Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014 ● Stjórn Skeljungs hefur gengið frá ráðningu Valgeirs M. Baldurssonar, framkvæmdastjóra neytendasviðs fé- lagsins, í stöðu for- stjóra. Tekur hann við af Einari Erni Ólafssyni sem sagði nýverið upp en mun starfa sem forstjóri til 9. maí. Valgeir tekur þá við og Einar mun gegna tilfallandi verk- efnum fyrir Skeljung fram til 30. maí. Valgeir hefur starfað hjá Skeljungi í fimm ár, fyrst sem fjármálastjóri en síð- ustu tvö árin á neytendasviði. Hann var áður framkvæmdastjóri fjármálasviðs SPRON og ráðgjafi hjá KPMG. Valgeir Baldursson ráð- inn forstjóri Skeljungs Valgeirs M. Baldurssonar FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Slitastjórn Kaupþings telur „hugs- anlegt“ við núverandi pólitískar að- stæður að kynntar verði til sögunnar frekari breytingar á lögum um slita- meðferð fjármálafyrirtækja. Ekki sé hægt að „útiloka þann möguleika“ að í tengslum við slíkar lagabreytingar verði slitabú Kaupþings tekið til formlegra gjaldþrotaskipta. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu slitastjórnar Kaupþings til kröfuhafa. Það vekur eftirtekt við lestur skýrslunnar hversu opinská slitastjórnin er í um- fjöllun sinni um þær aðstæður sem uppi eru hérlendis gagnvart áform- um bankans að fá undanþágu frá fjármagnshöftum og í kjölfarið ljúka slitameðferð með nauðasamningi. Óskaði slitastjórn Kaupþings eftir undanþágu í október 2012. Seðla- banki Íslands hefur ekki léð máls á því að veita slíka heimild á meðan ekki liggur fyrir raunhæf lausn á 148 milljarða krónueign búsins. Fyrir liggur að útgreiðsla á þeim eignum til kröfuhafa, en þeir eru 90,5% erlendir aðilar, má ekki hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð Íslands og áform stjórnvalda um losun hafta. Fram kemur í skýrslunni til kröfu- hafa Kaupþings að slitastjórnin hafi lýst yfir eindregnum vilja til að starfa með Seðlabankanum í því skyni að finna lausnir á þeim álitaefnum sem tengjast markmiðinu um að ljúka slitameðferð með framlagningu nauðasamnings. „Í raunveruleik- anum,“ útskýrir slitastjórnin, þurfa allar tillögur að taka ekki aðeins tillit til fjármálastöðugleika á Íslandi held- ur einnig „hins pólitíska umhverfis.“ Á meðan ekki fæst efnislegt svar frá Seðlabankanum við undan- þágubeiðni Kaupþings er það mat slitastjórnar að hún sé í þeirri stöðu að geta ekki brugðist við þeim áhyggjum sem bankinn kunni að hafa í tengslum við nauðasamningstillögur slitabúsins. Þær tillögur gerðu ráð fyrir að hægt yrði að greiða út laust fé í erlendum gjaldeyri, sem nam tæplega 400 milljörðum í árslok 2013, til kröfuhafa. Ekkert lá fyrir um hvernig fara ætti með innlendar eign- ir búsins. Leysa þarf allt í einu Líkt og fram hefur komið í bréfi Más Guðmundssonar seðlabanka- stjóra til slitastjórnar Glitnis er hins vegar fyllilega ljóst að mögulegar út- greiðslur á erlendum gjaldeyri eru háðar því skilyrði að slitabúin komi fyrst með „útfærða“ lausn á krónu- eignum búanna. Þurfa útgreiðslur þeirra til erlendra kröfuhafa að „rúm- ast vel innan svigrúms“ greiðslujafn- aðar Íslands. Miðað við spá Seðla- bankans um undirliggjandi viðskipta- jöfnuð, sem á að snúast í halla á næstu árum, liggur fyrir að það svig- rúm er ekkert. Slitastjórn Kaupþings telur rétt að undirstrika í skýrslu sinni að jafnvel þótt það næðist að leysa þann vanda sem stafar af krónueign búsins fyrir fjármálastöðugleika sé hugsanlegt að slitabúið geti samt ekki hafið út- greiðslur á erlendum gjaldeyri til kröfuhafa. Þau ummæli þurfa ekki að koma á óvart. Íslensk yfirvöld hafa ítrekað lýst því yfir að leysa þurfi alla þætta í einu – krónueign búanna, aflandskrónur í eigu erlendra aðila og skuldabréfið milli gamla og nýja Landsbanka – áður en hægt sé að hefja afnám hafta. Líkur á því að bú Kaupþings og Glitnis verði tekin til gjaldþrota- skipta hafa aukist síðustu misseri. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins er í tillögum sérfræðihóps um af- nám hafta lögð mest áhersla á að slitameðferð þeirra ljúki með gjald- þrotaskiptum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í ræðu á árs- fundi Seðlabankans í liðnum mánuði að líftími þeirra gæti ekki verið „endalaus“. Takist ekki að klára nauðasamninga væri „ekki annað að gera en að fara með búin í gjaldþrot“. Við gjaldþrot yrði erlendum eign- um Glitnis og Kaupþings – samtals um 1.600 milljörðum króna – um- breytt í gjaldeyri sem yrði síðan seld- ur, ásamt þeim gjaldeyri sem búin eiga í reiðufé, fyrir krónur á íslensk- um gjaldeyrismarkaði. Þær krónur yrðu greiddar út til kröfuhafa. Hafa ýmsir bent á að Seðlabankinn gæti þannig eignast umtalsverðan óskuld- settan gjaldeyrisforða. Ljóst er að mikil andstaða yrði við það af hálfu erlendra kröfuhafa ef slík leið yrði farin. Fastlega má gera ráð fyrir að þeir myndu leita til erlendra dóm- stóla til að stöðva slíka fjármagns- flutninga til Íslands. Ekki er þó víst að stjórnvöld telji sérstaka þörf á því að gera breyting- ar á lögum um slitameðferð fjármála- fyrirtækja í því skyni að setja slitabú- in í gjaldþrot. Ef næstu nauðasamn- ingstillögur Kaupþings og Glitnis uppfylla ekki skilyrði yfirvalda má telja fullreynt að hægt sé að klára slitameðferðina með nauðasamningi. Slitastjórnir búanna þyrftu þá, lögum samkvæmt, að óska eftir gjaldþrota- skiptum. Fá ráðgjöf hjá Blackstone Rétt eins og áður hefur verið greint frá í Morgunblaðinu var bandaríska fjárfestingafyrirtækið Blackstone fengið sem ráðgjafi fyrir hönd helstu kröfuhafa Kaupþings í tengslum við áform um að leggja fram nýjar til- lögur að nauðasamningi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er um að ræða háttsetta aðila sem voru í ráð- gjafateymi Blackstone fyrir hóp al- þjóðlegra fjárfesta sem samþykktu í mars 2012 að afskrifa um 70% af nafnvirði krafna sinna á hendur gríska ríkinu. Um var að ræða stærsta gjaldþrot þjóðríkis í verald- arsögunni en 260 milljarða dala skuldir Grikklands voru endurskipu- lagðar. Taki mið af pólitískum veruleika Kaupþing Kröfuhafafundur í síðustu viku. Fyrir miðju er Barry Russell (í blárri skyrtu), lögmaður hjá Bingham og einn áhrifamesti ráðgjafi kröfuhafa.  Slitastjórn Kaupþings útilokar ekki lagabreytingar sem verði til þess að búið verði tekið til gjald- þrotaskipta  „Í raunveruleikanum“ þurfi allar tillögur að taka mið af „hinu pólitíska umhverfi“ ● Kauphöll Íslands hefur samþykkt umsókn HB Granda um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Bréf félagsins verða tekin til viðskipta þar hinn 25. apríl næstkomandi. Við töku til viðskipta á aðalmark- aðnum verða hlutabréf Granda afskráð af First North Iceland og er síðasti við- skiptadagur þar 23. apríl næstkomandi. Verða bréfin tekin til viðskipta á að- almarkaði Kauphallarinnar næsta við- skiptadag á eftir, eða 25. apríl eins og fyrr segir. HB Grandi á aðalmarkað ● Sala svissneska matvælafyrirtæk- isins Nestlé féll um 5,1% á fyrsta árs- fjórðungi miðað við sama fjórðung í fyrra. Stjórnendur þessa stærsta matvælafyrirtækis heims kenna gengisþróun og styrkingu svissneska frankans um samdráttinn, enda hafi innri vöxtur verið 4,2% á fjórð- ungnum. Sala fyrirtækisins nam 20,8 millj- örðum svissneskra franka eða sem nemur 2.660 milljörðum króna. Greinendur áttu von á samdrætti í sölu hjá fyrirtækinu, meðal annars vegna kuldaskeiðs í Bandaríkjunum og vegna þess að páskar lenda á öðr- um fjórðungi í ár. Minni sala hjá Nestlé STUTTAR FRÉTTIR                                     !" !#   $   !  """ ##" %&'() '*'     +,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4 !  $# ! ! !$    !$   !55  $" #" $"   ! ! "   ! $  # !5  $5 ##!$ !##"$ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Fjárfestingabankinn Morgan Stanley hefur að undanförnu kannað hvort unnt sé að selja 87% hlut kröfuhafa Kaupþings í Arion banka til erlendra fjárfesta. Jóhannes Rúnar Jóhannsson, formaður slitastjórnar, sagði í samtali við Morgunblaðið 6. mars sl. að sú athugun hefði leitt í ljós að slíkur áhugi væri fyrir hendi. Eignarhluturinn er metinn á um 130 milljarða og er um að ræða langstærstu krónueign Kaupþings. Við sölu á Arion banka þyrfti slitastjórnin að óska eftir und- anþágu frá Seðlabankanum svo kröfuhafar gætu fengið kaup- verðið til sín í erlendum gjaldeyri. Að öðrum kosti væri hann skila- skyldur. Þótt slík sala losaði um stóran hlut snjóhengjunnar er hætt við því að annað vandamál myndi skapast þegar hinir nýju er- lendu eigendur Arion banka myndu í framhaldinu vilja greiða sér út arð í gjaldeyri. Reyna að selja Arion banka ÁHUGI ERLENDRA AÐILA Á AÐ KAUPA 87% HLUT KRÖFUHAFA Glóðarsteiking og gott hráefni – gerir steik eins og steik á að bragðast Barónsstíg 11 101 Reykjavík argentina.is Borðapantanir 551 9555

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.