Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014
á nýjum hjólhýsum,
A-hýsum og fellihýsum
Komdu og skoðaðu, við
töku gamla vagninn uppí
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - isband@isband.is - www.isband.is
Opið alla virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Útsala
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fjöldi þeirra einstaklinga sem hafa
verið án atvinnu í langan tíma er enn
mikill þrátt fyrir átaksverkefni á um-
liðnum árum til að útvega ný störf og
önnur úrræði fyrir langtímaatvinnu-
lausa. Um seinustu mánaðamót voru
3.517 einstaklingar á atvinnuleysis-
skrá sem höfðu verið atvinnulausir
lengur en sex mánuði samfellt. Hafði
þeim fjölgað um 101 frá febrúar. Eru
þeir um 46% þeirra sem voru á at-
vinnuleysisskrá í mars skv. yfirliti
Vinnumálastofnunar (VMST) um
stöðuna á vinnumarkaði, sem birt var
í gær.
Fjöldi þeirra sem verið hafa
atvinnulausir í meira en eitt ár sam-
fellt var 1.862 í marslok, en 1.885 í
febrúarlok og hafði þeim því fækkað
lítið eitt eða um 23 milli mánaða.
Ungt fólk er áberandi í hópi at-
vinnulausra því alls voru 1.332 á aldr-
inum 18-24 ára atvinnulausir í lok
mars eða um 18% allra atvinnulausra í
síðasta mánuði. Þeir voru 1.321 í lok
febrúar og fjölgar því um 11 milli
mánaða. Fækkað hefur í þessum hópi
um 311 einstaklinga frá sama tíma í
fyrra. Að mati VMST var skráð at-
vinnuleysi 18-24 ára 5,6% í seinasta
mánuði.
Úrræði fyrir 20 þúsund
Ekki liggja fyrir nýjar tölur um
fjölda þeirra einstaklinga sem ganga
atvinnulausir en hafa fallið út af at-
vinnuleysisskrá og misst bótarétt
sinn. Fjöldi þeirra fær fjárhagsaðstoð
sveitarfélaga. Átaksverkefni sem ráð-
ist var í á seinustu árum fyrir þennan
hóp skiluðu verulegum árangri en
þessi sérstöku verkefni hafa nú runn-
ið sitt skeið. Verkefninu Liðsstyrk
lauk formlega um seinustu áramót. Í
lokaskýrslu um árangur þess kemur
fram að samstarf stjórnvalda, aðila
vinnumarkaðarins og VMST um þjón-
ustu við atvinnuleitendur hafi skilað
hátt í 20.000 einstaklingum lengri úr-
ræðum með nýjum störfum, skóla-
göngu og starfsendurhæfingu frá
árinu 2009.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, segir að þótt sér-
stökum átaksverkefnunum vegna
þeirra sem höfðu klárað bótarétt sinn
sé lokið og ekki sé lengur í gildi tíma-
bundin lenging bótaréttar úr þremur
árum í fjögur sé samstarf Vinnu-
málastofnunar og sveitarfélaga um
land allt í fullum gangi í tengslum við
þjónustu við atvinnuleitendur, sem
hafa tæmt réttindi sín í atvinnuleys-
istryggingakerfinu. „Við vinnum
áfram sömu vinnu og af sama þrótti
og áður við að aðstoða þetta fólk við að
finna störf við hæfi,“ segir hann. „Það
hjálpar til að eftirspurnin eftir vinnu-
afli er að aukast,“ bætir hann við.
Annað stórt viðfangsefni að sögn
Gissurar er að aðstoða erlenda ríkis-
borgara sem hér eru við að fá vinnu.
Alls voru 1.379 erlendir ríkisborgarar
án atvinnu í lok mars, flestir höfðu
starfað í gistingu og veitingagreinum.
1.862 án vinnu í meira en eitt ár
Sérstökum átaksverkefnum vegna langtímaatvinnulausra er lokið VMST og sveitarfélög vinna
áfram að aðstoð við stóran hóp fólks sem hefur verið án atvinnu í langan tíma og misst bótarétt
Morgunblaðið/Golli
Framkvæmdir Þótt störfum hafi fjölgað að undanförnu mældist atvinnuleysi 4,5% í mars, sem er sama hlutfall og í
janúar og febrúar. Það hefur þó minnkað mikið frá í fyrra þegar skráð var 5,3% atvinnuleysi í marsmánuði.
