Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 13
is- og skipulagsráðs, í inngangi að ritinu sem geymir aðalskipulagið. Samkvæmt aðalskipulaginu eiga 90% allra nýrra íbúða á tímabilinu sem það tekur yfir að rísa innan núverandi marka borgarinnar. „Markmiðið er að skapa heildstæð- ari og þéttari borgarbyggð og nýta þar með betur land og fjárfest- ingar í gatna- og veitukerfum og þjónustustofnunum. Með þéttari byggð er dregið úr vegalengdum, samgöngukostnaði og umhverfis- áhrifum samgangna,“ segir Páll Hjaltason. Ekki ný hverfi í útjaðri Í inngangsorðum Páls kemur fram að verkefni næstu áratuga sé að fullbyggja „Borgina við Sundin“ og því sé uppbyggingu nýrra hverfa í útjaðri borgarinnar slegið á frest. Gert er ráð fyrir að 40% lands verði opin svæði innan þétt- býlis Reykjavíkur ætluð til útivist- ar, afþreyingar og leikja. „Reykja- víkurborg hefur mikinn metnað til að verða grænni og vistvænni og þar gegna samgöngur mikilvægu hlutverki. Stefnt er að því að hlut- deild almenningssamgangna í ferð- um til og frá vinnu vaxi úr 4% í 12% á tímabilinu og hlutdeild gangandi og hjólandi vaxi úr 21% í 30%,“ segir Páll. Flugvöllurinn fluttur Borgarbúum gafst tækifæri til að gera skriflegar athugasemdir við aðalskipulagið í ágúst og sept- ember í fyrra. Áður höfðu ýmsir þættir skipulagsins verið kynnti á opinberum fundum. Flestir gerðu athugasemdir við þá stefnu að flytja Reykjavíkurflugvöll á brott til að auka öryggi og þétta byggð. Bárust meðal annars 69 þúsund undirskriftir, þar af rúmlega 20 þúsund Reykvíkinga, þar sem áformum um að loka vellinum var mótmælt. Borgaryfirvöld reyndust ófáanleg til að falla frá stefnu sinni, en í lok október var þó gert sam- komulag við ríkið um að breyta dagsetningum varðandi lokun vall- arins. Það mun þó ekki að óbreyttu raska ákvörðun um byggingu blandaðrar byggðar í Vatnsmýri. Minni byggð í Úlfarsárdal Athugasemdirnar voru annars af fjölbreyttu tagi og lutu að öllum höfuðþáttum nýja aðalskipulagsins, þar á meðal þéttingu byggðar mið- svæðis og samgöngustefnunni. Af einstökum athugasemdum má nefna eftirfarandi: Breytt land- notkun í Keldnaholti var gagnrýnd. Þótti gagnrýnendum að um of væri gengið á græn svæði og ekki tekið fullnægjandi tillit til núverandi starfsemi á svæðinu. Breytingum á minna umfangi byggðar og breyttu skipulag Úlfarsársdalshverfis var ennfremur mótmælt. Nýja skipu- lagið gerir ráð fyrir því að verulega verði dregið úr stærð hverfisins frá upphaflegum áformum. Óttast íbú- ar að þetta hafi áhrif á þjónustu við þá. Mótmælt var uppbyggingu norðan Suðurlandsbrautar í Laug- ardal og látnar í ljós áhyggjur af að gengið yrði á opin græn svæði með útivistargildi. Mótmælt var auknu byggingarmagni og stefnu um hæð bygginga á miðborg- arsvæðinu. Vill endurskoða skipulagið Núverandi meirihluti í borg- arstjórn Reykjavíkur leggur mikla áherslu á að fá umboð kjósenda til að hrinda nýja aðalskipulaginu í framkvæmd. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir hins vegar að skipulagið verði tekið til endurskoðunar ef flokkurinn fái tækifæri til þess eftir kosningar. Hann telur að klofningur innan flokksins í afstöðu til skipulagsins skýrist af því hve langan tíma hef- ur verið unnið að gerð þess. Ólík afstaða borgarfulltrúa sýni ákveðna breidd í flokknum. Sjálfur kveðst hann leggja áherslu á að tryggja flugvöllinn í Reykjavík. Hann kveðst hlynntur þéttingu byggðar en endurskoða þurfi ákveðna þéttingarreiti og ákveðin markmið þéttingarstefnunnar. Of geyst hafi verið farið. Þá segir hann að bæta þurfi umferðarmálin. Þótt almenningssamgöngur verði efldar og bættar og umferð reið- hjóla gerð greiðari eigi það ekki að gerast á kostnað umferðarflæðis í borginni og á kostnað einkabílsins. Aðgengilegt á netinu Hægt er að kynna sér að- alskipulagið á vefsíðu