Morgunblaðið - 25.04.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Sinfóníuhljómsveit Íslands mun
leika íslensk tónverk eftir Jón Leifs
og Hauk Tómasson á bresku tónlist-
arhátíðinni Proms í sumar. Þetta er
í fyrsta sinn sem hljómsveitin kem-
ur fram á þessari virtu tónlistar-
hátíð en tónleikarnir verða haldnir í
Royal Albert Hall 22. ágúst næst-
komandi.
Arna Kristín Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, segir þetta vera
mikinn heiður fyrir hljómsveitina.
„Þetta er langþráður draumur
sem nú er að rætast,“ segir hún um
tónleikana. „Í þessum klassíska
heimi tónlistar er þetta stærsta
tónlistarhátíðin. Þetta er mjög
skemmtileg hátíð en yfirbragð henn-
ar er mjög óformlegt og afslappað
en leitast er við að ná til breiðari
hóps,“ segir Arna. „Þetta er gríðar
leg landkynning og skipuleggjendur
hátíðarinnar hafa greinilega mikla
trú á okkur því þeir gefa okkur föstu
dagskvöldið í Royal Albert Hall sem
þykir flottasta tónlistarkvöldið.“
Efnisskrá tónleika Sinfóníunn-
ar verður fjölbreytt en flutt verða
meðal annars Geysir eftir Jón Leifs,
Magma eftir Hauk Tómasson, pí-
anókonsert eftir Schumann og
fimmta sinfónía Beethovens. „Ég er
sannfærð um að tónverkin sem valin
hafa verið til flutnings munu höfða
til fólks. Geysir eftir Jón Leifs er
mjög áhrifaríkt verk og Haukur
Tómasson er eitt helsta núlifandi
tónskáld okkar. Dagskráin gefur því
eins konar ágrip af okkar tónlistar-
sögu. Svo verða flutt fleiri verk eins
og til dæmis fimmta sinfónía
Beethovens sem er frægasta sin-
fónía í heimi og mikil áskorun fyrir
okkur að flytja það verk,“ segir
Arna.
Sinfónían spilar á Proms í ágúst
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur Geysi eftir Jón Leifs í Royal Albert Hall í Lundúnum
Fyrsta sinn sem Sinfóníunni er boðið að spila á Proms Langþráður draumur og mikill heiður
Proms Ilans Volkov stýrir Sinfóníuhljómsveit Íslands á Proms en einleikari verður Jonathan Bliss.
Um BBC Proms
» Proms-tónlistarhátíðin
hófst í kringum 1895. Proms er
stytting á orðinu „promenade
concert“ sem vísar til úti-
tónleika þar sem gestir geta
gengið um og spjallað á meðan
hlustað er á tónlistina.
» Þegar Proms stendur yfir
þá eru rými tónleikasalanna
nýtt betur og áhugasömum
gert kleift að kaupa miða í
stæði á sanngjörnu verði.
» Tónlistarhátíðin stendur
yfir dagana 18. júlí til 13. sept-
ember og fer að mestu leyti
fram í The Royal Albert Hall í
London.
Stjórn kjör-
dæmasambands
Framsóknar-
flokksins hefur
fullt traust Sig-
mundar Davíðs
Gunnlaugssonar,
forsætisráðherra
og formanns
Framsóknar-
flokksins, til að
velja sigurstranglegan lista fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í lok
maí að sögn Jóhannesar Þórs Skúla-
sonar, aðstoðarmanns forsætisráð-
herra. „Formaður flokksins ætlar
ekki að tjá sig um málið. Hann er
staddur á fundi með forsætisráð-
herra Hollands núna en þetta er lík-
lega fyrsti fundur forsætisráðherra
Íslands og Hollands frá því Icsave-
deilan kom upp,“ segir Jóhannes.
Listinn kynntur á þriðjudag
Óvíst er hver mun leiða lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík en
Guðni Ágústsson, fyrrverandi for-
maður flokksins, tók þá ákvörðun í
gær að leiða ekki listann í Reykjavík
en vonir voru bundnar við að Guðni
færi fyrir listanum í vor. Þórir Ing-
þórsson, formaður kjördæma-
sambands Framsóknarflokksins,
segir málin skýrast á þriðjudaginn
en þá verður nýr listi flokksins í
Reykjavík kynntur í kosninga-
miðstöð Framsóknarflokksins í
Reykjavík við Suðurlandsbraut.
Spurður hvort Guðrún Bryndís
Karlsdóttir, sem vermir annað sæti
núverandi lista muni taka við, segir
hann ekkert vera niðurneglt. „Áhugi
okkar er að fá öfluga konu til að leiða
lista Framsóknarflokksins í Reykja-
vík en það er ekkert niðurneglt,“
segir Þórir.
Í yfirlýsingu sem Guðni sendi frá
sér segir hann að að vel hugsuðu
máli og í samráði við fjölskyldu sína
ætli hann ekki að gefa kosta á sér til
að leiða listann.
Vilja öfl-
uga konu
í 1. sæti
Sigmundur treystir
kjördæmasambandinu
Þórir Ingþórsson
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Tveir prestar taka við stjórn-
artaumunum í Fíladelfíukirkjunni í
júní en á aðalfundi kirkjunnar síð-
astliðinn þriðjudag var ákveðið að
tveir prestar skyldu sinna störfum
forstöðumanns kirkjunnar, þeir
Helgi Guðnason og Aron Hinriks-
son. Taka þeir við af Verði Leví
Traustasyni.
