Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
…OGÞÚVELURLENGRI LEIÐINAHEIM.
HENTAR MJÖG VEL FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR ÞAR SEM „MICRO“ FJAÐRANDI STELLIÐ
ÉTUR Í SIG GRÓFA MALBIKIÐ OG GERIR HJÓLAFERÐINA ENN ÞÆGILEGRI
ÞÚ NÝTUR ÞESS
AÐ MOKA INN KÍLÓMETRUNUM
Á CANNONDALE SYNAPSE.
229.900.-
Frakkinn François Heisbourg erforstöðumaður virtrar stofn-
unar í Lundúnum, International
Institute for Strategic Studies, og
eindreginn stuðningsmaður Evrópu-
sambandsins og auk-
ins samruna þess. En
hann er líka raunsær
að því leyti að hann
telur evruna ekki
geta gengið sem
gjaldmiðil fyrir þau
ólíku ríki sem á
evrusvæðinu eru.
Til að evra gæti gengið þyrfti munlengri undirbúning og samruna
í skattheimtu og yfirstjórn, sagði
hann í samtali við Morgunblaðið um
helgina. Evrusvæðið þyrfti því að
vera enn nær sambandsríki en ríkja-
sambandi heldur en það er nú.
Á fundi í Háskóla Íslands í fyrra-dag vék Heisbourg að Íslandi
og ESB og benti á að Evrópusam-
bandsaðild hefði ekki komið í veg
fyrir bankahrunið hér á landi. Af-
leiðingar bankahrunsins hefðu hins
vegar orðið mun alvarlegri þar sem
ESB hefði tryggt að ríkið, þ.e. skatt-
greiðendur, hefði tekið á sig mun
meiri byrðar en raun varð á.
Stuðningsmenn aukins samrunaESB í öðrum löndum eru gjarn-
an mun raunsærri en hérlendir
stuðningsmenn aðildar Íslands að
sambandinu.
Hér telja slíkir menn evrunatöfralausn og halda að ESB
bjargi aðildarríkjunum frá banka-
kreppum. Rúsínan í pylsuendanum
er svo að Ísland þurfi ekki að taka
upp aðrar reglur ESB en þær sem
því eru þóknanlegar.
Væri ekki æskilegt að þessirmenn reyndu að lyfta um-
ræðunni hér um málefni ESB á
hærra plan?
François
Heisbourg
Raunsæ rödd
utan úr heimi
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 6 rigning
Nuuk -10 heiðskírt
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 7 skýjað
Kaupmannahöfn 8 súld
Stokkhólmur 10 skýjað
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 15 skýjað
Brussel 17 skýjað
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 12 skýjað
London 16 skýjað
París 17 alskýjað
Amsterdam 15 skýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 15 þoka
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 1 léttskýjað
Montreal 2 léttskýjað
New York 8 heiðskírt
Chicago 10 skýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:24 20:37
ÍSAFJÖRÐUR 6:23 20:48
SIGLUFJÖRÐUR 6:06 20:31
DJÚPIVOGUR 5:52 20:08
„Það þarf að vera vitundarvakning um þessi mál.
Það er markmiðið með þessari umræðu,“ segir
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, en
skólinn, Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar og
Hið íslenska svefnrannsóknafélag stóðu fyrir mál-
þingi um svefn unglinga fyrir helgi.
Hjálmar lagði þar til að unglingadeildir á
Reykjanesi og Fjölbrautaskóli Suðurnesja hæfu
kennslu klukkan 9 að morgni í stað rúmlega átta.
Hjálmar segir að þeir sem tóku þátt í mál-
þinginu hafi verið hvattir til að koma upplýsingum
um mikilvægi nægs svefns unglinga til foreldra,
skólafólks og unglinganna sjálfra.
Fyrirhugað er að gera könnun á því hvort ung-
lingar á Suðurnesjum fá nægan svefn og reiknar
Hjálmar með að það staðfesti það sem allir telji
sig vita, að krakkarnir fari of seint að sofa og fái
ekki nægan svefn. Niðurstöðurnar gefi foreldrum
og fræðsluyfirvöldum tækifæri til að fara mark-
visst yfir málin. Hann á von á því að upphafi
kennslu verði seinkað í einhverjum skólum á
svæðinu í haust. helgi@mbl.is
Svefn unglinga kannaður
Morgunblaðið/Ernir
Sofandi Unglingar þurfa 8-9 tíma svefn.
Búist við að einhverjir skólar á Reykjanesi hefji kennslu seinna á morgnana
Maður sem
brenndist þeg-
ar eldur kom
upp í sum-
arhúsi við
Geitasand
skammt frá
Hellu fyrir
tæpum tveimur
vikum liggur
enn á gjör-
gæsludeild Landspítalans. Líðan
hans er eftir atvikum en honum er
haldið sofandi í öndunarvél, sam-
kvæmt upplýsingum frá lækni í gær.
Líkt og fram hefur komið hlaut
maðurinn umtalsverð meiðsli en
hann hlaut brunasár á höndum og
fótum. Ástand hans er stöðugt að
sögn læknis á gjörgæslu.
Skíðakonan sem slasaðist í Ólafs-
fjarðarmúla síðastliðinn fimmtudag
hefur nú verið útskrifuð af gjör-
gæsludeild og flutt á almenna deild,
en hún losnaði úr öndunarvél á
föstudaginn. Konan hlaut alvarlega
áverka, meðal annars slæman
áverka á hægri fæti.
Konan var að renna sér niður
Múlann við erfiðar aðstæður þegar
hún féll. Hún var þá stödd ofan við
gamla Ólafsfjarðarveg, um 300
metra frá gangamunnanum
Ólafsfjarðarmegin.
Enn á gjör-
gæslu
eftir bruna