Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014 ára ábyrgð Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - ofnasmidja@ofnasmidja.is - simi 577 5177 Óskum öllum landsmönnum gleðilegs sumars... 6.990,- Fituhreinsir 1 ltr. 4899,-4899,- Home Swim pakki, hreinsiefni án klórs 999,- Síuhreinsir 2 fyrir 1 Úrval fylgihluta fyrir heita potta á tilboði í tilefni sumarsins... COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál 114.999,- Handklæðaofn mánaðarins Fullt verð 124.999,- *Tilboðin gilda út maí á meðan birgðir endast. 10-20% afsláttur m i ð s t ö ð v a r o f n a r Froðueyðir 1 ltr. Fullt verð 5.443,-Fullt verð 5.443,- Fullt verð 1.249,- Mark Shand, bróðir Camillu Parker Bowles, eiginkonu Karls Breta- prins, var úrskurðaður látinn í gær á sjúkrahúsi í New York í Banda- ríkjunum í kjölfar þess að hann féll og rak höfuðið í gangstétt fyrir ut- an barinn Rose Bar við Gramercy Park á Manhattan. Fram kemur í frétt AFP að Mark Shand, sem var ötull umhverf- isverndarsinni, hafi verið úti á líf- inu þegar slysið átti sér stað. Haft er eftir talsmanni Karls Bretaprins að Camilla sé niðurbrotin vegna frétta af dauða bróður síns. Shand var 62 ára að aldri og skilur eftir sig 19 ára dóttur. Bróðir Camillu Par- ker Bowels látinn BRETLAND Abdullah Abdullah, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Afganistans, hefur enn forystu þegar búið er að telja 80% atkvæðanna í forsetakosning- unum sem fram fóru í landinu í byrjun aprílmán- aðar. Abdullah er með 43,8% at- kvæða en hans helsti andstæð- ingar, Ashraf Ghani, kemur næst á eftir með 32,9%, að því er segir í frétt AFP. Fái enginn frambjóðandi hreinan meirihluta atkvæða verður kosið aftur milli tveggja efstu í maí- mánuði. Endanleg úrslit þessara kosninga eiga að liggja fyrir eftir helgi. Líklega kosið aftur í Afganistan Abdullah Abdullah AFGANISTAN Skattayfirvöld á Ítalíu hafa verið á eftir Giorgio Armani um nokkurt skeið en hann var sagður skulda ítalska skattinum töluverðar fjár- hæðir sem hann kom undan í skattaskjól. Nú hefur hönnuður- inn hins vegar fallist á að greiða ítalska ríkinu 270 milljónir evra eða sem nemur nærri 41 millj- arði íslenskra króna. Skattskuldina má rekja til áranna 2002 -2009 þeg- ar dótturfélög í eigu Giorgio Arm- ani voru skráð í skattaskjólum utan Ítalíu. Armani mótmælti í fyrstu kröfum ríkisins harðlega en málið endaði með samningum og fór ekki fyrir dómstóla. Samkvæmt Forbes- tímaritinu veltir fyrirtæki Armani 1,2 milljörðum evra árlega, eða því sem nemur 186 milljörðum ís- lenskra króna. Borgar skattinum sem nemur 41 milljarði króna Giorgio Armani ÍTALÍA Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Þrír bandarískir læknar voru drepnir í skotárás í Kabúl, höfuðborg Afgan- istans, á þriðjudaginn. Öryggisvörður sem gæta átti öryggis heilbrigð- isstarfsfólksins á spítala í borginni snéri vopni sínu að starfsfólki og sjúklingum spítalans og hóf skothríð. Auk læknanna þriggja sem létu lífið dó lítill drengur og faðir hans en þeir voru að sækja þjónustu spítalans. Þá særðist einn hjúkrunarfræðingur og læknir í skothríðinni. Barna- og fæðingarspítali Árásamaðurinn er í haldi lögregl- unnar í Kabúl en ekki er vitað hvaða ástæða liggur á bak við árás hans á lækna og sjúklinga spítalans sem er barna- og fæðingarspítali sem rekinn er af alþjóðlegum góðgerða- samtökum. Spítalinn sem nefnist Cure International Hospital er enn ein erlenda heilbrigðisstofnunin í Afganistan sem verður fyrir árás af þessu tagi. Cure-spítalinn í Kabúl tekur við hátt í 37 þúsund sjúklingum á ári og hefur um 100 sjúkrarúm og því starfa við hann tugir erlendra lækna og hjúkrunarfræðinga. Ráðist á lækna og hjúkrunarfólk í Kabúl  Þrír bandarískir læknar og tveir sjúklingar voru drepnir í skotárás á Cure-spítalann í Kabúl á þriðjudaginn AFP Skotárás Ráðist á erlent heilbrigðisstarfsfólk í Afganistan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.