Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 7. A P R Í L 2 0 1 4 Stofnað 1913  82. tölublað  102. árgangur  MIKILVÆGT AÐ UNGT FÓLK HAFI SKOÐANIR ÆTLA AÐ GER- BREYTA BORGINNI YNDISLEGUR HRÆRIGRAUTUR Á ÚRSLITAKVÖLDI SKIPULAGSMÁL 12 MÚSÍKTILRAUNIR 28RÁÐSTEFNA UMFÍ 10 Fréttaskýring um nýtt aðalskipulag Reykjavíkur Hestadögum í Reykjavík lauk með sýningunni Æskan og hesturinn í reið- höllinni í Víðidal í gær. Þar léku börn og unglingar listir sínar á hestum. Meðal annars reyndu börnin fyrir sér í hestafótbolta. Lið frá Fylki í Árbæ og Fjölni í Grafarvogi léku. Hart var tekist á, eins og oft sést á knatt- spyrnuvellinum. Munurinn er þó sá að hestarnir sparka boltanum en íþróttamennirnir reyna að stjórna. Börn og hestar léku listir sínar í hestafótbolta Morgunblaðið/Árni Sæberg  „Á málþinginu var greinilegt að fólki fannst óperuformið eiga fram- tíð því þar sameinast listirnar,“ segir Gunnar Guðbjörnsson óperu- söngvari, sem hélt nýverið fram- söguerindi á málþingi um framtíð óperuflutnings á Íslandi. Hann seg- ir að á málþinginu hafi komið fram sterkt ákall eftir nýsköpun og mörg íslensk tónskáld sjá spennandi hluti framundan í listforminu. Þrátt fyrir að óperan eigi undir högg að sækja víða um heim hafa Íslendingar verið að gera góða hluti erlendis sem og hér heima og nefnir Gunnar sérstaklega þá upp- sveiflu sem hefur orðið í kringum óperuna Ragnheiði. »26 „Óperuformið á sér framtíð því þar sam- einast listirnar“ Morgunblaðið/Golli Óperusöngvari Gunnar Guðbjörnsson.  Samþykkt var í borgarráði á fimmtudaginn að úthluta lóðum til Félags eldri borgara og Samtaka aldraðra, og yrði gert ráð fyrir að reisa 50 íbúðir á hvorum stað fyrir sig. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks vildu að jafnframt yrðu teknar frá lóðir á sama stað svo að hægt yrði að bæta við 50 íbúðum í viðbót á hvorri lóð fyrir sig en breyting- artillögur þess efnis voru felldar. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir það lýsa skammsýni, þar sem ljóst sé að eft- irspurn muni aukast. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir hins vegar að tillögurnar myndu koma í veg fyrir frekari uppbyggingu á lóðunum. »9 Gagnrýnir skamm- sýni meirihlutans Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nemendur í framhaldsskólum snúa aftur til náms í dag, en nýir kjara- samningar kennara voru undirritað- ir á föstudaginn. Óvissa ríkir í mörg- um tilfellum og kvíði um það hvernig bætt verði fyrir þá fimmtán virku daga sem verkfallið stóð, en líklegt þykir að prófatíma verði breytt. Þeir formenn nemendafélaga sem Morgunblaðið ræddi við í gær voru sammála um að nemendur væru uggandi um framhaldið. „Það er bara mikið stress og mikil óvissa um hvernig eigi að klára önnina, til dæmis gagnvart útskriftarnemum,“ segir Hjörleifur Steinn Þórisson, formaður nemendafélags Borgar- holtsskóla, en útskrift er áætluð þar 24. maí næstkomandi. Hjörleifur segist hlakka til að byrja í skólanum, en það sé óviðunandi að verkfallið komi niður á nemendum. Hann bæt- ir við að verkfallið hafi lagst mis- þungt á nemendur skólans þar sem nemendur í verklegu námi hafi ekki haft sama aðgang að námsgögnum og þeir sem sinna bóknámi. Einar Ágúst Hjörleifsson, stallari Mímis, nemendafélags Menntaskól- ans á Laugarvatni, segir skrýtið að koma aftur í skólann í viku til þess eins að fara í páskafrí eftir helgi. Hann segir óvissu ríkja um fram- haldið fyrir útskriftarnema, en næstu skref verða rædd í dag. Einar Ágúst segir hugsanlegt að símat verði tekið upp í stað lokaprófa, en óvíst sé hvernig háskólar muni meta það. ML er heimavistarskóli og fóru nánast allir af vistinni og heim til sín. Einar Ágúst segir að flestir hafi snú- ið til baka á vistina um helgina. Tímabundið brottfall líklegt Jara Hilmarsdóttir, varaforseti nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð, segir að flestir nemend- ur séu fegnir að verkfallið hafi ekki staðið lengur, svo að ekki þyrfti að vinna meira upp. Jara segist sjá fram á að nokkuð verði um tíma- bundið brottfall í skólanum vegna verkfallsins. „Það er líklega meira í áfangakerfi en bekkjakerfi, því það er auðvelt að missa úr eina önn og koma aftur inn, frekar en að missa allt árið,“ segir Jara. Rektor MH hefur boðað fund í dag þar sem kynnt verður tilhögun framhaldsins. Jara segir að það sé mjög gott fyrir nemendur, sem séu mjög stressaðir, að málin séu tekin svo föstum tökum. Hún er því bjartsýn á framhaldið. „Ég held að þetta verði minna mál en fólk gerir sér í hugarlund.“ Nemendur kvíðnir út af annarlokum  Framhaldsskólar opna aftur dyr sínar eftir þriggja vikna verkfall  Nemendur fegnir að verkfallið stóð ekki lengur MH Nemendur snúa til baka í dag eftir þriggja vikna verkfall. MMátti ekki seinna vera … »4 Morgunblaðið/Þórður Fjögurra ára börnum verður boðin skólavist í Flataskóla í Garðabæ í haust. Skólayfirvöld ákváðu að láta reyna á það eftir að foreldrar sýndu slíku starfi áhuga. Fimm ára bekkur hefur verið starfræktur við skólann í tvö ár og gefist vel. Ólöf Sigurðardóttir skólastjóri segir að verið sé að móta starf 4 ára bekkjarins, um algjört þróunarstarf sé að ræða og ekki búið að ákveða hversu mörg 4 ára börn verði tekin inn. Þau verði í skólanum á for- sendum námskrár leikskólans en eins og með 5 ára krakkana verði námið mótað að hverjum ein- staklingi. 21 barn stundar núna nám í 5 ára bekk í Flataskóla og stefnan er að fjölga þeim í haust. »4 Morgunblaðið/Ómar Í skóla Leikskólabörn. Fjögurra ára í skóla  Flataskóli tekur upp nýja stefnu  Bjarni Bene- diktsson fjár- málaráðherra segir að enn þurfi að vinda of- an af skatta- hækkunum vinstri stjórn- arinnar. Í máli hans á flokks- ráðsfundi Sjálf- stæðisflokksins um helgina kom fram að ríkis- stjórnin ráðgerði að einfalda skatt- kerfið og lækka skatta frekar. Í samtali við Morgunblaðið segir Bjarni að meðal annars sé það hans sýn að tekjuskattsþrepum verði fækkað í næsta áfanga skattkerfis- breytinga. Þá sé stefnt að afnámi vörugjalda í flestum flokkum. »2 Vill fækka tekju- skattsþrepum Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.