Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eitt af þvísem haldiðhefur verið fram hérlendis hin síðustu ár er full- yrðingin um að hér hafi verið of mikið frelsi og of lítið eftirlit. Tvær fjaðrir verða þar að heilu hænsnabúi þegar nauðsynlegar breytingar á ís- lensku efnahagslífi í frjálsræð- isátt eru ranglega sagðar hafa verið einhvers konar vísir að allt að því anarkískri frjáls- hyggjuparadís þar sem allt hafi verið falt. Það hentar þeim sem slíku halda fram að gleyma því að allur hinn vestræni heimur og vel það varð illa úti í láns- fjárkreppunni. Varla verður því haldið fram að skortur á reglu- gerðum og eftirliti hafi valdið því. Þrátt fyrir það hafa við- brögðin víðast hvar á Vest- urlöndum verið á eina leið: Annars vegar að reyna að „þétta“ reglugerðarnetið, og jafnframt að láta ríkisvaldið taka á sig auknar ábyrgðir til þess að hjálpa fjármálastofn- unum í vanda. Virðist það byggjast á þeirri trú að hin svo- nefndu „undirmálslán“ á bandarískum húsnæðismark- aði, sem hrundu allri atburða- rásinni af stað, hefðu gufað upp, bara ef nógu mikið af eft- irlitsstofnunum og reglugerð- um hefði verið til staðar til þess að reyna að koma í veg fyrir vandamálið, sem fáir sáu þó fyrir. Var bandaríski húsnæðismark- aðurinn þó líklega einn af þeim sem hafði flestar ríkisstofnanir til þess að passa upp á að ekkert færi úrskeiðis. Með þessari þróun er ábyrgðin færð í síauknum mæli frá viðkomandi stofnunum og sett yfir á ríkið sem breiðir pils- faldinn sinn yfir allt saman. Neytandinn þarf ekki að íhuga hvort bankinn hans sé trausts- ins verður, því að ríkið, og skattgreiðendur þar með, ábyrgist allar innistæður upp að vissu marki. Og stjórnendur í fjármálageiranum þurfa ekki að óttast það að „áhættu“- fjárfestingar þeirra leiði til taps, því að ríkið, og skattgreið- endur þar með, muni alltaf koma til bjargar, sérstaklega ef viðkomandi fyrirtæki eða stofn- un er talin „of stór til að falla“. Í ljósi þess að síaukið reglu- gerðafargan, síaukið eftirlit og tilfærsla ábyrgðar á ríkið hefur ekki enn getað komið í veg fyrir fjármálakreppur er það áleitin spurning hvers vegna sú lausn ætti að ganga upp nú. Á sama tíma má spyrja sig hverju það hefði afstýrt hér á landi þó að enn strangari reglur en þær, sem fengnar voru að fyrirmynd Evrópusambandsins, hefðu verið í gildi? Meira eftirlit og meiri reglur eru engin lausn} Ábyrgð og reglugerðir Sigurður MárJónsson gerði umræðuna um sjávarútveginn að umtalsvefni í pistli á mbl.is á dög- unum. Hann bendir á að lengst af hafi flestir lands- menn haft sterk tengsl við sjáv- arútveginn og sýnt mikilvægi hans fyrir efnahag landsins skilning. Þetta hafi breyst og nú virðist flestir telja rekstrar- stöðu sjávarútvegsins gefna staðreynd, þar sem allt sé með kyrrum kjörum. Í áróðursskyni hafi verið talað um „sægreifa“ í stað útvegsmanna og áróðurinn gegn greininni hafi dregið mjög úr skilningi á henni. Sigurður bendir á að hag- ræðingin sem fylgdi kvótakerf- inu hafi skapað þann sjávar- útveg sem við þekkjum í dag og líklega sé óhætt að fullyrða að hvergi sé sjávarútvegur rekinn með jafnhagkvæmum hætti og hér. En fleira skipti máli í sjávar- útvegi en fiskveiðistjórn- unarkerfið. Markaðsstarfið sem íslenskur sjávarútvegur stundi skipti miklu og það starf byggist á gæðum þar sem var- an, vinnslan og afhendingarör- yggi séu grundvallaratriði, en skilningsleysið á þessu sé útbreitt og margir líti fyrst og fremst á grein- ina sem skattstofn og kalli eftir ofur- skattlagningu. „Óhjákvæmilegur fylgifiskur þessarar umræðu er sá að greinin fær ekki að þróast með eðlilegum hætti. Á meðan margir hafa talað fyrir því að auka verðmætasköpun sjáv- arfangs umtalsvert og setja þannig nýjar stoðir undir efna- hag landsins