Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér finnst mesti heiðurinn fólginn í
því að fá Morgunblaðsskeifuna. Ég
hefði ekki getað hugsað mér að ljúka
vetrinum á betri hátt,“ segir Elísabet
Thorsteinson, nemandi á Hvanneyri,
sem fékk verðlaunagripinn Morg-
unblaðsskeifuna afhentan í gær.
Skeifan er afhent fyrir besta árangur
nemenda í hrossaræktaráfanga.
Elísabet er frá Syðri-Gróf í Flóa.
„Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á
hestum og fannst gott að geta bætt
við fræðilega hlutann með því að fara
í skeifuáfangann,“ segir Elísabet.
Hún er að ljúka búfræðinámi á
Hvanneyri í vor ásamt manni sínum,
Axel Páli Einarssyni.
„Við ætlum að reyna að hefja bú-
skap, með kýr, kindur og hesta,“ seg-
ir Elísabet. Hún telur að bú-
fræðinámið nýtist þeim vel í
búskapnum. Það sé fjölbreytt. „Ef
maður vill sérhæfa sig fer maður í
búvísindanám,“ segir Elísabet og
segir aðspurð að vel komi til greina
að bæta við sig þar. Þau Axel eiga
von á sínu öðru barni í haust og seg-
ist Elísabet vel geta hugsað sér að
byrja á fjarnámi í búvísindum næsta
vetur.
Fór hlaðinn verðlaunum
Jósef Gunnar Magnússon varð í
öðru sæti í skeifukeppninni. Hann
yfirgaf hátíðina hlaðinn verðlaunum.
Hann sigraði í keppninni um Gunn-
arsbikarinn. Fékk ásetuverðlaun Fé-
lags tamningamanna og Eiðfaxabik-
arinn sem er veittur fyrir besta
árangur í bóklegu námi í hrossa-
rækt.
Jósef var ánægður með daginn.
„Þetta er miklu meira en ég bjóst
við.“ Hann segist hafa mikinn áhuga
á hestum og kindum og þótt hann búi
á Sauðárkróki er hann öllum stund-
um í sveitinni, í Steinnesi í Austur-
Húnavatnssýslu. Jósef stefnir að því
að fara í iðnskóla til að læra smíðar.
Einnig er á dagskrá hjá honum að
mennta sig betur í hrossaræktinni.
Skafti Vignisson fékk framfara-
verðlaun Reynis Aðalsteinssonar. Ír-
is Björg Sigmarsdóttir sigraði í
keppni reiðmanna um Reynisbikar-
inn.
Skeifudagur Grana er ávallt hald-
inn sumardaginn fyrsta en Grani er
hestamannafélag skólans. Morg-
unblaðsskeifan hefur verið veitt ár-
lega í 57 ár. Nemendur sýndu af-
rakstur vetrarstarfsins í reið-
mennsku og frumtamningum í
hestamiðstöðinni á Mið-Fossum og
keppt var til úrslita í nokkrum grein-
um.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Árangur Þau fengu verðlaunin á skeifudaginn, Björgvin Búi Jónasson, Jósef Gunnar Magnússon, Elísabet Thor-
steinson skeifuhafi og Skafti Vignisson sem fékk framfaraverðlaun Reynis Aðalsteinssonar.
Ekki hægt að hugsa sér
betri endi á vetrinum
Elísabet Thorsteinson fékk Morgunblaðsskeifuna
Mikil ásókn er í „reiðmanninn“,
námskeiðaröð í reiðmennsku
sem Endurmenntun Landbún-
aðarháskóla Íslands stendur fyr-
ir. Í vetur voru tæplega hundrað
nemendur við nám í átta hópum
víðsvegar um landið. Í gær út-
skrifuðust um sextíu reiðmenn
við athöfn á Hvanneyri og að
auki þrettán úr framhalds-
námskeiði „reiðmannsins“.
„Reiðmaðurinn“ er áfanga-
skipt tveggja ára nám í reið-
mennsku, hrossarækt og al-
mennu hestahaldi. Námið er
byggt upp sem röð af helgar-
námskeiðum þar sem nemendur
koma einu sinni í mánuði með
eigin hest og taka fyrir ákveðinn
hluta af reiðmennskunni. Einnig
er farið yfir bóklegt efni í fyrir-
lestrum og með fjarnámi. Námið
getur hentað hestaáhugafólki á
öllum aldri því það er stundað
með vinnu.
Heimir Gunnarsson reiðkenn-
ari segir að enn sé töluverð
ásókn í þetta nám um allt land.
Umsóknarfrestur er ekki liðinn
en útlit fyrir að næg þátttaka fá-
ist í hópum um allt land.
Sextíu reiðmenn útskrifast
NÁMSKEIÐARÖÐ ENDURMENNTUNAR LANDBÚNAÐARHÁSKÓLA
Útreiðartúr Hestaáhugafólk á öllum
aldri tekur þátt í námskeiðaröðinni
Reiðmanninum á Hvanneyri.
Morgunblaðið/Ómar
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
06
29
Flottar
fermingargjafir
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
Glæsileg 200 m² hæð
Mánaðarleiga kr. 180 þús.
Við bjóðum öll afmælisbörn
velkomin og gefum þeim fría
n
eftirrétt í tilefni dagsins.
afmaeli?
Attu´
Til hamingju!!!
H
ug
sa
sé
r!