Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 28
Fyrst þetta: Ég átti trúnaðarmann til fjölda ára sem var fjár- málastjóri Rík- isútvarpsins, Hörður Vilhjálmsson að nafni; gæfumenni og gáfaður unnandi menningar. Hann sagði við mig 199x þegar ég var að harma árlegan nið- urskurð á fjárveit- ingum til tónlist- ardeildar: Þetta er rétt að byrja. Þetta er ekki búið. Þegar afnota- gjöld leggjast af og nefskattur lagður á, missir RÚV mátt sinn, en stjórnmálamenn læsa klóm í okk- ur. Mér þótti þetta svo gáfulegt að ég trúði Herði ekki í fyrstu. Þetta var of djúpt fyrir ópólitískt lamb. Ár eftir ár gekk hann á fund fjár- veitingarefndar alþingis og barðist hetjulega við hreppstjórasyni. Nefndarmenn voru týndir að baki fylgiskjalabunkum og vissu ekki sitt rjúkandi ráð og aldr- ei lent í öðru eins. Hörður reyndist sannspár. Þá sagði ég starfi mínu lausu í mótmælaskyni með þeim orðum, sem enn standa á blaði; að öll hljóðrit mín til þrjátíu ára (nú fjöru- tíu) væru bönnuð, tónleika- og stúd- íóupptökur og viðtöl við tónlist- armenn í útvarpi og sjónvarpi – með vísan til ákvæðis um sæmd- arrétt samkvæmt sáttmála sem kenndur er við Genf og/eða Bern. Þetta geta allir listamenn þjóð- arinnar gert. En svo er líka hægt að vera barinn hundur – krumm- inn á skjánum. Næst þetta: Er ég spurði upp- sögn útvarpsstjóra með lækkandi sól varð ég hugsi. Ég hringdi í rit- Dettur fólki í hug að þetta sé búið? Eftir Guðmund Emilsson Guðmundur Emilsson 28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Slökun er síðasta æfingin sem venju- lega er gerð í lok hvers Hatha-jógatíma og lengd hennar ætti alltaf að taka mið af ákefð tímans hverju sinni. Oftast varir slökunin þó á bilinu 3-10 mínútur. Meðan á slökuninni stendur gefum við líkamanum tækifæri á að vinna úr áreiti sem við verðum fyrir á hverjum degi. Ýmiskonar áreiti dynur á okkur og krefst athygli okkar yfir daginn: Útvarp, aug- lýsingaskilti, símtöl, tölvupóstur og svo mætti lengi telja. Með nú- tímatækni verður einnig erfiðara fyrir okkur að stjórna áreitinu þar sem sífellt auðveldara er að vera „sítengd“ umheiminum. Í slökun förum við inn í ástand sem er ekki ósvipað svefni. Til einföldunar má skipta svefni í tvö svefnstig; djúpan svefn og draumsvefn. Við hvílumst vel í djúpa svefninum en í draum- svefninum er hugurinn einmitt að vinna úr áreitinu sem við verðum fyrir yfir daginn. Þegar draum- svefninum lýkur tekur djúpi draumlausi svefninn við. Djúpi draumlausi svefninn er eftirsóknarvert ástand og þar viljum við dvelja sem lengst yfir nóttina. Í þessu ástandi fær líkaminn gott tækifæri til að byggja upp og næra vöðvana. Áður en við vinnum okkur inn dvöl í djúpa svefn- inum verðum við að klára úrvinnsluna í draumsvefninum. Hugurinn fær tæki- færi til að vinna úr áreitinu loksins þeg- ar líkaminn er í hvíld. Þegar okkur dreymir, þá erum við stödd í þessum hluta svefn- ástandsins. Jógaslökun felst í að halda meðvitund, en slaka alveg á lík- amanum. Þannig veljum við að liggja á bakinu í stöðu sem reyn- ir sem allra minnst á vöðva og liði og heftir ekki blóðflæði til út- limanna. Í meðvituðu ástandi lærum við smám saman að nýta slökuna til úrvinnslu á áreiti. Margir upplifa það hins vegar í fyrstu jógatímum sínum að stein- sofna í slökun og það er langt því frá að vera bannað. Það gefur einfaldlega til kynna að líkamann og hugann bráðvantar þessa hvíld sem slökunin er, jafnvel þó stutt sé. Það er líka mjög gott að gefa sér leyfi til að gefa lík- amanum þá hvíld sem hann þarfnast. Staðreyndin er sú að í dag fá fæstir nægan svefn yfir nóttina. Svefn í slökun er því kærkominn blundur fyrir marga! Með reglulegri iðkun lærum við smátt og smátt að nýta slökunina á annan hátt; sem úrvinnslu. Þannig komumst við fyrr inn í djúpa draumlausa svefninn að nóttu til og þess vegna upplifa margir iðkendur jóga minni svefnþörf og meiri orku en áður. Slökun getur tekið á sig ýmsar myndir og ættum við að leita að okkar bestu leið til slökunar. Fyrir afreksíþróttafólk getur slökun fólgist í lestri góðrar bók- ar. Fyrir kyrrsetufólk getur slök- un fólgist í stuttum hlaupatúr. Slökunin okkar þarf því ekki allt- af að vera hvíld, heldur tilbreyt- ing frá hversdagsleikanum. Leyfum okkur að njóta góðrar slökunar og setjum slökun í for- gang jafnvel þó við séum ekki alltaf í jógasalnum. Hugleiddu slökun Eftir Eygló Egilsdóttur Eygló Egilsdóttir »Með nútímatækni verður einnig erfið- ara fyrir okkur að stjórna áreitinu þar sem sífellt auðveldara er að vera „sítengd“ umheiminum. Höfundur er jógakennari, ÍAK einka- þjálfari og Metabolicþjálfari í Árbæ. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við- komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt hér á landi og hafa aldrei verið fleiri yfir vetr- armánuðina en ein- mitt nú. Átakið „Ís- land allt árið“ hefur greinilega skilað sér í auknum ferða- mannastraumi í skammdeginu og um leið skapað ríkissjóði auknar tekjur. Að það skuli ekki vera þjónusta hjá Vegagerðinni nema fimm daga vikunnar að Gullfossi og Geysi yfir vetrartím- ann er að mínu viti algjörlega óá- sættanlegt. Um 46 þúsund erlendir ferða- menn komu til landsins í nóv- ember sl., samkvæmt talningum Ferðamálastofu, eða um 9.500 fleiri en í nóvember 2012. Um 25,7% aukningu ferðamanna er að ræða milli ára. Við sláum hvert metið á fætur öðru og nú stefnir í að ferðamannafjöldinn fari hátt í 800 þúsund á nýliðnu ári. Ný ársfjórðungsskýrsla Evr- ópska ferðamálaráðsins (ETC) sýnir að vöxtur í ferðaþjónustu er hvergi meiri en á Íslandi. En erum við undir það búin að taka við öllum þessum ferðamönnum yfir vetrartímann? Ferðamenn sem hingað koma yfir vetrartímann hafa ekki úr mikilli afþreyingu að moða, og er „Gullhringurinn“ einna vinsæl- astur. Þau ferðaþjónustufyrirtæki sem eru með skipulagðar ferðir að Gullfossi yfir vetrartímann eru oft í vanda stödd á þeim dögum sem Vegagerðin er ekki með þjónustu, sérstaklega vegna hálku. Aukin ábyrgð er sett á bíl- stjóra á þessari leið og má telja mestu mildi að ekki hafi orðið alvalegt slys. Talið er að um 70% ferða- manna sem hingað koma yfir vetrarmánuðina fari hinn rómaða Gullhring. Þetta þýðir að í síð- asta mánuði (desember) hafi um 30 þúsund ferðamenn farið þessa leið. Það ætti að vera sjálfsögð krafa að veginum að Gullfossi sé haldið opnum alla daga ársins, sé þess nokkur kostur. Að það skuli ekki vera nein þjón- usta á þessum veg- arkafla á laug- ardögum og þriðjudögum er ávís- un á slysahættu. Of- an á þetta leggst að engin þjónusta er veitt hjá Vegagerð- inni á þessum veg- arkafla á stórhátíð- um eins og á jóladag og nýársdag. Fjöldi bíla lenti í vandræðum á þessari leið síðastliðinn jóladag, meðal annars þrjár rútur fullar af er- lendum ferðamönnum, sem fuku út af í fljúgandi hálku. Þá fauk rúta út af og valt á þriðjudegi (ekki þjónustudagur hjá Vega- gerðinni) við Þingvelli í nóv- ember vegna hálku. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki í þess- um óhöppum. Ríkið má ekki draga lappirnar öllu lengur. Það er skylda okkar að sjá til þess að öryggi sé í öndvegi á þessum vegarkafla, annars kann illa að fara. Alltaf kemur upp umræða um hvort það eigi að aflýsa ferðum þegar aðstæður eru erfiðar, sem er jú gert þegar svo ber undir. Ferðamenn skoða líka veðurspár og skilja ekki að það sé ófært vegna hálku þegar veður er gott. Fólk er að koma til Íslands, kannski einu sinni á lífsleiðinni, og vill ekki missa af Gull- hringnum. Tími er til kominn að Vega- gerðin standi sína „plikt“ og veiti þjónustu alla daga ársins í kring- um fjölförnustu ferðamannastað- ina. Ég skora á ráðherra vega- mála, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, að sýna meiri fagmennsku í þessum efnum. Vegagerðin þarf að standa sína „plikt“ Eftir Val Benedikt Jónatansson Valur Benedikt Jónatansson » Aukin ábyrgð er sett á bílstjóra á þessari leið og má telja mestu mildi að ekki hafi orðið alvar- legt slys. Höfundur er bílstjóri hjá Reykjavík Excursions-kynnisferðum. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.