virðast aðrir telja að sjávarútvegurinn eigi ekki að fá að þróast þannig, þess í stað beri honum að greiða auð- lindaskatt af áður óþekktri stærðargráðu auk annarra skatta sem sjávarútvegurinn greiðir eins og önnur fyrirtæki í landinu,“ segir Sigurður Már Jónsson. Þær áhyggjur sem Sigurður hefur af skilningsleysi á rekstri sjávarútvegsfyrirtækja eiga því miður fullan rétt á sér og hafa sett þessa undirstöðu- atvinnugrein og þar með efna- hag landsins í uppnám. Mik- ilvægt er að skilningur aukist á að rekstrarumhverfi þessarar greinar þarf ekki síður en ann- arra greina að vera hagstætt. Sjávarútvegur þarf ekki síður en aðrar greinar hagstætt rekstrarumhverfi} Umræðan um sjávarútveginn Þ að var skemmtlegt framtak á há- tíðinni HönnunarMars að efna til samkeppni um nýjan þjóðfána og sýna afraksturinn. Þannig má vekja umhugsun um fánann og sögu hans, hlutverk og þýðingu. Tilefnið var við hæfi; það eru tæp hundrað ár síðan við fengum núverandi fána og í aðdraganda þess var einnig auglýst eftir tillögum frá al- menningi. Er það út af fyrir sig merkilegt; ég þekki ekki dæmi þess í öðru landi að fólki hafi gefist tækifæri til að segja hug sinn um þjóðartákn áður en ákvörðun um það er tek- in. Segið svo að hér sé ekkert lýðræði! Þegar tillögurnar sem bárust 1914, tæp- lega fimmtíu að tölu, eru skoðaðar vekur at- hygli hve keimlíkar þær voru í litum og formi; flestar voru um krossfána, bláan og hvítan, eins og lengi hafði verið í tísku, eða bláan, hvítan og rauðan. Grænn litur var nefndur í tveimur tillögum, en aðrir litir komust ekki á blað. Var þó í hópi tillögusmiða Jóhannes Kjarval, einn frumlegasti lista- maður síns tíma. Svona getur tíðarandinn haft lamandi áhrif á sköpunarkraftinn. Tillögurnar 120 sem bárust í tengslum við Hönn- unarMars og voru sýndar í galleríinu Þoku á Lauga- vegi voru fjölbreyttari að formi, en litavalið var ekki miklu frumlegra en fyrir hundrað árum. Blái liturinn yfirgnæfandi og yfirleitt hvítur og rauður samferða. Nokkur dæmi voru um grænan lit, en fá um aðra liti. Hvers vegna? Rifjast upp gamla umræðan um „þjóðliti“ okkar Íslendinga, en hún hófst með ritgerð Sigurðar málara í tímariti Jóns forseta, Nýjum félagsritum, árið 1857. „Þjóðlitur Íslendinga í fornöld var sá sami og hann er enn í dag,“ skrifaði Sigurður, „dökkbláan eða hrafnbláan lit báru vana- lega þeir, sem ekki höfðu verið í útlöndum, og flestir hinir mestu og bestu Íslendingar riðu í bláum kápum.“ Síðar skrifaði Einar skáld Benediktsson: „Þjóðlitir Íslands eru blátt og hvítt, er tákna himininn og snjó- inn.“ Sigurður málari og Einar Ben og spor- göngumenn þeirra voru rómantískir eins og sjálfstæðisbaráttan bauð upp á. En í þúsund ár hafði íslensk alþýða þekkt fáa aðra liti en sauðalitina. Þeir þóttu reyndar svo fábrotnir að þeir töldust ekki eiginlegir „litir“. Þess vegna kom engin tillaga um þjóðfána í sauðalitum. Það var ekki fyrr en Íslendingar voru búnir að vera heimsborgarar nokkra áratugi að þeir treystu sér til að horfa um öxl án minnimáttarkenndar. Þá uppgötvuðu menn fegurð, fjölbreytni – og liti – ullarinnar. Birgir heitinn Andrés- son myndlistarmaður gerði fyrir tveimur áratugum myndverk um íslenska fánann í sauðalitunum, verk sem í mínum huga er hrein snilld í hugsun og sögu- skilningi. Ef einhvern tíma þarf að skipta um þjóðfána legg ég til að ullarfáni Birgis verði fyrir valinu. gudmundur@mbl.is Guðmundur Magnússon Af þjóðfána og þjóðlitum Pistill STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mengun vegna eldtefjandiefna (PBDE og HBCD)var rannsökuð í eggjumsjö íslenskra sjófugla- tegunda. Einnig er í þeim meira af skordýraeitrinu PCB en evrópska matvælalöggjöfin leyfir að sé í hænueggjum. Þetta kom fram í rannsókn sem dr. Hrönn