Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014
✝ Guðný PálaRögnvalds-
dóttir fæddist á
Siglufirði 17. mars
1944. Hún lést á
heimili sínu,
Kirkjusandi 5 í
Reykjavík, 6. apríl
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Álfhildur
Friðriksdóttir hús-
móðir, f. 7. ágúst
1923, og Rögnvaldur Rögn-
valdsson vélstjóri, f. 26. sept-
ember 1921, d. 18. ágúst 1987.
Núverandi maður Álfhildar er
Gunnar Halldórsson. Systur
sammæðra eru Ragnheiður Lá-
rey, Matta Rósa og Sigríður
Snædís Rögnvaldsdætur og
Gunnhildur Sædís Gunn-
arsdóttir.
Guðný giftist Herði Björns-
syni, skipstjóra frá Dalvík, 17.
mars 1967. Foreldrar hans voru
Sigrún Júlíusdóttir húsmóðir, f.
25. júlí 1911, d. 22. desember
Lind. 2) Sigrún, f. 30. mars
1956. Sambýlismaður hennar er
Helgi Ómar Bragason og eiga
þau þrjú börn, Björgheiði Mar-
gréti, Hörð Braga og Gísla
Björn. Fyrir átti hún tvær dæt-
ur, Erlu Kristínu og Hildigunni
Borgu. 3) Sigurður, f. 2. febr-
úar 1958. Eiginkona hans er
Hrönn Stella Jónsdóttir og eiga
þau tvö börn, Björn Axel og
Guðnýju Erlu. Fyrir átti hann
eina dóttur, Ástu Sóleyju. Fyrir
átti hún einn son, Andra Jó-
hann. 4) Erla Kristín, f. 18. júní
1962, og á hún eina dóttur,
Heiðu Bertu.
Guðný ólst upp á Siglufirði
og gekk í barna- og gagnfræða-
skóla þar. Sem ung kona sinnti
hún ýmsum störfum á Siglufirði
og vann m.a. að síldarsöltun.
Guðný flutti til Reykjavíkur ár-
ið 1963 og vann þar ýmis störf.
Hún hóf búskap með Herði árið
1966. Eftir það vann hún heim-
ilisstörf og sinnti barnauppeldi
á stóru heimili. Guðný var virk í
Kvenfélaginu Öldunni í áratugi
og formaður þess árin 1983-
1987.
Útför Guðnýjar fer fram frá
Háteigskirkju í dag, miðviku-
daginn 14. apríl 2014, og hefst
athöfnin kl. 13.00.
1979, og Björn Z.
Arngrímsson, sjó-
maður og versl-
unarmaður, f. 7.
maí 1900, d. 28.
janúar 1950. Guðný
og Hörður eiga
soninn Hörð M., f.
9. nóvember 1968.
Hann á einn son,
Þorvar Bjarma.
Fyrir átti Guðný
soninn Rögnvald H.
Jónsson, f. 11. október 1961.
Eiginkona hans er Mar Mart-
inez og eiga þau tvær dætur,
Lydíu Lind og Núríu Líf. Rögn-
valdur átti fjórar dætur fyrir,
Guðnýju Pálu, Valdísi Dögg,
Þórdísi Jónu og Petru Maríu.
Fyrir átti Hörður fjögur börn,
þau eru: 1) Björn Arngríms, f.
21. janúar 1954. Eiginkona
hans er Nanna Ólafsdóttir. Fyr-
ir átti hann fjögur börn, El-
ísabetu Guðrúnu, Sigrúnu,
Steinunni og Hörð Þór. Fyrir
átti hún eina dóttur, Sólveigu
Margs er að minnast og sakna
er ég hugsa til baka til tengda-
móður minnar, Guðnýjar. Þessa
sterku konu hitti ég haustið 1975,
þá var hún búin að koma til
manns sex börnum, þar af fjórum
stjúpbörnum. Það tók mig nokk-
urn tíma að ávinna mér vináttu
hennar og trúnað en með tíman-
um urðum við góðar vinkonur. Vil
ég þakka henni þann tíma sem við
áttum saman og hversu góð
amma hún var dætrum mínum.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Hörður og fjölskylda,
megi Guð styrkja ykkur og varð-
veita á þessum erfiða tíma.
