Morgunblaðið - 07.04.2014, Síða 7

Morgunblaðið - 07.04.2014, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014 FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 4 -0 9 1 8 Frjálsi lífeyrissjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skyldulífeyrissparnað sinn og er opinn öllum sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað. Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, sendu tölvupóst á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða komdu við í næsta útibúi Arion banka. Einnig má nálgast upplýsingar á vefsíðu sjóðsins, frjalsilif.is. Ársfundur Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 29. apríl nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning ársreiknings 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingarstefna sjóðsins 5. Kosning stjórnar og varamanna 6. Kjör endurskoðanda 7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins 8. Laun stjórnarmanna 9. Önnur mál Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á frjalsilif.is og verða aðgengilegar í höfuðstöðvumArion banka tveimur vikum fyrir ársfund. Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund og ber að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn. Frjálsi lífeyrissjóðurinn var á árinu 2013 valinn besti lífeyris- sjóður Evrópuþjóða með undir milljón íbúa af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE). Sjóðurinn hefur hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun: 2013 – Besti lífeyrissjóður Evrópuþjóða með undir milljón íbúa 2011 – Besti lífeyrissjóður á Íslandi 2010 – Besti lífeyrissjóður á Íslandi 2009 – Besti lífeyrissjóður á Íslandi 2005 – Besti lífeyrissjóður Evrópu í þemaflokknum Uppbygging lífeyrissjóða MARGVERÐLAUNAÐUR LÍFEYRISSJÓÐUR Meginniðurstöður ársreiknings (í milljónum króna) LÍFEYRISSKULDBINDINGAR SKV. NIÐURSTÖÐU TRYGGINGAFRÆÐINGS 31.12.2013 EFNAHAGSREIKNINGUR 31.12.2013 EIGNIR Verðbréf með breytilegum tekjum 53.107 Verðbréf með föstum tekjum 66.683 Veðlán 2.164 Verðtryggð innlán 2.766 Aðrar fjárfestingar 43 Fjárfestingar alls 124.763 Kröfur 636 Aðrar eignir 6.992 Eignir samtals 132.392 Skuldir -357 Hrein eign til greiðslu lífeyris 132.034 YFIRLIT UM BREYTINGAR Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS FYRIR ÁRIÐ 2013 Iðgjöld 8.994 Lífeyrir -2.531 Fjárfestingartekjur 9.367 Fjárfestingargjöld -315 Rekstrarkostnaður -149 Hækkun á hreinni eign á árinu 15.366 Hrein eign frá fyrra ári 116.668 Hrein eign til greiðslu lífeyris 132.034 Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 284 Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 0,8% Eignir umfram heildarskuldbindingar 206 Í hlutfalli af heildarskuldbindingum 0,2% KENNITÖLUR ¹ Meðaltal fjölda sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu.2 Meðaltal lífeyrisþega sem fengu greiddan lífeyri á árinu. Eignir í íslenskum krónum 79,4% Eignir í erlendri mynt 20,6% ¹Fjöldi virkra sjóðfélaga 14.580 Fjöldi sjóðfélaga í árslok 47.983 ²Fjöldi lífeyrisþega 1.711 NAFNÁVÖXTUN 2013 2009-2013 Frjálsi 1 7,7% 10,9% Frjálsi 2 5,8% 9,2% Frjálsi 3 4,2% 8,7% Frjálsi Áhætta 12,6% 12,4% Tryggingadeild* 9,2% 9,2% *Skuldabréf gerð upp á kaupkröfu Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð. 5 ára ávöxtunartölur sýna meðalnafnávöxtun frá 31.12.2008 - 31.12.2013 en ávöxtun er mismunandi milli ára. Frekari upplýsingar um ávöxtun hvers árs má nálgast á frjalsilif.is. Eitt nýtt framboð er komið fram fyr- ir bæjarstjórnarkosningar í Reykja- nesbæ og fleiri eru í undirbúningi. