Monitor - 19.12.2013, Qupperneq 14
14 Monitor fimmtudagur 19. desember 2013
E John Grant er náttúrlega ekki íslenskur en hann
er búinn að vera að spila mjög mikið hér og allir sem
spila með honum eru svo frábærir tónlistarmenn.
Hann er í uppáhaldi hjá mér þetta árið.
Annað sem gerðist árið 2013 var að
Spotify rataði á íslenskan markað.
U Sko, Spotify er ótrúlega flott forrit og ótrúlega
flott forritað. Ég hef verið að prófa það undanfarið og
uppgötvað fullt af flottri tónlist en Spotify er ótrúlega
ósanngjarnt fyrir tónlistarmennina. Eina ástæðan fyrir
því að það er löglegt er sú að stóru plötufyrirtækin eiga
það og þeim er alveg drullusama. Sem tónlistarmaður
viltu vera með tónlistina þína á sem flestum stöðum
enda er fullt af fólki sem hlustar bara á Spotify svo
maður neyðist í raun til að vera með tónlistina sína
þarna.
S En þetta er hlægilegt, sko, hvað maður fær lítið fyrir.
Það er peningur í Spotify en hann ratar ekki á rétta
staði.
U Ég set spurningarmerki við það að íslensk fyrirtæki
séu með mikla keyrslu á að auglýsa Spotify og koma
því inn hér. Ein spilun í útvarpi fer oft til mörg þúsund
manns en á Spotify er oftast bara einn hlustandi. Þess
vegna er alveg eðlilegt að stefgjöldin séu í samræmi
við það en á skýrslu sem ég fékk frá Sony sá ég að
það var í kringum 0.01 evra sem við fengum fyrir
spilun á Spotify. Það þarf að berjast fyrir því að hækka
stefgjöldin á Spotify. Ólöglegt niðurhal, Bubbi vs.
pírataflokkurinn, sú umræða er bara búin og það þarf
að leita annarra leiða.
S Maður sér það auðvitað að sala á geisladiskum er
að minnka.Vandamálið er formattið. Það á enginn
geislaspilara lengur. Það er hætt að vera geisladrif í
tölvum. Svo hvað áttu að gera við þennan disk?
U Svo er líka flókið að hala niður tónlist frá Íslandi.
S Eini ljósi punkturinn er að það er mikill uppgangur
í plötusölu.
U Samkvæmt Einari Bárðar þá þarftu húsmæðurnar í
Garðabæ til þess að geta selt diska. Þær voru á Holly-
wood í den að dansa og í Retro Stefson eru fyrirmynd-
artengdasynirnir svo það eru þær sem kaupa.
Eru einhverjir nýir tónlistarmenn sem
ykkur finnst sérlega upprennandi árið 2014?
U Highlands hans Loga.
S Það verður stórt 2014.
Hvað er framundan hjá ykkur á komandi ári?
U Ég held við séum öll að gefa út plötu.
E Bara plata og túr og svona.Við ákveðum ekki mikið
fyrirfram en við verðum áfram í svona dansfílíng á
plötunni okkar. Við erum samt ekki með neina eina
stefnu, það bara kemur sem kemur.
S Ég er reyndar nýbúinn að gefa út plötu með Bernd-
sen og við erum að fara í smá-spilerí til að fylgja henni
eftir. Svo erum við að keyra nýja Retro Stefson-plötu.
E Eruð þið að fara í samkeppni við okkur?
U Nei, þetta verður svona reggí rokk- trance teknó,
ekki svona dúllu-house (þau hlæja).
S Ég er líka að koma út nýrri Hermigervilsplötu, var
að gefa út lag um daginn og platan ætti að detta inn
um mitt árið.
Ef við snúum okkur aðeins að Síðasta séns,
hvernig kom sá viðburður upprunalega til?
U Fyrst héldum við tónleika með Hjaltalín, Sprengju-
höllinni og FM Belfast milli jóla og nýárs. Svo ákváðum
við að gera þetta aftur árið eftir bara með FM Belfast og
við gerðum það tvö ár í röð. Þetta hefur smátt og smátt
stækkað og sumir koma á hverju ári. Í fyrra ákváðum
við að færa okkur yfir í Vodafone-höllina af því að Nasa
var lokað.Við verðum aftur þar í ár með Hermigervil
og Sísí Ey og þetta verður bara dúndurgigg.
S Ég hafði ekki farið áður en ég spilaði á tónleikunum
í fyrra. En ég tók auðvitað tvöfalt gigg í fyrra af því að
ég spilaði bæði sem Hermigervill og sem hluti af Retro
Stefson. Það var mjög gaman og kynnti mína tónlist
fyrir fjölbreyttari hópi fólks.
E Ég hef aldrei farið en ég er mjög spennt. Ég sé fyrir
mér geðveikt stuð, frábæra tónleika með frábæru
tónlistarfólki og finnst alveg ótrúlega gaman að fá að
vera með.
„Foreldrar mínir eru
einmitt mjög kúl
svo við bræðurnir
ákváðum að við vildum
líka verða mjög kúl.“
SíðaSta …
Markmið sem ég setti mér: Er langt
og strangt.
Borg sem ég heimsótti: New York.
Knús sem ég fékk: Luna tíkin mín.
Hlutur sem ég keypti mér: Danskt
kvikmyndatímarit.
Nammi sem ég borðaði: Djúpur.
tár sem ég felldi: Yfir nýju Justin
Bieber-lögunum.
Sjens til að: Dansa árið 2013.
SíðaSta …
Markmið sem ég setti mér: Gera meiri tónlist,
læra að dj-a og tékka á leiklistarnámi.
Borg sem ég heimsótti: Toronto.
Knús sem ég fékk: Frá yndislega syni mínum.
Hlutur sem ég keypti mér: Ég bara get ekki
munað það. Er alltaf að kaupa mér eitthvert
allskonar óþarfa drasl.
Nammi sem ég borðaði: Prinspóló.
tár sem ég felldi: Þegar ég fékk kvíðakast í
mollinu í Toronto!
Sjens til að: mæta á Síðasta sjens árið
2013... whooop whooop!
SíðaSta …
Markmið sem ég setti mér: Að klára nýja plötu.
Borg sem ég heimsótti: Antwerpen.
Knús sem ég fékk: Silla systir mín.
Hlutur sem ég keypti mér: Hliðrænn hrynraði.
Nammi sem ég borðaði: Spælegg.
tár sem ég felldi: Á Kraftwerk-tónleikum.
Sjens til að: svitna árið 2013.