Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014 SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fjögurra ára börnum verður boðin skólavist í Flataskóla í Garðabæ í haust. Fimm ára bekkur hefur verið starfræktur við skólann í tvö ár og gefist vel. Ólöf Sigurðardóttir, skólastjóri Flataskóla, segir að verið sé að móta starf 4 ára bekkjarins, um al- gjört þróun- arstarf sé að ræða og ekki búið að ákveða hversu mörg 4 ára börn verði tekin inn. Þau verði í skól- anum á for- sendum nám- skrár leikskólans en eins og með 5 ára krakkana verði námið mótað að hverjum einstaklingi. Ólöf segir að þau hafi fengið óskir um að bæta við 4 ára bekk og því ætli þau að láta reyna á það. Þá sé mikill áhugi fyrir 5 ára starfinu. „Við byrjuðum með 5 ára bekkinn fyrir tveimur árum vegna þess að við urðum vör við mik- inn áhuga foreldra á því að fá starf fyrir þann aldur í bænum. Við höfð- um líka mikla trú á því sjálf í skól- anum að brúa bilið milli leik- og grunnskóla myndi henta þessum hópi mjög vel. Forsenda þess að það gangi vel er að þetta sé val, að for- eldrum lítist þannig á að þetta henti þeirra barni,“ segir Ólöf og tekur fram að það að taka 5 ára börn inn í skólann hafi algjörlega verið að frumkvæði skólans, ekki vegna þess að leikskólarnir hafi verið fullir eða það gert í öðru hagræðingarkyni. Það sem koma skal 21 barn stundar núna nám í 5 ára bekk í Flataskóla og er starfið ein- staklingsmiðað. Farið er bæði eftir skólanámskrá leikskóla og grunn- skóla og valið markmið með þarfir hvers einstaklings í huga að sögn Ólafar. „Það er samstarf við 1. bekk og nokkrum sinnum í viku er 5 og 6 ára blandað saman. Krakkarnir ná heilmiklum árangri og mörg þeirra komast vel á veg í lestri og stærð- fræði. Okkur finnst þau græða mikið á þessu.“ Ólöf gerir fastlega ráð fyrir því að fjölgað verði í 5 ára bekknum á næstu árum. „Ég hef tröllatrú á því að þetta sé það sem koma skal í fleiri grunnskólum en alls ekki á kostnað leikskólastarfsins. Námið í 5 ára bekk er á forsendum leiksins en engu að síður eru teknir inn þættir úr námskrá grunnskólans.“ Hvaleyrarskóli í Hafnarfirði hefur boðið upp á nám fyrir 5 ára börn í tvö ár, eins og kom fram hér í blaðinu fyrir skömmu. Það starf verður fest enn frekar í sessi í haust og 5 ára bekkurinn stækkaður. Starfið þykir hafa gefist mjög vel. Flæði á milli skólastiga Ekki er boðið upp á formlegan fimm ára bekk í grunnskólum Reykjavíkur fyrir utan í einkareknu skólunum. Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir leikskól- ann fyrsta skólastigið og nám 5 ára barna fari þar fram. „Síðan eru ótal þróunarverkefni á skilum leik- og grunnskóla sem bæði taka til læsis og margra annarra þátta. Við erum t.d. með Ártúnsskóla og Dalskóla sem eru samreknir leik- og grunn- skólar þar sem flæði elstu barnanna í leikskólanum er mikið yfir í grunn- skólann,“ segir Ragnar, það starf gangi ljómandi vel og mikil ánægja sé hjá foreldrum. „Börn sem eru með styrkleika umfram í þroska geta þá nýtt sér eitthvað sem grunnskólinn býður upp á og svo öfugt. Svo eru fjölmörg þróunarverkefni á milli leik- og grunnskóla borgarinnar. Leik- skólanemendur eru t.d. að koma dag og dag eða jafnvel viku og viku í að- lögun í grunnskólann. Það sem við höfum verið að gera undanfarin ár er að samreka leikskóla og grunnskóla og víða er mikið samneyti þar á milli, sérstaklega þar sem skólarnir standa á sömu þúfunni. Í Norðlingaskóla eru grunn- og leikskóli í sama húsnæði sem eru reknir í sitt hvoru lagi en með marga sameiginlega snertifleti.“ Ragnar segir að ekki hafi verið rætt um að koma á legg formlegri 5 ára deild í grunnskólum borgarinnar líkt og er í Flataskóla eða Hvaleyr- arskóla. „Hvort þetta aukna sam- starf og flæði milli skólastiga verður meira í framtíðinni veit ég ekki en þetta lofar allavega góðu eins og það er núna. Ég er sannfærður um það að næstu ár verður þetta aukna flæði á milli skóla ávarpað mjög sterkt í allri skólapólitík.