Monitor - 19.12.2013, Síða 11
11fimmtudagur 19. desember 2013 Monitor
Síðasti sjens
til að svitna
Þau Beta, Unnsteinn og Sveinbjörn eru líklega spenntari
fyrir næstsíðasta kvöldi ársins en sjálfu gamlárskvöldi
en þá munu þau trylla lýðinn á Síðasta sjens.
Jákvæða hliðin
Uppáhalds jólalag: Þórir Baldurs
- Klukknahljóm.
Bestu smákökurnar: Ömmu.
Mesti snillingurinn: Arna Marín.
Fyrsta minningin: Gærdagurinn.
Jákvæða hliðin
Uppáhalds jólalag: Jólin eru að
koma og Amma engill.
Bestu smákökurnar: Sörur og
Kókostoppar.
Mesti snillingurinn: Jói strákurinn
minn, mamma, pabbi, Elín, Sigga,
Friffi, Ylfa og Harpa.
Fyrsta minningin: Sigga að stinga
mig af á öskudaginn af því ég var
Lína Langsokkur.
Jákvæða hliðin
Uppáhalds jólalag: Í ár er það Þú
komst með jólin til mín.
Bestu smákökurnar: Hennar
Kristínar frænku.
Mesti snillingurinn: Pabbi/Mamma.
Fyrsta minningin: Snjór þegar við
fluttum til Íslands ‘95.