Morgunblaðið - 07.04.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.04.2014, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014 Fjör í Hörpu Áhorfendur skemmtu sér konunglega á úrslitakvöldi Músíktilrauna í Hörpu á laugardag. Tíu hljómsveitir komust í úrslit tónlistarhátíðarinnar og þóttu standa sig með mikilli prýði. Styrmir Kári Á Íslandi gilda lög um að samkynhneigðir mega ættleiða. Staðan er sú að ekkert erlent land sem við erum í samskiptum við leyfir ættleiðingar milli landa til samkynhneigðra. Í þessu máli skarast reglur upprunaríkis og móttökuríkis svipað og gerist með lög um ætt- leiðingar einhleypra einstaklinga og fatlaðra. Þetta er ástæða þess að samkynhneigð pör geta aðeins ættleitt innanlands. Misskilningurinn er sá að margir lesa út úr þessum tilmælum að það sé verið að banna sam- kynhneigðum hér- lendis að ættleiða. En sú er ekki raunin og í rauninni er Ísland al- veg undir það búið, ef önnur lönd fara að leyfa ættleiðingar milli landa til para af sama kyni, að taka þá þátt í því. Þegar við skoðum hvaða lönd það eru helst sem Íslendingar eru að ættleiða frá, þá sjáum við að það eru lönd sem eru frekar aftarlega í röð- inni þegar kemur að mannréttindum og réttindum samkynhneigðra sér í lagi, það eru Indland, Kína, Kól- umbía, Tékkland og Tógó. Ísland hefur í lengri tíma unnið að því að bæta stöðu sína hvað varðar ættleiðingar sem og uppfæra lög og reglur er að því snúa. Samkvæmt Haag-samningnum, sem Ísland er aðili að, skal tryggja við ættleiðingar á börnum milli landa að hagsmunir þeirra séu hafðir að leiðarljósi og þær ættleiðingar fari fram í sam- vinnu stjórnvalda í bæði uppruna- og móttökuríki, einnig setja reglur um hæfi væntanlegra kjörforeldra. Stjórnvöld geta þá sett reglur um þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að ættleiða milli landa. Innanríkisráðuneytið og baráttan Í svari innanríkisráðuneytis við fyrirspurn minni kemur fram að: „Ráðuneytinu er kunnugt um að ekkert par af sama kyni, búsett á Ís- landi, hafi ættleitt barn (saman) er- lendis frá síðan lög um breytingu á lagaákvæðum er varða réttarstöðu samkynhneigðra (sambúð, ættleið- ingar, tæknifrjóvgun), nr. 65/2006, tóku gildi. Staðan á Íslandi hvað þetta varðar er sambærileg og þegar kemur að öðrum norrænum ríkjum, en samstarfsríki þeirra eru þó mun fleiri en samstarfsríki Íslands.“ Hér á landi fara löggilt ættleiðing- arfélög með milligöngu fyrir milli- landaættleiðingum. Þau hafa séð um að afla nýrra sambanda við ríki sem núna er og verður hægt að ættleiða frá. Innanríkisráðuneytið leggur til alla þá hjálp sem það getur í þessum málum. Í dag er virkur samstarfshópur Íslenskrar ættleiðingar og Samtak- anna ’78 sem hefur unnið að því að kanna möguleika á ættleiðingum til samkynhneigðra. Og á meðan önnur lönd vinna sig í áttina að því að leyfa ættleiðingar milli landa til samkyn- hneigðra þá ættum við að vinna áfram það góða starf sem við getum hérlendis til að vera undir það búin þegar stundin kemur. Eftir Jóhönnu Mar- íu Sigmundsdóttur »Misskilningurinn er sá að margir lesa út úr þessum tilmælum að það sé verið að banna samkynhneigðum hérlendis að ættleiða. Jóhanna María Sigmundsdóttir Höfundur er alþingiskona. Ættleiðingar og mannréttindi Fyrir tæpum tveim- ur vikum birtist frétta- skýring í Morg- unblaðinu þar sem fram kom að í vinnslu væru fjölmörg fjárfest- ingaverkefni á Íslandi þar sem gert væri ráð fyrir aðkomu erlendra fjárfesta. Í raun fela þessar fjárfestingar í sér að erlendur aðili ákveður að færa fjár- magn til Íslands frá heimaríki sínu og binda það í tilteknum verkefnum til langs tíma. Við þá stöðu vaknar það álitamál hvernig slíkur fjárfestir getur gætt hagsmuna sinna og tak- markað þá áhættu sem fylgir því að færa fjármagn frá einu ríki til ann- ars. Gilda hér sömu sjónarmið án til- lits til þess hvort fjallað sé um er- lenda fjárfesta á Íslandi eða íslenska fjárfesta erlendis. Almennt fellur erlendur fjárfestir og fjárfestingastarfsemi hans undir lögsögu þess ríkis þar sem fjárfest- ingin verður staðsett. Í því felst að fjárfestinum ber að fara eftir lögum og reglum ríkisins, s.s. lögum um hlutafélög, vinnulöggjöf og skatta- löggjöf. Í þessu felst töluverð óvissa. Á meðan fjárfestirinn þekkir al- mennt lög og reglur heimaríkis síns hefur hann takmarkaða þekkingu á réttarkerfi þess ríkis þar sem hann hyggst fjárfesta. Þá eru rétt- arkerfi einstakra ríkja mjög ólík hvað varðar réttarstöðu erlendra fjárfesta, þ.m.t. hvort og hvernig unnt er að taka fjárfestingu eign- arnámi, um heimildir stjórnvalda til afskipta af fjárfestinga- starfseminni og um rétt fjárfesta til að bera