“ Fjögurra ára börn á skólabekk  Flataskóli í Garðabæ er með 5 ára bekk og hugar nú að námi 4 ára barna í haust  Foreldrar áhuga- samir  Fleiri 5 ára börn tekin inn  Flæði milli skólastiga hefur lofað góðu í grunnskólum Reykjavíkur Morgunblaðið/Eggert Skólakrakkar Langflest börn á Íslandi byrja í skóla 6 ára en aukist hefur að skólar bjóði upp á nám fyrir 5 ára. Ólöf Sigurðardóttir Þrír einkareknir grunnskólar í Reykjavík bjóða upp á nám fyrir 5 ára börn; Ísaksskóli, Landakots- skóli og Hjallastefnan. Í vetur hafa 68 nemendur stundað nám í 5 ára bekk í Ísaks- skóla. Þeir skiptast í fjóra bekki. Aðsóknin í skólann hefur alltaf verið góð en umsóknir berast að- eins fyrr núna en áður og bekk- irnir fyllast fyrr. Foreldrar virðast mjög áhugasamir um að tryggja barni sínu pláss í 5 ára bekk, samkvæmt upplýsingum frá skól- anum. Í Landakotsskóla hefur verið einn fimm ára bekkur í um 15 ár. Í vetur hafa 19 börn setið í þeim bekk, sem eru heldur fleiri börn en síðustu ár. Sölvi Sveinsson, skólastjóri Landakotsskóla, segir námið hafa gefist mjög vel. Þau nái mörg hver góðum tökum á lestri og læri bæði ensku og frönsku. „Þetta hentar þeim mis- jafnlega, 5 ára krakkar eru jafn misjafnir og 6 ára krakkar, sum eru fljót og önnur seinni. En mér finnst mjög sjálfsagt og eðlilegt að foreldrar eigi þess kost að láta barn sem hefur þroska til þess byrja í 5 ára bekk,“ segir Sölvi. Sjálfsagður kostur 5 ÁRA BEKKIR Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . SÉRTILBOÐ Frá kr. 79.900 Sértilboð á enn lægra verði 24. apríl í 4 nætur Netverð á mann á Hotel ILF m.v. 2 í herbergi. 24. apríl í 4 nætur. Prag Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Tilfinningin er mjög góð, og það mátti ekki seinna vera að hefja skólastarfið að nýju,“ segir Ársæll Guðmundsson, formaður Skóla- meistarafélags Íslands, spurður um viðbrögð sín við því að þriggja vikna verkfalli framhaldsskólakennara sé lokið. „Það er stutt eftir af önninni og páskar að bresta á, þannig að ég er mjög feginn.“ Segir Ársæll koll- ega sína vera á sama máli. Ekki er alveg ljóst hvernig tíminn sem glatast hefur í verkfallinu verð- ur unninn upp, en í fréttum hefur komið fram að kennt verði í að minnsta kosti fimm daga aukalega. Ársæll segir að í raun sé verið að kaupa af kennurum u.þ.b. sex og hálfan dag, en um allt umfram það þurfi að semja sérstaklega við kenn- arana. Prófatíminn mun riðlast „Við skólameistarar höfum rætt saman óformlega okkar á milli um þá möguleika sem eru í stöðunni,“ segir Ársæll og bætir við að fundað verði með menntamálaráðuneytinu í dag kl. 10, þar sem farið verði yfir stöðuna. „Það sem við höfum rætt er í raun það að prófatíminn, eins og hann hefur verið settur upp, muni riðlast eitthvað,“ segir Ársæll. „Ann- aðhvort verður þrengt að prófatím- anum eða hann færður aftar til þess að setja inn fleiri kennsludaga, því að við þurfum fleiri kennsludaga á önninni,“ segir Ársæll. Þá er einnig sá möguleiki að kenna um páskana, en Ársæll segir að skiptar skoðanir séu um dymb- ilvikuna, en þá yrði kennt á mánu- dag, þriðjudag og miðvikudag. „Það verður eiginlega að ráðast í hverjum og einum skóla, hvernig það horfir við,“ segir Ársæll. Þá sé einnig í stöðunni að sumir skólar muni seinka brautskráningu í vor um ein- hverja daga eða viku. Ársæll segir hins vegar að ekki verði brugðist við eins og eftir verkfallið 1995, þegar kennt var á laugardögum og í dymb- ilviku. Verður ekki bætt úr að fullu Ársæll segir hins vegar að verk- fallið muni setja strik í reikninginn hjá mörgum. „Það hefur komið mik- ið umrót á allt skólastarf og það verður aldrei bætt að fullu,“ segir Ársæll. Skaðinn sé skeður, og ekki yrði bætt úr honum, jafnvel þótt fimmtán dögum yrði bætt við. Hann reiknar fastlega með auknu brott- falli nemenda, og að ekki muni allir skila sér næsta haust. „Það er alveg ljóst að svona uppbrot á miðri önn kemur til með að hafa áhrif, í sumum skólum meira en öðrum, og sumir nemendur munu kannski ekki snúa aftur til náms fyrr en á fullorðins- aldri. Það mun hafa neikvæð áhrif.“ Ársæll vill að lokum hvetja alla nemendur til þess að snúa aftur í skólann. „Þeir sem eru óöruggir eða tvístígandi ættu hiklaust að hafa samband við námsráðgjafa og ræða sín mál, en hverfa ekki þegjandi og hljóðalaust úr kerfinu.“ Mátti ekki seinna vera að hefja skólastarf á ný  Skólameistara að ákveða hvort kennt verður í dymbilviku Morgunblaðið/Styrmir Kári Nemendur Kennsla hefst aftur í dag í framhaldsskólum landsins. Ný samtök um nýbyggingu og end- urnýjun Landspítala voru stofnuð nýverið undir kjörorðinu Spítalinn okkar. Samtökunum er ætlað „að vinna að nýbyggingu og endurnýj- un Landspítala þannig að húsakost- ur og umhverfi sjúklinga og að- staða starfsfólks þjóni nútímaþörfum,“ eins og segir í til- kynningu. Stofnfundur félagsins verður haldinn á Engjateigi 7 mið- vikudaginn 9. apríl kl. 17.00 og er hann öllum opinn. Þar er m.a. ráð- gert að kjósa í stjórn samtakanna. Í tilkynningunni segir jafnframt að hópnum sé ljóst að vinda þurfi bráðan bug að úrbótum í húsnæðis- málum spítalans og mikilvægt sé að halda áfram þeirri vinnu sem kom- in sé vel á veg. Ný samtök um húsakost Landspítalans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.