Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 50 % AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM Í BÚÐINNI HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG! Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar Planið tók gildi 1. apríl 2011 var Orkuveitan í þeirri stöðu að hafa að óbreyttu þurft að taka lán til að eiga fyrir launum þá um sumarið. Miklar breyt- ingar hafa jafn- hliða verið gerðar á rekstrinum. Starfsmönnum hefur fækkað um ríflega 200 frá árinu 2008 og var fjöldinn kominn niður í 390 árið 2012 og hefur hann haldist óbreyttur síðan. Eins og sýnt er í töflunni hér til hlið- ar hafa nokkrar lykilstærðir í rekstrinum komið betur út en gert var ráð fyrir í Planinu. Lengst til vinstri er upphafleg áætlun skv. Planinu, í miðdálkinum áætlun fyrir 2011-2013 og í dálkinum lengst til hægri útkoman 2011-2013 eins og útlit er fyrir að hún verði núna. 7 milljörðum umfram áætlun Eins og sjá má er útlit fyrir að að- gerðirnar skili 43,7 milljörðum á tímabilinu 2011-2013 eða 6,6 millj- örðum umfram upphaflega áætlun. Skuldir Orkuveitunnar voru 216 milljarðar í lok september á nýliðnu ári og voru eignir á móti 280 millj- arðar króna. Hlutfall skulda á móti EBITDU, þ.e. hlutfall hagnaðar fyr- ir fjármagnsliði, afskriftir og skatta á móti nettóskuldum, var 19,8 á þriðja ársfjórðungi 2009 en 7,9 á sama ársfjórðungi 2013. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra var staðan því sú að tæp átta ár hefði tekið að greiða upp allar skuldir OR með því að verja til þess öllum EBITDA-hagnaði, en tæp 20 ár fjór- um árum fyrr. Planinu lýkur í árslok 2016 og er stefnan þá sett á að hlut- fall skulda og EBITDU verði um 4 og að skuldir móðurfélags OR verði þá um 164 milljarðar. Áætlað er að EBITDA síðasta árs verði um 25 milljarðar, borið saman við 13,9 milljarða árið 2010, áður en planið tók gildi. Blaðamaður hitti Bjarna Bjarna- son, forstjóra Orkuveitunnar, í höfuðstöðvum fyrirtækisins í gær. Rifjaði Bjarni þá upp til hvaða að- gerða hafi þurft að grípa til að rétta reksturinn við. Þurfti að taka á ofmönnun Starfsmönnum var sem fyrr segir fækkað um ríflega 200 og segir Bjarni að taka hafi þurft á verulegri ofmönnun. Hann segir að það ferli hafi byrjað með fjöldauppsögnum árið 2010, áður en hann kom til starfa. Sú stefna var mörkuð að ráða ekki nýja starfsmenn og segir Bjarni að um 80 af 390 núverandi starfs- mönnum hafi skipt um starf innan fyrirtækisins til þess að leysa þann tímabundna vanda sem fækkunin olli. Komi upp verkefni sem kalli á starfskraft sé það leyst með því að hliðra til starfsfólki innan OR. Settu milljónir í flugelda Sú ákvörðun var tekin árið 2010 að styrkir OR til ýmissa verkefna voru aflagðir. Fyrirtækið varði á sín- um tíma hundruðum milljóna á ári í styrki, þ.m.t. nokkrum milljónum vegna flugeldasýningar á menningarnótt í Reykjavík svo dæmi sé tekið. „Það var lögð gríðarleg áhersla á að hreinrækta starfsemina. Eitt mikilvægasta verkefni í upphafi Plansins var að marka hreina og skýra stefnu fyrir reksturinn. Ég kalla það afturhvarf til upp- runans. Að kjarnastarfsemin, veitu- þjónustan, er skilgreind sem megin- hlutverk Orkuveitu Reykjavíkur. Við horfum til þess með þjón- ustulund og auðmýkt. Ég hef lagt áherslu á það hér innanhúss,“ segir Bjarni um þessa stefnubreytingu. Rekstur móttöku fyrir ferðamenn á Hellisheiði sé dæmi um hvernig starfsemin var orðin dreifð. Hún hafi nú verið flutt í einkarekstur. Einn liður í að styrkja reksturinn var að leiðrétta verðskrá m.t.t. verð- lagsþróunar og er gert ráð fyrir að það skili 5,4 milljörðum 2011-2013. Efnahagshrunið kom sem kunn- ugt er hart niður á rekstri OR. Eftir að samkeppni var innleidd á raf- orkumarkaði 1. júlí 2003 gekk OR í gegnum skeið mikils vaxtar, þ.m.t. mikilla fjárfestinga á Hellisheiði. Hinn 1. mars 2011, eða mánuði áð- ur en Planið tók gildi, voru 88% skulda félagsins í erlendri mynt en aðeins 15-20% teknanna. Staðan var því mjög erfið og rifjar Bjarni upp að Norræni fjárfestingarbankinn, NIB, hafi hafnað ósk stjórnenda fyrirtækisins um lánafyrirgreiðslu og þá hafi ekki verið um aðra kosti að ræða en lán frá eigendum til þess að komast yfir erfiðasta hjallann. Bjarni segir aðspurður að innan nokkurra ára geti Orkuveitan væntanlega greitt arð til eigenda sinna, Reykjavíkurborgar (93,5%), Akraness (5,5%) og Borgarbyggðar (0,93%). „Það liggur nú fyrir hjá eig- endum að móta arðgreiðslustefnu. Það er unnið að því.“ Orkuveitan gæti senn greitt arð  Árangur af endurskipulagningu fyrirtækisins er umfram væntingar  Innan fárra ára gæti verið svigrúm til arðgreiðslna til eigenda fyrirtækisins  EBITDA-hagnaður áætlaður 25 milljarðar 2013 Milljarða eignasala » Orkuveitan hefur selt marg- ar eigna sinna á síðustu árum. » Ber þar einna hæst sölu á Perlunni til Reykjavíkurborgar fyrir 950 milljónir. » Þá seldi OR höfuðstöðvar sínar til lífeyrissjóða fyrir 5,1 milljarð í haust og samdi svo um leigu á húsinu til 20 ára. » Jafnframt hefur OR selt hlut sinn í HS veitum fyrir 1,5 millj- arða króna en við þetta bætist sala á jörðum og lendum. Bjarni Bjarnason Umskipti í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur Árangur í rekstri samkvæmt „Planinu“ Planið Planið Útkomuspá (Tölur í milljörðum króna) 2011-2016 2011-2013 2011-2013 Lækkun fjárfestinga í veitukerfum 15 7,4 9,9 Eignasala 10 8,1 8,9 Lækkun rekstrarkostnaðar 5 2,1 3 Lækkun annarra fjárfestinga 1,3 0,7 1,1 Frestun fjárfestinga vegna fráveitu 0 2,9 3,3 Samtals - innri aðgerðir 31,3 21,2 26,3 Víkjandi lán frá eigendum 12 12 12 Auknar tekjur vegna leiðréttingar gjaldskrár 8 3,9 5,4 Samtals - ytri aðgerðir 20 15,9 17,4 Samtals aðgerðaáætlun 51,3 37,1 43,7 Heimild: Orkuveita Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.