Reykjavík- urborgar, reykjavik.is. Þar er að finna nákvæma útlistun á hug- myndunum og hvernig þeim verður hrint í framkvæmd í einstökum hverfum á næstu árum. Þar er einnig að finna yfirlit yfir þær at- hugasemdir sem gerðar voru við skipulagið og þau svör sem feng- ust. Ekkert ætti því að vera því til fyrirstöðu að kjósendur í höf- uðborginni myndi sér skoðun á þessu mikilvæga máli sem varðar framtíðarumhverfi þeirra. Morgunblaðið/Ómar Áherslubreyting Nýja aðalskipulagið felur í sér stóraukna áherslu á almenningssamgöngur og hjólreiðar á kostnað einkabílsins.  Fyrsta eiginlega aðalskipulagið fyrir Reykjavík var samþykkt í borg- arstjórn árið 1965 og staðfest af ráð- herra tveimur árum síðar. Í Sögu Reykjavíkur 1940 til 1990 eftir Egg- ert Þór Bernharðsson segir að vinna við þetta skipulag hafi hafist 1960. Að því hafi unnið fjölmargir aðilar með Geir Hallgrímsson borgarstjóra í broddi fylkingar, en aðrir sem komu einna mest við sögu voru Páll Líndal, formaður skipulagsnefndar, Aðal- steinn Richter skipulagsstjóri, Einar B. Pálsson verkfræðingur, Gísli Hall- dórsson arkitekt og Gústaf E. Páls- son borgarverkfræðingur. Helsti ráð- gjafi við skipulagsvinnuna var Peter Bredsdorff, prófessor í skipulags- fræðum við Listaakademíuna í Kaup- mannahöfn. Með honum störfuðu margir erlendir sérfræðingar, einkum í sambandi við umferðarmál. Eggert Þór segir að aðalskipulagið hafi verið tímamótaverk og vakið at- hygli erlendis fyrir vönduð vinnu- brögð. Í blöðum hér hafi því verið haldið fram að hvergi „á jörðinni hafi verið smíðað jafn skynsamlegt borg- arskipulag á jafn víðtækum grund- velli“ og í Reykjavík og spáð að Reykjavíkursvæðið yrði „verulega fal- leg byggð með haganlegu sniði“ ef skipulagið gengi eftir. Aðalskipulag fyrst 1965 Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Upphafið Fyrsta aðalskipulagið var unnið í tíð Geirs Hallgrímssonar. Borgarstjórn hefur samþykkt nýtt aðal- skipulag fyrir höfuðborgina. Það felur í sér miklar breytingar á byggð, mannlífi og umferð í borginni ef það verður að veruleika. Megináhersla nýja skipulagsins er á þéttingu byggðar miðsvæðis og vistvænar samgöngur. Almenningssamgöngur og hjólreiðar eiga að fá stóraukið vægi á kostnað einkabílsins. Stór umferðarmannvirki eins og mislæg gatnamót heyra sögunni til. Þetta er fyrsta aðalskipulag borgarinnar sem afgreitt er án samstöðu í borgarstjórn. SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR „Með þessu er verið að ganga á Laugardalinn og takmarka útsýni yfir hann. Þetta er miklu meira inn- grip í dalinn en var árið 2000 þegar 33 þúsund undirskriftir borgarbúa stöðvuðu áform R-listans um að byggja inn í dalinn nærri Glæsibæ. Þetta yrði að mínu mati mikið og óafturkræft umhverfis- og skipu- lagsslys. En þetta er sem sagt komið inn í aðalskipulag Reykjavíkur og gæti orðið að veruleika áður en fólk áttar sig á því.“ Júlíus sagði að sam- göngukafli skipulagsins byggðist á samningi ríkis og borgar um að framkvæmdir við samgöngu- mannvirki yrðu stöðvaðar næstu 10 árin. „Í þessum samningi var Reykjavíkurborg hlunnfarin. Samn- inginn verður að endurskoða enda gengur ekki upp að frysta sam- göngukerfi heillar borgar í áratug. Aðalskipulagsáætlanir hafa fram til þessa verið samþykktar í sæmi- legri sátt,“ sagði Júlíus Vífill Ingv- arsson ennfremur. „Í þetta sinn bár- ust athugasemdir og mótmæli frá fleirum en nokkur dæmi eru um í sögunni. Þrátt fyrir það var ekkert tillit tekið til mótmælanna. Svona vinnubrögð eiga sér ekki fordæmi og eiga auðvitað ekki að líðast.“ Aðalskipulag Gísla Marteini Baldurssyni var boðið að fagna undirritun nýja aðalskipulagsins með embættismönnum og borgarfulltrúum meirihlut- ans í Höfða. Klofningur sjálfstæðismanna var þannig undirstrikaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.