Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 4
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Allt útlit er fyrir að varðskip Land-
helgisgæslunnar verði mun fleiri
daga á sjó á nýja árinu en raun varð
á á nýliðnu ári. Í fyrra fækkaði út-
haldsdögum varðskipa frá árinu
2012 en á því ári voru varðskipin
304 daga á sjó innan íslenska haf-
svæðisins. Endanlegar tölur um
gæslustörfin og önnur verkefni 2013
eiga að liggja fyrir síðar í jan-
úarmánuði.
Þá blasir við að Landhelg-
isgæslan mun taka að sér verkefni
erlendis á komandi ári fyrir Fron-
tex, Landamærastofnun Evrópu og
Evrópusambandið.
Eftirlit á loðnumiðum
Að sögn Ásgríms L. Ásgríms-
sonar, framkvæmdastjóra aðgerða-
sviðs Landhelgisgæslunnar, hefur
verið gerð áætlun fyrir árið m.a. um
dagafjölda varðskipanna, sem dreif-
ist nokkuð jafnt yfir árið. Ekki eigi
að koma til þess að verði viðvarandi
stopp. ,,Það koma vissulega tímabil
á árinu þar sem skipin liggja við
bryggju en stefnt er að því að það
verði ekki eins og verið hefur á und-
anförnum mánuðum,“ segir Ásgrím-
ur. Meðal verkefna sem blasa við
þegar líður á janúarmánuð er eftirlit
með loðnuveiðum. Ásgrímur segir
að í ljósi reynslunnar ætti loðna að
fara að finnast úti fyrir Norðaust-
urlandi. Þá sé von á erlendum
loðnuveiðiskipum og Landhelg-
isgæslunni beri skv. reglugerð að
vera með skip á svæðinu. „Við ger-
um því ráð fyrir að fara mjög fljót-
lega með skip á stað til þess að vera
með norðurflotanum,“ segir hann.
TF-SIF, eftirlitsflugvél Land-
helgisgæslunnar, hefur tekið að sér
verkefni erlendis á seinustu árum
fyrir Landamærastofnun Evrópu og
að sögn Ásgríms liggur nú fyrir að
áfram verða verkefni á árinu 2014
fyrir flugvélina. Þá hafa að sögn
hans verið þreifingar um hugsanleg
verkefni fyrir varðskip Landhelg-
isgæslunnar á árinu fyrir Frontex.
Ef af því verður mun það að öllum
líkindum sinna eftirlitsstörfum á
Miðjarðarhafinu. Óvíst sé hversu
langan tíma það verkefni kann að
standa enda geti það borið að með
stuttum fyrirvara. ,,Ástæða þess að
þeir leita gjarnan til okkar er sú að
við höfum getað brugðist við með
stuttum fyrirvara þegar kallið hefur
komið.“
Eins og fram hefur komið hefur
hlutfall flugdeildar í rekstri Land-
helgisgæslunnar aukist á síðustu ár-
um vegna verulegrar fjölgunar út-
kalla. Útköllum björgunarþyrlna
fjölgaði í fyrra. Ásgrímur segir að
heildarfjöldi flugtíma vegna þyrlu-
útkalla hafi aukist á seinasta ári frá
árinu á undan og flest bendi til þess
að aðalaukningin sé vegna útkalla
vegna ferðamanna.
Varðskipin verði fleiri daga á sjó
Útköllum björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar fjölgaði á árinu 2013 TF-SIF verður í verk-
efnum erlendis á árinu og hugsanlegt er að varðskip verði sent til að sinna eftirliti á Miðjarðarhafi
Morgunblaðið/Jón Páll
Í jólaskrúða Varðskipin Þór og Ægir við bryggju í Reykjavík skömmu fyrir jól. Úthaldsdögum fækkaði í fyrra.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Útsölur hófust víða í gær en einhverjar verslanir tóku forskot
á sæluna og buðu viðskiptavinum sínum afslætti strax eftir
jól. Útsölurnar standa margar hverjar út janúarmánuð og ef
marka má fyrsta daginn stefnir í ágæta sölu hjá kaup-
mönnum, sem bera sig ágætlega eftir jólavertíðina, að sögn
Sturlu Gunnars Eðvarðssonar, framkvæmdastjóra Smára-
lindar. „Það voru hjá mér kaupmenn í dag [fimmtudag] sem
voru mjög ánægðir, voru með gríðarlega aukningu frá því í
fyrra. En það er náttúrlega misjafnt, það er eins og það er,“
segir Sturla. „Ég held að almennt séð hafi kaupmenn verið
nokkuð sáttir í restina. Þetta fór seint af stað en síðustu dag-
arnir fyrir jól voru mjög góðir og mikil verslun,“ segir hann.
Úr jólagjafaverslun í afsláttarkapphlaup
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útsölur hafnar eftir ágæta jólavertíð
Arion banki fær ekki yfirráð yfir ein-
staklingslánum Dróma og Hildu fyrr
en eftir nokkrar vikur. Upplýsinga-
fulltrúi bankans segir of snemmt að
segja til um hvort og þá hvernig lán-
þegar verði varir við það þegar yf-
irfærslan verður. Líklegt sé að marg-
ir verði lítið varir við breytinguna þar
sem Arion banki hafi samkvæmt sér-
stökum þjónustusamningi við Dróma
þjónustað stóran hluta þessara lána
undanfarin ár án þess þó að hafa haft
forræði yfir þeim.
Þegar samið var um uppgjör á milli
Dróma sem vann úr eignasafni
SPRON og Frjálsa fjárfestingar-
bankans, Eignasafns Seðlabankans
og Arion banka var ákveðið að færa
einstaklingslán Dróma til Arion
banka. Bankinn tók einnig við ein-
staklingslánum frá Hildu, dótturfélagi
Eignasafns Seðlabankans. Arion
banki tekur þannig við 56 milljarða
króna lánasöfnum auk reiðufjár til
uppgjörs á um 70 milljarða króna
skuld Dróma við bankann frá
því innlán SPRON voru færð til Ar-
ion banka á árinu 2009. Seðlabankinn
tekur aftur á móti við fyrirtækjalán-
um og fullnustueignum Dróma. Eign-
irnar verða afhentar á næstu vikum,
að því er fram kom þegar samkomu-
lagið var kynnt fyrir áramót.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýs-
ingafulltrúi Arion banka, segir að
þegar hafi verið hafist handa við und-
irbúning þess að flytja lánin til bank-
ans. Fyrir liggur að gæði lánasafn-
anna eru misjöfn. Haraldur segir að
lánin séu að stórum hluta góð en
vinna þurfi talsvert í hluta safnanna.
Hann segir að starfsmenn bankans
muni leggja sig fram við að byggja
upp og efla viðskiptasambandið við
þennan hóp á nýjum og betri grunni.
helgi@mbl.is
Undirbúa yfirtöku lána
Lánþegar verða lítið varir við breytinguna þegar Arion
banki tekur við 56 milljarða lánasöfnum Dróma og Seðlabanka
Morgunblaðið/Kristinn
Banki Arion tekur við innheimtu.
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813