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylk- ingarinnar er efstur á lista Beinnar leiðar og einn af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins síðustu fjögur árin er að íhuga sérframboð með stuðningsmönnum sínum. Þá hafa Píratar auglýst eftir frambjóðendum á lista. Flokkarnir sem eiga fulltrúa í nú- verandi bæjarstjórn, Sjálfstæðis- flokkurinn, Samfylkingin og Fram- sóknarflokkurinn, hafa tilkynnt lista í Reykjanesbæ. Vinstrihreyfingin – grænt framboð bauð einnig fram síð- ast en náði ekki inn manni. Gunnar Þórarinsson, formaður bæjarráðs, kom nýr inn í bæjarstjórn við síðustu kosningar eftir að hafa náð 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins í prófkjöri. Að þessu sinni sóttist hann eftir 1.-2. sæti listans en hafn- aði í því 5. Kjörnefnd gerði breyt- ingar og bauð Gunnari sæti neðar á lista. Hann afþakkaði það og lýsti því yfir í grein í Morgunblaðinu sl. föstu- dag að hann hefði fullan hug á að sitja áfram í bæjarstjórn. Hann hefur einnig lýst yfir óánægju með yfirlýs- ingar formanna sjálfstæðisfélaganna í bænum í prófkjörsbaráttunni en þeir lýstu yfir stuðningi við Árna Sigfússon bæjarstjóra í fyrsta sæti listans. Gunnar segist ekki hafa ákveðið sérframboð en málið skýrist næstu daga. Undiralda í samfélaginu „Við finnum fyrir ákveðinni undir- öldu, það er greinilegur vilji í sam- félaginu til breytinga,“ segir Guð- brandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja, sem er efstur á lista nýs framboðs sem nefnt er Bein leið. Guðbrandur var oddviti Samfylk- ingarinnar í bæjarstjórn en féll úr fyrsta sætinu í prófkjöri fyrir fjórum árum og steig þá til hliðar. Hann seg- ir að framboðið tengist ekki Sam- fylkingunni, með því starfi fólk úr öllum stjórnmálaflokkum og margir sem ekki hafi áður tekið þátt í stjórn- málum. „Aðaltilgangur framboðsins er að koma í veg fyrir hreinan meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins, eitt kjör- tímabilið enn. Það þarf að fara að hrista upp í þessu,“ segir hann og tekur um leið fram að framboðið setji það skilyrði að bæjarstjóri verði ráðinn faglega. helgi@mbl.is Ný fram- boð til bæj- arstjórnar  Hræringar í póli- tík í Reykjanesbæ Guðbrandur Einarsson Gunnar Þórarinsson Benedikt Jóhannesson segir ekki hægt að fullyrða um það eða útiloka að nýr stjórnmálaflokkur Evrópu- sinna sem rætt hefur verið um að stofna bjóði fram í kosningum til sveitarstjórna. Hann segir að þetta hljóti að verða skoðað þar sem kosn- ingar séu í vor. „Svo er að hinu að huga að þetta eru ekki fyrst og fremst sveitarstjórnamál.“ Benedikt er framkvæmastjóri Talnakönnunar. Fram kom í ávarpi hans á samstöðufundi á Austurvelli sl. laugardag að fólk hefði komið saman til að ræða stofnun nýs stjórnmála- flokks og hann teldi líklegt að hann yrði stofnaður. Benedikt segist í sam- tali við Morgunblaðið ekki eiga von á að boðað verði til undirbúningsfunda eða annars formlegs undirbúnings fyrr en eftir páska. Frjáls viðskipti og vestræn sam- vinna verða að mati Benedikts aðal- stefnumál hugsanlegs flokks. Í álykt- un útifundarins á Austurvelli var þess krafist að ríkisstjórnin boðaði til þjóð- aratkvæðagreiðslu. Nánar spurður um Evrópusambandsmálin segir Benedikt að vel geti verið að hægt yrði að efla bæði stefnumálin með að- ild að ESB, ef viðunandi niðurstaða fengist úr samningaviðræðum. Einn þeirra sem hafa beitt sér mjög í umræðunni um þingsályktun- artillögu ríkisstjórnarinnar, Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, hyggur ekki á framboð eða að taka að sér for- mennsku í nýjum stjórnmálaflokki. Segist frekar vera fótgönguliði. „Ef af stofnun nýs stjórnmálaflokks verður mun hann ekki snúast um persónur,“ segir Benedikt um forystumenn hugsanlegs flokks. Sjálfur segir hann að þingframboð hafi ekki haldið fyrir honum vöku undanfarin ár og telur að það sama eigi við um aðra sem að þessu koma. Málið snúist um málefn- in. helgi@mbl.is Óákveðið með framboð til sveitarstjórna Talsmaður Benedikt Jóhannesson undirbýr nýjan stjórnmálaflokk.  Áhugafólk um frjáls viðskipti og vestræna samvinnu hefur hist til að ræða stofn- un nýs stjórnmálaflokks  Ekki búist við formlegum undirbúningi fyrir páska

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.