Morgunblaðið - 25.04.2014, Side 15

Morgunblaðið - 25.04.2014, Side 15
afla skipt á milli skipaflokka. Fyr- irkomulag veiðanna verður í flestu sambærilegt við það sem var í fyrra. Mest kemur í hlut uppsjávar- skipa sem byggja á aflareynslu, eða 103 þúsund tonn. Frystiskip mega veiða tæplega 31 þúsund tonn. Takmarkanir eru á flutningi á milli skipaflokka og heyra má á útgerðarmönnum gagnrýni á að ekki sé heimilt að flytja óheft á milli skipa í eigu sömu útgerðar. Í ár mega krókabátar veiða sex þúsund tonn á makríl og er það talsverð aukning frá því fyrra. Þá var miðað við 3.200 tonn í upp- haflegri reglugerð, en þegar leið á sumar og útgefið aflamagn var að fullu veitt ákvað ráðherra að heimila áframhaldandi veiðar til 20. september. Uppbótartímabilið skilaði tæplega 1.500 tonnum. Landssamband smábátaeigenda gerir ráð fyrir að yfir 100 bátar stundi makrílveiðar í sumar. Þeir voru 98 í fyrra, en aðeins 17 árið á undan. Útbúnaður til veiðanna er kostnaðarsamur og hleypur á milljónum króna. Aukið framboð hefur áhrif Makrílveiðar í Norðaustur-Atl- antshafi hafa aukist flest árin frá 2006 og útlit er fyrir hressilega aukningu á þessu ári eða úr um 900 þúsund tonnum í yfir 1300 þúsund tonn í ár. Í samningi ESB, Noregs og Færeyja er miðað við 1.240 þúsund tonn. Þar er afli Grænlendinga ekki talinn með, en þeir hafa sett sér 100 þúsund tonna kvóta. Líklegt er að aukið framboð hafi áhrif á verð á mörkuðum og einnig spilar þar inn í óvissa í Rússlandi og Úkraínu, en í báðum þessum löndum eru sterkir markaðir fyrir makríl frá Íslandi. Alþjóða hafrannsóknaráðið, ICES, lagði fyrir síðasta ár til að veiðin færi ekki yfir 542 þúsund tonn, en hún varð um 900 þúsund tonn. Fyrir árið í ár var ákveðið að styðjast ekki við stofnmatslíkan í veiðiráðgjöf. Meginástæða þess var að aflagögn fram til ársins 2006 voru metin óáreiðanleg. Stofninn enn stærri Gagnagreining benti til þess að stofnstærðin hefði verið vanmetin og ekki væri verjandi að byggja ráðgjöf áfram á þessum gögnum. „Þetta bendir til þess að þrátt fyr- ir veiðar umfram ráðgjöf undan- farin ár sé stofninn ekki ofveidd- ur,“ sagði í tilkynningu ICES síðasta haust. Ráðlagt aflamark fyrir árið 2014 var því ákvarðað út frá meðaltali heildarafla síðustu þrjú ár. Jafn- framt hófst í vetur rýnivinna við nýtt stofnmat og er niðurstöðu þeirrar vinnu að vænta 9. maí næstkomandi. Búist er við að stofninn verði þar metinn talsvert stærri en áður. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Það er mat Hafnarfjarðarkaupstað- ar að flutningur aflaheimilda frysti- togarans Þórs HF-4 úr sveitarfé- laginu hefði verulega neikvæð áhrif fyrir bæjarfélagið. Ljóst sé að for- kaupsréttur sé til staðar því meðal annars yrðu möguleikar á fjölmörg- um störfum í fiskvinnslu og á bátum ekki til staðar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Hafnar- fjarðar til sjávarútvegsráðherra, en ráðuneytið fór fram á rökstuðning fyrir verulega neikvæðum áhrifum í atvinnu- og byggðalegu tilliti af því að umræddar heimildir hyrfu úr byggðarlaginu. Í svarinu segir að miðað við 4.800 þorskígildistonn megi áætla að afla- verðmætið gæti numið 1.152 millj- ónum kr., miðað við kílóverð 240). Gera megi ráð fyrir að um 65 manns geti haft atvinnu af fiskvinnslunni og einnig myndu sjómenn á einu línuskipi og þremur til fjórum minni bátum hafa umtalsverðar tekjur. Gera megi ráð fyrir að um 40% af aflaverðmæti kæmu í hlut sjó- manna. Áætlað er að afleidd störf vegna útgerðar og fiskvinnslu myndu nema um 15% af tekjum fiskvinnsl- unnar. Þá megi ætla að tekjur Hafnarfjarðarhafnar yrðu um 14 milljónir. Miðað við þessar forsend- ur yrðu árlegar tekjur sveitarfé- lagsins varlega álætlaðar um 140 milljónir, segir í svarinu. Umtalsverðar tekjur Þar segir ennfremur: „Með því að aflaheimildirnar hverfa burt úr sveitarfélaginu er ljóst að sveitarfé- lagið er að verða af umtalsverðum tekjum. Þetta varðar ekki síst þá möguleika sem tengjast þeim breyt- ingum, sem nú eru að verða í sjávarútvegi, þ.e mun meiri land- vinnsla í stað þeirrar framleiðslu sem farið hefur fram úti á sjó í stórum frystitogurum síðustu árin. Það er ljóst að þessi þróun mun hafa í för með sér mun meiri umsvif en verið hefur. Með því að aflaheim- ildirnar eru seldar burt lokast á þessa möguleika.“ Möguleikar á 65 störfum í landi hverfa  Hafnarfjarðarbær rökstyður kröfur um forkaupsrétt á aflaheimildum Þórs HF Morgunblaðið/Ómar Til Rússlands Frystitogarinn Þór HF 4 við bryggju í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.