Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
H
a
u
ku
r
1
.1
4
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Skyndibitastaður á Spáni sem veltir 50 mkr. og sýnir góða afkomu.•
Möguleiki á öðrum stað til viðbótar. Kaupverð má greiða að miklu leyti í
krónum, jafnvel með fasteign.
Stór og þekkt bílaþjónusta og verkstæði á góðum stað. Vel tækjum búið.•
Ársvelta 150 mkr.
Heildverslun með sérhæfðar byggingavörur. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki,•
en eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta síðustu
árin um 300 mkr. og góð framlegð.
Lítið en vel tækjum búið trésmíðaverkstæði sem sérhæfir sig í gluggum og•
hurðum.
Heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði (non-food). Ársvelta 100 mkr.•
Góð EBITDA. Hentar vel sem viðbót hjá heildverslun með svipaðar vörur.
Rótgróið glerfyrirtæki sem selur einnig aðrar vörur fyrir•
byggingariðnaðinn. Fyrirtækið er með 70-80% markaðshlutdeild á sínu
sérsviði. Velta hefur haldist stöðug frá hruni og mjög góður
rekstrarhagnaður. Fyrirtækið er nú komið í mikinn vöxt og staðfestar
pantanir til afgreiðslu á næstu mánuðum eru nú þegar orðnar meiri en
allt síðastliðið ár.
Vel þekkt innflutningsfyrirtæki með fæðubótarefni.•
Rógróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði sem annast m.a. steinslípun í•
nýbyggingum. Góð verkefnastaða og ágætur hagnaður. Tilvalið tækifæri
fyrir duglegan mann með verkstjórnarhæfileika að fara í eigin rekstur.
Þrír starfsmenn auk eiganda. Auðveld kaup.
Full rennsli komst á Nesjavallaæð
að nýju um miðjan dag á laugardag,
en rennslið í lögninni stöðvaðist
nánast á fimmtudagskvöld. Líkleg-
ast er talið að loft í lögninni hafi
valdið því og sjálfvirkur lofttæmi-
búnaður virkaði ekki sem skyldi.
Náið verður fylgst með rennsli
um lögnina enda rennur alla jafna
um hana tæpur helmingur heita
vatnsins í hitaveitunni á höfuðborg-
arsvæðinu, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Orkuveitu Reykjavíkur.
Þegar rennslið komst á að nýju
nam það liðlega 600 sekúndulítrum,
en við bilunina hafði það farið niður
í um 50 sekúndulítra. Það var bætt
upp með aukinni heitavatnsfram-
leiðslu í Hellisheiðarvirkjun og á
lághitasvæðum í Mosfellsbæ, Laug-
arnesi og Elliðaárdal.
Vegna þess hversu mikilvæg
Nesjavallaæðin er fyrir rekstur
hitaveitunnar á höfuðborgarsvæð-
inu var mikill viðbúnaður þegar bil-
unarinnar varð vart á fimmtudags-
kvöld, eftir því sem fram kemur í
tilkynningunni. Tugir manna hafa
unnið að því að koma rennsli á hana
að nýju og þá var flogið meðfram
lögnunum með hitamyndavél til að
ganga úr skugga um að hvergi væri
á lögninni leki. Ekki er vitað til þess
að heitavatnslaust hafi orðið við að-
gerðirnar allar, utan hvað þrýst-
ingur féll í einu af fimm háhýsum
við Engihjalla í Kópavogi.
Morgunblaðið/RAX
Nesjavellir Vatn rennur nú óhindr-
að til höfuðborgarsvæðisins.
Loft í lögninni
stöðvaði rennslið
Fullt rennsli komið á Nesjavallaæð
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Samþykkt var einróma í borgarráði
á fimmtudaginn tillaga meirihlutans
um að veita annars vegar vilyrði til
Félags eldri borgara fyrir 50 íbúða
uppbyggingu í Mjódd og hins vegar
vilyrði fyrir allt að 50 íbúða upp-
byggingu á vegum Samtaka aldraðra
við Bólstaðarhlíð. Áður höfðu breyt-
ingartillögur Sjálfstæðisflokksins
um að jafnframt yrðu teknar frá lóð-
ir á þessum svæðum til þess að hægt
yrði að bæta við 50 íbúðum til við-
bótar síðar meir á hvorum stað fyrir
sig verið felldar.
