Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
Útfærsla fisk-
veiðilögusögunnar í 50
sjómílur var sam-
þykkt samhljóða á Al-
þingi 15. febrúar
1972. Lúðvík Jós-
epsson, þáverandi
sjávarútvegsráðherra,
undirritaði síðan
reglugerð um 50 míl-
urnar sem kom til
framkvæmda 1. sept-
ember 1972. Ekki skorti harkaleg
viðbrögð Vestur-Þjóðverja og
Breta sem hótuðu strax herskipum
á Íslandsmiðin og allsherjarvið-
skiptabanni á íslenskar vörur. Þeir
kærðu Ísland til Alþjóðadómstóls-
ins í Haag sem úrskurðaði með
fjórtán atkvæðum gegn einu gegn
Íslendingum.
Þessum úrskurði mótmælti ís-
lenska ríkisstjórnin harðlega og
kvaðst fylgja eftir ákvörðun sinni
sem væri fyllilega lögmæt sam-
kvæmt íslenskum lögum. Hverjir
hefðu trúað því þá að til væru eft-
irmenn hans síðar á stóli sjáv-
arútvegsráðherra sem stæðu að
umsókn um aðild að Evrópusam-
bandinu sem fæli í sér framsal
sama réttar og þá var barist fyrir?
Þá stækkar Ísland
Hinn 31. ágúst 1972 flutti Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra út-
varpsávarp til þjóðarinnar. Hann
vísaði til einróma samþykktar Al-
þingis og „að baki hennar stendur
þjóðin öll“.
Útfærsla landhelginnar „byggist
á þeirri sannfæringu, að réttur
okkar til náttúruauðlinda lands-
grunnsins sé í eðli sínu sá sami og
til landsins sjálfs …“ og hann lauk
ávarpi sínu: „Það er stór dagur á
morgun. Þá stækkar Ísland. Þess
dags mun minnst meðan Íslands-
saga er skráð.“
Við tók viðskiptabann og þorska-
stríð með erlendum herskipum og
átökum innan lögsögu Íslendinga.
„Við munum aldrei láta undan of-
beldi í þessu máli. Nú er það sem
gildir að þrauka,“
sagði forsætisráð-
herrann.
Þá var Snorri Jóns-
son forseti ASÍ
Þetta var allt fyrir
tíma Samfylking-
arinnar, Við-
skiptaþings, Evr-
ópustofu og Gylfa
Arnbjörnssonar hjá
ASÍ. Hinsvegar var
Snorri Jónsson þá for-
seti ASÍ sem beitti sér
fyrir fjölmennasta útifundi til þess
tíma í Reykjavík, hinn 22. maí
1973. Yfir 30 þúsund manns mættu
á Lækjartorg og lýstu yfir fullum
stuðningi við útfærslu landhelg-
innar og mótmæltu „innrás breska
sjóhersins í íslenska fiskveiði-
landhelgi“. Hver hefði séð núver-
andi forystu ASÍ beita sér fyrir
slíkum fundi? Þess í stað ganga
menn þar fremst í flokki sem
heimta inngöngu í Evrópusam-
bandið með tilheyrandi framsali á
yfirráðum fiskimiðanna til Brüssel.
Ég man ekki einu sinni eftir að
hryðjuverkalögum Breta á Ísland
2008 hafi verið mótmælt í þeim
ranni.
Íslendingar létu
ekki deigan síga
Matthías Bjarnason varð sjávar-
útvegsráðherra í ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar. Matthías var
kjarkmaður og fylginn sér. Hinn
15. júlí 1975 skrifaði hann undir
reglugerð um að fiskveiðilögsaga
Íslendinga skyldi færð út í 200 sjó-
mílur. Algjör þjóðarsamstaða var
um útfærsluna. Í ræðu sem Matt-
hías hélt þá segir m.a.: „Með gild-
istöku hinnar nýju reglugerðar er
allt hafsvæðið út í 200 sjómílur frá
grunnlínu allt í kringum landið lýst
lögsögusvæði Íslands. Frá þeim
tíma er því öll veiði erlendra skipa
innan 200 mílna markanna óheimil
samkvæmt íslenskum lögum nema
til komi sérstök heimild veitt af ís-
lenskum stjórnvöldum.“ Og 12.
desember 1975 kærðu Íslendingar
Breta fyrir Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna vegna ásiglingar breskra
skipa á íslensk varðskip innan ís-
lenskrar landhelgi fyrir: svívirði-
lega yfirtroðslu sjálfstæðis Íslend-
inga sem stefni friði og öryggi í
voða. Á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna var baráttumál okkar að
fiskimið strandríkis skyldu við-
urkennd sem hluti auðlinda þess.
Að lokum var það samþykkt í Haf-
réttarsáttmálanum. 200 mílna fisk-
veiðilögsaga strandríkis var síðan
viðurkennd á alþjóðavettvangi.
