Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Óbr
eytt
verð í 4 ár
FYRIR ÓLITAÐ HÁR
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR.
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305 | har@har.is | REDKEN Iceland á
FYRIR HÁRLOS
FYRIR ÚFIÐ HÁR FYRIR LJÓST HÁR
FYRIR ÞURRT HÁR
FYRIR KRULLAÐ HÁR
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
SENTER
SCALA
SALON VEH
SALON REYKJAVÍK
PAPILLA
N-HÁRSTOFA
LABELLA
MENSÝ
MEDULLA
KÚLTÚRA
HÖFUÐLAUSNIR
HJÁ DÚDDA
FAGFÓLK
BEAUTY BARFYRIR FÍNGERT HÁR
FYRIR LITAÐ HÁR FYRIR SKEMMT HÁR
FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ
REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það lífi
PRÓTEINRAKI
FYRIR LÍFLAUST HÁR
Aldurinn hefur farið blíðum höndum um trúð-
inn Ronald McDonald, sem varla virðist hafa
elst um dag þrátt fyrir að hafa verið andlit
McDonald’s veitingastaðanna í rösklega hálfa
öld.
Nú hefur fyrirtækið ákveðið að hressa upp á
ímynd Ronalds og láta hann taka virkari þátt í markaðs-
starfinu á öld netsins.
Hefur trúðurinn fengið nýtt sett af flíkum, ögn betri
hárgreiðslu og er á leiðinni á Twitter.
MarketWatch, markaðsvefur Wall Street Journal, segir
að trúðurinn brosmildi hafi verið látinn halda sig til hlés
undanfarin ár og ekki verið mjög áberandi í markaðsefni
McDonald’s. Er þetta langa frí frá sviðsljósinu talið tengj-
ast gagnrýni í garð McDonald’s um að trúðurinn laði börn
að mishollum réttunum á matseðlunum.
Á sama tíma hefur keðjan þótt eiga við ákveðinn ímynd-
arvanda að etja og gengið brösuglega að tengjast yngri
kynslóðum neytenda.
Með því að virkja Ronald á ný og láta hann tjá sig á
Twitter (#RonaldMcDonald) vonast stjórnendur keðjunnar
til að fanga athygli neytenda á nýjan hátt og gefa vöru-
merkinu nútímalegra yfirbragð sem er meira með á nót-
unum. ai@mbl.is
Ronald McDonald fær andlitslyftingu
AP
Tískan Nýi
Ronald til
hægri og sá
gamli til
vinstri.
Guli sam-
festing-
urinn hefur
vikið fyrir
jakka og
rúgbí-bol.
Stígur fram í sviðsljósið til að
hressa upp á ímynd keðjunnar
Höftin í
samræmi
við EES
Gjaldeyrishöftin sem í gildi eru á Ís-
landi eru í samræmi við EES-
samninginn enda sé unnið að því að
afnema þau. Sér framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins enga ástæðu til
að hrófla við EES-samningnum
þrátt fyrir höftin.
Þetta segir Catherine Ashton, ut-
anríkismálastjóri ESB, í svari sínu
til danska Evrópuþingmannsins
Mortens Løkkegaard.
Í svari sínu segir Ashton að frjálst
flæði fjármagns sé ein af und-
irstöðum innri frjáls markaðar og
ómissandi hluti af regluverki EES,
en samt sem áður séu heimildir til
staðar sem leyfa að settar séu höml-
ur á flæði fjármagns milli ESB- og
EFTA-ríkja. EFTA-dómstóllinn
hafi úrskurðað í þá veru í desember
2011 og hafi jafnframt verið fullt
samráð um framkvæmd haftanna
milli Íslands, EFTA og sameignlegu
EES-nefndarinnar. ai@mbl.is
Samfélagsmiðillinn vinsæli birti á
miðvikudag sterkar ársfjórð-
ungstölur. Tekjur Facebook jukust
um 72,% m.v. sama tímabil í fyrra og
námu 2,5 milljörðum dala, vel yfir
þeim 2,36 milljörðum sem markaðs-
greinendur höfðu vænst.
Þessar kröftugu sölutölur skrifast
bæði á að auglýsendur leita í aukn-
um mæli til Facebook og sömuleiðis
að virkum notendum hefur fjölgað
um 15% og eru nú samtals um 1,28
milljarðar manna í þeim hópi. Þar af
eru 802 milljónir sem fara á Face-
book daglega og er það 21% fjölgun
frá sama tíma fyrir ári.
Athygli vekur að mikil aukning
hefur orðið í tekjum af auglýsingum
í snjallsímaútgáfu Facebook. Stóð
farsímahliðin undir 59% af auglýs-
ingatekjunum en var aðeins 30% ári
áður, og var 53% á síðasta fjórðungi
2013.
MarketWatch greinir frá að Fa-
cebook stefni að því að opna n.k.
auglýsingamiðlun fyrir snjallsíma-
forrit, og gera auglýsendum þannig
kleift að kaupa auglýsingar í öðrum
snjallforritum, en notast um leið við
gagnasöfn Facebook í herferðum
sínum. Á nýja auglýsingakerfið líka
að auðvelda auglýsingar á hreyfi-
myndaformi í snjallsímum og vonast
Facebook til að taka þannig til sín
sneið af sjónvarpsauglýsingakök-
unni. ai@mbl.is
AFP
Samskipti Allir eru alltaf á Facebook. Stúlka í Kabúl skoðar „lækin“ sín.
Auglýsingasala stór-
jókst hjá Facebook
Sigþór Jónsson
hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
eignastýr-
ingasviðs
Straums fjárfest-
ingabanka hf. Í
tilkynningu frá
bankanum segir
að Sigþór muni
hefja störf 1. ágúst.
Sigþór var áður framkvæmda-
stjóri Landsbréfa og gegndi hann
því starfi frá 2012. Áður var hann
forstöðumaður sérhæfðra fjárfest-
inga hjá Stefni hf. Er Sigþór við-
skiptafræðingur frá Háskóla Íslands
og hefur hann lokið prófi í löggildri
verðbréfamiðlun ai@mbl.is
Sigþór Jóns-
son til Straums
Sigþór Jónsson
mbl.is
alltaf - allstaðar