Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 6
Jafnvægisatvinnuleysi á Íslandi Samkvæmt ólíkum matsaðferðum *Skv. ítrunaraðferð. **Skv. Kalman-síu. ***Spáin er sótt í janúarhefti Peningamála 2014. Heimild: Rannsóknarritgerð Seðlabanka Íslands nr. 64. Höfundar eru Bjarni G. Einarsson og Jósef Sigurðsson. At vi nn ul ey si* ** Ja fn væ gi s- at vi nn ul ey si I* Ja fn væ gi s- at vi nn ul ey si II* * 2013 4,4% 5,4% 5,1% 2014 3,7% 4,9% 4,5% 2015 3,7% 4,3% 4,2% Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hætta er á offjárfestingu í hótelum fyrir vissa markhópa þar sem ávöxt- un af fjárfestingum er lítil. Þetta er mat Sveins Agnarssonar, dósents við viðskiptafræðideild Há- skóla Íslands, sem telur varasamt að miða fjárfestingar við ævintýralega hraðan vöxt síðustu ára. Það sé enda ekki sjálfgefið að hann haldi áfram. „Það kann að vera skortur á ákveðinni tegund hótela, t.d. dýrum herbergjum fyrir efnamikla ferða- menn. Það verður hægt að mæta þeirri eftirspurn með nýjum hótel- um. Það kann að vera að á hinum enda markaðarins sé verið að ráðast í fjárfestingar þar sem ávöxtun er mjög lítil. Þar treysta menn á að fá mikinn fjölda gesta til að fá þann hagnað sem þarf í krónum talið, enda er lítill hagnaður af hverjum gesti.“ Erlent vinnuafl anni þörfinni Samtök ferðaþjónustunnar hafa áætlað að ferðamönnum muni fjölga úr tæplega 900 þúsund í ár í allt að 2 milljónir árið 2020. Er það talið kalla á innflutning erlends vinnuafls. Spurður hvort slíkir fólksflutning- ar geti leitt til spennu á íslenskum vinnumarkaði bendir Sveinn á að í sumum tilfellum sé um að ræða störf sem Íslendingar hafi lítinn áhuga á. Því geti dregið minna úr atvinnu- leysi meðal fólks sem hefur litla formlega skólagöngu, vegna fjölgun- ar starfa í ferðaþjónustu, en ætla mætti við fyrstu sýn. Samkvæmt áætlun Vinnumálastofnunar voru 7.688 án vinnu í febrúar og voru þar af 3.524 með grunnskólamenntun. „Það er ekki sjálfgefið að störfin henti þessu fólki. Það er á margan hátt heppilegt að flytja inn fólk. Það getur komið í veg fyrir að hluti vinnumarkaðarins ofhitni. En auð- vitað getur svo farið að innflutningur vinnuafls ryðji burtu fólki.“ Mat tveggja sérfræðinga Seðla- banka Íslands í fyrrasumar um þró- un svonefnds jafnvægisatvinnuleysis á Íslandi næstu misserin er óbreytt. Bati á vinnumarkaði og fjölgun starfa í ferðaþjónustu þykir ekki gefa tilefni til breytinga á matinu. Hagfræðingarnir Bjarni G. Ein- arsson og Jósef Sigurðsson leiddu í umræddu mati líkur að því að jafn- vægisatvinnuleysi hefði aukist úr 1-3% í um 5,5-7% við efnahagshrunið en hafi síðan minnkað í um 4%. Segir Bjarni líklegt að það verði nær 4% fram til ársloka 2016 (sjá graf). Þegar mælt atvinnuleysi er minna en umrætt jafnvægisgildi er spenna á vinnumarkaði. Hún leiðir að öðru óbreyttu til aukins launaþrýstings og þar með verðbólgu í kjölfarið. Þessu eru öfugt farið í slaka. Varar við offjárfestingu í hótelum  Dósent við HÍ varar við mikilli fjárfestingu í hótelum þar sem hagnaður af hverjum gesti er lítill  Innflutt vinnuafl komi í veg fyrir ofhitnun á vinnumarkaði  Áfram spáð miklu jafnvægisatvinnuleysi Sveinn Agnarsson Bjarni G. Einarsson 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014 Hafin er vinna að lokaáfanga framkvæmda á Suð- urlandsvegi. Er nú unnið að því að breikka veginn frá enda núverandi 2+1-vegar við Hamragils- vegamót, yfir Hellisheiði og niður Kamba, þar sem grafan á myndinni var að störfum í gær. Veg- urinn verður þrjár akreinar (2+1) frá Hamragils- vegi og austur á Kambabrún en tvær akreinar í báðar áttir upp og niður Kambana og niður fyrir neðstu beygju. Á síðasta kaflanum, að hringtorg- inu við Hveragerði, verður vegurinn ein akrein í hvora átt. Vegurinn verður svo færður 100 metra til suðurs og haldið áfram austur. vidar@mbl.is Lokaáfangi framkvæmda á Suðurlandsvegi kominn vel á veg Morgunblaðið/RAX Suðurlandsvegur breikkaður í Kömbunum Borgarfulltrúar Besta flokks og Samfylkingar og Vinstri-grænna höfnuðu tillögu Sjálfstæðisflokksins um að endurvekja skólagarða á borgarstjórnarfundi í gær. Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi telur að starfsemi skólagarðanna hafi verið mikilvæg fyrir grunn- skólabörn. „Það gera sér allir grein fyrir því að nám og fræðsla kostar peninga og við eigum að forgangs- raða í þágu fræðslu og menntunar barnanna í borginni en ekki í þágu gæluverkefna sem kosta margfalt meira en rekstur skólagarðanna,“ sagði Marta í ræðu á fundinum. Starfsemi skólagarða var lögð nið- ur árið 2011 í sparnaðarskyni. Þess í stað breyttu borgaryfirvöld görðun- um í matjurtagarða fyrir borgarbúa sem hafa verið vel nýttir. „Skóla- garðarnir kostuðu um 40 þúsund krónur á hvert barn. Við breyttum þessu í fjölskyldugarða þar sem fólk gat fengið skika undir ræktun sem það greiðir um 5.000 krónur fyrir. Þetta hefur almennt mælst mjög vel fyrir og okkur hefur ekki þótt ástæða til að breyta þessu,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins. Leita reita undir ræktun Nokkrar umræður sköpuðust á fundinum um að leita eftir hugmynd- um frá borgarbúum um auðar lóðir eða reiti þar sem þeir geta stundað matjurtarækt. Júlíus Vífill Ingvars- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks, lagði m.a. til að alþingisreit- urinn yrði nýttur undir ræktun. Þá nefndi hann að stjórnarráðsreiturinn myndi nýtast vel undir slíkt. Jón Gnarr borgarstjóri og fleiri borgar- fulltrúar meirihlutans tóku vel í hug- myndir Júlíusar, sem fengu sam- hljóma samþykki. vidar@mbl.is Hafna tillögu um að endur- vekja skólagarða að nýju  Matjurtaræktun á alþingisreitnum samþykkt á fundi Morgunblaðið/Árni Sæberg Grænmeti Fram kom tillaga um að nýta alþingisreit til ræktunar. Kolmunni er byrjaður að veiðast syðst í færeysku lögsögunni. Tólf ís- lensk skip hafa leyfi til að vera þar samtímis að veiðum og síðdegis í gær voru þau öll að toga. Að minnsta kosti eitt skip var á leiðinni til að tryggja sér pláss þegar fyrsta skipið fyllti sig. Skipin höfðu verið í höfn á Þvereyri og Þórshöfn í tæpa viku, en héldu flest út í fyrrakvöld. Þau sem fyrst komu á miðin höfðu fengið um og yfir 200 tonn eftir að hafa dregið í um tólf tíma. Frést hafði af slæðingi af minni kolmunna í síðustu viku, en nú var greinilega stærri fiskur á ferðinni. Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni, sagði að undanfar- ið hefði veiðst vel af kolmunna í lög- sögu Evrópusambandsins vestur af Írlandi, Skotlandi og Hjaltlandseyj- um. Þar hefðu Færeyingar og Norð- menn m.a. verið að veiðum. Nú væri kolmunninn hins vegar byrjaður að ganga norður á bóginn og hefði síðasta sólarhringinn skriðið yf- ir miðlínuna inn í lögsögu Færeyja. Íslensku skipin voru flest í röð norðan við línuna, en þar voru einnig rúss- nesk skip að veiðum. Kolmunninn fer að mestu í bræðslu, en verður þó frystur um borð í Vilhelm Þorsteins- syni, Hákoni og Guðmundi. aij@mbl.is Kolmunni farinn að veiðast við Færeyjar Ljósmynd/Börkur Kjartansson  Tólf íslensk skip syðst í færeyskri lögsögu Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið för ökumanns og reyndist ástand hans ekki alveg sem skyldi. Í fyrsta lagi var hann verulega ölv- aður undir stýri. Í öðru lagi stað- festu sýnatökur á lögreglustöð að hann hefði neytt kannabisefna. Í þriðja lagði hafði hann verið sviptur ökuréttindum. Afskipti voru einnig höfð af öðrum öku- manni sem ók réttindalaus undir áhrifum áfengis. Stöðvaður ölvaður og réttindalaus Eftirlit Annríkt hjá lögreglunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti seinnipartinn í gær mann sem slasaðist í bílveltu á Snæfellsvegi og flutti hann á Landspítalann í Fossvogi. Svo heppilega vildi til að þyrlan var við æfingaflug í ná- grenninu þegar tilkynnt var um slysið. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi var maðurinn einn á ferð í bílnum þegar hann fór út af veg- inum og valt ofan í skurð á Snæ- fellsnesvegi, við Álftá. Maðurinn er nokkuð mikið slasaður en var með góða meðvitund og ástand hans stöðugt, að sögn lögreglu. Slasaðist í bílveltu á Snæfellsvegi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.