Lífbelti þjóðarinnar
Varðveitum lífbeltin tvö, sagði
Kristján Eldjárn forseti í nýársá-
varpi 1972, gróðurinn til landsins
og fiskimiðin fyrir ströndinni. Það
kostaði blóð, svita og tár að ná full-
um yfirráðum yfir 200 mílna fisk-
veiðilögsögu landsins. En þjóðin
stóð sameinuð í baráttunni. Þeir
sem nú vilja halda áfram aðlög-
unarsamningum, innlimunarferlinu
í ESB, „kíkja í pakkann“ vita að
það verður ekki gert nema fyrst
séu gefnir eftir fyrirvarar Alþingis
frá 2009, m.a. vegna sjávarútvegs-
ins. Fulltrúar ESB hafa lýst því
skýrt að Ísland verði að framselja
forræði fiskimiðanna til stjórnar
og stofnana Evrópusambandsins.
Þeir sem stóðu í landhelgisbarátt-
unni og lögðu líf sitt undir í stríði
við stór og fullkomin erlend her-
skip hefðu aldrei trúað því þá að
aðeins 40 árum seinna risi upp há-
vær hópur, jafnvel heill stjórn-
málaflokkur, forystumenn í at-
vinnulífi og verkalýðshreyfingu
sem litu á fullveldisbaráttuna sem
hagsmunastríð fyrir einstakar at-
vinnugreinar! Sjálfstæðið er sívirk
auðlind.
Samstaða þings og þjóðar
í landhelgismálinu
» Það er stór dagur á
morgun. Þá stækkar
Ísland. Þess dags mun
minnst meðan Íslands-
saga er skráð.
Jón Bjarnason
Höfundur er fyrrverandi sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Eftir Jón
Bjarnason
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Orkusparnaður
með Nergeco
hraðopnandi
iðnaðarhurðum
Nergeco
• Opnast hratt & örugglega
• Eru orkusparandi
• Þola mikið vindálag
• Eru öruggar & áreiðanlegar
• Henta við allar aðstæður
• 17 ára reynsla við íslen-
skar aðstæður & yfir 150
hurðir á Íslandi
Með hraðri opnun & lokun sem & mikilli einangrun
má minnka varmaskipti þar sem loftskipti verða minni
Intelligent curtain sem
veitir aukið öryggi
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Opið
mánudaga til
fimmtudaga
8-17
föstudögum
8-15
Þarf bíllinn þinn á þjónustu að halda?564 5520
bilajoa.is
Hvers konar snilld er nú Radíó
stam? Hvernig gat málhaltur mað-
ur náð svona ótrúlega góðum ár-
angri í útvarps-
rekstri? Hann
gerir mörgu full-
frísku fólkinu
skömm til, eins
og sagt var í
mínu ungdæmi.
Búinn að brjóta
á bak aftur
margar illvígustu
fordóma-
fullyrðingarnar
sem gjarnan
voru viðhafðar þegar málhelti bar
á góma í gamla daga.
Að vera „blest á máli“ eru örlög
sem sumu fólki er úthlutað af al-
mættinu – og oft finnst mér „frá-
vik“ frá venjulegum framburði
sérkennilega sjarmerandi, ekki síst
gormæli eins og einn merkasti
bókaútgefandi Sunnlendinga getur
státað af. Ólíkt flámælinu sem
blessunarlega var kveðið í kútinn
seint á síðustu öld – enda útsett til
að valda misskilningi manna á
meðal. Skyrútflutningnum t.d. er
enginn greiði gerður með „skeri“.
Einn af mínum bestu vinum á
það til að stama stundum, jafnvel
enn þann dag í dag, eftir alla þessa
áratugi sem við höfum þekkst.
Áralöng skólaganga hans, alþjóðleg
viðskiptasambönd og álits-
gjafastaða í þjónustu sérlegra
manna hafa að vísu kennt honum
að endurbyggja setningar eld-
snöggt eða skipta út orðum – svo
sennilega hefur málheltin bara eflt
þann ágæta kappa. Fólk sem sigr-
ast á erfiðleikum vex og styrkist,
verður betur í stakk búið til að
leggja á sig meira en flest okkar
hinna til uppbyggingar samfélags-
ins – í raun alls heimsins.
Vert er svo að geta sérstaklega
sjálfra viðmælendanna á Radíó
stami sem snillingurinn þar hefur
fengið á sinn fund í hljóðverinu. Al-
gjört toppfólk og þeirra framganga
öllum að sama skapi heillavænleg.
PÁLL PÁLMAR
DANÍELSSON
leigubílstjóri.
Radíó stam lengi lifi!
Frá Páli Pálmari Daníelssyni
Páll Pálmar
Daníelsson
Aukablað alla
þriðjudaga