Vigdís Harðardóttir.
Elsku amma. Baráttunni þinni
er lokið og ég er strax byrjuð að
sakna þín. Þú barðist svo hetju-
lega að ég var farin að trúa því að
þú myndir hreinlega hafa betur,
þrátt fyrir eitthvað læknatal og
greiningar sem bentu til annars.
Þú varst ákveðin kona, með
sterka nærveru og hafðir svo
sannarlega skoðanir á hlutunum.
Þú hlustaðir alltaf, gafst ráð og
fylgdist með öllu sem gekk á í lífi
okkar barnabarnanna. Ég naut
þess að sitja í sófanum og kjafta
við þig og afa, um daginn, veginn,
veðrið og ástina – yfirleitt í þess-
ari röð. Og ég vildi að ég hefði
komið oftar í heimsókn – eins og
þú varst líka óþreytandi að benda
mér á þegar ég loksins kom. Ég
hefði betur hlustað á þig, amma
mín.
Mér fannst ég iðulega geta tal-
að við þig um allt á milli himins og
jarðar, allt frá pólitík og yfir í
hjartans mál – og sérstaklega síð-
ustu árin. Við áttum margar
stundir í „reyknum“ í Smugunni
sem aldrei gleymast og mörg
samtöl sem munu ávallt fylgja
mér. Þú stóðst líka alltaf með
mér, amma mín, hvort sem það
var með því að senda mig niður í
búr og lauma svo til mín sígarettu
í kjallarann á Réttarbakkanum
þegar enginn sá til eða með því að
hvetja mig til að taka rétta
beygju þegar lífið bauð upp á
krossgötur. Og þú vissir sko al-
veg hvaða beygja var rétt, þó að
þú hafir að nafninu til alveg leyft
mér að ráða ferðinni. Þú varst
líka skemmtilega amma, glettin
og hispurslaus og allsendis
óhrædd við að láta skotin fljúga ef
sá gállinn var á þér. Þú varst
beinskeytt og sagðir hlutina oft
hreint út og það var eitt af því
sem ég kunni best að meta. Und-
anfarnar vikur áttum við margar
dýrmætar stundir sem ég mun
alltaf geyma í hjartanu, við gátum
spjallað og hlegið saman, púslað á
netinu og brasað í prjónadóti og
það jafnvel þó að þú gætir ekki
einu sinni farið fram og reykt
nema kannski einstöku sinnum –
og þá er nú mikið sagt enda var
samband þitt við sígaretturnar
sterkara en flest bönd. Húmorinn
og þín skýra sýn á það hvernig
hlutirnir ættu að vera fylgdu þér
fram til síðasta dags.
Frá barnæskunni fylgja óljós-
ar minningar um ömmu G. og
heimilið hennar og afa á Réttar-
bakkanum: bangsaþvottaklemm-
urnar sem ég og Erla lékum okk-
ur með; lyktin í búrinu sem
stundum var opnað til að ná í eitt-
hvert góðgæti; endalausir bóka-
titlar sem ég las á hlið þegar ég
var að reyna að sofna eða lá á
beddanum illt í maga; hljóðið í
sodastream-tækinu; Tomma og
Jenna þættir og gömul áramóta-
skaup – og auðvitað amma og afi
að spila rommí upp í 5.000 eða
ámóta endalausan stigafjölda að
manni fannst. Góðar minningar
eru gulli betri og mikið er ég
heppin að hafa bætt við þyngd
minni í gulli af minningum und-
anfarin ár og náð að kynnast
ömmu minni betur áður en hún
kvaddi þennan heim.
Ásta Sóley.
Elsku amma okkar hefur nú
kvatt þennan heim. Hún var ynd-
isleg kona með stórbrotinn per-
sónuleika, sterkar skoðanir og
góðan húmor. Hún hugsaði fyrir
öllu og var ótæmandi brunnur
góðra ráða um allt milli himins og
jarðar og alltaf veitti hún okkur
stuðning þegar á reyndi. Hún var
ótrúlega sterk sem sýndi sig vel
síðasta árið sem hún lifði. Það er
erfitt að hugsa til þess að hún sé
farin frá okkur en við eigum ótal
minningar sem munu ylja okkur
um hjartarætur um ókomna tíð.
