Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND Skoðið úrvalið á bata.is Vertu vinur á ÚTSALA ÚTSALA AFP Górillan Kumbuka á árlegri talningu og mælingu í London Zoo, elsta vísindadýragarði í heiminum. Dýra- garðurinn var stofnaður árið 1828 og opnaður almenn- ingi 1847. Í honum eru um 19.000 dýr af um 800 teg- undum. Þeirra á meðal eru fjórar górillur, karldýrið Kumbuka og kvendýrin Zaire, Mjukuu og Effie. Lundúnadýrin talin og mæld Heilsu Ariels Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur hrakað mjög síðustu daga og hann er nú talinn í lífshættu, að sögn lækna hans í gær. Sharon, sem er 85 ára, hefur verið í svefndái frá 4. janúar 2006 og læknar hans segja að nokkur líffæri hans séu farin að gefa sig, meðal annars nýrun. Sharon varð forsætisráðherra Ísr- aels árið 2001 og naut áður mikillar virðingar í landinu sem herforingi. Hann tók þátt í fjórum stríðum eftir stofnun Ísraelsríkis árið 1948. Ariel Sharon var varnarmála- ráðherra árið 1982 þegar hann stjórnaði innrás Ísraelshers í Líb- anon. Meðan á innrásinni stóð drápu líbanskir skæruliðar, bandamenn Ísr- aela, hundruð Palestínumanna í flóttamannabúðum sem voru á valdi Ísraelshers. Ísraelsk rannsóknar- nefnd komst síðar að þeirri niður- stöðu að Sharon bæri ábyrgð á fjöldamorðunum. Sharon var lengi einn helsti tals- maður landtöku gyðinga á herteknu svæðunum. Hann breytti þó óvænt um stefnu árið 2005 þegar hann ákvað að leggja niður byggðir land- tökumanna á Gaza og kalla herlið Ísraela á svæðinu heim. Sama ár gekk hann úr Likud-flokknum og stofnaði miðflokkinn Kadima áður en hann veiktist og féll í dáið. bogi@mbl.is Heilsu Ariels Sharon hrakar mjög eftir átta ára svefndá  Í lífshættu eftir að nýrun og fleiri líffæri fóru að gefa sig Ariel Sharon Denver. AFP. | Kannabisneytendur fögnuðu á nýársdag þegar Colorado varð fyrsta ríkið í Bandaríkjunum til að heimila sérstökum verslunum að selja marijúana sem vímuefni eða í lækningaskyni. Yfirvöld í Colorado hafa veitt alls 348 leyfi til að selja marijúana í smásölu, meðal annars í litlum marijúanaverslunum. Leyft verður að opna slíkar verslanir í Washingtonríki í júní. Íbúar Colorado og Washing- tonríkis samþykktu tillögu um að leyfa sölu á marijúana sem vímuefni, ekki aðeins í lækningaskyni, í al- mennum atkvæðagreiðslum í nóv- ember 2012. Seinna voru sett lög sem heimila marijúanaverslanir og þau tóku gildi á nýársdag. Óttast að vandinn aukist Andstæðingar laganna segja að þau geti orðið til þess að neysla á marijúana aukist og fleiri ánetjist vímuefninu. Marijúananeysla geti skaðað heilsuna og leitt til geðrænna vandamála, auk þess sem hún auki líkurnar á því að fólk leiðist út í neyslu á hættulegri vímuefnum. Bandarísk samtök, sem beita sér fyrir því að marijúana verði leyft, fögnuðu hins vegar gildistöku lag- anna í Colorado og sögðu að ljóst væri að fleiri ríki myndu setja slík lög, það væri aðeins spurning um tíma. „Þetta verður til þess að störfum fjölgar, tekjur ríkisins aukast, ferða- fólki fjölgar og ný atvinnugrein þróast í Colorado,“ sagði Rachel Gilette, lögfræðingur samtakanna National Organization for the Re- form of Marijuana Laws (NORML). Embættismenn í Colorado áætla að skatttekjur ríkisins vegna