Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 11
margt annað, þeir voru ekki að-
eins rændir landi sínu, heldur
mörgu öðru.“
Kunna að halda hita inni í
tjaldi þótt kalt sé úti
Sigurjón segir að nú leiti
stórt hlutfall indíána út fyrir
verndarsvæðin, því ungt fólk sæki
eðlilega í nútímamenningu, mennt-
un og atvinnutækifæri. „Því miður
snúa þeir sjaldnast aftur heim,
svona rétt eins og þegar ungt fólk
flytur frá litlum byggðarlögum á
Íslandi. En samfélagið á verndar-
svæðunum er ekki lengur frum-
stætt, þótt þeir reyni að tapa ekki
niður dýrmætri kunnáttu indíán-
anna, til dæmis bjuggu þeir yfir
kunnáttu til að halda hita inni í
tjöldum sínum þótt kalt væri úti.“
Sigurjón segir Laugalands-
skóla svo lánsaman að hafa fengið
fjölda áhugaverðra listamanna til
sín frá Vesturheimi. „Til dæmis
kom til okkar Wayn Guðmundsson
ljósmyndari sem er af íslenskum
ættum. Og héðan frá Íslandi hafa
farið listamenn til Norður-Dakóta
í sömu erindagjörðum og þessir
gestir; að kynna menningu heima-
lands síns.“
Upplifun fyrir Vesturheims-
búa að dvelja í íslenskri sveit
Sigurjón segir að gestirnir frá
Vesturheimi hafi ævinlega verið
ánægðir með Íslandsdvölina, enda
leyfir hann þeim að búa heima hjá
sér, á bænum Fellsmúla, svo þeir
geti fengið að kynnast hverdagslíf-
inu. „Það er heilmikil upplifun fyr-
ir þá að dvelja í íslenskri sveit og
þar sem ég er með hesta hafa þeir
fengið að fara með mér í reiðtúra.
Dakota Wind stóð sig ágætlega á
hestbaki en hann hafði þó annað
reiðlag en mínir hestar eru vanir.
Hann var til dæmis vanur því að
klemma fæturna að síðum hest-
anna þegar hann var á baki, en
mín hross eru vön að það sé gert
til að hvetja þau til að fara hraðar.
Indíáninn fór því stundum nokkuð
geyst í reiðtúrunum,“ segir Sig-
urjón og hlær.
Gaman Hildur Jónsdóttir í 6. bekk (t.v.) og Jóhanna Sigrún Haraldsdóttir í 7. bekk (t.h.) handleika hér dýrmætið.
Indíáni Dakota sýnir ungan dreng málaðan samkvæmt hefð Lakota-indíána.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014
Menningarlífið á Ísafirðistendur í blóma þessadagana og þeir sem ætla
vestur um páskana ættu ekki að
láta fram hjá sér fara tvær sýn-
ingar sem verða opnaðar í Ed-
inborgarhúsinu í dag og á morg-
un. María Rut opnar einkasýningu
í dag kl. 16 og er hún hluti af
listahátíðinni List án landamæra.
Sýningin ber yfirskriftina Mynd-
verk Maríu Rutar, en María hefur
unnið með teikningu og tónlist þar
sem hún teiknar við hinar ýmsu
tegundir tónlistar. Gestum gefst
tækifæri á að hlusta á þá tónlist
sem María Rut hefur hlustað á
meðan hún vann að verkunum.
Sögur af tannlæknum sem
leiðist og rokkstjörnum í Jap-
an
Hin sýningin verður opnuð á
morgun í Slunkaríki kl. 17 en þar
mun Bjargey Ólafsdóttir sýna ljós-
myndir undir heitinu Jóhanna.
Sýningin samanstendur af stórum
litljósmyndum, en hugmyndin á
bak við verkefnið er að gera til-
raunir með liti og ljós og skapa
dularfulla stemningu í kringum
hina óræðu Jóhönnu. Jóhanna
liggur í sömu stellingunni í mis-
munandi litu ljósi. Jóhanna er að
hluta til innblásin af silkiþrykk-
myndum Andy Warhol. Á sýning-
unni mun birtast ljóð Hallgríms
Helgasonar sem samið var um
listamanninn. Þessi ljósmynda-
sería hefur verið hluti af farand-
sýningunni „True or False“ sem
hefur verið sýnd í Vín í Aust-
urríki, Istanbúl í Tyrklandi, í
Hamborg í Þýskalandi og í
tengslum við ljósmyndamessuna í
Arles í Frakklandi. Bjargey fæst
við kvikmyndagerð, hljóðverk,
gjörninga, teiknar, málar og ljós-
myndar. Mörg verka hennar segja
sögur, t.d. af tannlæknum sem
leiðist, rokkstjörnum í Japan og
konum sem geta skyggnst inn í
framtíðina og handanheima. Sum
verka hennar eru súrrealísk og
eru hlaðin táknum sem virðast
hafa komið til listamannsins í
draumi eða þegar hann var á milli
svefns og vöku.
María Rut og Bjargey sýna í Edinborgarhúsinu
Ljósmynd/Bjargey Ólafsdóttir
Jóhanna Ljósmyndir Bjargeyjar eru af hinni óræðu Jóhönnu.
Á mörkum draums
og veruleika
Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf
(NAIP) er samevrópskt meistaranám
sem sett var á fót til að mæta aukn-
um kröfum samfélagsins um hæfni
tónlistarmanna til að starfa við fjöl-
breytilegar og þverfaglegar að-
stæður. Námið er vettvangur fyrir
nýjar aðferðir í tónlistariðkun, sköp-
un og miðlun þar sem hver nemandi
getur unnið með sína hugmynd,
starfsemi, aðferð/og eða rannsókn.
Svanlaug Jóhannsdóttir mun út-
skrifast í vor með meistaragráðu í
NAIP frá Listaháskóla Íslands. Hún er
búsett á Spáni og útskriftartónleikar
hennar verða í Talavera de la Reina á
Spáni í kvöld. Meistaraverkefni Svan-
laugar er í nokkrum hlutum en loka-
hlutinn er Páskatónleikarnir sem
verða í kvöld, Concierto de Pascua.
Þar verður 40 manna hljómsveit, Or-
questa Eusebio Rubalcaba, og stjórn-
andi er Beatriz Gutiérrez Prieto. Á
efnisskránni sem Svanlaug syngur
eru Ave María eftir Franz Schubert,
Panis Angelicus eftir César Franck,
Stabat Mater Dolorosa eftir Antonio
Vivaldi og Lascia ch’io pianga eftir
Georg Friedrich Händel.
Lokaverkefni í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi
Svanlaug Syngur á Spáni í kvöld.
Syngur með 40
manna hljómsveit