Það er sumt sem stendur öðru of-
ar og má þar nefna barnæsku
okkar á Réttarbakkanum þar
sem við fengum dýrakex og
horfðum á Tomma og Jenna á
meðan amma og afi spiluðu
rommý inni í eldhúsi.
Amma var ósjaldan með púsl á
borðum sem alltaf var gaman að
grípa í með henni. Ekki má
gleyma krossgátunum sem hún
leysti af mikilli snilld, lopapeys-
unum og ullarsokkunum sem
hrundu af prjónunum og hinni
margfrægu rúsínuslátursgerð
sem við vorum svo heppin að fá að
upplifa síðustu ár. Þá sýndi amma
okkur taktana enda kunni hún að
gera besta slátrið í bænum. Það
verður ekki bara ömmuslátur
sem mun fylgja okkur áfram
heldur einnig ömmusulta, ömmu-
kæfa, ömmusamlokur, ömmu-
skyr, ömmukjúklingur og fleira
sem kennt er við elsku ömmu.
Því miður var hún tekin allt of
snemma frá okkur en við vorum
heppin að fá að eyða miklum og
dýrmætum tíma með henni síð-
ustu mánuði. Við eigum alltaf eft-
ir að sakna hlýju og einstöku
kveðjunnar sem tók á móti okkur
í Smugunni þegar amma opnaði
dyrnar en við vonum að henni líði
vel á þeim stað sem hún er komin
á núna.
Erla, Hildigunnur,
Björgheiður, Hörður,
Gísli, Ásta og Heiða.
Elsku amma mín, nú ert þú
farin frá okkur en ég vil trúa því
að þú sért komin á betri stað. Þú
varst alltaf svo falleg og flott. Ég
man þegar ég var lítil þegar ég
horfði upp til þín og hugsaði alltaf
hversu glæsileg þú værir, þannig
hugsaði ég enn til þín daginn sem
þú fórst. Þú varst alltaf fallega
klædd. Þú fylgdist svo vel með
öllu, þú vissir alltaf manna best
hvað gerðist í boltanum. Nánast á
hverjum einasta sunnudegi kom
ég í heimsókn og alltaf tókst þú
vel á móti mér. Það var alltaf fínt
hjá ykkur, kræsingar á boðstól-
um og smánammi í nammi-
skálinni sem var reyndar svo tóm
þegar ég fór. Þú vissir öll úrslit
leikjanna sem ég spilaði í vikunni
og við ræddum leikina fram og til
baka eins og bestu vinir.
Ég var og er svo stolt að eiga
þig sem ömmu. Þú varst ekki
bara glæsileg kona heldur ynd-
isleg amma og kenndir mér
margt. Þú varst svo hugrökk og
sterk, amma mín, en nú ert þú
glæsilegur engill á himni sem
mun vaka yfir mér og fylgjast
með.
Hvíldu í friði, elsku hjartans
amma, ég elska þig og sakna þín.
Þín
Steinunn Björnsdóttir.
Heimsins þegar hjaðnar rós
og hjartað klökknar.
Jesús gefðu mér eilíft ljós
sem aldrei slökknar.
(Höf. ók.)
Það er með miklum söknuði og
um leið þakklæti sem við kveðj-
um Guðnýju vinkonu okkar til
margra ára. Kynni okkar hófust
fyrir liðlega þremur áratugum er
við störfuðum saman í Kvenfélagi
Öldunnar. Þau kynni urðu síðar
að saumaklúbbnum okkar Öldu-
gangi og þeim vinskap sem alla
tíð hefur verið okkur dýrmætur
og eigum við margar góðar minn-
ingar í huga okkar sem við mun-
um ávallt geyma.
Þegar dags er þrotið stjá
þróttur burtu flúinn.
Fátt er sælla en sofna þá
syfjaður og lúinn.
(Rögnvaldur Björnsson)
Kæri Hörður og fjölskylda, við
sendum ykkur hlýjar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning góðrar vin-
konu.
Anna, Bára, Erna,Gerður,
Helga og Kristín.
