Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Miðbær Reykjavíkur Um áramót þarf að huga að mörgu. Á þessum árstíma má búast við rysjóttri tíð og því eins gott að klæða sig eftir veðri. Svo er gott að tryggja að samskiptin séu í lagi.
Árni Sæberg
Um áramót er alltaf
hollt að líta yfir farinn
veg um leið og framtíð-
arverkefnin eru kort-
lögð. Árið 2013 hefur
sannarlega verið við-
burðaríkt fyrir okkur
sem störfum á vett-
vangi stjórnmálanna
og verkefnalistinn fyrir
komandi ár er langur
og fjölbreyttur. Á þeim
mánuðum sem liðnir
eru frá því að ný ríkisstjórn tók við
hefur fjölmörgum verkefnum verið
hleypt af stokkunum og undirbún-
ingur hafinn að breytingum á ýms-
um sviðum. Stærstu mál ársins eru
án efa afgreiðsla hallalausra fjárlaga
þar sem forgangsraðað var í þágu
grunnþjónustunnar og velferð-
armála. Snúið var af braut skatta-
hækkana fyrri ríkisstjórnar og mik-
ilvæg upphafsskref stigin í lækkun
skatta á almenning í landinu. Til við-
bótar ber auðvitað að nefna þær
viðamiklu tillögur sem kynntar hafa
verið til leiðréttingar á skuldavanda
heimilanna.
Í þeim málaflokkum sem ég sem
iðnaðar- og við-
skiptaráðherra ber
ábyrgð á hefur ým-
islegt verið að gerast.
Þeir málaflokkar snúa
að málefnum iðnaðar í
landinu, orkumálum,
nýsköpun, ferða-
málum, umhverfi er-
lendra fjárfestinga og
ívilnana, verslunar og
þjónustu, samkeppn-
ismála og starfsum-
hverfi viðskiptalífsins
almennt.
Frá fyrsta degi höf-
um við unnið að einföldun reglu-
verks atvinnulífsins og munum
halda því áfram á næstu mánuðum.
Hér þarf ýmislegt að laga, þó margt
sé vissulega í góðu lagi. Má þar m.a.
nefna ferlið sem þarf að fara í gegn-
um til að afla sér leyfa til reksturs
sem í dag er oft óþarflega flókið. Í
samtölum mínum við fulltrúa fjöl-
margra íslenskra fyrirtækja hef ég
spurt um hindranir sem fólk rekur
sig á og hvað gera megi betur. Svör-
in eru flest á sömu lund og við erum
æ betur að sjá hvar úrlausna er þörf.
Unnið hefur verið að gerð fjárfest-
ingasamninga sem í framtíðinni geta
skapað mörg hundruð störf hér á
landi auk mikilvægra gjaldeyr-
istekna. Einn samningur hefur verið
undirritaður og fleiri eru í
burðarliðnum. Lög um ívilnanir
vegna nýfjárfestinga hafa verið í
endurskoðun á haustmánuðum og
verður frumvarp til nýrra laga lagt
fram á vorþingi. Mikilvægt er að efla
fjárfestingar hér á landi sem hafa
ekki verið minni í áratugi og tryggja
það að lagaumhverfið hér sé sam-
keppnishæft við það sem annars
staðar gerist.
Á síðustu mánuðum hefur verið
unnið að undirbúningi náttúrupassa
eða ferðakorts sem ætlunin er að
lögleiða á árinu 2014. Leitast hefur
verið við að hafa góða samvinnu við
aðila úr greininni og aðra hags-
munaaðila og miðar vinnunni vel
áfram. Ört vaxandi fjölda ferða-
manna fylgja miklar tekjur í þjóð-
arbúið en einnig ýmsar áskoranir.
Mikilvægt er að vernda þá „vöru“
sem ferðamennirnir sækja hingað til
að njóta sem er íslenska náttúran,
við þurfum að byggja upp fleiri staði
til þess að dreifa álaginu og síðast en
ekki síst þurfum við að tryggja ör-
yggi ferðamannanna.
Það hefur verið virkilega ánægju-
legt að fylgjast með gróskunni í ís-
lenskri nýsköpun og þar felast gríð-
arlegri vaxtarmöguleikar. Þar horfi
ég á bjarta tíma framundan. Einnig
má nefna að ný hönnunarstefna er
nú á lokametrunum sem og ný at-
vinnu- og nýsköpunarstefna sem
lögð verður fyrir Alþingi í formi
þingsályktunar á vorþingi.
Þriðja olíuleitarleyfið var gefið út í
haust á Drekasvæðinu og vonandi
styttist í að starfsemi hefjist á svæð-
inu með góðum árangri því olíu-
vinnsla væri sannarlega jákvæð við-
bót við auðlindanýtingu Íslendinga.
Þessi upptalning er hvergi nærri
tæmandi og fjölmörg önnur verkefni
bíða úrlausnar. Ég finn almennt fyr-
ir bjartsýni í íslensku atvinnulífi. Á
síðustu mánuðum hafa fjölmargir
aðilar komið til fundar við mig til að
ræða uppbyggingu atvinnulífsins af
öllu tagi. Umfjöllun um álver í
Helguvík hefur verið áberandi og á
það stundum til að yfirskyggja ann-
að, en því fer fjarri að það sé eina
framkvæmdin sem er í burðar-
liðnum. Vonandi fer þó að sjá til
lands í því verkefni því núverandi
staða óvissu og stöðunar er verst.
Fjárfestingasamningur um kísilver
á Bakka er til meðferðar hjá ESA og
ætti niðurstaða að fást í þau mál á
næstunni. Þá getur uppbyggingin á
Bakka hafist.
Hér hefur orðið stefnubreyting
með nýrri ríkisstjórn, jákvæð
stefnubreyting gagnvart atvinnu-
uppbyggingu í landinu. Hér hefur
tekið við ríkisstjórn sem vill skapa
starfsumhverfi sem ýtir undir fjár-
festingu og vöxt í atvinnulífinu. Rík-
isstjórn sem lítur svo á að skatta-
hækkanir og auknar álögur dragi úr
vaxtarmöguleikum en ekki öfugt og
ríkisstjórn sem vill frelsi fremur en
bönn. Hér er komin ríkisstjórn sem
sér framundan ærin verkefni til upp-
byggingar atvinnulífs eftir stöðnun
síðustu ár. Oft var þörf – en nú er
nauðsyn. Ég trúi því að nýtt ár 2014
sé ár mikilla tækifæra – það er okk-
ar að sjá til þess að þau tækifæri
verði nýtt.
Eftir Ragnheiði
Elínu Árnadóttur » Snúið var af braut
skattahækkana fyrri
ríkisstjórnar og mik-
ilvæg upphafsskref stig-
in í lækkun skatta á al-
menning í landinu
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Höfundur er iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Ár tækifæranna