Athygli vekur að Helgi fetar með
þessu í fótspor afa síns en föðurafi
Helga var Einar Gíslason sem var
til margra ára forstöðumaður í Fíla-
delfíu í Reykjavík og Betel í Vest-
mannaeyjum.
„Þetta er ekki með vilja gert. Ég
er alinn upp í kirkjunni og þekki
sögu hennar vel. Líf mitt hefur því
alltaf verið samofið kirkjustarfinu
en þetta er starf sem velur mann
frekar en öfugt.“
Engar sviptingar í vændum
Spurður hvort búast megi við
áherslubreytingar með nýjum
mönnum segir Helgi það vel geta
verið. „Ég hef verið aðstoðarprestur
í þrjú ár þannig að það verða ekki
miklar sviptingar en þetta er þó
gott tækifæri til þess að meta hvað
skilar góðum árangri og hvað ekki.
Við Aron munum sinna ólíkum verk-
efnum en samkvæmt íslenskum lög-
um er alltaf einn ábyrgur gagnvart
ríkinu og ég mun gegna þeirri stöðu.
Hugsunin er sú að við skiptum
þessu eftir því hvar styrkleikar okk-
ar liggja. Ég mun t.d. halda utan um
kennslustarf kirkjunnar en Aron
mun hins vegar sinna rekstri henn-
ar svo fátt eitt sé nefnt.“
Helgi sem er 31 árs segir mikla
ábyrgðartilfinningu fylgja starfinu.
„Þetta er jafn ógnvekjandi og það er
spennandi. Þó svo að við Aron séum
báðir ungir að árum þá erum við
samt samanlagt með átján ára
reynslu. Við finnum að það er mikill
hugur í fólki og allir eru reiðubúnir
að sækja fram og láta gott af sér
leiða,“ segir Helgi.
Morgunblaðið/Kristinn
Fíladelfía Helgi Guðnason prestur fetar í fótspor Einars Gíslasonar, föð-
urafa síns, sem forstöðumaður í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu.
Prestur fetar í
fótspor afa síns
Mannaskipti í Fíladelfíukirkjunni
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Útflutningstekjur af æðardúni námu 612,6 millj-
ónum króna í fyrra en þá voru 3,2 tonn af dúni
flutt úr landi, samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands. Þetta var fjórða árið sem út-
flutningur nam meira en 3 tonnum og annað ár-
ið í röð sem útflutningstekjurnar voru yfir hálf-
ur milljarður króna, segir Guðrún Gauksdóttir,
formaður Æðarræktarfélags Íslands. Um er að
ræða umtalsverða verðmætaaukningu frá fyrra
ári en 2012 fluttu Íslendingar út 3,1 tonn af dúni
fyrir 515 milljónir króna.
„Þetta hefur alltaf gengið í sveiflum en við
höfum átt mjög góð ár undanfarið og útlitið er
gott fyrir þetta ár líka,“ segir Guðrún en fyrstu
þrjá mánuði ársins voru 800 kíló seld úr landi.
Hún segir eftirspurnina mikla og kannast ekki
við að æðarbændur hafi setið uppi með birgðir
frá fyrri árum síðustu ár en stærsti hluti dúns-
ins er seldur til Japans og Þýskalands, auk þess
sem einhver kíló fara til Danmerkur, Austur-
ríkis, Frakklands og Taívans, og frá og með síð-
asta ári, Kína og Suður-Kóreu.
Votviðri á Suður- og Vesturlandi og flóð á
Norðausturlandi settu strik í reikning einhverra
æðarræktenda í fyrravor en ekki er annað að
sjá á útflutningstölunum en að ræst hafi úr þeg-
ar leið á júnímánuð. Guðrún segir æðarbændur
þegar farna að huga að varpi en sumstaðar sé
staðinn vörður um varplöndin allan sólarhring-
inn, m.a. til að vernda þau fyrir vargi. Tófan
hafi verið að sækja í sig veðrið, t.d. á Vest-
fjörðum.
Guðrún segir eitthvert æðarvarp á yfir 400
jörðum á landinu en yfir 80% alls dúns sem
seldur er í heiminum kemur frá Íslandi. Fæstir
þeirra sem hirða dúninn hreinsa hann sjálfir en
stóru hreinsunaraðilarnir eru um tíu talsins, að
sögn Guðrúnar.
Hún segir að bráðabirgðaniðurstöður nýrrar
könnunar Æðarræktarfélagsins meðal fé-
lagsmanna bendi til þess að um helmingur
þeirra sem hafa dúntekjur séu tómstundabænd-
ur og að helmingur stundi hefðbundinn búskap.
„Það er verið að vinna úr þessari könnun en við
sjáum alla vega að þetta er í mörgum tilvikum
mikilvæg tekjulind fyrir þá sem stunda hefð-
bundinn landbúnað,“ segir hún.
3,2 tonn af dúni úr landi
Útflutningstekjur af æðardúni námu rúmum 612 milljónum árið 2013 800 kíló
seld út fyrstu þrjá mánuði ársins 2014 Varp á 400 jörðum Mikilvæg tekjulind
Morgunblaðið/Einar Falur
Æðarhreiður Bændur fá í kringum 170 þúsund
krónur fyrir kílóið en í það þarf um 60 hreiður.