Morgunblaðið - 25.04.2014, Page 10

Morgunblaðið - 25.04.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014 Auður Albertsdóttir audura@mbl.is Fágun er félag áhugamannaum gerjun sem stofnaðvar árið 2009. Að sögn Ey-vindar Karlssonar, for- manns Fágunar, er markmið félags- ins að deila þekkingu og stuðla að umræðu um gerjum á bæði drykkjum og matvælum. „Fágun byrjaði sem hópur á Facebook sem þróaðist í spjallborð en er núna orðið félag. Bjór hefur alltaf verið rauði þráðurinn í umræðunni en við skoð- um líka vín og osta, súrkál og brauð og hvað sem hægt er að gerja heima hjá sér.“ Að sögn Eyvindar er erfitt að áætla hversu margir eru í félag- inu nákvæmlega en meðlimir eru eitthvað um 50 til 70 talsins og bæt- ist ört við. Yfir 50 innsendingar bárust Á laugardaginn fer fram á Kex hostel árleg keppni Fágunar í bjór- gerð þar sem dómnefnd velur besta heimabruggaða bjórinn. „Kepp- endur skiluðu inn bjórum sem þeir hafa bruggað fyrir um hálfum mán- uði síðan. Við erum með dómnefnd sem er skipuð bjór- og matarspek- ingum, vínsmökkurum, kaffibar- þjónum og allskonar fólki sem er í góðum tengslum við bragðlaukana í sér,“ segir Eyvindur. Segir hann jafnframt að dómnefndin muni fara faglega yfir bjórana, meta þá og gefa þeim einkunnir. Síðan eru úrslit kynnt um kvöldið. Óhætt er að segja að áhuginn sé mikill en að sögn Ey- vindar bárust keppninni hátt í 50 innsendingar. „Ég er nokkuð viss um að innsendingarnar í ár séu fleiri en nokkurn tímann fyrr í keppninni, Sífellt fleiri brugga sinn eigin bjór Á morgun mun fara fram árleg bjórgerðarkeppni Fágunar, sem er félag áhuga- manna um gerjun. Félagið er ört vaxandi en markmið þess er að stuðla að um- ræðu og deila þekkingu á gerjun. Keppnin er haldin á Kex hostel og hafa um 50 heimabruggaðir bjórar verið sendir til leiks. Stjórn Eyvindur Karlsson hefur búið til sinn eigin bjór síðan 2008. Félagsstarf Fágun heldur úti öflugri heimasíðu og mikilli starfsemi. Nú þegar sólin er farin að skína á vetrarpínda Íslendinga er næsta víst að þeir draga fram grillin sín og fara að glóðarsteikja matinn sinn. Þá er gott að hafa ýmislegt í huga og á vef- síðunni leiðbeiningastöð.is eru mörg góð grillráð. Þar kemur m.a. fram að fjölhringja efnasambönd myndast við bruna á aminósýrum (próteini), krea- tíni og fleiri efnum sem eru í kjöt- vöðva. Þessi efni myndast síður þeg- ar fiskur og grænmeti er grillað. Því skal skera burtu brunnin svæði á bit- um áður en þeirra er neytt. Blóðvökvi brennur líka og því getur verið gott að „loka“ kjöti með því að snögg- steikja á pönnu áður en það fer á grillið. Forðast skal að grilla kjöt lengi, með því móti er hægt að koma í veg fyrir kolun. Fyrirbyggjandi aðferð er að skera alla fitu af kjöti áður en það er grillað. Njótið sumarsins og góða grillaða matarins! Vefsíðan www.leidbeiningastod.is Morgunblaðið/Ómar Gagnleg grillráð fyrir sumarið Hún Anna Rósa Róbertsdóttir grasa- læknir er iðin við kolann. Hún ætlar að vera með sýnikennslu í gerð græð- andi jurtasmyrsla þann 5. maí. Þar getur fólk lært að búa til slík smyrsl og allir fá smyrsl með sér heim og námsgögn fylgja. Á námskeiðinu fjallar Anna Rósa einnig um algengar lækningajurtir sem notaðar eru í smyrsl. Námskeiðið er haldið í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5. Takmark- aður fjöldi kemst að og aðeins þetta eina námskeið verður hún með á þessu ári. Skráning fer fram á heima- síðu Önnu Rósu: www.annarosa.is/vorur/namskeid. Endilega… …lærið að búa til jurtasmyrsl Anna Rósa Iðinn grasalæknir. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Þeir sem hafa áhuga á tungumálum, mannlífi og mannlegum samskiptum ættu ekki að láta Café Lingua fram hjá sér fara á morgun, laugardag, kl. 14 í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi. Þar ætla félagar í félagi Filipps- eyinga á Íslandi, Phil-Ice, að veita gestum innsýn í þau fjölmörgu tungumál sem eru töluð á Filipps- eyjum, ásamt ýmsum menningar- legum hefðum og siðum sem eru ríkjandi í landinu. Eitt af markmiðum Café Lingua er að virkja þau tungu- mál sem hafa ratað til Íslands og auðgað mannlíf og menningu í sam- félaginu og um leið að vekja forvitni borgarbúa um heiminn í kringum okkur. Cafe Lingua fer fram á fjórum stöð- um í borginni, á Borgarbókasafni, í Bíó Paradís, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og í Háskóla Íslands. Café Lingua á morgun í Gerðubergi Reuters Filippseyjar Veiðmaður hugar að veiðigildru sinni við Manilaflóa. Fáið innsýn í fjölmörg tungumál sem eru töluð á Filippseyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.