ákvarðanir stjórnvalda undir dómstóla. Hefur fjárfestirinn mikla hagsmuni af því að eyða þessari óvissu enda geta litl- ar breytingar á lögum og reglum haft mikil áhrif á fjárfestingu sem ráðgert er að standi í 30-50 ár. Óvissa um slík álitaefni dregur al- mennt úr áhuga fjárfesta til að fjár- festa í öðrum ríkjum. Ef fjárfestir ákveður að fjárfesta erlendis fellur hann undir lög og reglur móttöku- ríkisins og getur almennt leitað til dómstóla ríkisins ef hann telur á sér brotið. Oft er það svo að fjárfestirinn telur sig þar ekki njóta réttlátrar málsmeðferðar vegna stöðu sinnar en stundum felst umkvörtunarefni hans í gagnrýni á stofnanir móttöku- ríkisins sem eiga að tryggja rétt- aröryggi hans, t.d. dómstóla. Í þessum tilvikum er fjárfestirinn hins vegar í þeirri stöðu að ef hann telur móttökuríkið brjóta á rétti sín- um verður hann að leita til síns heimaríkis og óska eftir aðstoð þess til að ná fram rétti sínum. Getur heimaríki fjárfestisins þá tekið málið upp gagnvart því ríki þar sem fjár- festingin er staðsett og hafið það á þjóðréttarlegan grundvöll. Heima- ríki fjárfestisins hefur hins vegar oft takmarkaðan áhuga á því að beita sér að fullu fyrir hönd fjárfestisins vegna þess að hagsmunir ríkisins af vinsamlegum samskiptum við mót- tökuríki fjárfestingarinnar vega stundum þyngra en hagsmunir fjár- festisins. Nú um stundir, sérstaklega eftir fjármálaáfallið 2008, keppa ríki heims um hylli erlendra fjárfesta og eru tilbúin að bjóða hvers kyns íviln- anir í þeim tilgangi að laða að er- lenda fjárfestingu. Fjárfestum eru því í framkvæmd boðnar marg- víslegar undanþágur frá lögum áður en stofnað er til fjárfestingarinnar. Ástæða þess að slíkt er boðið og þá áður en fjárfest er er vegna að- stöðumunar milli móttökuríkis fjár- festingarinnar og fjárfestisins. Þannig er staða fjárfestisins í fyrstu sterk vegna þess að hann hefur ekki ráðist í fjárfestinguna en móttöku- ríki fjárfestingarinnar vill með veit- ingu undanþága frá ákvæðum laga og reglugerða leggja sitt af mörkum til að af fjárfestingunni verði. Þegar fjárfest hefur verið, t.d. gagnaver byggt eða jarðgangagerð lokið, breytist aðstaða aðila þannig að mót- tökuríkið er í mun sterkari stöðu. Fjárfestingin er orðin og er fjárfest- inum óhægt um vik að hverfa frá henni en móttökuríkið getur breytt lögum og reglugerðum og haft þann- ig áhrif á fjárfestinguna eftir að fjár- fest hefur verið, t.d. með hækkun skatta, afnámi útgefinna leyfa, o.s.frv. Af þessum sökum gera fjár- festar almennt miklar kröfur til þess að laga- og reglugerðarumhverfi liggi ljóst fyrir strax í upphafi og að móttökuríki fjárfestingarinnar skuldbindi sig til að grípa ekki til að- gerða sem valda fjárfesti tjóni. Með gerð sérstaks fjárfestinga- samnings milli fjárfestis og þess rík- is sem móttekur fjárfestinguna næst að draga úr neikvæðum áhrifum framangreinds, þ.e. minnka óviss- una sem fjárfestirinn stendur frammi fyrir og draga úr því að fjár- festir leiti til ríkisstjórnar sinnar og óski eftir því að hún beiti móttöku- ríki fjárfestingarinnar þrýstingi vegna ágreinings þess við fjárfest- inn. Því er mjög algengt að fjárfest- ingasamningar milli fjárfestis og ríkis mæli fyrir um tilteknar íviln- anir (t.d. skattaívilnanir eða fast- setning rafmagnsverðs), hvaða regl- ur skuli gilda um meðferð fjárfestingarinnar og að ágreiningur milli fjárfestis og hlutaðeigandi ríkis falli undir lögsögu alþjóðlegs gerð- ardóms. Áralöng fordæmi eru fyrir því hér á landi að gerðir séu fjárfestinga- samningar milli stjórnvalda og er- lendra fjárfesta. Þannig var gerður sérstakur samningur milli rík- isstjórnar Íslands og Swiss Al- uminium Ltd. áður en framkvæmdir hófust í Straumsvík árið 1966. Þegar þessi samningur er borinn saman við fjárfestingaverkefni sem síðar fylgdu er aftur á móti ljóst að síð- arnefndu fjárfestingarnar njóta ekki jafn ríkrar réttarverndar og fjár- festingin í Straumsvík. Ekki er ljóst af hverju mál þróuðust síðar með þeim hætti en telja verður að erlend- ir fjárfestar geti bætt stöðu sína til muna með gerð fjárfestingasamn- inga þar sem mælt er fyrir um til- tekna meðferð þeim til handa og að hugsanlegur ágreiningur við mót- tökuríki fjárfestingarinnar falli und- ir lögsögu alþjóðlegs gerðardóms. Eftir Finn Magnússon »Nú um stundir … keppa ríki heims um hylli erlendra fjárfesta og eru tilbúin að bjóða hvers kyns ívilnanir í þeim tilgangi að laða að erlenda fjárfestingu. Finnur Magnússon Höfundur er lögmaður á JURIS lög- mannsstofu og aðjunkt við lagadeild Háskóla Íslands. Erlend fjárfesting og gerð fjárfestingasamninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.