Monitor - 19.12.2013, Qupperneq 20
20 Monitor fimmtudagur 19. desember 2013
Jólin á
götunni
Á þessum tíma er oft auðvelt að gleyma þeim sem upplifa jólin á
allt annan hátt og geta ekki fyrir nokkra muni staðið í gjafakaup-
um eða veislustandi af neinu tagi. Talið er að um 180 einstakl-
ingar séu heimilislausir á höfuðborgarsvæðinu og er þar um að
ræða fólk á öllum aldri með bakgrunn úr öllum stigum samfé-
lagsins. Á aðfangadagskvöld hópast þeir sem eiga ekki í önnur
hús að venda inn í höfuðstöðvar Hjálpræðishersins og borða þar
hátíðlegan jólamat áður en haldið er í gistiskýli bæjarins. Gott og
öflugt starf er unnið af Reykjavíkurborg sem og fjölmörgum öðr-
um stofnunum til þess að gera líf útigangsfólks eins bærilegt og
mögulegt er, en Monitor ákvað að skyggnast betur inn í aðstæður
þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu.
Dagsetur fyrir heimilislausa er rekið við
Eyjarslóð úti á Granda. Þar er jafnan mikill
straumur fólks, enda hægt að sækja ýmsa
aðstöðu innandyra meirihluta dags.
Dagsetrið er opið milli klukkan 10 og 17 og
er starfsemin ætluð heimilislausum með
áfengis- og vímuefnavanda eða geðrænan
vanda. Boðið er upp á brauð og kaffi
allan daginn og heitan mat í hádeginu.
Á staðnum er hægt að leggja sig, fara í
tölvur, sturtu og fá hrein föt auk þess sem
skjólstæðingar geta tekið þátt í vinnu og
fengið greitt fyrir. Félagsráðgjafar veita
félagsráðgjöf.
Að meðaltali koma 27 gestir í dagsetrið á
degi hverjum, en þegar mest lætur getur
fjöldinn farið upp í allt að 50.
Opið er í dagsetrinu alla daga og er hádeg-
ismatur á jólunum. Á aðfangadagskvöld er
síðan opið hús hjá Hjálpræðishernum. Allir
skjólstæðingar fá jólapakka og reynt er að
gera jólin eins hátíðleg og mögulegt er.
Skjólstæðingar eru á öllum aldri, en þeir
yngstu eru um 18 ára og þeir elstu á
áttræðisaldri.
•
•
•
•
•
Dagsetrið Eyjarslóð
Nú eru aðeins örfáir dagar í jólin að bresti á með tilheyrandi fjölskyldu-
stundum, jólaboðum, veislumat og pakkaflóði. Gangar verslunarmiðstöðva
eru þessa dagana stútfullir af fólki á síðasta snúningi að klára nauðsynleg
innkaup áður en sest er heim í langþráð frí í faðmi fjölskyldunnar.
179 einstaklingar voru heimilislausir í Reykjavík árið 2012
.
Rétt um þriðjungur heimilislausra voru konur.
89% heimilislausra voru íslenskir ríkisborgarar, 7% pólsk
ir og
önnur þjóðerni undir 1%.
38% heimilislausra höfðu verið í slíkri stöðu í meira en 2
ár,
Helmingur heimilislausra neytir einungis áfengis, en hjá
hinum
helmingnum komu önnur vímuefni oftast einnig við sögu
.
Fjöldi heimilislausra á aldrinum 18-30 ára jókst um 10% m
illi
áranna 2009 og 2012.
Í Þingholtsstræti er rekið gistiskýli fyrir karlmenn þar se
m
20 manns geta sofið. Í vor verður hins vegar opnað nýt
t
gistiskýli á Lindargötu þar sem aðgengi og aðstaða verð
ur
betri en áður auk þess sem svefnplássum fjölgar. Skýlin
u við
Þingholtsstræti verður þá lokað.
Í Hlíðahverfi er gistiskýlið Konukot, það er einungis ætla
ð
konum og er auk gistingar boðið upp á kvöld- og hádegis
verð.
Gistipláss er fyrir 8 í Konukoti.
Borgarverðir eru teymi sérfræðinga sem starfar alla
virka daga í Reykjavík og aðstoðar heimilislausa eftir
þörfum. Borgarverðir sjá m.a. um að aka þeim sem þurfa
úr
gistiskýlum í dagsetur.
Á kaffistofu Samhjálpar er opið milli klukkan 10 og 16 og
þar fá
þeir sem þurfa bæði brauð, bakkelsi og heitan mat.
Á aðfangadagskvöld býður Hjálpræðisherinn upp á jólam
at og
þangað kemur mikill fjöldi fólks á hverju ári.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Lífið á götunni
Heimildir: Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Dagsetrið