Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Lopi 33 Sjá sölustaði á istex.is Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Aldrei fleiri hafa heimsótt þjóð- garðinn en árið 2013 sem var metár. Reiknað er með að um 600 þúsund manns hafi komið,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Hann segir mestu fjölgun ferðafólks hafa orðið á fyrstu fjórum mánuðum ársins, mið- að við árið 2012. Ísland verður sífellt vinsælla yfir vetrartímann. Áætlað er að 1.000 manns hafi farið um Almannagjá á einni klukkustund daginn fyrir gamlársdag. En starfsfólk Þjóð- garðsins á Þingvöllum, sem var þá við snjómokstur efst í Almannagjá, þurfti að gera hlé á vinnu sinni vegna fjölda ferðamanna sem var á staðnum. Stöðugur straumur ferða- manna sem naut hátíðanna hér á landi var til Þingvalla. „Fyrir fólk sem kemur til lands- ins í styttri ferðir liggur beinast við að koma til Þingvalla,“ segir Ólafur. Í takt við fjölgun ferðamanna hef- ur vetrarþjónustan verið aukin. Meira er borið af sandi á helstu gönguleiðir á svæðinu. Þá er Al- mannagjá mokuð en slíkt hefur ekki áður verið gert reglulega. Þó fylgst sé vel með veðri og mokstri og söndun hagað eftir því, bendir Ólaf- ur á að skjótt skipast oft veður í lofti hér á landi sem taka þarf mið af. Ferðafólk mætir snemma og er oft komið fyrir klukkan níu. Einnig er vinsælt að koma til Þingvalla að kvöldlagi og skoða norðurljósin. „Við höfum hjálpað til með því að huga að ljósmengun á kvöldin. Ljós- in eru ýmist lækkuð eða slökkt á þjónustumiðstöðinni,“ segir Ólafur. 2014 ár framkvæmda Árið í ár, 2014, verður mesta framkvæmdaár á Þingvöllum til þessa. Meðal annars verður lagt nýtt bílaplan og framkvæmdir hefj- ast fljótlega. Þá verður hlaðið ofan við Almannagjá hellulagt. „Það þýð- ir ekki að kasta til höndunum í framkvæmdum á Þingvöllum,“ segir Ólafur. Snjómokstur Talið er að um 1.000 manns hafi farið um Almannagjá á einni klukkustund daginn fyrir gamlársdag. Starfsfólk þjóðgarðsins, sem var við snjómokstur, þurfti að gera hlé á mokstrinum vegna fjölda ferðamanna. Metár á Þingvöllum  Aldrei fleiri ferðamenn á Þingvöllum en árið 2013, um 600 þús.  Mun fleiri komið fyrstu fjóra mánuði 2013 en árið áður Þegar vart sést til jarðar fyrir klaka og snjó er tími til að huga að smáfuglunum. Þrestir, starar og hrafnar gera sér brauð, epli, fitu og aðra matarafganga að góðu en auðnutittlingum má gefa fræ og snjótittlingum maís og hveitikorn, svo eitthvað sé nefnt. Hólmfríður Arnardóttir, fram- kvæmdastjóri Fuglaverndar, segir upplagt að hengja skorin epli upp í tré eða útbúa fóðurpall með því að festa krossviðarplötu á trjábol sem tekið hefur verið ofan af og þá sé ekki síður mikilvægt að muna að gefa fuglunum einnig vatn að drekka. „Það eru mjög margir sem gefa fuglunum og við fáum mikið af fyr- irspurnum um fóður; svo margar að við vorum að spá í að finna ein- hverja leið til að vera með fóður sjálf eða hafa það aðgengilegra næsta vetur,“ segir Hólmfríður. Hún hvetur fólk til að fylgja mat- argjöfunum eftir, fuglarnir læri fljótt hvar æti er að fá og séu miklir gleðigjafar í garðinum. Morgunblaðið/Ómar Æti Fuglarnir éta hvers kyns ávexti en þessi nældi sér í pylsubrauðsbita. Gera sér brauð, epli og fitu að góðu  Hugum að smáfuglunum í snjónum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.