Til marks um skammsýni
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
afstöðu meirihlutans til marks um
skammsýni og virðingarleysi fyrir
málefnum eldri borgara. Kjartan
segir að breytingartillögurnar hafi
verið í samræmi við áður markaða
stefnu borgarinnar og vísar til þess
að þegar þjónustumiðstöðvar aldr-
aðra hafi verið byggðar á sínum tíma
hafi verið haft gott rými í kringum
þær, svo að þar yrði hægt síðar meir
að bæta við þjónustuíbúðum.
„Það er ljóst að eftir því sem fleiri
nota þjónustuna á hverjum stað,
þeim mun hagkvæmari verður við-
komandi þjónustumiðstöð,“ segir
Kjartan. Í því skyni hafi verið teknar
frá lóðir til síðari tíma uppbygging-
ar, sem sé til mikilla hagsbóta fyrir
eldri borgara. Það hafi verið gæfa
borgarinnar að hér hafi verið öflug
samtök aldraðra sem hafi reist þess-
ar íbúðir fyrir eigið fé, og fengið á
móti góðar lóðir frá borginni. Hins
vegar hefði meirihlutinn ekkert gert
í úthlutunum til aldraðra á þessu
kjörtímabili fyrr en nú, stuttu fyrir
kosningar.
Kjartan tekur fram að sjálfstæð-
ismenn styðji úthlutun lóðanna, en
hefðu viljað að meira yrði að gert.
„Við viljum að menn sýni meiri fram-
sýni og veiti þeim þá vilyrði fyrir
fleiri íbúðum til síðari uppbygging-
ar.“ Kjartan segir það algjörlega
ljóst að eftirspurn eftir þjónustu-
íbúðum aldraðra muni aukast mikið
á næstu árum, og því muni þurfa
meiri uppbyggingu til þess að koma
til móts við væntanlega eftirspurn.
Kjartan tekur fram að með því sé
ekki dregið úr mikilvægi þess að
fjölga framboði á lóðum fyrir yngra
fólk. Hins vegar séu mýmörg tæki-
færi til þess annars staðar í borginni.
Þá myndi sérhver þjónustuíbúð aldr-
aða losa um íbúð annars staðar fyrir
yngra fólk.
Unnið í samráði við FEB
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, segir viðbótartillögur
Kjartans Magnússonar við lóðaút-
hlutanir meirihlutans vanhugsaðar.
Þær hefðu gengið út á að halda mjög
góðum byggingasvæðum til hliðar í
stað þess að fara þar í uppbyggingu
leiguíbúða, búseturéttaríbúða eða
stúdentaíbúða sem mikil þörf er fyr-
ir. „Það getur varla talist skynsam-
legt að láta góðar lóðir standa auðar
og óbyggðar árum eða áratugum
saman við núverandi aðstæður.“ Vil-
yrðin til Félags eldri borgara og
Samtaka aldraðra fyrir allt að 100
nýjar íbúðir byggist á viðræðum og
sameiginlegri vinnu.
„Þetta eru hvort tveggja mjög já-
kvæðir áfangar í uppbyggingu íbúða
í borginni, og í samræmi við sam-
þykkta húsnæðisstefnu borgarinn-
ar,“ segir Dagur. Hann bætir við að
lóðaúthlutanirnar til eldri borgara
séu liður í heildstæðri uppbygging-
aráætlun í húsnæðismálum þar sem
byggja eigi fjölbreyttar íbúðir fyrir
allan aldur. „Það er líka brýnt að
byggja fyrir yngri kynslóðirnar. Þar
þarf ekki síður að hafa hraðar hend-
ur.“ Aðspurður segir hann að þessar
viðbótartillögur Sjálfstæðisflokksins
hafi í sínum huga verið vandræðaleg
tilraun til yfirboðs í stað þess að
sjálfstæðismenn gætu einfaldlega
glaðst yfir góðum málum.
Ósammála um fjölda
íbúða handa öldruðum
Félagi eldri borgara og Samtökum aldraðra veittar lóðir
Kjartan
Magnússon
Dagur B.
Eggertsson