Ríkisendurskoðun telur að brugðist
hafi verið við öllum athugasemdum
stofnunarinnar varðandi skipulag,
stefnumótun og stjórnun Sjúkra-
hússins á Akureyri á fullnægjandi
hátt. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Ríkisendurskoðunar þar
sem farið er yfir viðbrögð við ábend-
ingum sem fram komu í skýrslu
stofnunarinnar árið 2011.
Ríkisendurskoðun gerði úttekt á
Sjúkrahúsinu á Akureyri og skilaði
Alþingi skýrslu með niðurstöðum
sínum í júní 2011. Í skýrslunni voru
settar fram níu ábendingar um að-
gerðir til úrbóta sem stofnunin taldi
nauðsynlegt að ráðast í varðandi
starfsemi sjúkrahússins; þrjár sem
beint var til velferðarráðuneytisins,
fimm til Sjúkrahússins á Akureyri
og ein til Embættis landlæknis.
Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um eftirfylgni með ábending-
unum hefur þeim öllum verið sinnt á
fullnægjandi hátt.
Ábendingar til velferðarráðuneyt-
isins fólust í því að ráðuneytið þyrfti
að ákveða framtíðarskipulag heil-
brigðismála á Norðurlandi, tryggja
að stjórnendur sjúkrahússins sinntu
skyldum sínum og endurskoða fyr-
irkomulag ferliverka.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Viðbrögð við skýrslu Ríkisendurskoðunar um skipulag og stjórn-
un Sjúkrahúss Akureyrar eru fullnægjandi segir stofnunin í nýrri skýrslu.
Viðbrögð við úttekt
sögð fullnægjandi
Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar
Varið verður um 150 milljónum
kr. úr Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði til átaks sem á að
tryggja 390 námsmönnum störf
í sumar hjá ríki og sveit-
arfélögum.
Eygló Harðardóttir, félags- og
húsnæðismálaráðherra, ákvað
þetta í samræmi við tillögu
Vinnumálastofnunar.
Að mati stofnunarinnar er
þörf fyrir átaksverkefni í sumar
en störf í boði verða þó færri en
verið hefur þar sem aðstæður á
vinnumarkaði eru betri en síð-
ustu ár. Miðað er við að af þeim
390 störfum sem til verða í
tengslum við átakið verði um
60% þeirra hjá ríkisstofnunum
en 40% hjá sveitarfélögum skv.
fréttatilkynningu.
Tryggja 390
sumarstörf
ÁTAK FYRIR NÁMSMENN
Skráð atvinnu-
leysi var 4,5% í
mars og voru
að meðaltali
7.106 án at-
vinnu í seinasta
mánuði. Þótt
dregið hafi
verulega úr at-
vinnuleysi mið-
að við sama
tíma í fyrra
hefur hlutfall atvinnulausra ver-
ið það sama í hverjum mánuði
allt frá áramótum samkvæmt yf-
irliti Vinnumálastofnunar um
stöðuna á vinnumarkaði, sem
birt var í gær.
„Almennt minnkar atvinnu-
leysi milli mars og apríl vegna
árstíðasveiflu. Í fyrra minnkaði
atvinnuleysi milli þessara mán-
aða úr 5,3% í 4,9%. Gera má ráð
fyrir því að atvinnuleysi í apríl
minnki og verði á bilinu 4% til
4,3%,“ segir í skýrslu Vinnu-
málastofnunar.
Mun fara hægt niður á við
„Atvinnuleysið hefur farið
hratt niður en búast má við því
að héðan í frá muni það fara
mjög hægt niður á við. Það er
nú komið niður í um 4% sem
mörgum þykir gott í nágranna-
ríkjunum en það er útlit fyrir að
það fari ekki hratt niður eftir
þetta,“ segir Gissur Pétursson,
forstjóri Vinnumálastofnunar.
Aðspurður telur hann afar ólík-
legt að við munum í framtíðinni
sjá atvinnuleysistölur sem eru
sambærilegar því sem var á ár-
um áður þegar hér mældist um
eða innan við 2% atvinnuleysi
mánuðum og árum saman.
Gissur bendir á að það sé sér-
staklega ánægjulegt að með
minnkandi atvinnuleysi á sein-
ustu misserum virðist atvinnu-
leysi meðal ungs fólks vera að
ganga niður. Íslendingar séu því
á margan hátt betur staddir en
nágrannaríkin hvað það varðar.
4,5% atvinnuleysi óbreytt allt frá áramótum
Gissur
Pétursson