Monitor - 19.12.2013, Blaðsíða 22
monitor.is
KíKtu í heimsóKn
Fréttahaukurinn Ron Burgundy sem þráir
ekkert heitar en frægð, frama og flotta
hárgreiðslu er mættur á svæðið aftur og
nú á aldeilis að taka hlutina með trompi.
Kvikmyndin Anchorman: The Legend of
Ron Burgundy sem var frumsýnd sumarið
2004 er án nokkurs vafa ein alskemmti-
legasta gamanmynd síðari ára. Í henni
fóruWill Ferrell og félagar á algjörum kostum í óhefluðu
gríni þar sem heimskan fékk að flæða í stríðum
straumum þannig að úr varð stanslaus hláturveisla fyrir
áhorfendur.
Síðan eru liðin níu ár og þótt Ron Burg-
undy hafi ekki þroskast mikið vitsmuna-
lega er hann reynslunni ríkari eða ætti
a.m.k. að vera það. Það er sennilega ástæð-
an fyrir því að honum er boðið að gerast
fréttaþulur á glænýrri sjónvarpsstöð, GNN,
sem jafnframt er fyrsta fréttastöðin sem
sendir út 24 klukkutíma á sólarhring. Ron
ákveður að þekkjast boðið og heldur til NewYork ásamt
veðurfræðingnum vitlausa, Brick, söguskoðaranum
Brian, íþróttafréttamanninum Champ Kind og auðvitað
er eiginkonan,Veronica Corningstone, ekki langt undan.
skjámenning
Frumsýning helgarinnar
anchorman: The legend of ron Burgundy
I love scotch. Scotchy, scotch, scotch. Here it goes down, down into my belly.
ron Burgundy - Anchorman
22 monitor fimmtudagur 19. desember 2013
Leikstjóri: Adam McKay
Aðalhlutverk: Will Ferrell,
Christina Applegate, Paul
Rudd og Steve Carell.
Lengd: 119 mín.
Kvikmyndahús: Sambíón.
ViLtu
VinnA
miðA?
facebook.com/monitorbladid
Hjálmar Karlsson, einn af kvikmyndarýnum monitor, tók saman
10 bestu kvikmyndir ársins að hans mati auk þeirra þriggja verstu.
Bestu og verstu
kvikmyndir 2013
Philomena 9.5/10
Hugljúf, kómísk og sorgleg saga af tveimur
ólíkum einstaklingum sem leggjast í það
verkefni að finna son eldri konu sem tekinn
var af henni þegar hún var
táningur.
Blackfish 9/10
Áhrifamikil heimildarmynd
um slæman aðbúnað og illa
meðferð á háhyrningum
sem fangaðir eru til að sýna í
skemmtigörðum.
Hunger Games: Catching
fire 9/10
Önnur kvikmyndin í þríleiknum kom inn
með hvelli og er mikið sjónarspil fyrir augað
ásamt því að vera skemmtileg ádeila á
samfélagið í heild sinni.
Blue Jasmine 8.5/10
Mannleg og kómísk kvikmynd
eftir meistaraWoody Allen sem
sjaldan tekur feilspor.
The Kings of Summer
8/10
Hugljúf og skemmtileg mynd
um þrjá stráka sem lifa í
draumaheimi og ákveða að
strjúka að heiman og búa sér til heimili í
skógi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Captain Philips 8/10
Áhrifarík mynd byggð á sannsögulegum
atburði sem einblínir á sjónarhorn
sjómanna við strendur Sómalíu og
sjóræningjanna sem taka þá föstum
tökum.
Prisoners 8/10
Átakanleg saga um hversu
langt fjölskyldumeðlimir
ganga þegar börn þeirra eru
annars vegar.
Don Jon 8/10
Bráðskemmtileg frumraun
Joseph Gordon-Levitt í leik-
stjórastólnum segir frá ungum manni með
klámfíkn og hvernig honum
reiðir af í eðlilegu sambandi.
This is the End 7.5/10
Bráðfyndin og öðruvísi
gamanmynd um nokkra þekkta
einstaklinga og brenglaða
sjálfsbjargarhvöt þeirra í fárán-
legum heimsendaaðstæðum.
Disconnect 7.5/10
Ádeila á nútímasamfélag og
hvernig við erum alltaf tengd öðrum með
samfélagsmiðlum og nýjustu tækni. Sýnir
hvernig hlutirnir geta farið á versta veg á
dramatískan máta.
SigurLiStinn SKAmmArVerðLAunin
now you see me 4/10
Kvikmynd sem ég bjóst við miklu meira
af, stórskotalið leikara er ekki alltaf nóg.
Þunnt handrit og lélegt plott.
White house down 3/10
Klisja út í gegn og nær
sér aldrei almennilega
á flug. Ef þið viljið sjá
kvikmynd um árás á Hvíta húsið mæli
ég með Olympus Has Fallen, miklu meiri
aksjón og fjör.
A good way to die hard 2.5/10
Die Hard-seríurnar hefðu betur stoppað
fyrir gerð fimmtu myndarinnar. Sú allra
versta.
Stundum er bArA eKKi nóg Að
heitA bruce og VerA hArðjAxL