sölu á marijúana nemi um 67 milljónum dollara á ári, eða sem nemur tæpum átta milljörðum króna. Yfirvöld í Colorado heimiluðu fyrst fyrirtækjum að selja mari- júana í lækningaskyni árið 2010. Samtök marijúanafyrirtækjanna segja að mikill straumur ferða- manna, sem kaupi marijúana, geti orðið til þess að skortur verði á fíkni- efninu í Colorado. „Það er erfitt að spá um hvort hægt verði að anna eft- irspurninni, einkum vegna þess að það er erfitt að meta hvaða áhrif ferðamenn hafa á þennan markað,“ sagði Michael Elliot, formaður hags- munasamtakanna. Kannabisræktendur og mari- júanakaupmenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Nokkur fyrirtæki bjóða nú þegar upp á sérstakar marijúana- ferðir til Colorado, sem er einkum þekkt fyrir skíðastaði og til- komumikla fjallanáttúru. „Fólk flykkist hingað hvaðanæva, bara vegna þessarar nýlundu,“ sagði Adam Raleigh, hjá kannabisfyr- irtækinu Telluride Bud Co. Gæti aukist um 60% Marijúana hefur þegar verið leyft í lækningaskyni í 19 ríkjum Banda- ríkjanna og í nokkrum þeirra hefur efnið verið leyft í 20 ár. Í flestum þessara ríkja er neysla á marijúana sem vímuefni ekki skilgreind sem glæpur. Samkvæmt lögunum í Colorado og Washingtonríki eiga yfirvöld að hafa eftirlit með ræktuninni, dreif- ingunni og sölunni á marijúana. Markaðurinn er mjög stór. Salan á marijúana í lækningaskyni nam 1,4 milljörðum dollara á nýliðnu ári, eða rúmum 160 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að hún aukist um 60% í ár, eða í 2,34 milljarða dollara, eða 270 milljarða króna. Gert er ráð fyrir því að yfir 300 marijúanaverslanir verði opnaðar í Washingtonríki í júní. Kalifornía Oregon Washington Montana Michigan Colorado Heimildir: ProCon.org/MarijuanaPolicyProject/Governing.com Arizona Nýja-Mexíkó Nevada Illinois MaineVermont Connecticut Washington D.C. Delaware New Jersey Rhode Island Massachusetts New Hampshire Maríjúana- verslanir verða opnaðar í júní *Í Maryland hafa verið sett lög sem heimila notkun marijúana í rannsóknaskyni á sjúkrahúsum Maryland* Marijúana í Bandaríkjunum Leyft í lækningaskyni Marijúana leyft sem vímuefni, ekki aðeins í lækningaskyniMarijúana ekki leyft með lögum Fyrsta ríkið sem heimilar sölu á marijúana í verslunum Hawaii Alaska Spá stóraukinni marijúanasölu  Marijúanaverslanir leyfðar í Colorado Ríkisútvarpið á Kýpur baðst í gær afsökunar á því að hafa út- varpað röngu áramótaávarpi á gamlársdag og sagði að rann- sókn hefði verið hafin á mistök- unum. Útvarpa átti áramótaávarpi forseta Kýpur, Nicos Anastasiades, en þess í stað kom ávarp fyrrverandi forseta landsins, Demetris Christofias. Í til- kynningu frá útvarpinu sagði að niðurstaða rannsóknarinnar ætti að liggja fyrir fljótlega. Anastasiades tók við forsetaemb- ættinu í febrúar síðastliðnum eftir að Christofias ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri. Christofias hafði þá sætt gagnrýni vegna efna- hagsvanda Kýpur sem varð til þess að landið þurfti að semja um lán að andvirði tíu milljarða evra frá Evr- ópusambandinu og Alþjóðagjald- eyrissjóðnum. KÝPUR Ríkisútvarpið rannsakar hvers vegna röngu áramótaávarpi var útvarpað Nicos Anastasiades

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.