Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
17
7
7
SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL SEM ÞÚ GETUR KEYPT
SUBARU XV
FJÓRHJÓLADRIFINN – SJÁLFSKIPTUR
Subaru XV 2.0i, sjálfskiptur
Verð: 5.290.000 kr.
6,6 l / 100 km
í blönduðum akstri
Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp í hugann. Lágur þyngdarpunktur,
þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif með tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi.
Allir Subaru eru með 5 stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP.
GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
Fjármálafyrirtæki lækkuðu al-
mennt á bandaríska hlutabréfa-
markaðinum á föstudag. Lækkunin
er m.a. rakin til nýjustu talna af
vinnumarkaði sem sýndu að at-
vinnuleysi í mars hélst óbreytt á
milli mánaða.
Kannanir meðal fjárfesta sýndu
að markaðurinn bjóst við 195.000
nýjum störfum en tölurnar voru ögn
undir þeim væntingum eða 192.000
ný störf.
Dugði ekki til að fjöldi nýrra
starfa jókst á milli mánaða, og að
starfatölurnar voru endurskoðaðar
til hækkunar fyrir bæði janúar og
febrúar. Voru ný störf í janúar
hækkuð úr 129.000 í 144.000 og febr-
úar úr 175.000 í 197.000.
Bloomberg segir markaðinn hafa
vænst þess að atvinnutölurnar tækju
stærri kipp þar eð kuldar og vonsku-
veður frá desember og út febrúar
voru talin hafa dempað sköpun nýrra
starfa.
S&P 500 vísitalan féll um 0,98% yf-
ir föstudaginn. Goldman Sachs lækk-
aði um 1,72%, J.P Morgan Chase
missti 1,4%, Citigroup 1,2% og Morg-
an Stanley 1,87%. Fréttir af 800 millj-
óna dala sátt milli Bank of America
og bandarísku neytendaverndar-
stofnunarinnar CFBP lækkuðu hluti
í bankanum um 2,51%. ai@mbl.is
AFP
Rautt Mynd úr safni af hlutabréfamiðlara hjá NYSE. Gengi hlutabréfa í
bandarískum fjármálafyrirtækjum lækkaði þónokkuð á föstudaginn var.
Fjármálafyrirtæki
pompuðu niður
Bandaríski markaðurinn brást illa
við atvinnutölum fyrir marsmánuð
Brendan Eich hefur sagt af sér sem
framkvæmdastjóri Mozilla Corp, fyr-
irtækisins sem framleiðir netvafrann
Firefox. Afsögnin kemur í kjölfarið á
herferð á netinu gegn ráðningu Eich,
en netverjar höfðu horn í síðu hans
fyrir að hafa árið 2008 látið 1.000 dali
af hendi rakna til samtaka sem berjast
gegn jöfnum hjúskaparréttindum
samkynhneigðra.
Áður hafði Eich neitað að segja af
sér fyrir að, eins og hann leit á það,
hafa iðkað rétt sinn til tjáningarfrels-
is.
Stefnumótavefurinn vinsæli OKCu-
pid fór fremst í flokki gegn Eich og
beitti því ráði að senda gestum vefsins
skilaboð ef greina mætti að þeir not-
uðu vafra frá Mozilla. Skilaboðin
sögðu frá gjörðum Eichs og hvöttu
notendur til að skipta yfir í annan
vafra. Einnig viðruðu margir starfs-
menn Mozilla á opinberum vettvangi
óánægju sína vegna ráðningar Eich.
Fréttastofa Bloomberg bendir á að
úlfaþyturinn í kringum Eich þyki um
margt áhugaverður og kunni að
marka kaflaskil við ráðningar stjórn-
enda. Hafi reglan í bandarísku at-
vinnulífi lengst af verið sú að pólitísk-
ar skoðanir stjórnenda séu þeirra
einkamál. ai@mbl.is
Stjórnandi Mozilla segir
af sér vegna þrýstings
Netverjar létu sér ekki lynda sex ára gamalt fjárframlag
til hóps gegn hjúskaparréttindum samkynhneigðra
AFP
Umdeildur Maður í fartölvu á förnum vegi. Netheimar brugðust illa við nýj-
um stjórnanda Mozilla Corp. og tókst að þvinga hann til að segja af sér.
Alls bárust tuttugu umsóknir um styrk úr Frumkvöðla-
sjóði Íslandsbanka en ákveðið hefur verið að af þeim
hljóti fimm styrk, samtals að upphæð tíu milljónir króna.
Sjóðnum er ætlað að styðja við nýsköpun í sjávar-
útvegi og endurnýjanlegri orku.
Styrkþegar eru: Alvarr ehf., sem hannar tíma- og
orkusparandi búnað til borana í hart berg; loftræstikerf-
ið Andblær sem á að geta lækkað húshitunarkostnað
bygginga um allt að 30%; Ankra ehf. sem þróar fæðubót-
arefni og snyrtivörur úr sjávarafurðum; Eco Mals sem
framleiðir nýstárlegan lampa sem m.a. hefur í för með
sér orkusparnað; og Matarskemman sem þróar búnað og
tækni til að frostþurrka matvæli með jarðvarma sem
orkugjafa. ai@mbl.is
Tíu milljónir úr frumkvöðlasjóði
Fimm fyrirtæki deila með sér styrk frá Íslandsbanka