Við hjónin kynntumst þeim
Guðnýju og Herði fyrir rúmum
30 árum. Með okkur hjónum
tókst góður vinskapur sem hefur
að geyma margar skemmtilegar
minningar. Við ferðuðumst sam-
an í húsbílum okkar innanlands
og sólarlandaferðir erlendis. Það
var margt gert í þessum ferðum
eins og tekið í spil og spjallað um
heima og geima. Margs er að
minnast og margs er að sakna.
Efst í huga okkar á þessari
stundu er þakklæti fyrir allar
góðu minningarnar sem urðu til í
þeim samverustundum sem við
eignuðumst í gegnum tíðina.
Okkur finnst það á sinn hátt for-
réttindi að hafa átt Guðnýju sem
vin og samferðakonu og munum
við varðveita það í hjörtum okkar.
Við sendum Herði og fjöl-
skyldu okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum Guð að
styrkja þau á þessum erfiðu tím-
um.
Eggert Þorfinnsson og
Kristín Ólafsdóttir.
Guðný Pála
Rögnvaldsdóttir
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ELÍNAR FRIÐRIKSDÓTTUR
frá Hjarðarhaga,
Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð fyrir ómetanlega umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnheiður Snorradóttir, Haraldur Haraldsson,
Oddný Snorradóttir,
Sigurður Snorrason, Anna Sigríður Haraldsdóttir,
Friðrik Snorrason, Ólöf Guðrún Helgadóttir,
Snorri Snorrason, Heiða Dís Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
ESTHER ÓSKARSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 10. mars.
Jarðarför hennar fór fram í kyrrþey.
Aðstandendur.
✝
Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra
föður, tengdaföður, afa og langafa,
HALLDÓRS G. STEFÁNSSONAR
húsgagnasmíðameistara,
Bugðulæk 15.
Sérstakar þakkir til allra á Hrafnistu í
Reykjavík fyrir samfylgd og viðkynningu
Sigrún, Guðrún, Bryndís, Sigurður, Guðrún Emelía,
Hörður, Halldór Gunnar, Þórdís, Victor Björgvin,
Sigrún Hrefna, Ásta Kristín, Jón Viðar, Sveinn Ragnar,
Vigdís Ingibjörg, Gunnar Emil, Brynjar Geir
og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
SKÚLI JÓNSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 13. apríl.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 19. apríl kl. 14.00
Freyja Sigurpálsdóttir,
Hulda Sigríður Skúladóttir, Oddur Örvar Magnússon,
Guðbjörg Skúladóttir, Árni Sigtryggsson,
Birgir Skúlason,
Anna Þuríður Skúladóttir,
Sigþór Kristinn Skúlason, Heidi Johannsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, afi,
tengdafaðir, sonur, bróðir, tengdasonur
og mágur,
SVAVAR SÆMUNDUR TÓMASSON
rafeindavirki,
til heimilis
á Hamratanga 15,
lést af slysförum sunnudaginn 13. apríl.
Útförin fer fram frá Bústaðarkirkju
föstudaginn 25. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Rannveig Raymondsdóttir,
Anna Hlíf Svavarsdóttir, Októ Þorgrímsson,
Tómas Örn Svavarsson,
Áslaug Svava Svavarsdóttir, Sigurður Svansson,
og barnabörn,
Tómas Sæmundsson, Esther Skaftadóttir,
Magnús Tómasson, Oddný Halldórsdóttir,
Einar Björn Tómasson,
Raymond Steinsson, Anna Kjaran
og fjölskyldur.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞRÁINN ÁRNASON
myndskeri,
Digranesheiði 21,
Kópavogi,
andaðist mánudaginn 14. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Rebekka Þráinsdóttir,
Sigurður Á. Þráinsson, Solveig K. Jónsdóttir,
Þór Þráinsson, Valborg Guðmundsdóttir,
Þráinn Þráinsson, Hulda Kristófersdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
FRIÐRIKS HARALDSSONAR
bakarameistara.
Steina Margrét Finnsdóttir,
Haraldur Friðriksson, Ásrún Davíðsdóttir,
Finnur Þór Friðriksson, Jóhanna Björnsdóttir,
Dröfn Friðriksdóttir, Arnþór Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.