Jörunds- dóttir, umhverfisefnafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís, gerði ásamt samstarfsmönnum. Greint var frá niðurstöðunum í vísindarit- inu Chemosphere. Þar mælti Hrönn með að möguleg áhrif efnamengunar í umhverfinu á heilsu og viðkomu skúmastofnsins yrðu rannsökuð bet- ur. „Kosturinn er sá að þessi efni eru ekki krabbameinsvaldandi, en þau eru hormónahermandi,“ sagði Hrönn um eldtefjandi efnin. Þessi efni geta framkallað sömu áhrif í lík- amanum og náttúruleg hormón, sem getur valdið miklu hormónaójafn- vægi. Efnin geta því haft áhrif á ónæmiskerfið, frjósemi og gert alls konar annan óskunda. Hrönn sagði að tilgangurinn með rannsókninni á sjófuglaeggjunum hefði verið að kanna hvort mengun af þessu tagi væri í íslensku umhverfi. „Þegar styrkurinn er kominn yfir þúsundir nanógramma á hvert gramm fitu þá er það talsvert hátt,“ sagði Hrönn. Sú var raunin, einkum með skúmseggin. Hún sagði að ekki hefði mikið verið rannsakað hvaða áhrif þessi efni hefðu á fugla. Þó væri til rannsókn á arnareggjum sem gerð var við Eystrasalt á sjötta áratug síðustu aldar. Þá varð þar hrun í arnarstofninum og leiddi rannsókn í ljós að skurnin á eggj- unum var orðin svo þunn að eggin brotnuðu þegar fuglarnir lögðust á. Það var rakið til mikillar mengunar af völdum þrávirkra efna í arnar- eggjunum, m.a. skordýraeitursins DDT. Það er hormónahermandi efni líkt og eldtefjandi efnin PBDE og HBCD. Það olli því að eggjaskurnin þynntist. Styrkur efnanna í skúmseggj- unum hér mældist undir þeim styrk sem hann var mestur í arnareggj- unum á sjötta áratugnum. Mengunin í skúmseggjunum er svipuð og hún er nú í arnareggjum við Eystrasalt en ekki er vitað hver þolmörk skúmsins eru gagnvart þessum efn- um og ekki víst að þau séu þau sömu og hjá örnunum. Skurnþykkt var ekki mæld á skúmseggjunum. „Við bendum á að það væri æskilegt að rannsaka hvort þetta hefur einhver áhrif. Við höfum ekki komist í frekari rannsóknir á því,“ sagði Hrönn. Ekki er því ljóst hvort þessi efni eru farin að ógna heilsu fuglastofnanna. Einnig var mælt magn PCB, skordýraeiturs, og önnur þrávirk efni. Styrkur PCB var langhæstur í skúmseggjunum og vöknuðu áhyggjur af áhrifum efnanna á heilsufar skúmanna og æxlunargetu þeirra. Líklega ræður fæðuvalið því að skúmurinn verður helst fyrir barðinu á menguninni enda er hann ofarlega í fæðukeðjunni. En er varasamt að neyta skúmseggja vegna mengunarinnar í þeim? „Já, hiklaust,“ sagði Hrönn. Hún bar magn PCB í eggjum sjófuglanna saman við hámarks- gildi fyrir summu sex PCB-efna samkvæmt evrópsku mat- vælalöggjöfinni. Sýnin úr öllum fuglategundunum fóru yfir leyfileg gildi fyrir allar tegundir matvæla, sérstaklega egg skúma, máfa og fýls, sem fóru langt yfir mörkin. Langvía, fýll og svartbakur eru staðbundnir fuglar og safna meng- uninni hér. Mengun í eggjunum yfir neyslumörkum Morgunblaðið/Ómar Skúmur Egg þeirra innihalda meira af PCB og eldvarnarefnum en svo að ráðlagt sé að neyta eggjanna. Óvíst er um áhrifin af menguninni á fuglana. Rannsakað var magn og dreifing tveggja eldtefjandi efnahópa (PBDE og HBCD), sem notaðir eru í iðnaði, í eggjum sjö sjó- fuglategunda sem verpa hér á landi. Það er æðarfugls, kríu, langvíu, fýls, sílamáfs, svartbaks og skúms. Eggjunum var safnað í Sandgerði, Vestmannaeyjum og Öræfum. Efnin hegða sér líkt og PCB og DDT í líkömum dýra og manna. Þau eru þrávirk og safnast upp með árunum. Eins eykst styrkur þeirra eftir því sem ofar dregur í fæðukeðjunni. Samanlagt var styrkur PBDE langmestur í skúmseggj- unum en minnstur í æð- areggjunum. Styrkur HBCD var minnstur í kríueggjum en mest- ur í svartbakseggjum. Menguð skúmsegg EGG SJÖ ÍSLENSKRA SJÓFUGLA RANNSÖKUÐ Hrönn Jörundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.