Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014 Önnur þjónusta Dekk Púst Smurning Bremsur Fjöðrun Rafgeymar Gott grip allt árið Dekk vinna með fjöðrunarkerfi bílsins, það er mikilvægt að dekkin séu í réttum hlutföllum og útfærslu til að tryggja góða rásfestu og grip. Vertu öruggari í umferðinni. Þú færð réttu dekkin hjá BJB. BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is | Opið: mánud. til fimmtudaga kl. 8:00 - 18.00, föstudaga kl. 8:00 - 16:30 Fólksbíla dekk Jeppadek k Sendibíla dekk Keppnisd ekk Sportbíla dekk Sportjep padekk Opið laugardaginn 26. apríl frá 9-14 Við í Ungmenn- aráði Hafnarfjarðar vorum gestgjafar dagana 11.-16. apríl sl. fyrir þrjú ungmennaráð frá Austrheim og Radøy í Noreg og Gulbene, Lettlandi. Ástæðan fyrir því að við vorum gestgjafar fyrir þessi ungmennaráð hér á Íslandi var sú að við erum að vinna að sameiginlegu lýðræðisverkefni. Norski hópurinn og Ungmennaráð Hafnarfjarðar fóru til Lettlands í október á síð- asta ári og lögðu grunninn að lýð- ræðisverkefninu þar. Eftir þá ferð fóru öll ungmennaráðin að vinna í aðferðum, sem við lærðum hjá hin- um ráðunum í sínum heimalönd- um. Verkefnið okkar ber heitið Yo- uth: your voice og er styrkt af Evrópu unga fólksins (EUF). Meg- inatriði í verkefninu er að gera ungmenni að virkum þátttak- endum í sínu nærumhverfi ásamt því að læra hvert af öðru mismun- andi aðferðir til þess að ná því markmiði. Okkur finnst vanta að ungt fólk láti rödd sína heyrast, þess vegna sóttum við um þennan styrk til þess að geta lært af öðr- um ungmennaráðum hvernig skal fara að því. Einnig var þetta frá- bær lífsreynsla að hitta fólk frá öðrum ungmennaráðum og kynn- ast öðruvísi menningarheimum. Þegar við vorum í Lettlandi gerðum við mörg verkefni sem tengdust lýðræði og hvernig ungt fólk skal láta í sér heyra, einnig fórum við í margar vett- vangsferðir. Við fórum á fund með bæj- arstjóranum í Gul- bene, Nikolajs Step- anovs, og ræddum við hann um þátttöku ungs fólks. Þegar heim var svo komið þá fór- um við í Ungmenn- aráði Hafnarfjarðar strax að vinna í að- ferðunum sem við lærðum að hinum, sem voru meðal annars að halda súpu- hitting með bæjarstjórninni í Hafnarfirði. Það var þannig að við hittum bæjarstjórnina, borðuðum súpu og töluðum um málefni sem tengjast ungmennum í Hafnarfirði. Þegar ungmennaráðin frá Lett- landi og Noregi komu hingað til lands vorum við öll búin að prófa þær aðferðir sem við völdum í Lettlandi. Kynningar fóru fram og kom margt mjög athyglisvert fram. Eftir kynningarnar fórum við að hitta forsetann, Ólaf Ragnar Grímsson, fengum að skoða Bessa- staði og töluðum síðan við forset- ann í smátíma, um lýðræði að- allega. Við hittum einnig bæjarstjórann í Hafnarfirði, Guð- rúnu Ágústu Guðmundsdóttur. Einnig fórum við á Alþingi og fengum afar góða leiðsögn um starfshætti og sögu hússins. Við löbbuðum síðan yfir í Hitt húsið, fengum kynningu á starfsemi þeirra og hvað er í boði fyrir ungt fólk í Reykjavík. Umboðsmaður barna, Margrét María, heimsótti okkur einnig. Seinasta daginn unn- um við í stuttmynd sem á að vera um verkefnið okkar og verður hún síðar frumsýnd á Björtum dögum í Bæjarbíói. Stuttmyndin verður einnig aðgengileg á heimasíðu Evrópu unga fólksins. Síðari hlut- inn í verkefninu var svo að meta verkefnið. Það er mjög lærdóms- ríkt að fara í gegnum hvernig tókst til með verkefnið, verkefni sem við stóðum að saman sem hóp- ur frá mismunandi löndum. Það má þó segja að okkur þótti öllum sú reynsla sem við gengum í gegn- um ómissandi lífsreynsla. Verkefnið gekk að mestu leyti að vonum og við lærðum mikið hvert af öðru. Við teljum verkefnið vera ágætlega heppnað, náðum helstu markmiðum okkar og eign- uðumst vini fyrir lífstíð. Mér fannst hápunktur þessa verkefnis vera að kynnast þessum frábæru krökkum og að læra allar þessar góðu aðferðir sem hafa virkað svo vel. Ég hvet öll ungmenni á Íslandi til þess að finna leiðir til þess að láta rödd sína heyrast, ekki bara innanlands heldur einnig út fyrir landsteinana – því við erum fram- tíðin í samfélaginu! Ungt fólk er framtíðin Eftir Elínu Láru Baldursdóttur Elín Lára Baldursdóttir » Það er mjög lær- dómsríkt að fara í gegnum hvernig tókst til með verkefnið, verk- efni sem við stóðum að saman sem hópur frá mismunandi löndum. Höfundur er fulltrúi í Ungmennaráði Hafnarfjarðar. Ísland og hafið þeir bjóða til umhverfissóða. Allt mun uppúr sjóða, því Kínatíkin er lóða. Kína landið sá, verður það að fá. Landinn má það sjá að Kína koma má. Leyfi fyrir olíubora, fyllist allt af sora. Allt mun niðurtroða, ekki mun sjást til sólroða. Lofthelgi Kína kannar með norðurljósaskanna. Enginn þeim það bannar, getuleysi stjórnvalda það sannar. Með skipum koma rottur, víða brotinn pottur. Líða mun fyrir fagur grastoppur og grábröndóttar kattarloppur. Dýrin mín stór og smá Kína ei éta má. Þurfum því að vera kná, til í slaginn og að slá. Árnar mínar renna tært, fæ það ekki nógu mært. En Kína hefur í þær nælt, að misnota þeir hafa lært. Land og dýr munu gráta, af engu verður að státa. Kína mun ei láta á nokkurn hátt sig máta. Grátur minn frá fjöru að fjalli, hlustaðu, hvíti jökulskalli. Sittu kyrr á þínum stalli þó Kína valdi falli. Drepast mun norðurhafið. Ekkert fær það tafið. Á því verður barið, allan ís skal kramið. Skjálfa mun jörð, rifna rofabörð. Slegið of nálægt svörð hjá þreyttri móður jörð. Alþingi brást. Ei munu sættir nást. Það fyrir sást, að stjórnvöld eiga bágt. Harmþrungin hljóð heyrast frá móður jörð. Ansi er orðin móð, því slegið er niðri við svörð. Unga fólk, verjið landið. Slítið ei bandið, er ykkur bindur, föðurlandið við. Þegar síðasti fiskur veiðist úr súru hafi, síðasti fugl fellur vegna hungurs, er síðustu misþyrmdu dýr- in falla, ár þorna og tré falla. Þá fyrst mun maðurinn skilja að hann étur ekki peningaseðla. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR Sauðárkróki. . Skilaboð, mín sýn Frá Stefaníu Jónasdóttur mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.