Morgunblaðið - 07.04.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
565 6000 / somi.is
Salatið okkar
er eitthvað
ofan á brauð.
Áratuga reynsla af
samlokugerð skilar
sér til þín í ferskara
og ljúffengara salati.
Lögreglumenn í Venesúela ganga um götur
vopnaðir til að berja niður mótmæli stjórnarand-
stæðinga og stúdenta. Hátt í 1.400 manns hafa
verið handteknir vegna mótmælanna sem staðið
hafa yfir í nokkrar vikur. Mótmælin hafa fengið
aukna athygli í heimspressunni eftir að stórleik-
arinn Kevin Spacey lýsti stuðningi við mótmæl-
endur sem hann segir vera að berjast fyrir sjálf-
sögðum mannréttindum. Þá hefur
utanríkisráðherra Spánar, Jose Manuel Garcia,
sagt að Nicolas Maduro, forseta Venesúela, hafi
mistekist að sameina þjóð sína sem nú mótmælir.
AFP
Stjórnvöld berja niður mótmæli í Venesúela
Fjöldi mótmælenda í Venesúela hefur verið handtekinn
Bandaríkin senda
tvö herskip til
viðbótar til Jap-
ans á næstu dög-
um en þetta til-
kynnti Chuck
Hagel, varn-
armálaráðherra
Bandaríkjanna, í
gær. Hagel segir
ráðstöfunina vera
viðbrögð við hugsanlegri ógn frá
Norður-Kóreu sem hefur verið að
prófa meðal- og skammdrægar eld-
flaugar undanfarna mánuði. Skipin
tvö bætast í hóp fimm skipa Banda-
ríkjanna í Japan.
BANDARÍKIN
Fjölgun bandarískra
herskipa í Japan
Chuck Hagel
Benjamin Net-
anyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels,
hefur hótað því
að beita stjórn-
völd í Palestínu
einhliða aðgerð-
um ef þau hætta
ekki við áform
sín um að sækja
um aðild að ýms-
um alþjóðasátt-
málum. Hann segir að slík áform
muni aðeins gera ríkjunum erfiðara
um vik að komast að samkomulagi.
ÍSRAEL
Hótar aðgerðum
gegn Palestínu
Benjamin
Netanyahu
Kínverska skipið Haixun 01 heyrði
hljóð um helgina sem talin eru
geta verið úr flugrita malasísku
farþegavélarinnar sem hvarf af
ratsjá fyrir rúmum fjórum vikum.
Þó hefur ekki verið staðfest að
hljóðin komi úr flugrita vélarinnar.
Kínversk flugvél sem hefur ver-
ið við leit á sama svæði í Indlands-
hafi og skipið Haixun 01 hefur
fundið hluti á floti á svæðinu sem
styrkir þá tilgátu að vélin hafi
hrapað á svæðinu.
216 þúsund fer-
kílómetra svæði
Breskt herskip er nú á leiðinni á
svæðið þar sem kínverska skipið
heyrði hljóðin. Aftur á móti kann-
ar ástralska herskipið Ocean
Shield hljóð sem hafa heyrst á
öðru svæði. Þetta sagði Angus
Houston, yfirmaður ástralska
hersins, á blaðamannafundi um
helgina.
Allt að 10 herflugvélar og þrett-
án skip munu koma að leitinni. Til
stendur að leita á þremur svæðum
sem eru samtals um 216 þúsund
ferkílómetrar. Tíminn er naumur
og óttast er að rafhlöður í flugrit-
unum tæmist í dag og ritarnir
hætti að senda frá sér boð.
vilhjalmur@mbl.is
AFP
Leit Enn hefur ekki tekist að staðsetja flugrita malasísku flugvélarinnar,
sem hvarf fyrir rúmum fjórum vikum, þrátt fyrir mikla leit.
Heyrðu mögulega í
flugritum vélarinnar
Óttast er að rafhlöður flugritanna tæmist bráðlega
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Þingkosningar fóru fram í Ung-
verjalandi í gær og samkvæmt út-
gönguspám sigraði flokkur Viktors
Orbans, forsætisráðherra Ung-
verjalands, örugglega í þingkosn-
ingunum. Flokkur hans, Fidesz,
fékk 48 prósent atkvæða en þar á
eftir kom bandalag mið- og vinstri-
flokka með 27 prósent greiddra at-
kvæða.
Hægriflokkurinn Jobbik fékk
átján prósent atkvæða, ef marka
má útgönguspárnar, að því er fram
kemur í frétt AFP.
Flokkur Orbans hlaut 52 prósent
atkvæða í seinustu kosningum, árið
2009, sem tryggði honum 2/3 þing-
sæta. Honum var spáð nokkuð
öruggum sigri fyrir kosningarnar
um helgina en stjórnarandstæð-
ingar töldu lítið mark takandi á
skoðanakönnunum. „Fólk er hrætt
við að tjá skoðanir sínar,“ sagði
stjórnarandstöðuleiðtoginn Atitila
Mesterhazy við AFP. „Ég trúi því
að ég verði forsætisráðherra eftir
fáeina daga,“ bætti hann við.
Þingkosningar í Ungverjalandi
AFP
Kosningar Skoðanakannanir sýndu
mikið fylgi forsætisráðherrans.
Flokkur forsætisráðherra, Fidesz,
fékk 48 prósent í kosningunum í gær