Monitor - 19.12.2013, Side 16
@forsaetisradun
Helgi Björns
Ef ég nenni
Gimsteina og perlur gullsveig um
enni
sendi ég henni, ástinni minni
Öll heimsins undur, ef ég þá nenni
færi ég henni, ástinni minni
Lífsvatnið dýra úr lindinni góðu
færi ég henni ef ég nenni
Hesturinn gullskór hóflega fetar
heimsendi að rata, ef ég nenni
Ég veit ég átti hér, óskasteina
þá gef ég henni, ef hún vill fá mig
Ég gæti allan heiminn, ástinni minni
óðara gefið, ef hún vill sjá mig
---------------------
Precious stones and pearls gold
tincture of forehead
I send her my love
All the wonders of the world, if I
bothered them
I would like it, my love
The lake animal life from the great
spring
I would like it if I bothered
Horse Golden Boot modest walks
end of the world to find their way,
if I bothered
I know I had here, request a
I’ll give her, if she wants me
I could the whole world, my love
As soon as a given, if she wants to
see me
Takk Google Translate
og gleðilega hátíð!
Jólakötturinn hefur alltaf fengið þó nokkra athygli en öllum virðist vera sama um jólahundinn. Það hefur reynst
honum afar þungbært síðustu aldirnar en eins og sést á myndinni þjáist hann nú af krónískum hvolpaaugum.
Afhverju
vaskar maður
upp en ekki
niður?
Sagnarsambandið að vaska upp
er gamalt í málinu. Elsta dæmi
Orðabókar Háskólans er frá
miðri 17. öld úr ævisögu Jóns Ól-
afssonar Indíafara sem skrifuð
var 1661. Sennilegast er að það
hafi borist hingað úr dönsku,
vaske op, eins og nafnorðið
uppvask, í dönsku opvask.
Í dönsku eru einnig heim-
ildir um vaske ned en þá í
sjómannamáli um að þvo
gluggahlera, möstur og fleira. Í
gamalli danskri heimild er þess
getið að um borð í skipi sé ekki
notað vaske op heldur vaske
ned. Í almennu dönsku máli er
hins vegar notað vaske op þegar
þvegin eru matarílát og -áhöld.
Sú notkun barst síðan hingað.
vísindavEfurinn
10
bólur sem gera
líf þitt óbærilegt
1 Fjallið. Hún er stór, hún ereldrauð og lítur út fyrir að
vera að fara að gjósa hvað úr
hverju en þú getur ekki sprengt
hana af því að hún er undir
húðinni.
2 Sú illkvittna. Hún ákveðurað þrýsta sér í heiminn
klukkutíma fyrir stefnumót, ball,
mikilvægan fund eða jafnvel
brúðkaupið þitt.
3 Landkönnuðurinn. Hún ferhetjulega þar sem enginn
bóla hefur farið áður, inní nösina
á þér, í handarkrikann, eyrað,
beint fyrir ofan rassskoruna eða
undir brjóstið.
4 Diskóbólan. Hún virðistskipta litum. Hún var rauð,
svo varð hún hvít en núna virðist
hún orðin gul eða græn.
5 Athyglisþjófurinn. Hún erstór og hvít. Þú þyrftir bara
rétt að ýta við henni til þess að
hún myndi springa með gumsi
og látum en hún er á einhverjum
öðrum. Þú getur ekki hætt að
stara.
6 Piparkornin. Það er eins ogþeim hafi verið sáldrað á
nefið á þér, svörtu litlu kornunum
sem koma alltaf aftur, sama
hversu vel þú skrúbbar nebbann.
7 Jójóbólan. Þú sprengir hana,hún kemur aftur. Þú sprengir
hana, hún kemur aftur.
8 Móðurbólan. Hún er risastórog umkringd minni bólum.
Það er eins og hún sé að fjölga
sér á bakinu á þér.
9 Rakbólan. Þú ætlaðir að verameð silkimjúka leggi fyrir
ævintýri kvöldsins en líkami
þinn hafnaði þeim hugmyndum.
10 Síðasta hálmstráið.Þú varst illa haldin af
pepperónísmetti fyrir en þessi
fyllti mælinn. Vikunni verður eytt
í sjálfsvorkun undir sæng.
Það sem maður gerir ekki
Margir kannast við það að ætla að gerarosalega mikið í jólamánuðinum. Baka áttamismunandi sortir af smákökum, föndra
fullkominn aðventukrans sem endar í Húsi&Híbýl-
um og kaupa síðan fullkomnar gjafir og pakka þeim
inn á fullkominn hátt. En einhvernveginn
endar það oft þannig að maður eyðir meiri
tíma í að hugsa um hlutina heldur en að
koma þeim í framkvæmd. Að undirbúa
jólin er meira en að segja það.
