar aðgerðir.
Munum að það eru ekki hús sem drepa heldurhatur. Ó, og gleðileg jól.
Ástarkveðja
Anna Marsý
MOnitOr@MOnitOr.is ritstjórar:
Anna Marsibil Clausen (annamarsy@
monitor.is), Jón Ragnar Jónsson (jon-
ragnar@monitor.is) (Í fæðingarorlofi)
Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson
(hilmar@monitor.is) Blaðamenn: Rósa
María Árnadóttir (rosamaria@monitor.
is) Hersir Aron Ólafsson (hersir@monit-
or.is), Lísa Hafliðadóttir (lisa@monitor.
is) Forsíða: Kristinn (kring@mbl.is)
Umbrot: Monitorstaðir auglýsingar:
Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.
is) Myndvinnsla: Ingólfur Guðmunds-
son Útgefandi: Árvakur Prentun:
Landsprent sími: 569 1136
ga MonitoR Efst í huga MonitoR Efst í huga MonitoR Efs
Viltu hatur eða hús?
Mælir Með...
www.facebook.com/monitorbladid
Vikan
á facebook
Svavar Örn
Ég bað konuna
mína um að
rétta mér
Morgunblaðið.
“Ekki vera
svona gamaldags” svaraði hún,
“Þú getur fengið lánaðan iPadinn
minn.” Það má svo sem deila um
hvort þessar tækninýjungar séu
eitthvað framfaraskref en flugan
steindrapst við fyrsta högg!
17. desember kl. 10:37
4
Anton
Egilsson
Starfsmenn
Frumherja voru
aldeilis hissa að
sjá undirritaðan
skakklappast inn í höfuðstöðvar
þeirra í Hesthálsi upp úr kl.10 í
morgunsárið með ökunámsbók-
ina í annarri hendinni og ylvolgan
kaffibolla í hinni. Það var komið
að því, game day. Rúmum 40
mínútum, 2 undirskriftum og
handbandi síðar voru örlög mín
ráðin. Það er mér mikið gleðiefni
að tilkynna það að nú í dag, 4
árum árum, 267 dögum á eftir
áætlun er loksins komið að því,
yðar einlægur er mættur á götur
borgarinnar. Allt í botn og engar
bremsur !
16. desember kl. 14:30
gleðifréttir ársins
2013 leynast á
síðu 8.
17
Þau Gísli Björnsson, María Þ. Hreiðarsdóttir og
Unnur Jónsdóttir útskrifuðust úr starfstengdu
diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun
fyrr í vor í kjölfar velheppnaðs lokaverkefnis,
Kaffihússins GÆS. Kaffihúsið vakti mikla
athygli og lukku meðal almennings en því var
lokað eftir sumarið, meðal annars vegna skorts
á aðstöðu og fjármagni. Hópurinn lætur það þó
ekki stöðva sig og hyggst endurvekja gæsina á
Ingólfstorgi frá og með hádegi í dag og allt fram
á Þorláksmessukvöld. „Ég kom með tillögu um
að vera með sölu í Mjóddinni en svo komu
fram fleiri tillögur útfrá því. Svo réðum við
starfsmann og hún leitaði á hinum og þessum
stöðum og á endanum var Ingólfstorg það
helsta sem var í boði,“ segir María. Þau taka öll
undir þá staðhæfingu blaðamanns að Ingólfs-
torg sé hin fullkomna staðsetning fyrir GÆS og
Unnur bendir á hversu jólalegt torgið sé orðið.
Nokkuð róttæk breyting er á aðstöðunni en
GÆS var áður í Tjarnarbíói við Reykjavíkurt-
jörn. Að þessu sinni segir Unnur að kaffihúsið
verði sett upp í hituðu tjaldi með rafmagni en
hópurinn gefur lítið fyrir áhyggjur blaðamanns
af kuldanum. Aðspurð hvort þau þurfi að vera
með vettlinga í vinnunni yppir María öxlum
og segir: „Það gæti verið,“ en Gísli brosir út í
annað, alls óhræddur við smá-frost.
Get, ætla, skal
GÆS stendur fyrir „get, ætla, skal,“ sem er
jafnframt slagorð hópsins. Auk þeirra Gísla,
Unnar og Maríu er fyrrum forsíðufyrirsæta
Monitor, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, þátttak-
andi í verkefninu auk Láru Steinarsdóttur en
sú síðarnefnda þurfti þó frá að hverfa að þessu
sinni vegna vinnu. Þar að auki nýtur hópurinn
mikilvægs stuðnings aðstoðarfólks. GÆS varð
til sem vaxtarsproti fyrir breytingu í atvinnu-
málum fólks með fatlanir en þau María, Unnur
og Gísli hafa öll fengið fasta vinnu eftir útskrift.
Unnur starfar hjá Krónunni, María hjá Þjón-
ustumiðstöð Breiðholts og Gísli kynnir starf
NPA-miðstöðvarinnar í grunnskólum. NPA er
skammstöfun fyrir notendastýrða persónulega
aðstoð en það er þjónustuform sem byggir á
því að fötluð manneskja fái fjármagn frá sveit-
arfélagi sínu til þess að sjá um og skipuleggja
sína eigin aðstoð. Starf NPA-miðstöðvarinnar
er Gísla afar hugleikið en hann segist þó afar
spenntur að hefja störf á GÆS á nýjan leik.
María og Unnur taka undir með Gísla og segja
gott að geta fengið smá-aukavinnu fyrir jólin.
„Það verður bara mjög gaman að breyta smá
til,“ segir Unnur.
„Við viljum hvetja sem flesta til að koma og
smakka kaffið, fá sér kleinu eða eitthvað gott
í gogginn,“ segir María og þau Gísli kinka kolli
til samþykkis, spennt fyrir jólavertíðinni á
kaffihúsi án aðgreiningar.
Kaffihúsið gÆs breiðir út faðminn á ný fyrir
gesti og gangandi en hefur nú fært sig um set.
Jóla-gÆs á
ingólfstorgi
María
Fyrstu sex: 171170
Uppáhalds jólalag: Einhver
fallegur jólasálmur bara.
UnnUr
Fyrstu sex: 220873
Uppáhalds jólalag: Aðfanga-
dagskvöld með Helgu Möller.
Gísli
Fyrstu sex: 020186
Uppáhalds jólaglag. Ef ég
nenni með Helga Björns.
M
yn
d/
Ó
m
ar