Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ístak hefur hafið framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar um Hellisheiði. Verið er að koma upp vinnuaðstöðu við bragga Vega- gerðarinnar við Hveradalabrekk- una og nokkrum hlössum af efni hefur verið sturtað í nýja veg- tengingu að Skíðaskálanum. Framkvæmdir geta þó ekki hafist að ráði fyrr en snjóa leysir. Suðurlandsvegur verður breikkaður frá Hamragilsvega- mótum við Hverahlíðarvirkjun að hringtorginu við Hveragerði í ár og á næsta ári og á verkinu að vera lokið fyrir 1. nóvember 2015. Þetta er alls tæplega 15 km leið en verkinu fylgir að gera 1,8 km langan veg af Hamragilsvegi að Skíðaskálanum í Hveradölum. Innifalin er lögn fernra undir- ganga. Ístak átti lægsta tilboð í verkið og var í haust samið við fyrirtæk- ið um að vinna það fyrir 1,3 millj- arða króna. Unnið í haginn Svanur G. Bjarnason, svæðis- stjóri hjá Vegagerðinni, segir að byrjað verði á veginum frá Hamragilsvegi og upp á heiðina en á þeirri leið verður ein akrein í hvora átt með aukaakrein til framúraksturs, svokallaður 2 + 1 vegur, eins og nú er kominn að hluta. Niður Kambana verða síð- an tvær akreinar í báðar áttir. Víravegrið mun aðgreina aksturs- stefnur á báðum köflunum. Hermann Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Ístaks, segir að reynt verði að vinna í haginn í vetur, eftir því sem veður leyfi, en framkvæmdir hefjist ekki fyrir al- vöru fyrr en með vorinu. Í desem- ber var byrjað að aka fyllingu í stæði nýja vegarins að Skíðaskál- anum og verður því haldið áfram í vetur, ef veður leyfir. Þarf samkomulag við OR Félagið Zalibuna sem hyggst byggja veitingahús á Kambabrún og koma upp rússíbana á gamla Kambaveginum hefur óskað eftir því að gerð verði ný gatnamót við veitingahúsið og skipulagsnefnd Ölfuss bað Vegagerðina að íhuga það vel. Vegamálastjóri hefur svarað erindi fyrirtækisins og grundvallast það á umsögn frá hönnunardeild Vegagerðarinnar. Kristján Kristjánsson, forstöðu- maður hönnunardeildarinnar, seg- ir lagt til að gerð verði ein gatna- mót til suðurs á Hellisheiðinni og þau verði samnýtt af veitinga- staðnum og Orkuveitu Reykjavík- ur vegna Hverahlíðarvirkjunar. Lagt er til að þau verði talsvert vestan við fyrirhugaðan veitinga- stað, ef til vill þrjá kílómetra. Kristján segir slæmt að fjölga veg- tengingum á heiðinni vegna þess hversu oft sé þoka og slæmt skyggni og geti það því skapað hættu fyrir vegfarendur. Hann bendir á að framkvæmdin hafi ver- ið boðin út og að breyta þurfi skipulagi. Ekki er búið að leysa tengingu við útsýnisstaðinn á Kambabrún en þegar tvær tvöfaldar akreinar koma niður Kambana lokast fyrir hann fyrir umferð að austan. Kristján segir að til umræðu hafi verið að færa útsýnisstaðinn vest- ar. Vegagerðin sé hins vegar tilbú- in til að hætta við þá framkvæmd og hjálpa í staðinn til við að koma á tengingu við fyrirhugaðan veit- ingastað. Búið að sturta fyrstu hlössunum  Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar fara í fullan gang þegar snjóa leysir  Vegagerðin býð- ur upp á vegamót nær væntanlegum veitingastað á Kambabrún en vill ekki fjölga vegtengingum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Upphaf Suðurlandsvegur verður lagaðar til í Hveradalabrekkunum en þar er þegar komin aukaakrein. Þarna verður upphaf framkvæmda. Breikkun Suðurlandsvegar um Hellisheiði Loftmyndir ehf. Hellisheiðarvirkjun Skíðaskáli Hverahlíð Hellisheiði Kambar Hveragerði Hengladalsá Til Reykjavíkur Til Selfoss 2+1 frá Hamragilsvegi að Ölkelduhálsvegi Að Ölkelduhálsi 1+1 með miðjuvegriði að hringtorgi við Hveragerði (vegur fluttur síðar) G ígahnúkavegur 2+2 frá Ölkelduhálsvegi niður Kambana Áætlaðar framkvæmdir Undirgöng 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Fyrir bílinn Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar 745 Deka Tjöru- og olíu- hreinsir 4 lítrar 1.890 1/2” slanga 15 metra með stút og tengjum 1.690 Þrýstiúðabrúsi , 1 líter 495 Bíla & gluggaþvotta- kústur, gegn um rennandi 116>180cm, hraðtengi með lokun 2.490 „Veðrið var fullkomið um miðnætti á gamlársdag og nýársdagsnótt. Eftir að flugeldarnir voru sprengdir upp sá hæfilegur vindur til þess að feykja reyknum og menguninni burt,“ segir Kristín Lóa Ólafsdóttir, heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur. Minnsti styrkur svifryks mældist um áramótin um árabil. Ekki hafa sést viðlíka gildi áður, að minnsta kosti ef farið er aftur til ársins 2010. „Við erum ekki vön að sjá svona gildi. Okkur þótti það lágt í fyrra en það var lægra í ár,“ segir Kristín og bendir á að veðurskil- yrðin stjórni þessu, sem og magn flugelda sem skotið er upp, en sala á flugeldum var mjög svipuð og í fyrra. Styrkur svifryks fyrstu klukku- stundina árið 2014 var 245 míkró- grömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg í Reykjavík. Styrk- urinn féll strax niður þegar leið á nóttina en meðaltalsstyrkurinn á nýársdag var hins vegar 18 míkró- grömm á rúmmetra. Heilsuvernd- armörkin á sólarhring eru 50 mík- rógrömm á rúmmetra. Fyrstu klukkustundina árið 2013 var styrkurinn 475, árið 2012 var hann 1.014, árið 2011 var hann 284, og 2010 var hann 1.575 og það ár var allur dagurinn yfir heilsuvernd- armörkum eða 225. Þess má geta að árið 2010 var skyggnið 4 km, skv. upplýsingum frá Veðurstofu, fyrstu klukkustundirnar á nýja árinu. Styrkur svifryks fór átta sinnum yfir heilsuverndarmörk á sólarhring árið 2013 líkt og árið 2012. thorunn@mbl.is Fullkomið flugeldaveður  Svifryksmengun mældist mjög lítil Morgunblaðið/Árni Sæberg Loftmengun Styrkur svifryks mældist mjög lágur fyrstu klukkustundirnar á nýju ári. Veðurskilyrðin voru góð en vindur blés menguninni burt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.