Ég er nokkuð viss um að þessisiður, að ætla sér rosa margt engera svo sirkabát ekkert, hefur
alltaf verið stundaður í desember. En í dag,
með tilkomu samfélagsmiðla, er þetta erfiðara
fyrir hauga eins og mig. Fyrsta desember, eins og
eftir pöntun, fylltist Facebookið mitt og Instagram af
myndum af fullkomnum jólaskreytingum, aðventu-
krönsum og smákökum. Ég hafði ekki einu sinni
gert mér grein fyrir því að jólamánuðurinn væri
runninn upp. Hélt ég væri ennþá örugg í elsku besta
nóvember þar sem maður getur talað og talað um
hvað maður ætli að vera duglegur um jólin án þess
að þurfa að byrja á því. Þegar internetið minnti mig
á að (jóla)ballið væri byrjað fékk ég smá-kvíðakast.
Ég var nefnilega búin að sjá þetta allt fyrir mérþannig að á fyrstu jólunum sem móðir ogsambýliskona yrði ég einhverskonar heimil-
isgyðja sem myndi dunda mér í allan desember við
jólaundirbúning. Ég myndi klæðast rauðri svuntu
og hælaskóm og heilla alla með guðdómlegum
smákökum og skínandi heimili. Fólk sem kæmi í
heimsókn myndi missa andlitið og segja hvernig
íbúðin mín minnti einna helst á sjálft Jólalandið í
Blómavali. En allt kom fyrir ekki. Í nóvember, er ég
sat á Þjóðarbókhlöðunni og þóttist læra fyrir próf, lá
ég yfir allskonar föndursíðum, uppskriftum og gjafa-
hugmyndum. Ég meira að segja “bookmarkaði” eina
síðu sem bauð upp á 52 leiðir til þess að föndra fyrir
jólin. Semsagt ein jólaföndurhugmynd fyrir hverja
viku ársins. Nú er rétt tæp vika í jól og hversu oft
ég hef kíkt á þessa síðu? Ekki einu sinni. Aðventu-
kransinn minn er fjögur sprittkerti. Og ég gleymdi að
kveikja á þeim tvo sunnudaga í röð. En það er ekki
bara í skreytingum heimilisins sem ég er svolítið
eftirá. Ég er búin að baka einu sinni. Lakkrístoppa.
Þeir brunnu. Samt borðaði ég þá alla á einu kvöldi.
Hvorki lakkrístopparnir né aðventu-kransinn rötuðu inná Facebook-síðunamína eða Instagram. Auðvitað ekki.
Þetta var vandræðalegt. Fjögur sprittkerti
kæmust heldur aldrei í Hús&Híbýli. En
staðreyndin með samfélagsmiðla er sú
að í 99% tilvika notar maður þá til að
monta sig af einhverju. Ef ég væri ekki
þessi óskipulagði klunni væri Facebook-
ið mitt og Instagram mjög líklega fullt af
föndri, bakstri og allskonar dúlleríi. Ætli
ég væri ekki líka búin að splæsa í blogg, þar
sem ég myndi daglega fræða mína fjölmörgu
lesendur um stórsigra mína í heimi jólastússins.
Það er áhugavert að velta fyrir sér hvernigsamfélagsmiðlar hafa breytt okkur. Fyrir tímaþeirra og þörf okkar til að deila öllum okkar
sigrum á netinu gátu skussar eins og ég gengið í
gegnum jólamánuðinn án þess að sjá stöðugt hvað
allir vinir og kunningjar stæðu sig miklu betur en
maður sjálfur í jólaundirbúningnum.
Mikilvægast er þó að muna að jólin komaalveg þó maður geri ekkiallt það sem maður
ætlaði. Einnig þarf að muna
að maður er ekki einn um
það að svitna köldum svita
í hvert skipti sem kíkt er á
Instagram í jólamánuðin-
um. Það er nefnilega slatti
af þannig fólki þarna úti.
En fyrst og fremst þarf
maður að slaka á, vera
með þeim sem manni
þykir vænt um og
borða. Því það er það
sem þetta snýst allt
um.
16 Monitor fimmtudagur 19. desember 2013
EintóM Þvæla
í belg & biðu
Bætingaráð BErgs
Hátíðarnar
Nú þegar hátíðirnar nálgast er
mikilvægt að hafa nokkra hluti í
huga. Í fyrsta lagi er mikilvægast að
njóta þeirra!
Það hjálpar ekkert að neita sér um
góðan mat, konfekt og aðrar kræs-
ingar. Stillum þessu frekar í hóf og
hreyfum okkur frekar meira. Hvað
er betra en léttur göngu-
túr með fjölskyldunni
á jóladagsmorgun?
Brenna nokkrum
aukakaloríum og
njóta náttúrunnar
með ástvinum.
Þegar þetta er skrifað eru aðeins 54 tístarar að elta
forsætisráðuneytið á Twitter og ætti það ekki að
koma mörgum á óvart miðað við aldur og fyrri tíst.
Monitor mælir þó með að þú breytir því, hvort sem
það er til að hrósa eða hrauna yfir Simma og félaga.
Eltu ÞEnnan Forsætisráðuneytið
ísl-Enskur tExti
auður
albertsdóttir